Morgunblaðið - 21.02.1975, Side 31

Morgunblaðið - 21.02.1975, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975 31 r I stuttu máli íslandsmótið 1. deild Iþróttahúsið I Hafnarfirði 19. febr. URSLIT: Haukar — FH 17:23 (12:17) Gangur leiksins Mfn. Haukar FH í. 0:1 Arni 2. 0:2 Olafur 3. Stefán 1:2 4. 1:3 óiafur 6. Arnór 2:3 7. 2:4 Þórarinn 7. 2:5 Ólafur 8. Olafur 3:5 9. 3:6 Jón 11. Hördur (v) 4:6 13. ólafur 5:6 13. 5:7 ólafur 14. Hörður (v) 6:7 14. 6:8 Gunnar 16. 6:9 Þórarinn 18. 6:10 Þórarinn (v) 20. 6:11 Þórarinn (v) 21. 6:12 Tryggvi 22. 6:13 Gunnar 23. Frostl 7:13 23. 7:14 Gunnar 23. Elfas 8:14 24. Hörður 9:14 26. Hörður (v) 10:14 26. 10:15 Gunnar 28. 10:16 Þórarinn (v) 29. Hörður 11:16 30. 11:17 Þórarinn 30. Frosti 12:17 Hálfleikur 37. Stefán 13:17 39. Hörður (v) 14:17 39. Arnór 15:17 41. Hörður (v) 16:17 43. 16:18 Þórarinn 46. 16:19 Geir 51. 16:20 Gunnar (v) 57. 16:21 Þórarinn 58. 16:22 Ólafur 59. 16:23 Ólafur 60. Frosti 17:23 MÖRK HAUKA: Hörður Sigmarsson 7, Frosti Sæmundsson 3, Stefán Jónsson 2, Arnór Guómundsson 2, ölafur ólafsson 2, Elías Jónasson 1. MÖRK FH: Þórarinn Ragnarsson 8, ólafur Einarsson 6, Gunnar Einarsson 5, Arni Guð- jónsson 1, Jón Gestur Viggósson 1, Tryggvi Harðarson 1. BROTTVÍSANIR AF VELLI: Gunnar Einarsson, Tryggvi Harðarson og Kristján Stefánsson, FH, f 2 mfn., Frosti Sæmundsson, Elfas Jónasson og Svavar Geirsson, HaUkum, f 2 mfn. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Ólafur Torfa- son varði vftakast Þórarins Ragnarssonar á 45. mfn. og Hjalti Einarsson varði vftakast Harðar Sigmarssonar á 47. mfn. DÓMARAR: Björn Kristjánsson og Óli Olsen og dæmdu þeir yfirleitt með ágætum. —stjl. v.#*' Islandsmótið 1. deild Iþróttahúsið Hafnarfirði 19. febr. URSLIT: Grótta — IR 19:16 (8:10) Gangur leiksins Mín. Grótta ÍR 3. 0:1 Guðjón 4. Halldór 1:1 7. 1:2 Brynjólfur 8. 1:3 Guðjón 8. Árni 2:3 11. 2:4 Ásgeir 12. 2:5 Bjarni 15. 2:6 HörðurA. 15. Halldór 3:6 17. Halldór 4:6 17. 4:7 HörðurH. 18. Sigurður 5:7 19. 5:8 Brynjólfur 21. Magnús 6:8 25. Halldór 7:8 26. Björn 8:8 28. 8:9 Hörður H. 28. 8:10 Asgeir Hálfleikur 32. Árni 9:10 34. Halldór 10:10 35. Halldór 11:10 36. Kristmundur 12:10 39. Georg 13:10 40. 13:11 Guðjón (v) 42. 13:12 Guðjón (v) 44. 13:13 Guðjón 45. Magnús 14:13 47. Halldór 15:13 50. 15:14 Guðjón (v) 52. Halldór 16:14 55. Georg 17:14 57. Björn (v) 18:14 58. 18:15 HörðurH. 59. Magnús 19:15 60. 19:16 Bjarni MÖRK ÓRÓTTl': llalldðr Kristjánsson 8. Arni Indriðason 2, Björn Pétursson 2, Georg Magnússon 2, Sigurður Pétursson 1, Kristmundur Asmundsson 1. MÖRK ÍR: Guðjón Marteinsson 6, Hörður Hákonarson 3, Brynjólfur Markússon 2, Bjarni Hákonarson 2, Asgeir Elíasson 2, Hörður Arnason 1. BROTTVÍSANIR AF VELLI: Guðjón Marteinsson, lR, f 2 mfn. