Morgunblaðið - 16.03.1975, Page 1
61. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975
BLÁFJÖLL. — Ef veður helzt gott, þá má reikna með því að skíðafólk fjölmenni
í Bláf jöllin í dag og næstu daga. Nú er þar nýfallinn snjór og skíðafærið ætti að
vera hið ákjósanlegasta. Þessa fallegu mynd tók ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnús-
son fyrir stuttu.
Spinola óvelkominn
gestur í S-Ameríku
Buenos Aires,
15. marz. Reuter.
ANTONIO de Spinola fyrrver-
andi forseti Portúgals fékk
dvalarleyfi til skamms tfma f
Argentínu f dag en neitaði að fara
úr flugvél spænska flugfélagsins,
sem flutti hann frá Spáni, fyrr en
hann fengi hæli sem pólitískur
flóttamaður í landinu.
Áður var flugvél Spinola f þrjá
klukkutíma á flugvellinum hjá
Rio de Janeiro þar sem hann mun
hafa beðið eftir svari frá
argentfnskum yfirvöldum við
beiðni um pólitískt hæli. Yfirvöld
í Brazilíu vildu ekki veita Spinola
landvistarleyfi í fyrstu.
StLsan Hayward látín
Los Angeles 15. marz
— Reuter
Oscarsverðlaunaleikkonan
Susan Hayward lézt f gær að
heimili sfnu f Beverly Hills, 55
ára að aldri. Hún hafði verið
með ólæknandi æxli í heila f
tvö ár og verið meira og minna
á sjúkrahúsum þennan tfma,
og fyrir tveim mánuðum var
henni skýrt frá þvf að ekki
yrði unnt að fjarlægja æxlið
og hún myndi deyja innan
skamms.
Susan Hayward hlaut
Oscarsverðlaunin árið 1959
fyrir leik sinn í myndinni „I
Want to Live“.
Seinna var Spinola veitt hæli
sem pólitfskum flóttamanni f
Brasilfu og flugvél hans hélt til
Rio de Janeiro.
Vopnaðir hermenn umkringdu
flugvél Spinola þegar hún lenti í
Buenos Aires en Spinola, kona
hans og 15 liðsforingjar sem voru
i fylgd með þeim sváfu í vélinni.
Samkvæmt argentínskum heim-
ildum var Spinola aðeins leyft
að koma við i Argentinu og óstað-
festar fréttir hermdu að hann
mundi ef til vill biðja um hæli i
Chiie.
í Portúgal voru bankar opnaðir
i dag í fyrsta skipti siðan þeir
voru þjóðnýttir en ekki bar mikið
á því að fólk vildi taka út peninga.
I sumum bönkunum voru hengdir
upp borðar þar sem sagði að þeir
væru „eign alþýðunnar" og marg-
ir starfsmenn báru rauðar
nellikkur, tákn byltingarinnar.
Samkvæmt góðum heimildum
stendur til að þjóðnýta 35 trygg-
ingafélög landsins.
Kommúnistaforinginn Alvaro
Cunhal sakaði í dag miðflokkana
um að hafa undirbúið jarðveginn
fyrir byltingartilraunina á dögun-
um. Hann sagði í viðtali við blaðið
Diario de Noticias að „til væru
flokkar sem kölluðu sig lýðræðis-
sinnaða og frjálslynda en sýndu
með áróðri sinum og gerðum að
þsir væru afturhaldssinnaðir".
tlTLAGINN — Antonio de Spinola, fyrrverandi forseti Portúgais, í
flugvél sinni á flugvellinum í Buenos Aires ásamt fyrrverandi foringja
úr portúgalska hernum.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Finnar losa
eitur í sjó
Helsingfors 15. marz — NTB.
OLlUFfXAG finnska ríkisins,
Neste, mun innan skamms
fleygja 100.000 lítrum banvæns
eiturs í Atlantshafs. Blaðamenn
tveggja Helsingforsblaða voru
viðstaddir i nótt er 500 tunnur
eiturs voru fluttar um borð í risa-
olfuskipið „Enskeri", en þeim var
sfðan vísað á brott. Skömmu sfðar
hafði þó einn af yfirmönnum
Nestes samband við blaðamenn-
ina og skýrði frá því að f tunnun-
um væri blanda af kalíumoksíð
og arseniktrfoxíð, en bæði efnin
eru stórhættuleg og verða til við
úrfall við vinnslu hráolíu.
