Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1974
7
Dixielandhljómsveit Árna ísleifssonar: Frá vinstri: Guðmundur með trommur, Árni píanó, Njall bassi, Bragi
tenórsaxófónn, Kristján H. klarinett, Kristján J. trompett og Þórarinn með básúnu. Ljósmyndir Mbl. a.j.
DIXIELANDIÐ Á
UPPLEIÐ AFTUR
Rabbað við Dixielandhliómsveit
Guðmundur
Árna ísleifssonar
DIXIELANDHLJÓMLISTIN er löngu
búin að vinna sér sess og alltaf
kemur hún vasklega fram á sjónar-
sviðið öðru hvoru um allan heim
þótt ávallt sé hún við lýði hjá
ákveðnum hópum og dixieland-
áhugamönnum. Um þessar mundir
er Dixielandhljómsveit Árna fsleifs-
sonar að hlaupa af stokkunum og
við litum inn á æfingu hjá þeim
félögum uppi i risi á Edduhúsinu.
Upphafsmenn að stofnun þess-
arar dixielandhljómsveitar eru Árni
og Þórarinn Óskarsson, básúnu-
leikari Nokkrir i þessari nýju hljóm-
sveit spiluðu saman á sinum tíma í
Þ.Ó.-kvintettinum (Þórarins Óskars-
sonar) I Listamannaskálanum, en
það var fyrir um það bil 20 árum
I stuttu rabbi við Árna og Þórarinn
sögðu þeir, að þeir ætluðu að kanna
nú hvort unga fólkið vildi ekki hafa
dixielandið með poppinu. „Við erum
ekki að keppa við poppið," sagði
Árni, „en það er mjög margt fólk,
sem hefur spurt um þessa hljómlist
og látið I Ijós áhuga að fá að kynnast
henni meira. Sérstaklega höfum við
orðið varir við þennan áhuga eftir
þátt i útvarpinu hjá Hrafni Gunn-
laugssyni ( Skúmaskoti, en þar var
dixieland tekið fyrir."
Annað kváðu þeir félagar lika sér-
kennilegt í sambandi við dixie-
landið, en það er tízkan i klæðaburð-
inum. Um þessar mundir er gamla
Great Gatsby linan allsráðandi á ný
og á sama tíma er aukinn áhugi vlða
um heim á dixielandhljómsveitum.
Þeir félagar kváðust vera til f
tuskið hvar sem væri Þeir byrjuðu á
Hótel Borg i gærkvöldi, en ýmis
fleiri hús hafa verið að bera í þá
viurnar. Eru þeir með dagskrá til
lengri og skemmri tima og er þetta
upplagt þar sem fólk vill fá góða og
hressilega músikk til að lifga upp á
f Dixielandhljómsveit Árna ísleifs-
sonar eru: Árni á pianó, en hann er
hljómlistarmaður að atvinnu, Þórar-
inn Óskarsson á básúnu, en hann
starfar hjá Varnarliðinu á Vellinum,
Kristján Jónsson með trompett, en
hann starfar hjá Loftleiðum í starfs-
mannahaldi, Kristján Hjálmarsson er
með klarinett, en hann er báta-
smiður, Bragi Einarsson er með
tenórsaxófón, en hann er prentari,
Guðmundur Steingrimsson
trommuleikari er sölumaður hjá
Gunnari Ásgeirssyni og Njáll Sigur-
jónsson bassaleikari er bilasali
Þegar við kvöddum þá félaga á
Edduloftinu var þrumandi stuð á
mannskapnum og ugglaust eiga
þeir félagar eftir að hressa upp á
mannskapinn hér og þar
Þórarinn
sprang
Eftír
A'rna Johnsen
Kristján H.
Kristján J
Bröyt grafa óskast
keypt. Tilboðum sé skilað á afgr.
Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: „Bröyt
— 8776".
Milliveggjahellur
Steypuiðjan s.f., Selfossi, sími 99-
1399.
Dala-tweed tískulitir
Dalette og babyull, Fasan garn
nýkomið.
Verslunin Hof.
Innrömmun á handavinnu
Útlendir rammalistar, matt gler.
Hannyrðaverzlunin Erla.
Bókhaldsþjónusta
Viðskiptaskrifstofan,
Austurstræti 10, 5.h.
Simi 1 3995.
Peugeot'69
Mjög góður bill til sölu. Má
borgast með 2ja—5 ára fasteigna-
tryggðu skuldabréfi, eða eftir sam-
komulagi. Sími 16289.
i
I
Ódýrt sófasett
Þú færð 3ja, 2ja sæta sófa ásamt
stól á kr. 76.800 hjá Nýju Bólstur-
gerðinni, Laugavegi 134, simi
1 6541.
Antik
málmrammarnir komnir.
Rósamunstur til útsaums i þá.
Smekklegar gjafir. Hagstætt verð.
Hannyrðaverzlunin Erla. I
Keflavík
Til sölu mjög vel með farið ein-
býlishús. Góðir greiðsluskifmálar.
Losnar fljótlega.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27, Keflavik.
Simi 1420.
Selfoss — Suðurland
Notað mótatimbur til sölu 1"X6",
1x5, 1X4. Simi 92-2310 um
hádegi og kvöldin.
Seguiband
Sony Tc. 730 til sölu.
Uppl. i sima 92-1 687.
Keflavík
23 ára gömul stúlka óskar eftir
vinnu eftir áramót. Margt kemur til
greina. Tilboð merkt: „C-8790"
sendist Mbl. fyrir 29. þ.m.
Rowenfa
Eggjahitari
Sýður eggin fljótt og
vel.
Hringir þegar suðu er
lokið.
Heildsólubirgðir:
Halldór Eiríksson & Co
Simi 83422 A
Árnesingafélagið í Reykjavík
heldur vetrarskemmtun í Kaffiteríunni í Glæsi-
bæ laugardaginn 23/11 '74 kl. 20.30.
Spiluð verður félagsvist og dans.
Árnesingar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Skemmtinefndin.
ÚTSÝNARKVÖLD
„GRÍSAVEIZLA”
— FIESTA ESPANOL
Síðasta Útsýnarkvöld fyrir áramót í Súlnasal
Hótel Sögu, sunnud. 24. nóv.
Kl. 19.00 Húsið opnað — Svaladrykkur
„Sangria".
Kl. 19.30 Veizlan hefst — Verð aðeins kr. 895.-.
Alisvín, kjúklingar o.fl. góðgæti —
Söngur, glens og gaman.
Ath. að veizlan hefst stundvislega og borðum
verður ekki hatdið eftir kl. 19.30.
ýt Myndasýning: Costa del Sol.
ýý Skemmtiatriði.
Ferðabingó — Vinningar 3 spennandi Útsýnar-
ferðir.
★ Dans. Hin vinsæla hljómsveit hússins.
Njótið hinnar frábæru stemmningar, sem ríkir á
Útsýnarkvöldum. Tryggið yður borð hjá yfir-
þjóni á föstud. frá kl. 1 5.00 I síma 20221.
Verið velkomin — Góða skcnimtun
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN