Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 12

Morgunblaðið - 10.11.1974, Side 12
fólk — fólk — fólk — fólk fólk — fólk — fólk — fólk Heimsókn í leifar Lundabyggðar: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974 RABBAÐ VIÐ STEFANÍUBRYNJÓLFSDÓTTUR OG ÞÓRARIN JÓNSSON FRÁ STARMÝRI í ÁLFTAFIRÐI þar hafa verið oftast þrír, fjórir ábúendur. Sonarsonur okkar býr nú á okkar parti, eftir að sonur okkar, sem tók við búinu af okkur, fluttist á Djúpavog. — Bústofninn var ekki stór, þegar við byrjuðum, bætir Þórarinn við. — Tvær, þrjár kýr, ætli það hafi verið meira, þá var engin mjólk seld. Og innan við hundrað kindur i fyrstu. Þetta voru erfið ár um það leyti, sem okkar búskapur hefst, harðæri og hálfgerð kreppa og engar vélar. Erfitt að fá vinnufólk. Við urðum fyrir því árið 1929, að Stefanía fékk lömunarveikina og hefur upp frá því verið lömuð í fótunum. — Ég var á annað ár á spítala vegna lömunarveikinnar, segir Stefanía. — Var í rafmagnsböð- um og nuddi. Svo fór ég austur aftur. Eldri dóttir okkar hjálpaði mikið til, en við feng- um vinnukonu og þetta bjargaðist allt blessunarlega. Það tjóir ekkert að vera að kvarta og allt hefur f>etta geng- ið. Eftir að ég brotnaði á fætin- — Það var timburhús komið, að nafninu til, en entist illa. Árið 1933 réðst ég i að byggja steinhús og er enn búið i þvi. Það var nokkuð stórt — á þess tíma mælikvarða minnsta kosti. Framan af var nú ekki almenni- leg upphitun í því, en hún kom seinna. Og salerni þekktist nú ekki þá til að byrja með. — Hvenær komuð þið í Hveragerði? — Það verða þrjú ár í febrú- ar, segir Stefania. — Og feng- um þetta ágætis hús. Hér býr hjá okkur ein kona og við höf- um allt sameiginlegt nema svefnherbergi. Heimilið leggur okkur til húsmuni og allt, sem við þörfnumst, og aðhlynning er prýðileg. Þórarinn borðar í mötuneyti heimilisins og færir mér síðan mat hingað. Þó að ég geti hreyft mig innanhúss á hækjum treysti ég mér ekki til að ferðast mikið. Svo leggur heimilið okkur til kaffi og brauðmeti hér, svo að við get- um Iagáð okkur einfaldar mál- tiðir og fengið okkur kaffisopa, hvenær sem okkur langar til fyrir stafni, annars verður mað- ur enn eldri i anda og til lík- amans. Við horfum á sjónvarp, sérstaklega innlenda efnið og fylgjumst með því, sem er að gerast, eftir mætti. Heyrnin hefur dofnað hjá mér en mér finnst ég vera ágætlega hress. Þó er ég að verða 88 ára og Stefanía verður 83 næst. Og við eigum reyndar sextíu ára hjú- skaparafmæli þann 15. desem- ber, ef við tórum. Það er ekki oft, sem fólk fær að vera svona lengi saman. — Og þetta hefur gengið stór- slysalaust, segir Stefania og kimir. — Sambúðin meina ég. Ég hef fyrir löngu sætt mig við mína fötlun og mér finnst eng- in ástæða til að kvarta meðan við höldum þessari heilsu. Hug- urinn hvarflar vissulega oft austur á bernskuslóðirnar, en það er gott að vera hér í Hvera- gerði. Börnin okkar þrjú og barnabörn og barnabarnabörn sýna okkur ræktarsemi og við höfum fyrir margt að þakka. h.k. ENGIN ASTÆÐA TIL AÐ KVARTA, MEÐAN HEILSAN ER GÓÐ OG VIÐFÁUMAÐ VERA SAMAN ÞAU eru ættuð úr Alftafirði eystra og bjuggu á Starmýri þar í sveit I áratugi. Svo urðu þau að flytjast suður eftir að Stefanía varð fyrir því að fót- brotna, en áður hafði hún verið lömuð í fótunum frá árinu 1929. Nú hafa þau búið um sig i Ási í Hveragerði og hafa þar til umráða eitt af húsum Elli- og dvalarheimilisins og una