Morgunblaðið - 24.01.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975
11
aðeins eitt augnablik og öll saga
mannsins. Á sama hátt er mynd-
rista á hellisvegg, málverk eftir
Pícasso, lítil þjóðsaga, öll skáld-
verk veraldarinnar, söngur Seiki-
losar og sinfóníur allra tíma, einn-
ar ættar, galdur undarlegrar veru
sem með eigin viti og þekkingu á
ef til vill eftir að tortíma sjálfri
sér.
Jón Ásgeirsson.
S.U.S.
mótmælir
fasteigna-
gjöldum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna, þar sem mótmælt er
nýlegri hækkun á fasteigna-
gjöldum og ftrekuð sú skoðun
sambandsins að afnema eigi fast-
eignagjöld af fbúðarhúsnæði.
Ályktunin fer hér á eftir:
„Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna mótmælir þeim
hækkunum á fasteignagjöldum,
sem ríkisstjórnin hefur heimilað
með því að samþykkja 100% álag
á fasteignamat. Það er skoðun
stjórnar Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, að afnema eigi fast-
eignagjöld af almennu íbúðar-
húsnæði, enda er sú skoðun í sam-
ræmi við þá stefnu Sjálfstæðis-
flokksins f húsnæðismálum, að
fólk búi í eigin húsnæði.
Stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna telur nauðsynlegt,
að sem fyrst verði fundnar aðrar
leiðir til tekjuöflunar fyrir bæjar-
og sveitarfélög".
Búið að stöðva
olíuleka úr
Hvassafellinu
1 FYRRADAG var búið að
stöðva olíuleka úr Hvassafellinu
þar sem það var skammt frá
strandstað við Orresund fyrir
utan Kotka í Finnlandi. I fyrra-
dag var skipið dregið á flot og
kom þá í ljós einhver olíuleki og
einnig hafði sjór komizt í botn-
tanka. Omar Jóhannsson hjá
skipadeild SÍS sagði í viðtali við
Mbl. í gær, að verkfræðingur
deildarinnar hefði verið væntan-
legur á strandstað í gærkvöldi,
m.a. til að kanna skemmdirnar á
skipinu, en þegar þeirri könnun
verður lokið munu teknar ákvarð-
anir um frekari aðgerðir vegna
strandsins. Allir skipverjar eru
um borð í Hvassafellinu þar sem
það liggur við ankeri skammt frá
strandstað.
Gististaðir
á norðurleið
I FRÉTT í blaðinu fyrir skömmu
frá Siglufirði kom það fram, en
enga gistiaðstöðu væri að fá á
leiðinni frá Siglufirði til Akra-
ness. Þetta mun ekki vera alls-
kostar rétt, því unnt mun vera að
fá gistingu i Varmahlið, á Blöndu-
ósi og á Stað í Hrútafirði, en þess-
ir aðilar munu hafa ákveðið að
bjóða upp á slika gistiaðstöðu
þrátt fyrir það að enginn rekstrar-
grundvöllur er fyrir sliku að vetr-
arlagi.
Copperreið-
hjól í óskilum
ÍBÚI í húsinu nr. 15 vió Hofs-
vallagötu hringdi til okkar
og kvaðst vera með í geymslu hjá
sér copperreiðhjól. Hjólið fannst
fyrir utan húsið við strætisvagna-
skýli fyrir nokkrum dögum og
getur eigandi þess spurzt fyrir um
það í síma 26832.
mætti afsiðun þekkingarinnar.
Þekkingunni og nytsemd hennar
er nú hatrammlega teflt gegn list-
inni og gagnsleysi hennar, en 1
siðlausu kapphiaupi hinnar eyð-
andi tæknivæðingar hef-
ur gleymst að maðurinn er tilfinn-
ingavera og fegurð og ást er hon-
um ekki síður nauðsyn en brauð. I
galdradansi nútímans er þekking
og gáfur orðnar ógnvaldur mann-
lífsins, notaðar til að kveða
galdrasöngva haturs og tortíming-
ar. Listin hefur og mun bjarga
manninum frá þessari brjálsemi
þekkingarinnar og gefa lifinu
inntak og fegurð.
Rudolf Serkin flutti okkur boð-
skap og mál tilfinninga, er eiga
sér engin iandamæri, boðskap
sem ekki verður skilgreindur, að-
eins lifaður, tilfinningar, sem
gera lífið þess virði að lifa því.
Rudolf Serkin gerir meira en að
leika Beethoven. t mótun stefja
napr hann fram myndgerð
tilfinninganna, svo formgerð
verksins stendur fyrir hugskots-
sjónum manns sem goðkynjuð
mynd. Saga tónlistarinnar hófst
hjá frummanninum, sem fyrstur
skynjaði „magik“ tónlistarinnar
og milli hans og Rudolf Serkin er
Lenqstu revnsluna viö að Skipuleggia dvölina eftir
óskum og þörfum íslendinga
Revndasta starfsfólkið, sölumenn, flugllöa og farar-
stjóra sem tryggir farþegum okkar trausta og örugga
ferðaþjónustu.
Mesta Úrvalið, af hótelíbúðum og smáhúsum meö
sundlaugum,
þjónustuaðstööu snertir.
Læasta verðið á fargjöldum, sem þýðir það að 2ja
vikna ferö kostar frá 28.800 krónum, og 3ja vikna ferð kostar
frá 31.400 krónum.
BÝÐUR NOKKUR BETUR?
ISLAMDS
LOFTLEIDIfí
3Set0unI>Iabit<
nucivsincnR
^*-w22480
Rudolf
Serkin
Efnisskrá:
Sónata 1 f-moli op. 2, nr. 1.
Sónata f c-moil op. 111.
Diabelií tilbrigðin, op. 120.
Saga tónlistarinnar fram til
okkar daga hefur nær eingöngu
verið miðuð við Evrópu og þá
sérstaklega miðhluta hennar.
Eins og aðrar listgreinar hefur
hún þróast í tengslum og í and-
stöðu við kirkjuna, nærð af hug-
sjónum, mögnuð brunasviða rang-
lætis, en ávallt með fegurðina að
leiðarljósi. Þegar Rudolf Serkin
tekur að kveða okkur drápur
Beethovens, er hann ekki aðeins
píanósnillingur, heldur fulltrúi
hámenningar, sem er hafin yfir
andlega fátæka vopnaleiki og ver-
aldarvafstur og það sem kalla |
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON