Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.11.1974, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1974 Bakslag hjá brezku liðunum en Hollend- ingar unnu stórsigur EINS og skýrt var frá I Morgun- blaðinu I gær, fóru f fyrrakvöld fram fimm leikir f Evrópubikar- keppni landsliða f knattspyrnu. Athygli manna beindist fyrst og fremst að leikjum Englands og Portúgals og Hollands og Italfu, en úrslit f þeim leikjum urðu þau, að Englendingar urðu að láta sér nægja jafntefli þó að á heima- velli væri, en Hollendingarnir unnu öruggan sigur yfir keppi- nautum sfnum. Jafntefli f leik Englands og Portúgals, eykur mjög spennuna í keppni fyrsta riðils, en úrslit f leik Englands og Tékkóslóvakiu á dögunum varð til þess að flestir töldu Englend- ingum öruggan sígur f þessum leik, og stóðu veðmálin 12—1 þeim f vil, fyrir leikinn. Þá kom það einnig nokkuð á óvart að Spánverjar skvldu sigra Skota á útivelli, en veðjað var á Skotana 8—1 fyrir þennan leik. Við þenn- Auðséð var að leikmenn portú- galska liðsins lögðu áherzlu á þáð eitt í leiknum á Wembley að ná jafntefli. Þeir léku með styrka vörn, og sóttu ekki af neinni ákveðni. Þar af leiðandi voru Englendingar miklu meira með knöttinn, sérstaklega framan af leiknum, en aldrei tókst þeim'að skapa sér verulega hættuleg tæki- færi. Það var helzt á 57. minútu að spenna var i leiknum, en þá léku þeir Clarke og Thomas lag- lega gegnum vörn Portúgalanna, en á síðustu stundu tókst varnar- leikmanni að stöðva Clarke sem var að komast í ákjósanlegt skot- færi. Þá átti Bell einnig skot í stöng, en þar með eru líka upptalin tækifæri Englendinga i leiknum, ef undan er skilið um- deilt atvik á 18. minútu er Dave Thomas átti skot að marki Portú- gala, sem markvörðurinn hálf- varði. Skoppaði knötturinn á Gffurlega mikið hefur verið látið með Don Revie sfðan hann tók við enska landsliðinu. Teiknari þessarar myndar sýnir Revie með heims- meistarastyttuna f spákúlu sinni. Hætt er við að lætin kringum Revie minnka nú eftir að lið hans varð að láta sér nægja jafntefli við Portúgal á heimavelli. an ósigur minnka að mun mögu- leikar skozka liðsins á þvf að kom- ast f úrslit f keppninni. England — Portúgal 0—0 LIÐ ENGLANDR: Clemence, Madeley, Walson, Hughes, Cooper, Brooking, Francis, Bell, Thomas, Channon, Clarke. Varamenn: Todd og Worthington. LID PORTtGALS: Damas, Artur, Humberto, Barros, Osvaldinho, Martins, Alves, Octavio, Nene, Remeu og Oliveira. Englendingar urðu að gera sér að góðu markalaust jafntefli i þessum mikilvæga leik, og má þar með segja að þeir verði að halda sig við jörðina eftirleiðis, en sem kunnugt er var mikil gleði í Eng- landi eftir 3—0 sigur Englend- inga yfir Tékkóslóvakíu á dög- unum, og var þá hinn nýi fram- kvæmdastjóri landsliðsins, Don Revie, hafinn upp í sjöunda himin, og þar hafa áhangendur enska landsliðsins siðan haldið honum. marklfnunni, og töldu margir að hann hefði farið innfyrir. Dómar- inn var þó á öðru máli. Portúgalar léku lengst af með aðeins tvo menn í framlinunni, en þegar liða tók á leikinn sóttu þeir sig og áttu allgott tækifæri skömmu fyrir leikslok, en skutu þá yfir markið. Var þetta líka eina umtalsverða tækifæri þeirra í leiknum. Ahorfendur á Wembley voru 85.700 talsins. Wales — Luxemborg 5—0 LIÐ WALES: Sprake, Thomas, England, Phillips, Roberts, Mahoney. Yorath, Griff- iths, James, Reece, Toshack. Varamaður: Flynn. LIÐ LUXEMBOKGAR: Thill, Fandel, Flenghi, Hansen, da Grava, Traaerweiler, Pilot, Zuang, Langers, Dussaer, Phillip. Varamenn. Martin, Roemer. Eins og við mátti búast voru Luxemborgarar ekki erfiðir and- stæðingar fyrir Wales á heima- velli þeirra síðarnefndu í Swansea í fyrrakvöld. Urslit