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Jens G. Einars- son varði vítakast Björns Péturssonar á 20. mfn. DÓMARAR: Magnús V. Pétursson og Valur Benediktsson. Þeir áttu fremur slakan dag að þessu sinni, —gerðu of mörg mistök. — stjl. Kvikmyndasýning um mannúðarsálfræði SAMBAND á Islandi um mannúðarsálfræði efnir til kvik- myndasýningar næstkomandi laugardag kl. 3 i stofu 103 í Arna- garði. Sýndar verða tvær 45 mín- útna kvikmyndir með bandaríska sálfræðingnum Carl Rogers. I þeirri fyrri fæst innsýn inn í sál- lækningaraðferð dr. Rogers, (Client Centered Therapy), i þeirri seinni, sem nýlega hlaut verðlaun sem besta fræðslumynd ársins í Bandaríkjunum, sést dr. Rogers leiðbeina sálvaxtarhóp (Encounter Group). Öllum, sem áhuga hafa er heimill aðgangur og þátttaka í umræðum um efni myndanna. — Danir viðbúnir Framhald af bls. 1 sen að kreppan sem öll iðnaðar- riki ættu við að stríða stafaði af of veikri stjórn þjóðfélagskerfisins. „Við getum ekki leyst kreppuna einir. Við verðum að beita áhrif- um okkar i alþjóðasamtökum, ekki sizt á vettvangi Efnahags- bandalagsins, til að leysa krepp- una,“ sagði Jörgensen. Hann sagði að sósíaldemókratar stæðu við tillögu sína um bráða- birgðalán frá ríkinu tii húsnæðis- bygginga. Hann sagði að þær yrðu auknar þar sem atvinnuleysi væri mest í byggingariðnaði og boðaði ráðstafanir til að bæta aðstöðu útflutningsfyrirtækja í iðnaði og öðrum atvinnugreinum og stuðn- ingi við hann. Þau yrðu tryggð gegn taprekstri, þau fengju lán úr sjóði sem yrði komið á fót til styrktar þeim, þau mættu auka afskriftir og létt yrði undir með þeim á annan hátt. Jörgensen sagði enn fremur að reynt yrði að ráða fram úr erfið- leikum vegna atvinnuleysis ungs fólks. Um yfirstandandi samn- inga um laun opinberra starfs- manna sagði hann að hinir hæst- launuðu gætu ekki gert sér vonir um launahækkanir. Hann hvatti til hófstillingar í kjaramálum og skoraði á verkalýðsfélög aó sýna ábyrgðartilfinningu. Jafnframt sagði Jörgensen að skattalögin yrðu einfölduð og skattabyrðunum jafnar skipt. Tekinn yrði fyrir í þinginu réttur til frádráttar vegna vaxta og skulda. Hann sagði að útgjöld rikisins mundu ekki aukast hlutfallslega meir en verðlag og kaupgjald að fráteknum nauðsynlegum út- gjöldum til að auka atvinnu. „Við verðum að brjótast út úr þeim vitahring sem þróunin hefur kom- izt í,“ sagði Jörgensen og hvatti til samvinnu allra flokka um lausn efnahagsmálanna. — Portúgal Framhald af bis. 1 skattálögur á rekstrarfjármagn. Helztu atriði áætlunarinnar eru: Aukið pólitískt eftirlit með efnahagslifinu þannig að það þjóni hagsmunum almennings bétur, rikisaðstoð til að koma í veg fyrir gjaldþrot og atvinnu- leysi, bætt heilbrigðis- og mennta- málaþjónusta og önnur félagsleg þjónusta, þ.á m. auknar atvinnu- leysisbætur og almannatrygging- ar. Gert er ráð fyrir að ríkið yfir- taki 51% hluta í helztu atvinnu- greinum landsins, bæði með hlutabréfayfirtöku og beinni þjóðnýtingu. Þessar atvinnu- greinar eru nýting olíu, jarðgass, kola, úraníum, járns, kopars, blýs, sinks og vissra annarra málma, stáliðja, olíuhreinsun, viss bensín- efnaiðnaður, tóbaksframleiósla, vopnaframleiðsla, og framleiðsla og dreifing raforku. — Erfiðleikar Framhald af bls. 32 háð erlendu efni og vegna gjald- skrárþvingana á undanförnum þremur árum hefur hún þurft að taka erlend lán að upphæð sam- tals um 7,8 milljónir dollara. Gengisfellingin nú kemur sér þvi mjög illa fyrir Rafmagnsveituna og eykur t.d. skuldir hennar um 233 milljónir króna en eykur vaxta- og afborganabyrðina um 57,5 milljónir. Við þetta má svo bæta áætluðum efniskaupum er- lendis frá á þessu ári að