Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1974 " Víg Gísla Súrssonar Saga og sagnir bæói með grjóti og vopnum, svo aó því fylgdi mikil frægó. Nú hleypur að förunautur Eyjólfs einn og mælti til Gísla: „Legg þú af við mig vopnin þau hin góðu, er þú ber, og allt saman, og Auði kona þína.“ Gísli svarar: „Tak þú þá við ódeiglega, því að hvorugt sæmir þér, vopnin þau, er ég hef átt, né svo konan.“ Sá maður leggur til Gísla meö spjóti. En Gísli heggur mót og spjótið af skaftinu, og verður höggið svo mikið, að öxin hljóp í helluna og brestur af hyrnan. Hann kastar þá öxinni, en grípur til sverðsins og vegur með því, en hlífir sér með skildin- um. Þeir sækja nú að rösklega, en hann verst vel og drengilega. Gísli vó enn tvo menn, og eru nú fjórir látnir. Eyjólfur bað þá sækja að sem karlmannlegast. „Vér fáum hart af“, segir Eyjólfur, „en það væri einskis vert, ef góð yrðu erfiðislaunin". Og er minnst varir, vindur Gísli sér við og stekkur upp á hamar þann, er heitir Einhamar. Þar snýst Gísli við og verst þaðan. Þetta kom þeim að óvörum. Þykir þeim nú mjög óhægjast sitt mál — mennirnir dauðir fjórir, en þeir sárir og móðir. Verður nú hvíld á aðsókninni. ÞáeggjarEyjólfur menn sína allfast og heitir þeim miklum fríðindum, ef þeir næðu Gísla. Eyjólfur hafði einvalalið með sér að hreysti og harðfengi. Maður er nefndur Sveinn, er fyrstur réðst móti Gísla. Gísli leggur til hans og klýfur hann í herðar niður og fleygir honum ofan fyrir hamarinn. Nú þykjast þeir ekki vita, hvar staðar næmu manndráp þessa manns. Gísli mælti til Eyjólfs: „Það mundi ég vilja, að þau þrjú hundruð silfurs, er þú hefur tekið til höfuðs mér, hafir þú dýrast keypt. Og það mundi ég vilja, að þú gæfir til þess önnur þrjú hundruð silfurs, að við hefðum aldrei fundist, og muntu taka svívirðing fyrir mannskaða.“ Nú leita þeir sér ráðs og vilja ekki fyrir líf sitt frá hverfa. Sækja þeir nú að honum tveggja vegna, og fylgja tveir Eyjólfi fremst- ir, heitir annar Þórir, en hinn Þórður og eru frænd- ur Eyjólfs. Þeir voru hinir mestu garpar. Og er aðsóknin þá bæði hörð og áköf, og fá þeir nú komið á hann sárum nokkrum með spjótalögum. En hann verst með mikilli hreysti og drengskap; og fengu þeir svo þungt af honum af grjóti og stórum höggum, að enginn var ósár, er að honum sótti, því að Gísli var ekki missfengur í höggum. Nú sækja þeir Eyjólfur og frændur hans fast að. Þeir sáu, að þar lá við sæmd þeirra og virðing. Leggja þeir þá til hans með spjótum, svo að út falla iðrin. En hann sveipar að sér iðrunum og skyrtunni og bindur að fyrir neðan með reipinu .... Síöan hleypur hann ofan af hamrinum, og keyrir sverðið í höfuð Þórði frænda Eyjólfs, og klýfur hann allt til beltisstaðar; enda fellur Gísli á hann ofan og er þegar örendur. En þeir voru allir mjög sárir, förunautar Eyjólfs. Gísli lét líf sitt með svo mörgum og stórum sárum, að furða þótti í vera. Svo hafa þeir sagt, að hann hopaði aldrei, og ekki sáu þeir, að högg hans væri minna hið síðasta en hið fyrsta. Lýkur þar nú ævi Gísla, og er það alsagt, að hann hafi hinn mesti hreystimaður verið, þó að hann væri ekki í öllum hlutum gæfumaður. Nú draga þeir hann ofan og taka af honum sverðið. Grafa þeir hann þar í grjótinu og fara ofan til sjávar. Þá andaðist hinn sjötti maður, að sjó niðri. Eyjólfur bauð Auói, að hún færi með honum. En hún vildi ekki. Eftir þetta