Morgunblaðið - 22.11.1974, Side 23

Morgunblaðið - 22.11.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1974 23 Séra Valdimar J. Eylands: Enn viljum vér halda hópinn þótt haf ið skilji löndin Séra Valdimar J. Eylands f ræðustól á þjóðhátfð Hún- vetninga að Kirkjuhvammi. Séra Valdimar er fæddur 3. mars 1901 að Laufási f Víðidal, Húnavatns- sýslu. Stundaði nám f Alþýðu- skólanum á Hvammstanga 1916 — 17, síðan í Gagnfræðaskól- anum á Akureyri og Menntaskól- anum f Reykjavfk. 1921 fór hann vestur um haf. Stundaði guð- fræðinám f St. Paul f Minnesota og lauk þaðan guðfræðiprófi. Séra Valdimar gegndi prestsem- bætti við Fyrstu lúthersku kirkjuna f Winnipeg um langt skeið. Hann er sá prestur fs- lenskur, sem hefur þjónað lslend- ingum vestanhafs lengur en flest- ir aðrir. 1947 — 48 þjónaði hann Utskálaprestakalli. Iðulega hefur hann heimsótt Island, eins og kunnugt er. Sfðastliðið sumar ánafnaði hann Reykjaskóla f Hrútafirði með gjafabréfi hið mikla og vandaða bókasafn sitt. Séra Valdimar er heiðursdoktor The United college f Winnipeg fyrir ritstörf, sérstaklega bókina „The Lutherans in Canada." — Háttvirtu Húnvetningar: „Ef ég sé fjöll f fjarlægð blána, þá finn ég alltaf sömu þrána." Þannig farast einu af skáldum vorum orð, er hann nálgast átt- hagana eftir langa fjarvist. Þessi orð hafa oft bergmálað í huga mér er ég hefi ferðast hér norður um sveitir. Svo var það og í dag, er ég á norðanverðri Holtavörðuheiði sá blána fyrir fjöllum vestur sýsl- unnar, og firðina, Hrútafjörð og Miðfjörð, teygja sig eins og löngu- töng og vísifingur á framréttri vinarhönd til að bjóða mig vel- kominn heim. En það er ekki að- eins hin steinrunna og fljótandi náttúra sem býður mig velkominn í dag, heldur og fólkið sem hér dvelur. Eg er mjög hrærður og þakklátur fyrir það vinarþel sem ég er hér aðnjótandi og þann sóma sem mér er sýndur sem ræðumanni dagsins á þessari glæsilegu og fjölmennu þjóðhátíð. Er ég sé þessi fjöll blána, og verða æ gleggri fyrir sjón minni við heimkomuna, minnist ég þess, að þetta eru gömul fjöll, og að sjórinn sem vér sjáum hér, er gamall sjór. Nú er það sem gamalt er, lítt í hávegum haft með samtíð vorri, hvort heldur það eru menn eða menjar um forna tið; tískan er að telja allt gamalt úrelt, og að engu nýtt. En vér getum tæplega talað þannig um fjöllin. Þau eru bæði minnisvarðar og leiðarstein- ar kynslóðanna. Þau eru eldri en svo að áratölu verði þar Við komið með nokkurri vissu. Væri þau skyni gædd, máli og minni, gætu þau sagt oss langa og stórmerka sögu. Þessi fjöll blánuðu við að- komu hinna fyrstu landnáms- manna sem reistu byggðir og bú í þessum sveitum. Þeir byggðu fyrstu hús'sín og heimili í skjóli þeirra. Þeir miðuðu landamerki landeigna sinna við gil þeirra og lækjardrög. Hér nærlendis nam Ingimundur gamli land fyrstur manna, en hann er talinn einn göfugasti fornaldarmaður sem sögur greina. Hingað, I þessar sveitir, komu í öndverðu þeir Skinna-Björn og Miðfjarðar- skeggi, og var sá síðarnefndi tal- inn garpur mikill á sjó og landi. Hér riðu hetjur um héruð á sögu og þjóðveldisöld. I þessum hún- vetnsku sveitum hafa merkar sögur gerst. Auk Vatnsdælu, sem greinir frá fyrsta landnáms- manninum, eru bæði Grettis og Bandamanna saga tengdar þess- um sveitum. I sambandi við þessi hátiðahöld verður Ásdisar á Bjargi minnst, bestu móðurinnar sem sögur vorar geta um. Þótt miklu munaði um gæfu og gjörvi leik Grettis, sonar hennar, varð hann einskonar þjóðhetja, og við engan annan mann, lífs eða lið- inn, eru jafn mörg örnefni kennd, hér á landi, sem hann. Þessi þöglu og látlausu fjöll hafa verið vitni