upphæð 75 milljónir króna. Aðalsteinn kvaðst vonast til að rikisstjórnin myndi sýna skilning á erfiðleikum Rafmagns- veitunnar, Hann benti á að viðast hvar annars staðar i heiminum væri talið eðlilegast að dreifi- veitur á borð við Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem ekki önnuðust beina orkuöflun, fjármögnuðu sig sjálfar, en þyrftu ekki að treysta á lánsfjármagn. Þá taldi Aðalsteinn að opinberar álögur á raforku- söluna væru orðnar óeðlilega miklar, en söluskattur og verð- jöfnunargjald næmu nú 32% Benti Aðalsteinn á að 13% verð- jöfnunargjaldið sem komst á i október s.l. myndi kosta Raf- magnsveituna á þessu ári um 244 milljónir kr. og rynni þessi upp- hæð beint til ríkisins til að jafna raforkuverðið í dreifbýiinu. Jóhannes Zoega hitaveitustjóri tók mjög í sama streng og Aðal- steinn. Hann kvað hækkunarþörf Hitaveitunnar nú einhvers staðar á milli 30 og 40%. i lok síðasta árs fór Hitaveitan hins vegar fram á 9—10% hækkun en það hefur ekki fengizt afgreitt enn. Kvað Jóhannes Hitaveituna rekna með bullandi tapi og fyrstu sjúkdóms- einkennin í rekstri fyrirtækisins væru þegar farin að koma fram, þar sem væri niðurskurður á framkvæmdum við lagningu hita- veitu í nágrannabæjunum og á ýmsum brýnum framkvæmdum innan borgarinnar. — Krafla Framhaid af bls. 2 fimm vinnsluholur við Kröflu næsta sumar. Þá er einnig ætlun in að steypa upp stöðvarhús og gera það fokhelt, svo að innivinna geti farið þar fram næsta vetur. ir Frárennsli vandamál Ekki hefur enn verið tekin endanleg afstaða til þess hvað gert verður við frárennslisvatn virkjunarinnar, en það kann að valda nokkrum vanda. Náttúru- verndarráð hefur eindregið lagzt gegn því að frárennslisvatnið renni í Mývatn, enda er hér um geysimikið magn að ræða eða um 500 sekúndulítra og 100° C heitu vatni. Þrjár lausnir koma til greina: 1) Að bora nýjar holur og leiða vatnið i þær og þannig niður í jörðina aftur. 2) Að leiða vatnið i pipum og dæla því yfir um 100 metra hæðarhindrun, svo að það geti runnið í átt til Jökulsár á Fjöllum. 3) Að gera undirstöðulón við virkjunarstað þar sem meginhluti útfellingar steinefna ætti sér stað en frárennsli þess lóns ætti að vera skaðlaust samkvæmt reynslu I öðrum löndum. Þessi sfðasti kostur er lang ódýrastur en hinn fyrsti dýrastur, svo dýr að hann myndi kollvarpa fjárhagsgrundvelli virkjunar- innar, ef valinn yrði vegna hins gifurlega borunarkostnaðar. Jarðgufuvirkjanir eru öruggari á vetrum en á sumrum vegna meiri kælingar að vetrarlagi. Þessu er öfugt farið við vatns- virkjanir og kemur þetta því Norðlendingum sérstaklega vel. Búizt er við að afköst^vélanna við Kröflu verði allt að 70 MW. við hagstæð vetrarskilyrði. Fram- leiðendur vélanna hafa ábyrgst að þær þoli vel þetta aukaálag. — Sv. P. — Atli Dam Framhald af bls. 32 fá aðstöðu til veiða á Islands- miðum, ella væri vart hægt að reka þau.“ „Teljið þið saltfisktogarana verksmiðjuskip?