Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1974
t
Útför eiginmanns mins og föður okkar,
KRISTJÁNS G. BRYNJÓLFSSONAR
frá Flateyri,
ferframfrá Fossvogskirkju laugardaginn 23. nóvemberkl. 10.30.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Valgerður Kristjánsdóttir,
Eiríkur Kristjánsson.
t
Bróðir minn,
AÐALSTEINN OTTESEN,
Hagamel 40,
andaðist 20. nóvember.
Lárus Ottesen.
t
Faðir okkar
JÓN ARINBJÖRNSSON
Hraunbraut 44
Kópavogi
lézt að morgni 21. nóvember.
Steinunn Jónsdóttir
Sigurgeir Jónsson
+
Faðir okkar,
HÖROUR SIGMUNDSSON,
Bárugötu 20,
lést i Reykjavik hinn 1 9. nóvember sl.
Börn hins látna.
+
Eiginmaður minn,
BJÖRN STEINDÓRSSON,
Skúlagötu 61,
andaðist á Borgarspítalanum 20 nóvemfoer
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrlður Meyvantsdóttir.
+
Systir okkar og stjúpa min
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR
andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 12. þessa
mánaðar útförin fór fram í kyrþey eftir ósk hinnar látnu. Þökkum
auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda.
Sofffa Ólafsdóttir Jóhannes Ólafsson
Rósa Vigfúsdóttir og Frimann Jónsson
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför,
SIGURÍNU SIGURBJARGAR EYLEIFSDÓTTUR,
Sogavegi 38.
Bjami Sigurður Helgason,
Bjarni Bjarnason, Sigrfður Ólafsdóttir,
Tryggvi Bjarnason, Kristjana Guðmundsdóttir,
Margrét Bjarnadóttir, Árni Finnbogason,
Leifur Bjarnason, Ellnborg Sigurðardóttir
og barnabörn.
+
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför ástkærrar fósturmóður minnar, tengdamóður,
systur, mágkonu, frænku og ömmu,
SIGNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR,
Njarðargötu 9.
Kristin Pétursdóttir, Þórir Jónsson,
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Sigurgeir Guðjónsson.
Guðrún Sigurgeirsdóttir og fjölskylda,
Guðjón V. Sigurgeirsson og fjölskylda.
Sigmundur Sigurgeirsson og fjölskylda,
Helga Sigurgeirsdóttir og fjölskylda
og barnabörn.
Einar Sveinbjörnsson
Heiðabœ — Minning
Einn af traustustu og beztu
bændum hinnar fámennu Þing-
vallasveitar, Einar Sveinbjörns-
son frá Heiðarbæ, er fallinn frá,
löngu fyrir aldur fram, að þvl er
oss virðist, sem eftir stöndum.
Hann andaðist hinn 14. nóvem-
ber, einn á ferð í bifreið sinni, og
varþar komið að honum látnum.
Einar var fæddur að Hvítanesi I
Kjós, hinn 9. september 1917, og
var þvi aðeins rúmlega 57 ára, er
hann var burt kallaður.
Foreldrar Einars voru sæmdar-
hjónin Sveinbjörn Einarsson og
Sigrún Jóhannesdóttir. Þau flutt-
ust búferlum frá Hvítanesi að
Heiðarbæ I Þingvallasveit vorið
1921, ásamt fimm börnum sínum,
og var Einar þeirra yngstur. Upp
frá því var Heiðarbær Heimili
Einars til dauðadags, fyrst í for-
eldrahúsum og síðar sem bónda
þar í sambýli við Jóhannes bróður
hans.
Hinn 17. júní 1939 gekk hann að
eiga Unni Frímannsdóttur frá
Akureyri. Varð þeim þriggja
barna auðið, tveggja dætra og
eins sonar, sem öll eru á lifi, hið
mesta efnisfóik. Eldri dóttirin,
Anna María, er gift Kjartani
Gunnarssyni frá Svinafelli i öræf
um, og eiga þau tvö börn. Yngri
dóttirin, Ásta, er gift Hreiðari
Grímssyni, og búa þau á Gríms-
stöðum í Kjós. Sonurinn, Svein-
björn Frímann, er enn í heima-
húsum ógiftur.
Það var ekki aðeins það, að
Einar væri traustur og góður
bóndi, sem bætti ábýlisjörð sina
stórlega að húsakosti og jarð
ræktarframkvæmdum, heldur
vann hann margvísleg störf í
þágu sveitarfélags sins af mikilli
samvizkusemi um langt árabil
sem hreppsnefndarmaóur og
hreppsnefndaroddviti.
Ég, sem þessar línur rita, á
fyrst og fremst endurminningar
um Einar Sveinbjörnsson síðan
hann var ungur drengur. Síðasti
barnaskólavetur hans var minn
fyrsti vetur í kennarastarfi, og
Einar var þá einn af mínum nem-
endum. Ég var þá ungur og var að
feta mig áfram í hinu vandasama
starfi með þekkingu af skornum
skammti og því minni reynslu. Ég
hef aidrei síðar átt eins mikið
undir trausti nemenda minna
komið eins og þá, til þess að starf
mitt mætti bera árangur — en allt
fór vel — og það átti ég nemend-
um minum fyrst og fremst að
þakka. Þá var svokölluð far-
kennsla i Þingvallasveit. Ég
kenndi nokkuð langan tíma á
heimili Heiðarbæjarhjónanna og
þar var gott að vera. Þar var mörg
stundin glaðvær með hinum
mannvænlega systkinahópi,
stundir, sem ekki gleymast, með-
an nokkuð verður munað. Þar var
traust og heilsteypt fjölskylda,
sem stóð saman, í meðlæti jafnt
sem mótlæti. Það var mikið og
ómetanlegt lán að eiga þá fjöl-
skyldu fyrir nágranna, þegar
raunir og bágindi knúðu dyra hjá
okkur, fjölskyldunni í Skála-
brekku. Þá var hjálpin ætíð vis,
svo sem hún mátti bezt verða.
