Morgunblaðið - 24.01.1975, Side 36

Morgunblaðið - 24.01.1975, Side 36
RUCIVSinCflR ^t*-*22480 Prentum stort sem smátt fre yjugötu 14 S«mi 17467 FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 Gjaldeyrisvarasjóðuríim nam aðeins 2ja vikna innflutningi Gjaldeyrisstaðan rýmaði 1974 um 7,2 milljarða króna LOKATÖLUR liggja nú fyrir um gjaldeyrisstöðu bankanna í árslok 1974 og nemur nettó- gjaldeyriseign bankanna samkvæmt þeim 1.914 millj. kr. miðað við skráð gengi í árslokin. Er þá búið að draga frá gjaldeyris- eigninni lán, sem Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn veitti vegna hækkunar olíuverðs ásamt öðrum reiknings- skuldum bankanna. . Reiknað á gengi í árslok 1974 hefur gjaldeyrisstaða bankanna rýrnað um 7.158 millj. kr. á árinu, en um 5800 millj. kr., ef reiknað er á meðalgengi ársins. Tölur um vöru- og þjónustuvið- skipti í desember eru enn ekki fyrir hendi, en samkvæmt laus- legu bráðabirgðayfirliti er nú gert ráð fyrir, að viðskiptahallinn 1974 hafi numið um 15.300 millj. kr. reiknað á meðalviðskiptagengi ársins. Er það um fjórfalt meiri halli en árið 1973. Þessi mikli halli hefur verið jafnaður með rýrnun á gjaldeyrisstöðunni, sem nemur um 5.800 millj. kr. reiknað á meðalviðskiptagengi ársins, ásamt löngum erlendum lán- tökum, en áætlað er, að innkomin löng erlend lán, að frádregnum afborgunum slíkra lána, hafi numið um 9.100 millj, kr. Þá hefur nettó-innstreymi frá ýms- um öðrum fjármagnshreyfingum numið um 400 millj. kr. Þá ber þess að geta, að ofan- greind gjaldeyrisstaða 1.914 milljónir króna nægir aðeins fyrir tveggja vikna innflutningi og jafnframt er búizt við því að gjaldeyrisstaðan muni enn versna á næstunni. Eins og sést á þessari mynd er NORGLOBAL engin smá- smiði, enda yfir 26 þúsund lestir að stærð. Skipið getur brætt 1500—2500 lestir af loðuu á sólarhring, og ætti þvf að koma loðnuflotanum að miklu gagni, ekki sfst þar sem skipið getur fylgt loðnu- flotanum, eftir þvf sem loðn- an færir sig vestur á bóginn. Fljótandi loðnuverk- smiðja á miðin Gervimjólk úr fiskslógi RANNSOKNASTOFNUN fisk- iðnaðarins hefur sfðan f vor verið með tilraunir til að vinna úr fiskslógi efni, sem notað er sem gervimjólk fyrir kálfa. Mikil eftirspurn mun vera eftir þessu efni, Frakkar nota t.d. 4—6 þúsund tonn á ári, og eftir þeim upplýsing- um, sem fyrir hendi eru, er verðlag helmingi hærra á þessu dufti en á fiskmjöli. Mbl. leitaði frétta af þessum tilraunum hjá dr. Birni Dag- bjartssyni, framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Sagði hann að tilraunirnar hefðu gengið vel. Fengist ágætis framleiðsla úr slógi með svokallaðri sjálf- meltingu. Hvatarnir úr maga Framhald á bls. 22 FYRIRTÆKIN Hafsfld h.f. á Seyðisfirði og Isbjörninn h.f. f Reykjavfk hafa ákveðið að taka norska bræðsluskipið Norglobal sem er 26000 lestir að stærð á leigu, til að bæta upp það vinnslu- tap, sem hlaust er sfldarverk- smiðja Hafsildar á Seyðisfirði skemmdist af völdum snjóflóðs fyrir skömmu. Skipið er væntan- legt á loðnumiðin fyrstu dagana f febrúar og verður a.m.k. 45 daga á Islandsmiðum. Norglobal getur brætt allt að 2500 lestir af loðnu á sólarhring eða 1400 lestum meira en en þær tvær verksmiðjur, sem urðu fyrir snjóflóðunum á Seyðis- firði og f Neskaupstað. Þessi fljót- andi fiskimjölsverksmiðja er algjörlega óháð allri aðstöðu f landi eins og t.d. með vatn og f áhöfn skipsins eru 60 manns. Bræðurnir Jón og Vilhjálmur Ingvarssynir hjá Isbirninum og Hafsíld sögðu í samtali við Morgunblaðið seint í gærkvöldi eftir að gengið hafði verið að tilboði Norðmanna um leigu á skipinu, að það gæti losað úr 4 loðnuskipum samtímis, 200 tonn úr hverju á klukkustund eða alls 800 tonn. Hráefnisgeymar skips- ins taka um 4000 lestir, þannig að hráefnið er alltaf svo til nýtt þegar það er brætt, og betri afurð- ir fást fyrir bragðið. Afköstin eru minnst 1500 lestir á sólarhring en mest 2500. Norglobal hefur mjöl- geymslur fyrir 9000 lestir, og er' mjölið geymt laust; til að koma í veg fyrir sjálfsíkveikju er sett í það antioxidant. Lýsistankar þess taka 2400 lestir. Þeir Jón og Vilhjálmur sögðu, að skipið væri nú rétt að koma til Noregs frá Þýzkalandi, en þangað kom það frá Afríkumiðum til að losa mjöl, legði af staó frá Kristiansand eftir nokkra daga og ætti ekki að koma seinna en 2.