“ „Nei, alls ekki. Saltfiskverk- un er eldgömul aðferð við vinnslu fisks, sem í langan tíma hefur verið stunduð bæði á Is- landi og í Færeyjum með svip- uðu móti. Aflinn er saltaður um borð, erí síðari fullunninri í landi og pakkaður þar. Við telj- um ekki mögulegt að skipa þessum togurum á bekk með frystitogurum Þjóðverja og Breta. Þessar veiðar skipta miklu máli í fiskveiðum okkar Færey- inga og það eina í þessum veió- um sem er frábrugðið veiðum annarra fiskiskipa okkar er það að um borð eru nokkur tæki sem spara nokkra menn. Þetta er því aðallega vinnuhagræðing og allt allt annað en verk- smiðjuskip eins og frystitogar- arnir stóru.“ „Hvernig leggjast viðræðurn- ar f ykkur?" „Við teljum að íslendingar vilji gera eins vel við okkur og unnt er og verði okkur þvi jákvæðir. Við höfum sama sjónarmið varðandi það hverjir eiga að hafa mestan rétt til fisk- veiða, þ.e. þær þjóðir sem byggja allt sitt á fiskveiðum og vió erum jafnframt sammála um að þaó séu stóru þjóðirnar, iðnaðarþjóðirnar, sem verði að gefa eftir í þeim efnum. Vió teljum að samningaviðræður og samningar Breta og Þjóðerja við islendinga séu á allt öðrum grunni en okkar viðræður, því fiskveiðar skipta þær þjóðir svo litlu. Við vonum því að sjónar- mið Islendinga gagnvart Bret- um, Þjóðverjum og öðrum með svipaða stöðu komi ekki inn í þetta mál gagnvart okkur, því við teljum okkur ekki passa í bát með þeim, heldur Islend- ingum sem skilja aðstöðu okk- ar.“ — Allar úrbætur Framhald af bls. 32 ríkisstjórnina að fyrrgreind endurskoðun á launajöfnunarbót- um færi fram. Jón Bergs, formaóur Vinnuveit- endasambandsins, kvaðst ekkert geta sagt um þetta atriði á þessu stigi málsins nema hvað fulltrúar beggja aðila vinnumarkaðarins ættu í dag fund meó ríkisstjórn- inni, aðallega um hlióarráðstafan- ir ríkisstjórnarinnar, en ekki væri ósennilegt, aó launajöfnunarbæt- ur kæmu þar einnig til umræðu. Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af Geir Hallgrimssyni for- sætisráðherra i gær til að spyrja hann hvað liói fyrrgreindri end- urskoðun launajöfnunarbóta. r Aburðarhækkun Framhald af bls. 3 þar sem notkun og útgjöld dreif- ast jafnar yfir árið. 4. Meiri munur verður en áður á búrekstrarlegri aðstöðu ein- stakra bænda, en því veldur: a) Mismunur á jörðum innan byggðarlaga og milli landshluta á uppskeru af hverjum hektara ræktaðs lands miðað við sama áburðarmagn. b) Misjafn úthagi og afréttar- land til beitar, sem fær aukið gildi ef dregur úr ræktunarbú- skap. c) Misjöfn efnahagsleg staða þeirra, einkum byrjenda i bú- skap, sem orsakar að þeir ná ekki sömu hagkvæmni í búrekstri, ef fjárhagsleg geta takmarkar kaup á jafn þýðingarmikilli reksturs- vöru og áburði. 5. Meðaláburðarnotkun virðist hafa verið innan þeirra marka, sem hagkvæmt má telja, miðað við hlutfall heyverðs og áburðar- verðs. 6. Við samdrátt á innlendri fóð- urframleiðslu gæti beitarálag á úthaga aukist það mikið, að gróðri væri hætta búin. Með hliðsjón af fyrrnefndum niðurstöðum um afleióingar stór- felldrar hækkunar á verði á áburði á landbúnað og almennt efnahagslíf, bendir nefndin á eftirfarandi leiðir til að mæta þeim vanda: 1. Mætt verði stórfelldri verð- hækkun á áburði n.k. vor með þvi að dreifa henni á 3—4 ár. Því greiði rikissjóður hluta hennar niður. Niðurgreiðslan verði þó ekki meiri en svo, að á n.k. vori hækki áburðarverð í liku hlut- falli og verðiag annarra útgjalda í verðlagsgrundvelli landbúaðar- ins mun gera frá fyrra vori. Niðurgreiðslan