sín- um hag vel. Blaðam. Mbl. heim- sótti þau á dögunum. — Við byrjuðum búskap árið 1914 á Starmýri, en þar er ég fædd og uppalin, segir Stefanía. — Jörðin er stór og um varð margt erfiðara og eftir langar dvalir á sjúkrahúsum og síðar á Reykjalundi ákváðum við að flytjast suóur. — En ég var byrjaður að slétta túnið á Starmýri, segir Þórarinn — Og eftir að vélarn- ar komu til sögunnar — maður lifandi, þá varð þetta eins og leikur. Mýrarnar ræstar, fram og melarnir græddir upp, það eru miklir möguleikar þarna fyrir austan. — Hvernig var húsakostur á Starmýri í byrjun ykkar búskapar? Við unum okkur vel hér. Eg fæst við að prjóna, en er dálftið slæm af gigt í öxlum og fingurnir farnir að kreppast. En ég get prjónað vettlinga á barnabörnin og meira að segja dálítið til að selja. — En þórarinn, hvað hefst þú að? Hann hlær og segir svo: — Einhvern tíma hefði það nú verið kallað kvenmannsverk - ég hef verið að rýa mottur og eftir ég komst upp á lag með það hef ég haft gaman af þvi og fengið góðan vitnisburð fyrir. Og það er gott að hafa eitthvað Við bíðum eftir að komast heim... Þegar hvað mest fjölmenni var f Lundabyggðinni í Hvera- gerði stóðu þar milli 50 og 60 hús. Nú eru ekki nema fjögur eftir á þessu svæði og daufara um að litast. Og þeir, sem búa í þessum húsum, eru Ifkast til allir að hugsa um eitt og hið sama; að komast aftur heim til Eyja. Marfa Guðrún Sigurðardóttir er ein þeirra. Hún býr þarna með manni sínum Guðmundi Hannessyni og f jórum börnum, og í heimili er einnig kanfna Dfli og fuglinn Dfsa. Börnin eru á aldrinum átta til tóif ára og sækja öll skóla í Hveragerði. j — Við höfðum ekki búið nema rúmt ár f Eyjum, þegar gaus, segir María. — Maðurinn minn stundaði sjó og ég vann í fiski. Þótt við hefðum ekki búið þar lengi höfðum við fest þar rætur, enda fólkið afskaplega viðfelldið og gott andrúmsloft. Fyrst eftir gosið vorum við hjá ættingjum okkar í Reykjavfk, bjuggum um hrfð á Hótel City, og sendum tvö af börnunum f sveit. Tfminn var lengi að líða þennan vetur og við fengum ekkert húsnæði til frambúðar f Reykjavfk enda þótt allir væru að reyna að liðsinna okkur á allar lundir. Við fórum sfðan austur á Reyðarfjörð um tima og sfðan vorum við búandi f grennd við Akureyri en flutt- umst hingað 1. desember f fyrra. Maðurinn minn hefur unnið hjá hreppnum þennan tíma, sem liðinn er síðan, en ég hef unnið við heimilið ein- göngu. — En þið viljið ekki setjast um kyrrt? — Nei, við bfðum eftir þvf að t húsunum f Lundabyggðinni er stofa og tvö lítil herbergi, þokkalegt eldhús og þvottaher- bergi og salerni. Fyrir sex manna f jölskyldu má húsnæðið varla minna vera. komast aftur út f Eyjar. Mér skilst það geti dregizt vegna húsnæðisleysisins og auðvitað eru margir, sem hafa meiri for- gang en við, þar sem við vorum auðvitað ekki innfædd og höfð- um ekki verið nema eitt ár eins og ég sagði. Krakkarnir voru að vona, að við kæmumst út í Eyjar áður en skólar byrjuðu í haust. En það verður svo að vera. Einhverra hluta vegna höfum við ekki komizt neitt inn 1 félagslif hér. Margir kunn- ingjar okkar eru annaðhvort dreifðir úti um land eða komn- ir til Eyja og við þekktum ekki nema fáeina, sem voru hér I Lundabyggð, meðan hún var blómlegust. Það var eins og hver kúrði f sfnu horni og væri ailtaf að bfða . . . biða eftir að komast til Eyja. Kaninan DIli er eftirlæti heimilisfólksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.