Morgunblaðið - 24.01.1975, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 24.01.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 33 íian™ Morö ö kvenréttindarööstefnu Jöhanna Kristjönsdöttir þýddí f 24 — I íbúð yðar? — Já. Við gengum inn í svefn- herbergið. Hana rekur í vörðurnar, en Christer hjálpar henni af stað aft- ur. — Og þegar þangað kom? Hvað sagði hún sem var svona ljótt og grimmdarlegt? — Hún... hún staðhæfði að... sko, það er svo brjálæðislegt að ég getekkieinu sinni skilið af hverju ég varð svona reið, vegna þess að auðvitað trúði ég ekki orði af því sem hún sagði, en það var eitt- hvað í svipnum á henni, sem æsti mig svo upp, að mig langaði mest til að rjúka á hana og lúberja hana. Ég á við. . . ég þekki hana eiginlega ekki neitt, en við erum saman I þessum klúbbi og hún var gestur minn, en það var svo ósvíf- ið af henni að ryðjast inn til mín um hánótt og hæðast að mér. Og allt sem hún þvaðraði! Eins og Robert, hann Robert minn, mundi nokkurn tíma hafa litið við druslu eins og Betti! Hún dregur andann djúpt og litur kviðinn á hann, og skammast sin í aðra röndina fyrir að hafa notað svona ruddalegt orð. — Segið mér nú nákvæmlega hvað hún sagði. Christer talar ósköp hægt og ekkert í fasi hans ljóstrar upp um þann mikla áhuga, sem vakinn er með honum. — Sagði hún að maðurinn yðar hefði haldið framhjá yður... með henni? Og hvers vegna var hún svona áfjáð i að segja yður þá frétt? — Ja, það... það skil ég nú ekki. En þetta var engin frétt eða neitt svoleiðis, þetta var bara lygi... sem hún fann upp hjá sjálfri sér til að vera kvikindisleg. — Kvikindisleg við yður... eða mann yðar? — Mig auðvitað. En þótt svarið komi hiklaust er ljóst að spurning hans hefur gert hana ruglaða í riminu. Christer á erfitt með að horfa inn i kviðin brún augun og hann bölvar Robert i sand og ösku. — Er það alveg áreiðanlegt? Var henni eitthvað í nöp við yð- ur? Höfðuð þið átt i einhverju orðaskaki áður? — Nei, nei. Alls ekki. En hún getur ekki .... Því að það væri al- veg fráleitt, er það ekki...? — Munið þér hvað hún sagði við yður? Ég meina orðrétt. Hún stóð og beið í ganginum eftir að þér kæmuð. Hvað sagði hún fyrst? En Louise Fagerman er ekki sérlega ákjósanlegt vitni. Endur- minningar hennar um atburði næturinnar eru heldur þoku- kenndar og hún hefur bersýni- lega ekki skil'ið neitt í samtalinu annað en það sem sagt var berum orðum — og ekki skynjað að neitt byggi þar að baki. — Já, hún sagði að hún þyrfti að tala við mig. Um dálítið sem I væri mjög áriðandi. Og klukkan var að verða eitt, svo að ég hugs- aði með mér að henni hlyti að liggja eitthvað merkilegt á hjarta. En þegar við vorum komnar inn til min, sat hún bara i makindum og reykti og sagði eiginlega ekk- ert sérstakt, nema hún sagðist vilja vara mig við. Við hverju, spurði ég, og þá sagði hún, að ég væri svo trúgjörn og einföld og að ég skyldi gæta mín á því að treysta vissri manneskju um of. Hún var svo leyndardómsfull og illgjörn og merkileg með sig að ég varð reið og sagði henni að hún skyldi láta það ógert að hlaupa með þvaður og blaður um vini mína og þá sagði hún að þessi vissa manneskja væri ekki bein- línis vinur minn. — Ja, hún sagði hreint út að það væri Robert. — Nefndi hún áreiðanlega