—3. febrúar á Islandsmið. Þegar við spurðum þá hvers vegna þeir hefðu ákveðið að taka skipið á leigu, sögðu þeir, að eftir að full- víst hefði orðið að verksmiðja Hafsildar á Seyðisfirói yrði- ekki starfrækt á þessari loðnuvertíð, þá hefðu þeir tekið að kanna þessi mál og komist í samband við Norðmennina gegnum Úlf Sigur- mundsson hjá Útflutningsstofnun iðnaðarins. Strax hefði komið já- Getur brœtt allt að 2500 lestir á sólarhring kvætt svar að utan og leitað hefði verið til Matthíasar Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra í fyrradag. Hann hefði brugðið skjótt við og leitt málið til lykta þegar í gær- kvöldi. — Við gerum okkur góðar vonir um að skipið geti komið flotanum að góðu gagni, svo fremi að ekki komi til verkfalla. Ef reiknað er með, að Norglobal geti brætt með lágmarksafköstum í 45 daga á loðnuvertíðinni, þýðir það að skipið gæti brætt 67500 lestir af loðnu. Skipið er rösklega Framhald á bls. 22 Annar Blönduósbátanna kœrður „Róum í fyrramálið,” segir fram- kvæmdastjóri rækjuvinnslunnar SJAVARÚTVEGSRAÐUNEYT- IÐ hefur nú kært skipstjóra ann- ars Blönduósbátsins Nökkva til dómsmálaráðuneytisins fyrir ólöglegar rækjuveiðar f Húna- flóa, <ð þvf er Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra tjáði Morgunblaðinu f gær. „Þessi bát- ur hefur ekki veiðileyfi og veiðar hans þar af ólöglegar,“ sagði ráð- herra f samtali við Morgunblaðið. Verður farið með mál bátsins eins og um fiskveiðibrot sé að ræða. Síðasta olíuhækkun kostar fiskiskipaflotann 450 millj. Gasolían ódýrari í öðrum nágrannalöndum HÆKKUNIN sem varð á gasoliu fyrr í þessum mánuði, er gasolíulítrinn til fiskiskipa hækkaði úr kr. 5.80 í kr. 8.20 mun kosta fiskiskipaflotann nálægt 450 milljónum króna á ársgrundvelli. Þessi aukni olíukostnaður skiptist þannig, aó 215 milljónir króna leggjast á bátaflotann — þar með talda loðnubátana — en um 224 milljónir á togarana. Olíueyóslan í þessu dæmi er miðuð við olíu- notkun flotans í september. Rétt er að taka fram að í raun er gasolíuverðið til fiskiskipa hið sama og til húshitunar eða kr. 16.70 en útgerðin fær hana niður- greidda og er afgangurinn 8.50 kr. greiddur úr sérstökum sjóði i vörzlu ríkisins. Samkvæmt upplýsingum Landssambands ísl. útvegsmanna er heildarverðið á gasolíu hérlendis töluvert óhag- stæðara en í þeim höfnum sem íslenzk fiskiskip sigla helzt með afla til erlendis. Þannig kostar lítrinn af gasolíu í enskum höfn- um kr. 15.35, í Þýzkalandi kr. 12.30 og í Danmörku kr. 14.10. Af þessu tilefni sneri Mbl. sér til Önundar Asgeirssonar, for- stjöra Oliuverzlunar Islands, og spurði hann nánar um markaðs- aðstæður í Evrópu. Önundur kvað verðlag á gasolíu yfirleitt hafa verið mjög stöðugt í Evrópulönd- um marga undanfarna mánuði og tiltölulega lægra en gasoliuverðið Framhald á bls. 22 Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Kára Snorrason, fram- kvæmdastjóra rækjuvinnslunar á Blönduósi og skipstjóra annars rækjubátsins, kvað hann báta við Húnaflóa ekkert hafa róið siðustu daga vegna veðurs en í rækju vinnslunni væri nú verið að ljúka vinnu við aflann er Nökkvi kom með úr siðasta róðri. Varðandi kæru sjávarútvegsráðuneytsins sagði Kári, að hann teldi hann ekki óeðlilega úr því að ráðherra teldi sig hafa lögin á bak við sig. Forstöðumenn rækjuvinnslunar drægju það hins vegar mjög í efa „og við munum róa strax í fyrra- málið ef veður leyfir.“ Að sögn Kára hefur Blönduós- verksmiðjan nú aðeins yfir Nökkva að ráða, þar sem Aðal- björg — hinn rækjubáturinn — verður að fara í slipp. Verksmiðj- an hefur aftur á móti auglýst eftir bátum í viðskipti og einn skip- stjóri sýnt því áhuga. Skrifaði hann sjávarútvegsráðuneytinu til að spyrjast fyrir um hver við- brögð þess yrðu, ef hann flytti sig með bát sinn yfir á Blönduós en fékk loðin svör eftir því sem Kári sagði. Þessi skipstjóri missti hins vegar bát sinn fyrir skömmu og er nú á höttum eftir leigubát, sem Kári kvaðst vonast til að mundi leggja upp hjá Blönduósverk- smiðjunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.