Morgunblaðið - 08.12.1974, Side 19

Morgunblaðið - 08.12.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974 19 Kristján Fr. Guðmundsson, Hafnarfirði: „Skynja ekki líf fólksins í landinu vegna sjálfselsku” NÚ Á tímum er oft sagt, að fólk sé hætt að taka mark á því, er stjórn- málamenn láta frá sér fara í ræðu og riti og ræður þeirra hafi engin áhrif. Hvað fullorðnu fólki við- kemur, hefur þetta ef til vill við rök að styðjast, en hvað um ungl- ingana? Sjást þess ekki merki i hugsun þeirra og framkomu, að hinn þungi áróður öfgamanna hafi þar mótandi áhrif ? Við verð- um að svara játandi. Ungur maður sem les um ákveðið efni frá einni hlið, hættir brátt að mynda sér sjálfstæðar skoðanir um það efni, en tekur að bera fram sem sinar eigin þær hug- myndir og skoðanir, er hann hefur lesið svo ákaft. Þannig móta oft ófyrirleitnir ævintýra- menn óþjálfaðan og litt veraldar- vanan ungling, t.d. er algengt að rógur um þá er veljast til forystu í fyrirtækjum eða í þjóðmálum hefur þau áhrif (sem til er ætlast) að viðkvæmar sálir og þeir er hafa rika réttlætiskennd sjá I forystumönnunum óvin vegna þess að aftur og aftur er verið að hamra á því, að þeir geti öllu ráðið. Þeir eru einungis svo vondir að þeir vilja ekki að aðrir en þeir sjálfir hafi gott af. Þannig fá heil- ir stjórnmálaflokkar til liðs við sig óþroskað fólk, sem lætur síðan hafa sig í verk sem eru á móti þess eigin lífsskoðun. Það vantar greind og rökrétta skilgreiningu. Þann 17. júní 1944 var gleðilegt að vera þátttakandi í hátíðarhöld- unum á Þingvöllum, þar var ein- huga þjóð, sem sameinaðist um stórt mál, eigið sjálfstæði og kaus sér hæfan forystumann (Þó nokkrir alþingismenn skærust úr leik). Þann 17. júni 1974 var gleði- legur minningardagur, þar sam- einaðist á helgasta stað lands vors Steinþór Eiríksson, bílstjóri, Egilsstöðum: „Þetta blinda hatur og kallar sig menntafólk” ÞAÐ vantaði ekki þróttinn i raddir þess unga fólks sem flutti mál sitt á samkomu stúdenta í Háskólabíói 1. des. s.l. I upphafi var vel farið með islenzkt mál i söng og tali, enda voru þarna að verki nemendur úr æðstu menntastofnun okkar, Háskóla lslands, og ég hugði gott til að hlusta á lands okkar verðandi vor- menn. En hvað var þarna á ferð? Raddirnar urðu skerandi og hat- ursfullar og skjótlega var farið að þylja einhverja „buslubæn“ um helztu stjórnendur þjóðfélags okkar og atvinnuvega og svo fengu samtökin „frjáls menning" nokkur kíló af þungablæstri. Ég vil þó taka fram að ég er sjálfur ekkert hrifinn af Keflavíkursjón- varpinu, enda er það ekki i sam- ræmi við landslög og með lögum skal land byggja. En þetta blinda hatur á þeim sem eru ekki sama sinnis í einstaka málum finnst mér fara illa fólki, sem kallar sig menntafólk. Menntunin ætti að gera fólk víðsýnna og kenna því að sjá málin frá fleiri hliðum. Það er illa farið þegar maður hlustar á þetta unga fólk, sem fær þarna tækifæri umfram aðra til að koma fram í opinberum fjölmiðlum, að það fær mann tii að hugsa aftur til þeirra tima er ofstækisöskur brúnstakkanna á 4. áratug þess- arar aldar ógnuðu heiminum með alþekktum afleiðingum. Arsœll Jónsson kafari: „Orðnir of margir í Háskólanum - vant- ar sjóvinnuskóla” ur á ekkert erindi í útvarpið. Við hér í Reykjavík