leiks- ins urðu 5—0 fyrir Wales, eftir að staðan hafði verið 1—0 í hálf- leiknum. Með Wales og Luxem- borg í riðlinum eru Austurríki og Ungverjaland, og er ekki talið óliklegt að markamunur skeri úr um það hvort það verður Wales, Austurriki eða Ungverjaland sem kemst í lokakeppnina, þannig að allir reyna að skora sem mest á móti Luxemborgurunum. Á 25 minútu leiksins í Swansea fengu Wales-búarnir sitt fyrsta upplagða tækifæri til þess að ná forystu í leiknum, er dæmd var vítaspyrna á Luxemborg, Leighton James tók spyrnuna, en hún heppnaðist ekki vel hjá hon- um og Thill, markvörður Luxem- borgaranna, varði. Hann kom hins vegar engum vörnum við á 35. minútu, er John Toshack skallaði glæsilega í markið, eftir hornspyrnu. Fleiri mörk gerðu Wales-menn ekki í fyrri hálfleik þrátt fyrir stöðuga sókn að marki Luxem- borgar. 1 seinni hálfleik höfðu gestirnir hins vegar ekki heppnina með sér og var þá bætt fjórum mörkum við á þá. Fyrsta markið kom á 53. mínútu og var það Tottenham- leikmaðurinn Mike England ser.7 það skoraði. A 70. minútu bætti Phil Roberts öðru marki við, eftir að hafa einleikið í gegnum vörn Luxemborgaranna og strax á næstu minútu skoraði Griffiths og hefur hann þar með skorað mark eða mörk í öllum Ieikjum Wales á þessu keppnistimabili. Fjórða mark hálfleiksins kom svo á 75. mínútu er Yorath skoraði. Atti Yorath það vel inni að skora í leiknum, þar sem það var hann sem átti þarna stórleik og rak Wales-liðið áfram með krafti sinum og dugnaði. Luxemborgararnir áttu mjög f á upphlaup í leiknum, og þá sjaldan að þeir komust fram fyrir miðju áttu Walesbúarnir ekki í erfið- leikum með að stöðva þá. Lang- bezti maður liðsins var markvörð- urinn, Thill, sem varði oft frábær- lega vel, þrátt fyrir mörkin fimm sem hann fékk á sig. Skotland — Spánn 1—2 LIÐ SKOTLANDS: Harvey, Jardine, Forsylh, Bremner, McQueen, Burns, John stone, Souness, Deans, Jordan, Hutchinson, Varamenn: Lorimer og Dalglish. LIÐ SPÁNAR: Iribar, Castellanos, Benito, Capon, Miguel, Costas, Martinez, Villar, Quini, Planas, Rexach. Gifurlegur áhugi var á þessum leik í Skotlandi og mættu samtals 92.100 áhorfendur á Hampden Park til þess að fylgjast með hon- um. Var ekki nein smáræðisgleði á áhorfendapöllunum þegar Skotarnir náðu forystu á 10. mln- útu. Þar var á ferðinni fyrirliði skozka landsliðsins, Billy Bremn- er, leikmaður með Leeds United. Tókst honum að brjótast á eigin spýtur gegnum vörn Spánverj- anna og renna knettinum í netið. 11 mínútum síðar átti Bremner stærstan þátt i því að dæmd var vitaspyrna á Spánverjana. Var hann kominn i gott færi, er honum var brugðið. Tommy Hutchinson tók vítaspyrnuna, en hún var fremur illa framkvæmd og Irabar markvörður Spánverj- anna varði. Þetta atvik varð til þess að auka Spánverjunum kjark, jafnframt þvi sem dofi færðist yfir Skotana. A 36. minútu tókst svo Quini að jafna, eftir mistök í skozku vörn- inni og á 61. mínútu færði Villar Spánverjunum forystu i leiknum við mikil vonbrigði skozku áhorfendanna. Eftir að Spánn hafði náð for- ystu í leiknum reyndu Skotarnir Italski markvörðurinn Dino Zoff bjargaði oft meistaralega f lands- leiknum við Holland. örvæntingarfullt að jafna, en allt kom fyrir ekki. Deans og Hutchinson var skipt útaf þegar skammt var til leiksloka og þeir Peter Lorimer og Kenny Dalglish komu inná. Þeir áttu góða spretti, en allt kom fyrir ekki. Tyrkland — írland 1—1 LIÐ TVRKLANDS: Vwin, Alpaslan, Ismail, Ziya, Zerkeriya, Engin, Selcuk, S. Mehmet, B. Mehmet, Cemil, Metin. LIÐ lRLANDS: Roche, Kinner, Mulligan, Hand, Dunne, Brady, Martin, Highway, Giles, Conroy, Givens. 