Ég minnist hins hugljúfa,
elskulega drengs, sem nú er horf-
inn sjónum vorum, eftir farsælt
og heillaríkt ævistarf. Ég minnist
hinna ljósu vordaga æskunnar,
þegar ég hafði nánust kynni af
Einari og fjölskyldu hans, er
hann var í foreldrahúsum. Þær
minningar munu geymast í mín-
um huga meðan nokkur heil hugs-
un er eftir.
Broddur dauðans er ætíð sár
ættingjum og vinum þeirra, sem
burt eru kallaðir, og í þessu til-
felli fyrst og fremst eftirlifandi
eiginkonu hins látna.
Það er von mín, og raunar vissa,
að tíminn og trúin á hina eilífu
tilveru, ásamt lifandi skilningi á
tilgangi lífs og dauða, megi bera
græðismyrsl á sárin, sem fjöl-
skylda Einars frá Heiðarbæ ber
nú í hljóðri sorg sinni.
Guðm. M. Þorláksson
frá Skálabrekku.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ANÍNETHORSTENSEN
Óskum ykkur guðsblessunar.
Synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför eiginmanns mfns
ÁRNA JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
fré Gnýstöðum,
fer fram laugardaginn 23. þ m 'Minningarathöfn hefst frá Hvamms-
tangakirkju, kl. 1 1 f.h. Jarðsett verður að Tjörn á Vatnsnesi kl. 2 sama
dag.
Sesselja Gunnlaugsdóttir
börn og tengdabörn.
+
Utför mannsins mfns, föður okkar, tengdaföður og afa,
EINARS SVEINBJÖRNSSONAR,
bónda, Heiðarbæ,
Þingvallasveit,
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag föstudaginn 22. nóvember kl. 3.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans er bent
á Hjartavernd
Unnur Frfmannsdóttir.
Sveinbjörn Frfmann Einarsson,
Ásta Sigrún Einarsdóttir, Hreiðar Grfmsson,
Anna María Einarsdóttir, Kjartan Gunnarsson
og barnabörn.
Hinn 14. nóv. sl. andaðist Einar
Sveinbjörnsson, bóndi á Heiðabæ
í Þingvallasveit, langt fyrir aldur
fram og var það sem oft vill verða,
að „eigi má sköpum renna“.
En satt að segja var það von
okkar, að lengi enn mættum við
verða samferða Einari, enda voru
allir fundir með honum okkur
mjög kærir.
Það var mikið gæfuspor þegar
þeim, sem undir þessar línur rita,
og fjölskyldum þeirra gafst tæki-
færi til að dveljast langdvölum I
Stiflisdal í Þingvallasveit, ekki
einungis vegna fegurðar og kyrrð-
ar umhverfisins, heldur ekki sizt
fyrir það að fá að kynnast og
síðan vingast við Einar á Heiðabæ
og fólk hans.
Tækifærum til þess fjölgaði eft-
ir að Einar og sonur hans Svein-
björn hófu búskap á Stíflisdal
jafnframt Heiðabæ.
Þvf var það að við gátum átt von
á þvi flesta daga að hitta þennan
glaðværa og æðrulausa nágranna
okkar, hvort sem hann leit inn
klakabrynjaður i illveðrum vetr-
arins, við sauðburðinn á vor-
björtum morgnum eða um hásum-
arið við heyskapinn.
Einar var frábær atorkumaður
við öll störf og var ekki ama-
legt fyrir börnin okkar og ungl-
inga að hafa hann sér til fyrir-
myndar, og fá tækifæri til að
trítla með honum um tún og móa
og kynnast þannig algengustu
sv eitastörfum.
Verða það áreiðanlega með
beztu minningum þeirra frá ung-
lingsárunum.
Fyrir allt þetta langar okkur að
þakka Einari og biðja Guð að
blessa ferð hans inn í vorið, og
létta ástvinum hans þeirra þung-
bæra harmi.
Einar Ágústsson
Karl Eirfksson.
Frétt í Ríkisútvarpinu um lát
þessa góða vinar varð vart trúað,
en enginn veit hvenær vinir eru
burt kallaðir; staðreynd verður
ekki umflúin. Einar hinn sifellt
glaði og góði vinur er brott kallað-
ur án fyrirvara til að sinna þeim
málum, sem allir eiga von á að
sinna, fyrr eða seinna.
Fyrir mörgum árum urðu kynni
okkar fyrst, þau voru ævintýr,
sem geymast í minningu um góð-
an dreng, sem farin er á undan
okkur. Honum sem farinn er, hef-
ir af Drottni verið undirbúin ferð
til æðra heima, það er okkar ósk
að honum verði greið sú leið,
enda til hennar stofnað af for-
sjálni, góðmennsku, æru, og vel-
vild Einars til allra, sem hann
mátti lið leggja. Drottinn verndi
starf hans hér á jörðu, blessuð sé
minning hans. Konu hans Unni og
börnum þeirra og fjölskylduliði
öllu, óskum við gæfu í sorg, sá
sem öllu ræður styrki þau.
Sigrún Sigurðardóttir
Sigurjón Þórðarson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skai vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á I
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.