nafnið? — Já. Og ég held að það hafi ráðið úrslitum að hún nefndi, hann meðfornafni — einsog hún hefði leyfi til þess! Ég ætti að fylgjast með öllum viðskipta- ferðalögunum hans til Stokk- hólms, þá mundi ég komast að þvi hvað hann hefði fyrirstafni þegar hann þættist vera að vinna. Og þegar éghrópaðiuppyfirmig að þetta væru allt svívirðilegar lygar vegna þess að Robert elskar MIG, og að hann færi ekki til Stokk- hólms til að hitta aðrar konur, þá hló hún hátt og sagði að ég væri svo einföld sál að það væri blátt áfram hlægilegt. En nú hefði hún búið mig undir þetta... sagði hún, eins og hún hafði sagt Robert hún myndi gera. Og svo yrði hann að sjá um hitt. Hún sat þarna og malaði eins og köttur og var svo ógeðsleg að mig langaði mest.til að slá hana, en við höfum vist verið svo háværar að Eva Gun hefur heyrt til okkar og hún kom þjótandi inn og batt enda á sam- ræðurnar og það var sannarlega heppilegt, því að annars veit ég hreint ekki, hvað ég hefði tekið til bragðs. — Hvernig brást Betti Borg við, þegar Eva Gun kom og truflaði ykkur? — Þótt einkennilegt megi virð- ast varð hún óskaplega vandræða- leg þegar Eva Gun starði á hana og svo hvarf hún í einni svipan. — Og þér hafið auðvitað trúað Evu Gun fyrir þessu? — Já, og hún var alveg yndis- leg. Hún hughreysti mig og sagði að Betti hefði búið þetta til af VELVAKANDI Velvakandi svarar í slma 1 0-100 kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags. 0 Fullyrðingar og ályktanir, dregnar af hleypidómum Emil Als læknir hafði samband við okkur og hafði eftirfarandi að segja: „Vegna ummæla I erindi Hilmars Jónssonar bókavarðar i Keflavík þar sem hann skilar hví frá sveitakonu að börn úr Reykja- vík, sem verið hafi hjá hénni hafi lélegan orðaforða, er rétt að benda þessari sveitakonu á, að hér mun um undantekningu að ræða, ef niðurstaða hennar er fengin af hleypidómaleysi og sanngirni. Að sjálfsögðu haf reyk- vísk börn meiri orðaforða en sveitabörn þar eð þau njóta tiðari mannlegra samskipta, hafa aðgang að flestum blöðum lands- ins, eru umkringd félagsstarfi af öllum tegundum og hafa afnot af fullkomnustu skólum landsins. Er óþarft að eyða fleiri orðum að þessu, en látin í ljós von um að ekki sjáist fleiri svona hleypi- dómar frá sveitakonum." Svo mörg voru þau orð, og lík- legt er að mörgum hafi runnið í skap þegar Hilmar Jónsson flutti þennan boðskap sveita- konunnar. Það er nú orðin vinsæl tízka, a.m.k. hjá sumum, að þurfa sífellt að hafa Reyk- víkinga, eða jafnvel börnin þeirra, að skotspæni og skeyta skapi sínu á ibúum höf- uðborgarinnar i tima og ótíma. Búið er að koma því inn hjá lands- mönnum, að mannfólkið hér á höfuðborgarsvæðinu njóti alls hins bezta, sem landið hefur á boðstólum, en önnur byggðarlög verði þá útundan sem því nemur. Að sjálfsögðu á að kappkosta að jafna aðstöðu allra landsins barna eins og frekast er unnt — um það blandast vist fáum hugur, en þessi stanzlausi fúkyrðaflaumur i garð Reykvikinga og næstu ná- granna þeirra er satt að segja að verða all þreytandi. Um orðaforða Reykjavikur- barna, scm dveljast í sveit um stundarsakir, er svo aftur það að segja, að engan þarf að undra þótt ekki kunni þau skil á orðum yfir sveitastörf af ýmsu tagi, frekar en hægt væri að ætlast til