75.000 áhorfendur fylgdust með þessum leik sem fram fór í Izmir í Tyrklandi. Heimamenn sýndu þarna mjög góðan leik, einkum í fyrri hálfleik, er þeir sóttu nær stanzlaust. Sá leikmaður sem mest kvað að í sókn Tyrkjanna var Metin, og galopnaði hann vörn Iranna hvað eftir annað, en félagar hans, Cemil og Mehmet fóru afar illa með tækifæri þau er hann skapaði þeim. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum, og í þeim seinni náðu Irarnir betri tökum á leikn- um. Johnny Giles varð konungur vallarins og bókstaklega lagði undir sig miðju hans, þannig að Tyrkirnir komust ekkert áleiðis. A 54. mínútu náðu Tyrkirnir forystu 1 leiknum. Dæmd var hornspyrna á Irana og ekki tókst betur til en svo að Conroy skallaði knöttinn í eigið mark. En sex mín- útum siðar tókst Irlandi að jafna er Givens lék glæsilega í gegnum vörn Tyrkjanna og renndi síðan knettinum i horn marksins niðri. Givens, sem skoraði öll mörk Ir- lands í leiknum á móti Sovét- rikjunum á dögunum, átti góða möguleika á að ná forystu fyrir lið sitt um miðjan seinni hálfleik- inn, en frábær markvarzla Yasins kom þó í veg fyrir það. Holland — ltalía.3—1 LIÐ HOLLANDS: Jongbloed, Suurbier, Haan, Rijsbergen, Krol, van der Kuvlen. Neeskens, van Hanegem, Rep, Cruyff, Rensenbrink, Varamaður: van der Kerkhof. LIÐ iTALtU: Zoff, Morni, Roggi, Orland- ini, Rocca, Zecchini, Causio, Juliano, Boníns- egna, Antognoni, Anastasi. Lið Hollands í þessum leik var mjög lítið breytt frá úrslitaleikn- um við Vestur-Þjóðverja í heims- meistarakeppninni í sumar, en Hollendingar hafa mikinn hug á því að vinna keppnina að þessu sinni, og hafa búið landslið sitt sérlega vel undir átökin. Það var því ekki lítið áfall fyrir þá er Itölum tókst að skora þegar á 5. mínúti leiksins. Anastasi lék þá upp kantinn og átti góða sendingu fyrir markið, þar sem miðherjinn Boninsegna var fyrir og skallaði í netið. Hollendingarnir hófu síðan mikla sókn, sem átti eftir að standa leikinn út, en Italirnir drógu lið sitt aftur, í von um að geta haldið marki sínu hreinu, að a.m.k. jafntefli. Mæddi mikið á hinum frábæra markverði liðsins, Dino Zoff, sem hvað eftir annað fékk tækifæri til þess að sanna snilli sína, eins og t.d. þegar hann varði skot af stuttu færi frá varnarleikmanninum Wim Suurbier. Hann fékk þó engum vörnum við komið á 21. mínútu, er þeir Krol og Robbie Rensen- brik bókstaflega léku upp i markið og sá síðarnefndi skoraði. 1 seinni hálfleik hélt sókn Hollendinganna stöðugt áfram og fór þá knattspyrnugoóið Johann Cruyff að láta verulega til sín taka. Atti hann margar frábærar sendingar á félaga sína, en mest var þó um vert að hann skoraði sjálfur tvö glæsileg mörk á 67. minútu og 80. mínútu. Það fyrra eftir aðstoð frá Rensenbrink, en það seinna eftir samvinnu við Neeskens og Suurbier. Þar meó voru úrslit leiksins ráðin, og má mikið vera ef Hollendingarnir verða ekki sigurvegarar i riðlin- um. Hinn sovézki dómari leiksins, Paval Kazakov, bókaði tvo leik- menn. Hollendinginn van Hanegem, sem réðst á einn leik- manna Italiu, og Italann Anastasi fyrir að sparka knettinum burut, er Hollendingar áttu að taka aukaspyrnu. Staðan Eftlr leikina í fyrrakvöld er staðan f riðlum Evrópubikarkeppninnar I knatt- spyrnu sem þá var keppt f þessi: 1. riðíll: England Portúgal Tékkóslövakla Kýpur 2. riðilí: Wales Austurrlki Ungverjaland Luxemborg 4. riðill: Sp&nn Rúmenfa Danmörk Skotland 5. riðill: Holland Pólland ltalfa Finnland 6. riðill: Irland Tyrkland Sovétrfkin Sviss 2110 3—0 3 10 10 0—0 1 1000 0—3 0 0 0 0 0 0—0 0 3 2 0 1 8—2 4 1100 2—1 2 2101 4—4 2 2002 2—9 0 2200 4—2 4 10 10 0—0 1 2011 1—2 1 1001 1—2 0 2 2 0 0 6—2 4 2 2 0 0 5—1 4 10 0 1 1—3 0 3003 2—8 0 2110 4—1 3 10 10 1—1 1 1001 0—3 0 0 0 0 0 0—0 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.