Morgunblaðið - 22.11.1974, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÖVEMBER 1974
— Ford
Framhald af bls. 1
Ford fer frá Japan til Suður-
Kóreu á morgun. Andstæðingar
Park Chung-Hee forseta óttast, að
litið verði á heimsóknina sem
viðurkenningu Bandaríkjanna á
stjórnarfarinu í Suður-Kóreu.
Eftir heimsóknina í Suður-
Kóreu fer Ford aftur til Tókyo
þar sem hann stigur um borð í
sovézka flugvél er flytur hann til
fundar við Leonid Brezhnev
flokksforingja í Vladivostok um
helgina.
í Moskvu er talið, að fundurinn
geti haft mikil áhrif á skipulagn-
ingu sovézkra efnahagsmála í
framtiðinni. Unnið er að nýrri
fimm ára áætlun i stað þeirrar,
sem rennur út 31. desember 1975.
Ef Brezhnev sannfærist um, að
hægt verði að efla samskiptin við
Bandarikin er talið hugsanlegt, að
hann fallist á ýmsar nýjar hug-
myndir um umbætur i efnahags-
málum og landbúnaðarmálum
samkvæmt heimildum i Moskvu.
— Nixon
Framhald af bls. 1
milljón dollara væri nauðsynleg,
voru 75.000 dollarar greiddir lög-
fræðingi Watergate-mannsins E.
Howard Hunt. Þegar fundurinn
25. apríl var haldinn, var Dean
byrjaður að vinna með sækjend-
um Watergate-málsins og þeim,
sem rannsökuðu málið.
1 samræðunum virtist Ehrlich-
man vita um segulbandstækin í
Hvíta húsinu þótt lögfræðingar
hans hafi neitað því.
Þegar rætt var hvernig Nixon
væri viðriðinn yfirhylminguna
kvaðst Nixon minnast þess að
hafa talað við Dean um fjárkúg-
unarhótanir upphaflegu sakborn-
inganna í Watergate-málinu ef
þeir fengju ekki meiri greiðslur.
„Ég veit... að í þessu samtali var
talað um fjárkúgun," sagði Nixon.
— UNESCO
Framhald af bls. 1
Galileo og Kopernikus, samþykkt
að jörðin sé flöt,“ bætti hann við.
Lrslitin þýða, að Israel getur
ekki tekið þátt í störfum neinnar
hinna fimm deilda UNESCO sem
fullgildur aðili.
Hins vegar gætu Israelsmenn
fengið aðild sem áheyrnarfull-
trúar á ríkishópaþingum sam-
kvæmt heimildum á ráðstefn-
unni. Israel hefur hingað til ekki
tilheyrt nokkrum sérstökum
ríkjahópi.
— fþróttir
Framhald af bls. 39
— Það vil ég ekki fullyrða. Mót-
ið held ég að vinnist á 22 stigum.
Þið eigið þá eftir að
tapa fleiri leikjum?
— Það er ekki ólíklegt, en samt
er ég bjartsýnn. Toppliðin í 1.
deild, fimm lið af 8, eru það jöfn,
að þau tapa öll stigum til hinna
liðanna. Ég er t.d. ekki sammála
þeim, sem segja, að ÍR-ingar verði
neðarlega í mótinu, þeir eiga eftir
að berjast á toppnum eins og
hingað til.
SkákFrarnhaiiafbis.2
sunnudagskvöldum, og verður
þátttökugjald það sama og í bik-
armótinu.
Jólahraðskákmót T.R. verður
haldið dagana 3. og 4. f jólum og
verður sérstaklega til þess
vandað. Hraðskákæfingar fé-
lagsins verða eins og venjulega
á mánudags- og fimmtudags-
kvöldurfi. Sú nýbreytni verður
nú tekin upp hjá félaginu, að
opið verður á þriðjudögum kl.
5—7 þar sem menn geta fengið
keypt kaffi og rætt stöður, sem
komið hafa upp á liðnum mót-
um, auk þess að tefla hægskák-
ir. Miðvikudaginn 27. nóv. kl. 5
mun Guðlaug Þorsteinsdóttir
tefla fjöltefli við kvenfólkið og
er þetta í fyrsta skipti sem slíkt
fjöltefli er háð hérlendis. Auk
þess munu verða fastar æfingar
fyrir kvenfólk á miðvikudögum
kl. 5—7 í vetur.
Nóvemberhraðskákmót fé-
lagsins verður haldið n.k.
sunnudag, 24. nóv., og hefst það
klukkan 19,30 í félagsheimilinu
viðGrensásveg.