Skipstjórinn á „Enskeri" tjáði
blaðamanni Hufvudstadsblaðsins
að eiturtunnurnar yrðu fluttar
áleiðis til Persaflóa en þeim yrði
sökkt á miklu dýpi á leiðinni.
Þangað hélt skipið árla i dag.
Finnsk lög banna losun eiturefna
í sjó, og nær bann þetta bæði til
Eystrasalts og heimshafanna. Að
sögn olíufélagsins er þetta samt
eina leiðin til að losna við eitur-
efni þessi.
Ban Me Thuet
sögð fallin
Saigon, 15. marz. Reuter.
VIET CONG hélt því fram í dag
að stærsti bærinn á miðhálendi
Suður-Víetnam, Ban IVle Thuot,
væri algerlega á valdi kommún-
ista, en herstjórnin í Saigon hélt
þvf fram að enn væri barizt í
borginni.
Vo Dong Giang ofursti, varafor-
maður sendinefndar Viet Cong f
Saigon, sagði að mótspyrna
stjórnarhermanna hefði verið
brotin á bak aftur og þúsundir
hermanna teknir til fanga. Hann
sagði að stjórnarherinn sendi
liðsauka til svæðisins umhverfis
bæinn.
Talsmaður herstjórnarinnar í
Saigon sagði að kommúnistar
hefðu hermenn í bænum en
stjórnarherinn einnig og því væri
bærinn enn ekki á valdi kommún-
ista. Samkvæmt heimildum í
Saigon er nú aðallega barizt á
svæðinu umhverfis borgina og
þar hafa báðir aðilar dregið
saman mikið lið.
í Phnom Penh féllu eldflaugar
skammt frá bandaríska sendiráð-
inu í dag, tvö börn biðu bana og
sex særðust alvarlega en tjón varð
ekki á sendiráðsbyggingunni.
Nítján eldflaugar féllu á flugvöll-
inn í gærkvöldi og árásirnar hafá
harðnað siðan Bandaríkjamenn
hófu aftur loftflutninga til
borgarinnar.
Ástraliumenn hafa flutt burtu
allt starfsfólk sendiráðs síns i
Phnoni Penh. Síðustu átta sendi-
ráðsmennirnir komu með flugvél
ástralska flughersins til Singa-
pore i dag ásamt starfsmönnum
sendiráða Breta, Svia, Vestur-
Þjóðverja, Frakka, Bandarikja-
manna, Thailgndinga og Singa-
poremanna. Fjórir blaðamenn frá
Astralíu og tveir eða þrír aðrir
Astralíumenn eru enn i
Kambódiu.
Bretar hafna
þríríkjasamningi
London 15. marz — NTB.
BREZKA ríkisstjórnin
hefur tekið tiilögu prófess-
ors eins í Edinborg um að
Bretland geri þrfríkj^-
samning við Noreg og ís-
land um útfærslu og gagn-
kvæma viðurkenningu 50
mílna fiskveiðilögsögu af-
ar kuldalega. Tillaga þessi
er gerð af prófessor Ian
MacGibbon við Edinborg-
arháskóla og er sett fram f
bréfi hans til David
Ennals, aðstoðarutanrfkis-
ráðherra, 20. febrúar.
1 bréfinu leggur prófess-
orinn áherzlu á gildi slíks
samnings fyrir verndun
sildarstofnanna. Ennals ut-
anríkisráóherra segir hins
vegar að rétta leióin til að
vernda stofnana meó ár-
angursríkum aðgerðum
liggi gegnum alþjóðlega
samninga innan ramma
Norðapstur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar.
rf s ,15 .in<í ra. * P.
'irfski skip*kóngurinn
tristoteles Onsssis
léat úr lungnsbtSlgu
f bandsrfsk* sjiíkrs-
htSsinu f ?»rfs f d«g ,
69 <frs «ð sldri.