að sveita- börn séu vel heima i máli og orða- tiltækjum, sem lúta að vinnu- brögðum og hlutum, sem þeim eru ókunn. Annars væri gaman að heyra skoðun annars sveitafólks á þessu og þá alveg sérstaklega hvernig börn frá t.d. Akureyri og öðrum kaupstöðum — öðrum en Reykjavík — eru á vegi stödd með orðaforða sinn. 0 Vinnuþrælkun og velgengni Magnús Bjarnason, Aðalgötu 22, Sauðárkróki, skrifar: „Bryndis Schram flutti fyrir nokkru þáttinn „Um daginn og veginn". Hann var vel saminn og vel fluttur. Skoðunum Bryndisar, sem þarna komu fram, er ég i mörgu ósammála, sem eðlilegt er, þar sem ég er alþýðumaður, en hún svokölluð mennta- og lista- kona, og hefir uppeldi hennar, menntun og staða í þjóðfélaginu mótast af því. Bryndís minntist fyrst á mynd- ina um Grindavik og virtist vera ánægð með hana, af því að mynd- in lýsti svo vel hve vinnuþrælkun- in væri mikil á Islandi. Þó telur Bryndís, að betra hefði verið að taka myndina á fleiri stöðum en í Grindavík, en furðar sig á þvi, að Grindvikingar og ýmsir aðrir skuli vera svona mikið á móti myndinni. Ég undrast það ekki. Myndin átti að sýna starf og menningu mannfólksins í íslenzku sjávar- þorpi. Myndatökumennirnir velja Grindavík, koma þar þegar loðnu- vertið stendur sem hæst, ganga um bæinn og tala varla við nokkurn mann. Við, sem horfðum á myndina, vorum harla ófróðir um íbúana í Grindavík. Hins veg- ar hefi ég um það heyrt, að slysa- varnadeildin i Grindavík hafi á undanförnum árum bjargað mörgum mönnum frá dauða. Mun þetta starf unnið i sjálfboða- vinnu. Tel ég þetta menningar- starfsemi, þó þessir menntamenn, sem tóku myndina, telji það ekki þess virði að minnast á það. I einu orði sagt var myndin mjög ómerkileg, þvi að hún náði ekki þvi marki, sem stefnt var að og var nánast árás á vinnandi fólk. Eitt af dæmunum, sem þeir tóku um menningarleysi Grindvíkinga er það, að tvær málverkasýningar voru sýndar í bænum og báðar illa sóttar. Bryndís vill sýnilega bæta um fyrir jábræðrum sinum og fer nú að lýsa lífinu á Isafirði. Þar er ekki um auðugan garð að gresja, erfitt að halda uppi mennta- og listalífi, aðallega vegna vinnu- þrælkunar, þar sem almúginn vinnur myrkranna milli og hugsar mest um að taka þátt í lifsgæða- kapphlaupinu, en lítið sem ekkert um Iistir. Hún segir frá því, að nokkrir unnendur lista á ísafirði gengust fyrir því, að frönsk myndasýning, sem verið hafði til sýningar í Reykjavík, var flutt vestur á ísa- fjörð og sýnd þar. Nú var hin mikla stund runnin upp á Isafirði, fólk átti nú kost á að sjá heims- fræga list, sem hafði verið sýnd í Reykjavik og líklega i listaborg- inni Paris. Allir listunnendur biðu í ofvæni, nú skyldi þorskur- inn ekki vera einráður á Isafirði næstu daga. Bryndís og annað mennta- og listafólk mun að sjálfsögðu hafa verið mjög ánægt og talið sig vera búið að gera skyldu sína. Kannski það hafi fengið styrk til að flytja list um landið? En hvað gerðist? Bryndís segir frá þvi I þætti sínum, en það er þó varla eftir hafandi, það er svo ótrúlegt. Ekki vil ég þó efa, að frúin fari með rétt mál. Það kom enginn maður á sýninguna. Hefur nokkur heyrt annað eins. Það má næstum segja, að Isfirðingar hafi sett met í menningarleysi, ef mælistika mennta- og listamanna er lögð á atburðinn, enda