— Sektaður
Framhald af bls. 2
„Skipstjórinn féllst á dómssátt,"
sagði Erlendur, og var látinn
borga 250 þús. kr. í landhelgissjóð
fyrir brot á fiskveiðilögum vegna
þess að hann var með veiðarfærin
óbúlkuð og hlerana I gálgum á
síðunni. Þá var hann einnig
látinn borga 10 þús. kr. fyrir brot
á lögum um tollheimtu og toll-
eftirlit, en hann tók við manni úr
landi, vélstjóra sínum, sem hann
var að sækja til Seyðisfjarðar, án
þess að vélstjórinn hefði fengið
venjulega afgreiðslu hjá toll-
verði. Þá er skipstjóranum einnig
skylt að greiða málskostnað, en
honum var heimilt að láta úr höfn
þegar að lokinni dómssátt."
— Stikur
Framhald af bls. 18
bækur, sem eru þann veg ritaðar,
eru vandaðar bækur. Uppkast eftir
uppkast, breyting eftir breytingu,
hreinskrift eftir hreinskrift, aftur upp
kast, ennþá breyting, að nýju hrein-
skrift, einum átta, tíu, tólf sinnum,
þar til manni loksins finnst maður
hafa formað setninguna rétt, fundið
hin réttu orð, sett saman hin réttu
atkvæði”
Agaður stíll Þórbergs mótast þó
ekki af kröfum málhreinsunar-
manna. Hann leggur mikið upp úr
fjölbreytni og er ekki feiminn við að
grlpa til erlendra orða og aðlaga þau
íslensku máli. Án skáldaleyfa verður
still flestra blæbrigðalaus og ófrjór.
Af Þórbergi Þórðarsyni er margt
að læra. En það er tilgangslaust að
herma eftir honum. Hann stendur
einn.
— Spellvirki
Framhald af bls. 1
mannafundi, að fyrst og fremst
yrði reynt að ganga úr skugga um
hvers vegna risaþotunni tókst
ekki að komast i eðlilega hæð
eftir flugtakið. „Ef við getum út-
skýrt það, gætum við leyst málið,"
sagði Utter.
Annar talsmaður Lufthansa,
Karl Wingeroth, útilokaði jafn-
framt möguleika á ofrisi og visaði
á bug fréttum um, að flestir far-
þegarnir hefðu setið nærri vélar-
miðju. Flugritinn náðist
óskemmdur eftir slysið, en hefur
enn ekki verið rannsakaður.
Utter sagði, að rannsóknin í
Nairobi mundi standa að minnsta
kosti eina viku en endanleg
skýrsla mundi ekki liggja fyrir
fyrr en eftir marga mánuði.
Nokkrir þeirra 98, sem komust
lífs af úr slysinu, fóru flugleiðis i
dag til Jóhannesarborgar en aðrir
héldu kyrru fyrir í Nairobi. Rúm-
lega 20 voru fluttir í sjúkrahús. 59
biðu bana.
Renate Kahn frá Bandaríkjun-
um sagði, að bandarískur þjónn,
Tom Scott, hefði bjargað tugum
farþega út um neyðardyr, sem
flugfreyjur höfðu árangurslaust
reynt að opna. „Við hefðum öll
farizt án aðstoðar hans,“
John Bing, ferðaskrifstofu-
maður frá Jóhannesarborg, sagði,
að lending flugstjórans, Christian
Krack, hefði verið „merkilegasta
lending, sem nokkur flugmaður
hefði nokkru sinni reynt. Hann
bjargaði fjölda mannslífa með
færni sinni,“ sagði hann.
— Engin olía
Framhald af bls. 1
sama til að svara og ég sagði í
upphafi, að ég tel líkurnar
hverfandi á að oliu kunni að
vera að finna einhversstaðar i
námunda við Island. Hins vegar
er Island og svæðið umhverfis
feiknalega athyglisvert frá
jarðfræðilegu sjónarmiði og ég
vildi gjarna bora þar margar
holur I rannsóknarskyni, en
ekki með það í huga, að um olíu
gæti verið að ræða,“ sagði dr.
Manik að lokum.
— Banaslys
Framhald af bls. 40
ingarnar. Hann starfaði mikið að
félagsmálum á Isafirði og söfn-
uðust þar á hann fjölmörg störf I
sambandi við félags- og bæjarmál.
M.a. var hann formaður hafnar-
nefndar, formaður Sunnukórsins
og sæti átti hann I fjölmörgum
nefndum. Bæjarskrifstofurnar og
allir skólar á Isafirði lokuðu í gær
vegna þessa hörmulega atburðar.