að mörgum hetju- sögum, og einnig að mörgum dapurlegum atburðum. Aldir renna, kynslóðir koma, starfa og hverfa í moldarskaut við rætur fjallanna. En þessar sveitir hafa á öllum öldum fætt og alið marga merkilega menn og fagrar konur. Þannig er það enn. Þessar sveitir hafa lagt þjóðfélaginu til stóran hóp gáfu- og athafnamanna, og margir þeirra eru einnig kunnir í fjarlægum löndum, og mun sumra þeirra síðar getið. Hér vil ég þó nefna Friðrik Asmundsson Brekkan, frá Ytri Reykjum, sem var merkur rithöfundur, og hinn þjóðkunna fræðimann og sagn- fræðing Jón Jóhannesson frá Hrísakoti. Ur þeim sveitum sem mynda austursýsluna er komin röð af þjóðkunnum læknum, á meðal þeirra tveir landlæknar. Gamall Víðdælingur gleymir því auðvitað ekki að ein frægasta ætt landsins er kennd við heimasveit hans, Víðidalinn. Forn frægðar- ljómi er einnig yfir slíkum stöð- um sem Þingeyrum. Breiðabóls- stað i Vesturhópi, Lækjamóti, Viðidalstungu og Auðunnar- stöðum. Þegar hart er i ári hér nyrðra, skemmta menn sér við að rekja ættir bresku konungsfjöl- skyidunnar til fyrsta bóndans á Auðunnarstöðum. „Móðurjörð, hvar maður fæðist, mun hún ekki flestum kær?“ Jú, víst er það svo. En þó mun það sannmæli, að sá, sem dvelst alla ævi í heimahögum, venst svo um- hverfi sínu að hann veitir því naumast eftirtekt. Hann sér ekki fjöllin blána í fjarlægðinni, og dagsins önn yfirskyggir glæstar myndir sögunnar. En dveljist menn langvistum í öðrum hér- uðum, eða fjarlægum löndum fá menn nýja innsýn og næmari skilning á öllu umhverfi æsku sinnar, landi og lýð. Það er því ekki tilviljun að mörg innilegustu ættjarðarljóðin hafa verið kveðin erlendis. Þar sannast hið forna spakmæli, að enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst hefir. Þannig kvað séra Jónas A. Sig- urðsson, merkur prestur í Vestur- heimi, fæddur að Gröf í Víðidal, en upp alinn að Ásbjarnarnesi um þetta efni, á þessa leið: Fjær þá átthögum er þráfalt andinn mig ber til þin, fornhelga feðranna strönd Land, með heiðloftið hátt, þú, sem hjarta mitt átt, — við þig knýta mig kærleikans bönd. Blúgur faðma ég fold, kyssi munhýra mold, Iýt þér, fágæta feðranna þjóð. Hvíli höfuð mitt þar, fyrr er vagga mín var. Hlýði fanginn á aldanna óð. II. „Ef ég sé fjöl í fjarlægð blána, þá finn ég allt af sömu þrána." Eg hef augu mín til f jallanna, hvaðan kemur mér hjálp." Þessi fjöll blánuðu ekki aðeins í fjarlægðinni við aðkomu hinna fyrstu landnámsmanna, eða við heimkomu ferðalanga, sem leita átthaganna á ýmsum tímum. Sú var tíðin að þau blánuðu I æ vax- andi fjarlægð, og hurfu loks að öllu, stórum hópum íslenskra manna sem fluttust úr landi vest- ur um haf, á síðari hluta aldar- innar sem leið. Talið er, sam- kvæmt manntalsskýrslum, að 15.434 Islendingar hafi flust til Vesturheims, á árunum 1870 til 1920. Öhætt er að fullyrða að þetta fólk var ekki landhlauparar eða ævintýramenn. Fjöllin í heimabyggðum þeirra, hér og víða annarsstaðar á landinu birt- ust þeim ekki í draumkenndri blámóðu, þau voru um langt skeið, full að snjó árið um kring; hafið var ekki lengur skfnandi bjart, það var fullt af hafís langt fram á sumar, ár eftir ár. Þjóðin var langþjökuð af erlendri kúgun og óstjórn. Þjóðllfið var I kyrr- stöðu, framfarir litlar og fram- tiðin uggvænleg. Á þessum árum voru kjör alþýðumanna I mörgum sveitum svo kröpp að hin unga kynslóð sem nú nýtur allsnægta í landinu mundi tæpast trúa þeirri sögu þótt sögð væri. En þetta ör- snauða íslenska fólk gleymdi samt ekki fjöllunum, en þau tóku á sig aðra mynd, þau urðu tákn hugsjóna, framtaks og fórna. Ein- kunnarorð þessa fólks var: ALLT