átti blessuð frúin erfitt að temja tilfinningar sinar. En allur þessi atburður er eins og dularfullt fyrirbæri. Ekkert var dularfullt við það, almenn- ingur, sem vinnur myrkranna á milli kæmi ekki. En hvar voru mennta- og listamennirnir á Isa- firði? Bryndis var áður búin að telja upp skólana á staðnum og þeir voru margir og þar á meðal bæði menntaskóli og tónlistar- skóli. Kennarar allra þessara skóla, svo og embættismenn og allir þeir, sem vinna alls konar þjónustustörf og fjölmargir aðrir vinna ekki myrkranna á milli, margir 5—8 tima daglega. Ég gæti þvi trúað, að þessi hópur væri fjölmennari á Isafirði heldur en sjómenn og verkafólk, sem vinn- ur í frystihúsum. Það er þvi mis- skilningur hjá biessaðri mennta- mannafrúnni, að áhugaleysi fyrir listum sé að kenna vinnu — þrælkun, sem hún nefnir svo. Það eru margar ástæður fyrir því, að listsýningar eru oft illa sóttar. Ein er sú, að margir eru ekki hrifnir af nútimalist. Vert er að gjalda varhug við þeirri skoð- un, að einhverjir útvaldir séu ein- ir færir um að dæma, hvað sé list og hvað ekki. Hver einstaklingur á auðvitað að dæma um það sjálfur. I áðurnefndri listamannastétt fjölgar með hverju árinu sem líður og gerir hún sífellt meiri og meiri kröfur um stuðning og sér- réttindi. Þetta fólk finnur mjög til sin og þykist hafa meira vit á list en aðrir. Meiri hluti málar- anna málar abstrakt sem kallað er. Sama virðist hvernig rnyndin snýr, og ekki er hægt að sjá af hverju hún er, þó menn horfi á hana dögum saman. Margir rit- höfundar og skáld ganga með þær grillur, að þeir séu listamenn og þjóðin geti ekki án þeirra verið. Þessi hópur I þjóðfélaginu fer að skipta hundruðum og er hávær um eigið ágæti. Við heyrum oft i útvarpinu um hádegið þessar listaperlur, sem kallaðar eru ljóð, en sem almenningur nefnir atóm- ljóð, enda algjört öfugmæli að kalla þetta ljóð eða kvæði, þó ís- lenska ríkið verðlauni vitleysuna. Á ellefu hundruó ára hátið Is- lands byggðar gat ekkert af þess- um svokölluðum skáldum ort kvæði, sem boðlegt væri á hátið- inni. Svo mikil var eymd þeirra og aumingjaskapur. Það er þess- vegna mjög eðlilegt, að almenn- ingur hlaupi ekki upp til handa og fóta, þegar þetta fólk er á ferð og finnst með réttu, að þangað sé oft og tiðum harla lítið að sækja. Þarna er ein orsökin til þess, að þetta fólk fær oft litla aðsókn. Þá talar frúin um Ieiksýningar á tsafirði og er þar svipaða sögu að segja og um myndasýningar, fólk sækir illa og frúin telur orsökina vera þá, að fólkið vinnur myrkranna á milli. En þar er um sama misskilning að ræða og ég hefi áður bent á. Frúnni finnst, að Isfirðingar séu mjög undarlegir menn, þeir fari suður í Reykjavík, já jafnvel til útlanda, til að sjá leiksýningar, en láti ekki sjá sig heima og virðist hún vera hálförg yfir þessu. Ekki getur frúin um það, hve mörg prósent af ísfirð- ingum eru svona undarlegir og hefði það þó verið fróðlegt. 