— Alþýðu-
bandalagið
Framhald af bls. 40
stíft á það að Magnús Kjartansson
yrði kjörinn formaður I stað
Ragnars og flokkurinn eignaðist
þar með „sterkan" leiðtoga.
Á hinn veginn eru svo ýmsir
forystumenn Alþýðubandalagsins
út á landsbyggðinni, sem hefðu
sætt sig við að Ragnar Arnalds
hætti, ef einhver landsbyggðar-
maður hefði komið I hans stað. En
þegar fyrir lá, að samstaða gæti
ekki tekizt um slíkan mann hafa
þessir aðilar með vaxandi þunga
lagt að Ragnari að gefa kost á sér
til endurkjörs. Þær raddir eru
einnig uppi í Alþýðubandalaginu,
að heppilegra sé að dreifa valdinu
innan flokksins með þeim hætti
sem gert hefur verið síðustu árin,
er hvorugur hinna „sterku"
manna flokksins hafa skipað for-
mannssæti, þ.e. hvorki Lúðvík né
Magnús. Út frá þessu sjónarmiði'
mundi kjör Magnúsar valda jafn-
vægisleysi í Alþýðubandalaginu,
sem ekki væri talið æskilegt. Loks
er ljóst, að stuðningur Magnúsar
Kjartanssonar við málmblendi-
verksmiðju I Hvalfirði er hann
var iðnaðarráðherra hefur valdið
gffurlegri gremju í Alþýðubanda-
laginu og er honum mjög fjötur
um fót. Afstaða hans í því máli
hefur örugglega áhrif á afstöðu
margra fulltrúa á landsfundinum
til hugsanlegs formannsframboðs
hans.
— Saltfiskur
Framhald af bls. 2
hvort þessi viðleitni muni hafa í
för með sér sölur á þessa staði.“
Þeir Valgarð og Jón upplýstu,
að þetta svæði allt ásamt Kúbu og
Jamaica hefði neytt allt að 30
þúsund tunnum af þurrkuðum
saltfiski á ári áður en hinar
skyndilegu hækkanir urðu á verð-
lagi fisks á heimsmarkaði. Hins
vegar kváðu þeir sérstakar ástæð-
ur fyrir þvi, að nú væri leitað
fyrir sér um sölur á þessa staði —
komið hafi hér á land gífurlegt
magn af lélegum og smáum fiski
úr togurunum, sem ekki reyndist
unnt að selja blautan á hefðbund-
inn markað SlF.
I Mið-Ameríku ríkja þó nokkuð
sérstakar markaðsaðstæður varð-
andi saltfiskinn. Kúba hefur um
langt skeið ekki keypt neinn salt-
fisk vegna ákvörðunar stjórn-
valda, sem teldu hann of dýran og
á Jamaica hefur hámarksverð á
saltfiski verið svo lágt, að þangað
hefur ekki verið unnt að selja
nema allra smæsta og lélegasta
fiskinn. Nú hafa Norðmenn þó
brotið ísinn i þessum efnum að
nokkru, og þeir Valgarð og Jón
kváðust hafa rekizt á harðan vegg
þar sem voru tilboð Norðmanna.
Norskir saltfiskframleiðendur
hafa átt i miklum erfiðleikum
með framleiðslu sína, einkum
ufsa og keilu en einnig löngu, og
hafa af þeim sökum orðið að
lækka verð sín. Er nú svo komið,
að margir hinna norsku útflytj-
enda hafa boðið hver í kapp við
annan. Þannig er í Fiskaren frá
18. þ.m. greint frá sölu Norð-
manna á fimm þúsund tonnum til
Kúbu að verðmæti um 40 milljón-
ir norskra kr. (röskar 860 millj.
ísl.) og staðhæfir blaðið, að verð-
ið, sem náðst hafi i-þessum sölu-
samningi, sé skammgóður vermir
og muni hafa I för með sér veru-
legt tap fyrir einstaka útflytjend-
ur og framleiðslugreinina í heild
sinni, þrátt fyrir 9 milljón
norskra króna styrk stjórnvalda
og ýmsa aðra fyrirgreiðslu.
Þeir Valgarð og Jón kváðust
reyndar haf a haft af þvi óstaðfest-
ar fregnir hvert einingarverðið í
þessum sölum Norðmanna til
Kúbu hefði verið og væri óhætt að
segja — þegar tekið væri tillit til
langs greiðslufrests og annarra
skilmála — að ef Islendingar
hefðu selt á samsvarandi verði
mundi það jafngilda útborgunar-
verði töluvert undir 100 kr. hvert
kíló.