FYRIR BÖRNIN. Það var draum- sjón þessa fólks að tryggja fram- tíð æskunnar, og til þess að hún mætti verða að veruleikafórnaði það tilfinningum sinum, ættingjum, ættjörð, og jafnvel líkama sínum og kröftum í ömurlégra striti en það hafði áður þekkt, fyrst lengi, á dvalarárum sinum vestra. Fyrsta kynslóð vesturfaranna er nú horfin af sviðinu, en óhætt er að fullyrða að hugsjónin um velferð afkomend- anna hefir ræst langt um vonir fram. Rúmlega fimmtán þúsundir manna fóru vestur á umræddu tímabili, en nálega fimmtíu þús- undir manna, af íslensku bergi brotnir, eru nú taldir búsettir í Vesturheimi. Saga vesturferðanna er merki- legur þáttur í heildarsögu Islend- inga. Fyrsti „stóri hópurinn" fór úr landi sumarið 1874, fyrir ná- kvæmlega hundrað árum. Hátíða- höld fara nú fram viðsvegar í byggðum íslendinga vestra, í til- efni af landnáminu þar, og svo mun einnig verða næsta ár. Munurinn er sá, að þér hér hima, á hátíðahöldum yðar, rifjið upp sögu sem er rétt þúsund árum lengri en saga bræðranna vestra. En bæði stofnþjóðin hér, og þjóð- arbrotið vestra, hafa margs að minnast og margt að þakka. Vestra munu menn nú minnast fyrsta vesturfara hópsins, og þá næstum ótrúlegu sögu sem gerð- ist á skipsfjöl, áður en á land var gengið. Það var siðsumars, árið 1874, að gufuskipið St. Patrick sigldi upp eftir St. Lawrence fljót- inu, áleiðis til Quebeck i Kanada. Fjöldi innflytjenda var um borð, á meðal þeirra 365 Islendingar, og höfðu allmargir þeirra hafið sjó- ferð sína á Borðeyri. Ekki voru margir á meðal þeirra vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir. Þetta var misjafn og mislitur öreigalýður, á vonlausum flótta, að talið var frá hlutskipti sveitar- ómagans. Ég læt einn samtíðar- manna þeirra (séra J. A. S.) lýsa þeim i ljóði: Vér komum með trefil, og klæddir i ull og kunnum ei enskuna að tala. Við áttum víst langfæstir góss eða gull né gersemar Vesturheims dala. Með sauðskinn á fótum, og sængurföt heit með sjal, og með skotthúfu og poka.— Við fluttum þá útgerð í óbyggð og sveit og enskinn við báðum að þoka. Er skipið nálgaðist áfangastað kom lóðs um borð, eins og lög gera ráð fyrir, og með honum umboósmaður og fulltrúi Kanada stjórnar. Kom hann þeirra erinda að segja þessu fólki hvert það ætti að flytjast, og hvar þvi væri ætlað að setjast að i nýja landinu. Gengu þá fram fyrir fulltrúann tveir talsmenn þessa vaðmáls- klædda og vankunnandi lýðs, og báru fram kröfur til stjórnar- innar sem skilyrði fyrir land- göngu og landnámi. Heimtuðu þeir fyrst og fremst ákveðna land- spildu, sem þeim sjálfum litist best á að afstaðinni landkönnun, fyrir sig og niðja sína, og aðra af þjóðflokki sínum, sem síðar kynnu að bætast í hópinn. I þessu nýja landnámi skyldi þeim heitið fullkomnu frelsi til sjálfsstjórnar, og að þeir mættu óhindrað rækja trú sina, tungu og menningar- erfiðir. Mun fulltrúa hinnar bresku krúnu hafa þótt búand- karlar þessir gera sig digra að setja slíka kosti, en þó var að þeim gengið, og þau heit haldin af stjórninni. Nokkru síðar stofnuðu þeir ríki i rikinu, og nefndu Nýja Island, meó landstjórn og öllu skipulagi sem þar til he.vrir. Það er merkileg og söguleg staðreynd. að Islendingar urðu fyrst stjórn- arfarslega sjálfstæðir i Vestur- heimi, frá því á hinni fornu þjóð- veldisöld, og telja sögufröðir nienn aó þetta hafi ýtt undir frelsisbaráttuna hér heima. sem þó var ekki borin fram til fullnaðarsigurs fyrr en áratugum síðar. Rétt er að geta þess að Nýja Framhald á bls. 27. Ræða flutt á þjóðhátíð Húnvetninga að Kirkjuhvammi sl. sumar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.