sem vorum farnir að vinna fyrir okkur 1918, höfum ekki getað hugsað okkur, að hér væri boðið upp á þvílikt sem var, svo mikil hrifning var hér þá af áfanganum og þeim mönnum, sem lögðu störf og erfiði til mál- staðar sjálfstæðisins. Ég held, að þeir séu orðnir of margir i Háskólanum. Það sem íslenzku þjóðina vantar núna er Sjóvinnuskóli Islands fyrir eitt þúsund nemendur. Og stefnt sé að því að þrefalda islenzku sjó- mannastéttina. Þar með verður lika virt þeirra starf, sem nú mest og bezt hafa unnið af yfirráðarétti land- grunnsins, sem er einn sterkasti hlekkurinn i sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar allt frá 1. des. 1918. Utvarpið frá samkomu stúdenta 1. des. var hrein útsagt fyrir neð- an allar hellur. Þessi málflutning- Ragnar Edvardsson bakari: •• * „Ofugmæli að kalla þetta fullveldisfagnað’, íslenzk þjóðarsál, nú þurfti eng- inn þingmaður að sitja hjá, árang- ur áratuga starfs sá fyrir þvf, frá Lögbergi var hægt að fylgjast með, er staður og stund var svf- virtur með fíflalátum nokkurra ungmenna, er höfðu ekki lært að hugsa sjálfstætt. 1. desember er í hugum flestra Islendinga tákn um stóran áfanga. En dagskrá 1. des. síðast- liðinn, kallar fram spurningar. Háskólastúdentar sáu um dagskrá í útvarpi, getur það verið, að þessi „lærðu“ ungmenni hafi á þessumí degi ekki annað að færa þjóð- Framhald á bls. 47. MÉR finnst það öfugmæli að kalla þetta fullveldisfagnað, því að þarna var á ferðinni dæmigert stofukommapartý, sem lauk eins og bezt hæfði þessu afsprengi komma, með því að sunginn var hinn gamli þjóðsöngur Rússa og verður ekki annað sagt en gengið hafi verið hreinlega til verks. Allt þetta var í einum og sama dúr og sem litið dæmi má nefna, að einn ræðumanna réðst á Kristján Ragnarsson fyrir ummæli hans um fjölmiðla, námslánakerfið og misnotkun þess, og sannaðist eins og oft áður að sannleikanum verður hver sárreiðastur, því ræðumaður hellti úr skálum reiði sinnar, í skjóli þess að Kristján hafði ekki aðstöðu til að bera hendur fyrir höfuð sér. Það hlýt- ur að vera öllum hugsandi mönnum áhyggjuefni að Ríkisút- varpið skuli, þrátt fyrir djúpa reynslu, telja það virðingu sinni samboðið að taka þátt í slíkri at- höfn en er um leið glöggt dæmi þess hvernig kommúnistar tröll- riða f jölmiðlunum. cBreyttur veitingasalur, en barinn er á sínum stað Viö höfum breytt veitingasalnum á 9. hæö Allt þetta sem VÍÖ bjóöum þannig, aö nú er hann nokkurs konar upp á, hefur eitt sambland af veitingasal og veitingabúö, (restaurateria). Þannig velja gestir okkar sér rétti af mat- seðlinum viö afgreiösluboröiö, greiöa fyrir matinn og taka hann meö sér á borö í salnum. Ef steikja þarf eöa útbúa matinn sérstaklega, þá setjast gestirnir og bíöa stutta stund, uns þeim er færður maturinn. Viö bjóöum gestum okkar úrval rétta, allt frá heitum samlokum upp i stórar steikur. Einnig eru á boðstólum súpur, forréttir, eftirréttir, kaffi og meö því, að ógleymdum rétti dagsins hverju sinni. sameiginlegt, og þaö er veröiö, þaó er eins lágt og hægt er aö hafa þaö. Opiö frá kl. 08.00 til 22.00 alla daga. n Suðurlandsbraut 2 Reykjavík. Simi 82200 Telex nr. 2130 Hótel Esja, heimiliþeirra er Reykjavík gista

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.