0 Skömm að vinna? Það má heita sérkennileg árátta hjá sumu þessu mennta- og lista- fólki að vera sífellt að skamma og gera litið úr því fólki, sem vinnur langan vinnudag. Þetta fólk er þó miklu nauðsynlegra fyrir þjóðar- búið en það sjálft. En hvers vegna eru menn að vinna svona lengi? Það eru aðallega tvær orsakir til þess. Launþegar taka þátt í lifs- gæðakapphlaupinu. Frúin talar með litilli virðingu um kapp- hlaupið. En hvernig er það, hefir hún ekki sjálf tekið þátt i því? Mér er nær að halda það. Og þegar fólkið, sem vinnur stuttan vinnudag, getur veitt sér gæðin, kemur þá ekki af sjálfu sér, að almenningur keppi eftir því sama. Er ekki sagan alltaf að end- urtaka sig: Það sem höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það. Ég man það, að á viðreisnar- árunum var deilt hart á stjórnina fyrir að fólk gæti ekki lifað af dagvinnunni einni og var i þvi sambandi rætt uni vinnuþrælkun. Ný stjórn tók við. Hún hét þvi veglega nafni Vinstristjórn. Sett voru lög, þar sem ákveðið var að daglegur vinnutimi skyldi vera rúmir 7 timar. Sjálfsagt hafa margir verið hrifnir af þessu og búist vió, að nú þyrftu þeir ekki að vinna nema dagvinnuna. En hrifningin hjaðnaði furðu fljótt. þegar menn urðu þess varir, að þeir höfðu sjaldan eða aldrei verið fjær þvi, að daglaunin nægðu fyrir daglegum þörfum. Verðbólgan óx hjá vinstristjórn- inni og það svo mikið, að hún setti Evrópumet, áður en hún veltist úr völdunum. Ætli verðbólgan sé ekki ein aðalorsökin fyrir löngum vinnudegi. Frúin ætti því að hug- leiða, hvaða þátt hún á I þessari þróun. Hin orsökin er sú, að sjávarútveginn vantar vinnuafl, þegar mikill afli berst að landi. Eina úrræðið verður að biðja fótk- ið að vinna lengur, til þess að bjarga verðmætum frá skemmd- um. Falla þarna saman hags- munir beggja, verkafólks og at- vinnurekenda. Vinnan er nauðsynleg hverjum manni og við Islendingar höfum allt frá landnámsöld orðið að vinna myrkranna á milli, þegar mikið hefur verið um að vera, bæði við landbúnað og sjávarút- veg. Þessi mikla vinna er sjálfsagt ein af orsökum þess, að við höfum lifað af harðindin, sem dunið hafa yfir þjóðina á undanförnum öldum. Og þrátt fyrir tæknina, þurfum við enn að vinna mikið á köflum, en vinnan er nú oftast miklu léttari en áður var. En hefur þetta mennta- og lista- fólK nokkuð hugleitt það, hvernig færi, ef sjómenn og fiskvinnslu- fólk ynni aðeins rúma 7 tima á dag. Veit það ekki, að efnahagsleg velferð okkar veltur á því að afla sem mest, vinna úr hráefninu og fá sem hæst verð fyrir fiskinn. En þetta fólk hefir öflugan stuðningsmann þar sem er út- varpsráð. Má í þvi sambandi minna á ráðningu þeirra tveggja manna, sem gerðu hina frægu Grindavikurmynd. Fréttamenn sjónvarpsins eru fjölhæfir og hæfir í sinu starfi. Þeir hafa haft umsjón með töku margra mynda og hefir þeim tekist mjög vel. Er það ekki hygginna manna háttur, ef einhver vinnur vel, að fela hon- um starf áfram. Ekki fannst út- varpsráði það, heldur ræður 2 nýja menn til að gera 7 ómyndir. Hefði nú ekki verið vitlegra að byrja með 2 myndir og vita hvern- ig tækist til og ákveða svo um fleiri myndir. Nei, útvarpsráði fannst það ekki. Það virðist hafa verið áhugamál þess, að fá fram ákveðnar skoðanir, einmitt þa>r. sem komu fram í myndinni um Grindavík. Þá má lika hugleiða hvort ekki hefði verið hag- kvæmara að nota eigin mannafia við myndatökuna. Manni verður á að spyrja, hvort útvarpsráð gæti ekki sýnt meiri sparnað og hagsýni í rekstrinum. til að minnka tugmilljóna tekju- halla. Magniis Bjarnason."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.