komi á fram- leiðslustigi áburðarins og greiðist til Aburðarverksmiðjunnar á fyrstu fimm mánuðum ársins. Þessi ráðstöfun dregur úr stór- aukinni lánsfjárþörf til rekstrar í landbúnaði, sem ekki er sjáanlegt að bankakerfið yrði fært um að leysa. Þá mun 'slíkt koma í veg fyrir annars fyrirsjáanlegan sam- drátt í fóðurframleiðslu i landinu, og ekki sist, að með þvi yrði unnið gegn margföldum verðþenslu- áhrifum þessarar hækkunar á al- mennt efnahagslif í landinu. Nefndinni er ljóst, að horfur á afkomu ríkissjóðs á þessu ári gefa ekki svigrúm til útgjalda af þessu tagi, nema auknar tekjur komi á móti. Því felst í þessari tillögu nefndarinnar, að finna verði tekjustofn til að mæta ofan- greindum niðurgreiðslum. Nefnd- in telur sig ekki bæra til að gera tillögu um ákveðinn tekjustofn, heldur þurfa réttir aðilar að fjalla þar um. Nánari skýringar um áhrif áburðarverðshækkunarinnar á lánsfjárþörf og almennt efna- hagslif er að finna í greinar- gerðum. 2. Stuðlað verði að betri geymslu og meðferð búfjár- áburðar og stórefldar rannsóknir þar að lútandi. Fulllítil áhersia hefur verið lögð hin seinni ár á notagildi bú- fjáráburðar. Við hækkað verðlag á tilbúnum áburði og með tiiliti til þess, að góðri nýtingu búfjár- áburðar getur fylgt gjaldeyris- sparnaður fyrir þjóðina, er nauó- synlegt að leggja ríka áherslu á betri nýtingu hans og auknar rannsóknir og leiðbeiningastarf- semi á þessu sviði. Auka þarf einnig leiðbeiningaþjónustu um notkun á tilbúnum áburói hjá ein- stökum bændum. 3. Rfkisstjórnin láti nú þegar hefja athugun á hagkvæmni aukinnar framleiðslu áburðar hér á landi, með innlendri orku sem aflgjafa. Haft verði samráð við stjórn Aburðarverksmiðjunnar f Gufunesi og kvaddir til þeir sér- fræðingar innlendir og erlendir, sem nauðsynlegir þykja til þess að fá óyggjandi niðurstöðu. At- hugun þessari verði hraðað svo sem kostur er. Ljóst er, að með þessu yrði ekki leystur sá vandi, sem nú steðjar aó, þar sem undirbúningur og bygging nýrrar verksmiðju tekur óhjákvæmilega nokkur ár. Nefnd- in telur þó mjög nauðsynlegt, að slík athugun verði gerð nú, til þess að fá úr því skorið, hvort hin stórfellda hækkun orkuverðs í heiminum hefur lagt grundvöll að aukinni áburðarframleiðslu innanlands. Auk þess ber að meta það öryggi, sem innlend fram- leiósla á áburði veitir landbún- aðinum. Nefnd sú sem vann að könnun áburðarmálanna var sett á stofn að beiðni landbúnaðarráóherra i september s.l. 1 henni áttu sæti Gunnar Guðbjartsson bóndi, til- nefndur af Stéttarsambandi bænda, Bjarni Helgason jarðvegs- fræðingur, tilnefndur af Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, Garðar Ingvarsson hagfræðingur, tilnefndur af Seðlabanka Islands, Helgi Bachmann viðskiptafræð- ingur, tilnefndur af Landsbanka Islands, Pálmi Jónsson bóndi og Jón Helgason bóndi tilnefndir af Búnaðarfélagi Islands og Guð- mundur Sigþórsson landbúnaðar- hagfræðingur, formaður án til- nefningar. Nefndin sendi út spurningaform til bænda, ráóu- nauta, söluaðila áburðar og fleiri aðila og aflaði sér gagna á sem víóustum grundvelli. Út frá þeim gögnum komst hún að framan- greindri niðurstöðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.