„Eins og nú háttar teljum við,
að múrinn, sem við rákumst á, sé
ókleifur hvað snertir Kúbu,
Jamaicu og Dóminíkanska lýð-
veldið en annarsstaðar höfum við
selt nokkurt magn fyrir verulega
hærra verð og jafnvel selt fremur
lélegan ufsa fyrir 5—10% hærra
verð en við vitum, að Norðmenn
hafa selt hæst,“ sögðu þeir félag-
ar ennfremur. „I ljósi þeirra
erfiðleika, sem Norðmenn hafa
átt í, erum við auðvitað ákaflega
ánægðir með þessar sölur þeirra á
Kúbu og Jamaicu þar eð við telj-
um, að þær muni þá minnka
þrýstinginn af þeirra hálfu á
þeim mörkuðum, sem við keppum
við þá á.“
Það kom einnig fram, að á þetta
svæði — Mið- og Suður-Ameríku
— hefur SlF selt milli 2500 og
4500 tonn á ári af þurrkuðum
saltfiski, en á sl. ári nam salan
þangað um 3300 tonnum. Fiskur-
inn, sem þangað fer, eryfirleitt af
lélegum gæðaflokki og mjög
smár. Sagði Valgarð Ólafsson, að
raunar væri SlF þarna að fást við
það að koma í pening þeim fiski,
sem áður taldist skreiðarfiskur og
fór þá á Nígeríumarkað. I ár hef-
ur slíkur fiskur veiðzt í óvenju
miklum mæli eins og áður greinir
frá og við það hefur skapazt nýtt
og sérstakt vandamál. Og þrátt
fyrir ýmis teikn um að afstaða
yfirvalda i Nígeriu væri að breyt-
ast varðandi skreiðarinnflutning,
töldu þeir Valgarð og Jón Ar-
mann, að enn um sinn yrðu menn
hér að þurrka mikið magn fisks.
— Loftleiðir
Framhald af bls. 3
leiðum á sínum tima og voru
okkar óvinur númer 1.
Bandarísk flugmálayfirvöld
afnámu þessi fargjöld í Banda-
ríkjunum í fyrra, en við misst-
um engu að siður þúsundir far-
þega upp til Kanada. Við þessar
aðgerðir Kanadastjórnar hefur
viðhorfið fyrir okkur ger-
breytzt. Það hefur einnig haft
sín áhrif, að nú þrengir að í
efnahagsmálum i Bandarikjun-
um og fólk vill spara, þannig að
það kemur frekar til Loftleiða.
Allt þetta gerir það að verkum,.
að staða okkar hefur batnað til
muna. Meira að segja þannig,
að hugsanlegt er, að við verðum
að bæta aftur við þeim ferðum,
sem við höfðum ákveðið að
fella niður.
— Hvað með Chicago?
— Salan í ferðir til og frá
Chicago hefur farið fram úr
björtustu vonum manna og við
bindum miklar vonir við þann
markað í framtíðinni. Hins veg-
ar er nú um mjög daufan tíma
að ræða á því svæði og
eldsneytiskostnaður gifurlegur,
þannig að það þótti ekki annað
hægt af fjárhagslegum ástæð-
um en að fella niður ferðir þar
yfir daufustu tímabilin, þvi að
þegar svona horfir í efnahags-
— Kortafölsun Framhald af bls. 15
rauðum lit), sýni, hvernig línan liggi miklu
innar en gert var ráð fyrir samkvæmt hans
tillögum. Hér er um beina fölsun að ræða, þvf að
samkvæmt hans tillögum lágu mörkin miklu
mun innar en hann segir nú. Punktasvæðið á
korti nr. 3 sýnir það svæði, sem Lúðvfk segir að
hafi verið fyrir innan mörkin samkvæmt sínum
tillögum, en var það alls ekki.
# Samkvæmt nóvembertillögunum ætti veiði-
svæði Þjóðverja innan 50 sjómílna markanna að
vera 42 þúsund ferkflómetrar. Samkvæmt tillög-
um Lúðvfks átti þetta svæði að vera 54 þúsund
ferkílómetrar eða 12 þúsund ferkflómetrum
stærra en núverandi tillögur gera ráð fyrir.
Samkvæmt nýju tillögunum eru Þjóðverjum
einnig bannaðar veiðar á stórum svæðum utan
50 sjómflna markanna, allt að 128 sjómflum.