fara þeir Eyjólfur heim í Otradal, og andaðist þegar hina sömu nótt hinn sjöundi maður. En hinn áttundi liggur í sárum tólf mánuði og fær bana. En aðrir urðu heilir, þeir er sárir voru, og fengu þó óvirðing. Og er það alsagt, að engin hafi hér frægari vörn veitt verið af einum manni, svo að menn viti með sannindum. (Gísla saga Súrssonar, kap. 33—36). ANNA FRA STORUBORG — SAGA FRÁ SEXTÁNDU OLD eftir Jón Trausta Það, sern gerzt hafði í loftinu, var i stuttu máli á þessa leið: Munkurinn var gamla siðmun trúr, ekki síður í gleðinni en sorginni. Og fyrsta fullið helgaði hann Maríu sinni með Jjví að syngja við raust þotta erindi: Iírottning aðsta, dýr af ættum, drottius móðir, nriyjfin góða Mar/'ö skarmst, dyggða dýinst, dáðaprýddust, full af náðum. Vrittu niör, að pg vrrða mætti vonarmaður, scrn allir aðrir, frína mjúku miskunn leika, mætnst brúður himna sætis.’) Heimtaði hann af drengjunum, að þeir syngju með sér, og gerðu þeir það, þótt ekki kynnu þeir erindið. Næst skenkti hann á full Péturs postula, síðan st. Páls, st. Nikulásar, st. Franciskusar, st. Þorláks, st. Ólafs o.s.frv., og söng vers fyrir hverju minni, ýmist á islenzku eða latínu. En loks gerði hann þá einkennilegu uppgötvun, að drengirnir sungu með hontrm einungis á þann hátt, að þeir hermdu eftir honum. Hann reiddist þó ekki, en tók drengina í faðm sér og steig við þá dans um gólfið eftir hrynjanda háttanna og var hinn kátasti. Út úr dansinum spunnust smám saman áflogin. Anna brosti að ólátunum, lét siðari aftur hurðina og gekk ofan. Þegar hún kom aftur í veizlusalinn, bað hún Stein á Fit að finna sig, svo að lítið bæri á. 1) Eftir Jón Pálsson Maríuskáld (d. 147»). Þegar þau voru orðin einsömul, spurði hún Stein, hvað þeim bræðrunum bæri eða hefði borið svo til missættis, að þeir mættu ekki sjá hvor annan. „Ekkert,“ mælti Steinn. „Ekki nokkur skapaður hlutur. Hallur lætur svona af því, að ég hefi ekki viljað verja lífi mínu á sama hátt og hann. Ég var ekki gefinn fyrir þennan munkalifnað, — að ganga berfættur og fasta þurrt fjórðapart af árinu. Ég hefi alla ævi mína verið mesti matmaður. Og svo vildi ég giftast, — fyrst ég gat fengið konu til að taka mér. Og svo hefi ég, satt að segja, ekki getað stillt mig um að henda gaman að ræflaskapnum hans. Hann hefir þótzt standa mér langtum ofar, vera lærður maður og „heilagur11 maður, og ausið yfir mig latinu og guð veit hverju, en viljað þó fá að éta hjá mér, þegar hann hefir ekkert annað haft. Ég hefi sagt honum að lifa á latínunni. Og þegar siðaskiptin komu, flýtti ég mér að verða lúterskur, til þess að losast því fremur við ágengnina í honum. Og það hefir hrifið. Síðan hefir Hallur ekki troðið mig um tær.“ „En ertu þá ófáanlegur til að gera það fyrir min orð að sættast við hann, ef hann skyldi vinnast til sættanna?“ spurði Anna. „Nei-nei-nei-nei, mikil ósköp! Hvers vegna skyldi ég ekki sættast við hann? Ég er í raun og veru ekkert ósáttur við hann.“ Anna tók þá Stein í svefnloftið með sér. Ofsakætin í loftinu sljákkaði nokkuð við það, að Anna kom með Stein. Munkurinn og drengirnir hlupu sínir í hvert me&Tnofgunkaffinu Tækniþróunin í hænsna- húsinu. **)')'>> "l| I II I Nei, þetta er ekki for- stjórinn, aðeins einn deildarstjóranna. Ég er tilbúinn að vinna fram á nótt í kvöld — það er saumaklúbbur heima hjá mér . . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.