Þetta svæði er 60 þúsund ferkíiómetrar, sem er
50% stærra svæði en er innan 50 mflna mark-
anna samkvæmt nýju tillögunum.
málum er ekki hægt annað en
að f ara með öllu að gát.
— Nú hafa bandarísk flug-
málayfirvöld haldið uppi við-
ræðum við evrópsk flugfélög
um fækkun ferða yfir N-
Atlantshaf til að draga úr sam-
keppni við stóru bandarisku
flugfélögin, sem eiga i miklum
erfiðleikum. Hefur eitthvað
verið rætt við Loftleiðir í þessu
sambandi?
— Nei, það hefur ekki verið
gert, en við erum með sérstaka
aukningarklásúlu í samningn-
um við Bandaríkjastjórn og
höfum þar að auki fækkað
ferðum.
— Nú hefur fargjaldamunur
Loftleiða miðað við önnur flug-
félög sífellt minnkað í harðri
samkeppni á undanförnum
árum, en félagið engu að síður
haldið áfram að vaxa. Hverju
þakkar þú þetta?
— Öll starfsemi félagsins er
orðin svo miklu betri en hún
var fyrir nokkrum árum. Við
höfum á að skipa einhverju
fullkomnasta farpöntunarkerfi,
sem til er, og rekstur allra
deilda fyrirtækisins hefur
verið endurskipulagður og
færður í samræmi við ströng-
ustu kröfur timans. Okkur
gengur til muna betur að halda
áætlun og stefnum að enn betri
árangri hvað það snertir. Loft-
leiðir eru lika orðið vel þekkt
félag og svo hinn mikli happa-
ferill þess.
„Nýtt velmegunar-
tímabil 1976“
Einar Aakran, forstjóri Loft-
leiða í Luxemburg, sagði okkur,
að á þessu ári færu um 230
þúsund manns á vegum Loft-
leiða í gegnum Luxemburg. tJt-
litið væri sæmilegt þó að um
10% samdráttur hefði orðið á
þessu ári af völdum efnahags-
ástandsins. Hins vegar hefði
samdrátturinn nú stöðvazt og
aðeins farið að votta fyrir aukn-
ingu, enda leitaði fólk nú betur
að lægri fargjöldum. Annars
væri erfitt að spá um framtíð-
ina, það færi eftir því hvernig
efnahagsmálin þróuðust. Einar
sagði, að mjög mikil aukning
hefði orðið hjá Air Bahama og
hagur félagsins I Evrópu i
blóma. Hið nýja hótel Loftleiða
í Luxemburg, Aerogolf, væri
nú byrjað að skila hagnaði, en
það væri eitt bezta hótelið í
borginni. Taprekstur hefði
verið fyrsta árið, en nú væri
hótelið orðið þekkt og hefði öðl-
azt vinsældir.
Nú er unnið að byggingu
nýrrar flugstöðvar í Luxem-
burg og verður henni lokið
seint á næsta ári. Mun aðstaða
Loftleiða þá batna gífurlega.
Einar sagðist vera hóflega
bjartsýnn um næsta ár, en vera
þess fullviss, að árið 1976 yrði
upphaf nýs velmegunartíma-
bils fyrir Loftleiðir.
Að lokum spurðum við Birgi
Þorgilsson sölustjóra Flugleiða
hver helztu mál ráðstefnunnar
hefðu verið og hvernig útlitið
væri í heildina.
„Það er ánægjulegt að vita
hve þessir starfsmenn félag-
anna hafa tekið vel saman,“
sagði Birgir og bætti við,
„menn eru bjartsýnir á næsta
ár og telja, að þá muni góður
árangur nást.“
„Hvað Islandsferðir snertir,
þá lofa lönd eins og Svíþjóð,
Frakkland og Þýzkaland góðu
og ennfremur er þegar á næsta
ári búizt við mikilli aukningu
farþega frá Bandaríkjunum, en
nú er ákveðið að auglýsa Is-
landsferðir þar meir en verið
hefur. Vitað er, að um aukn-
ingu verður að ræða frá
Norðurlöndunum, en það er
okkar traustasti markaður og
auðveldast að auglýsa tsland
þar,“ sagði Birgir.
Þá sagði hann ennfremur, að
flest hótelanna hækkuðu gjöld
sin miðað við dollar um 10%,
sem væri miður. Hinsvegar
væri líka verðbólga i öðrum
Evrópulöndum og bætti það úr
skák. Gisting á hótelum hér
væri ekki dýrari en annars
staðar, heldur væri það fyrst og
fremst maturinn, sem væri dýr.
-ihj.