Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 47 — Minning María Framhald af bls. 22 ungs yrði ekki öllu lengra. María Maack var fædd 21. okt. 1889. Foreldrar hennar voru Pétur Andrés Maack Þorsteinsson, prestur á Stað i Grunnavík, og kona hans Vigdís Einarsdóttir frá Neðri-Miðvík í Aðalvík. Foreidrar séra Péturs voru Þorsteinn Guð- mundsson, frá Vörum í Garði og Maria Bóthildur Jakobína Maack en foreldrar Vigdísar voru Einar Friðriksson bóndi í Stokkadal í Aðalvik og Ragnhildur Péturs- dóttir. Þau séra Pétur og Vigdís eign- uðust 5 börn, dæturnar Elínu Þóru, sem giftist Vilhjálmi Snæ- dal, bónda á Eiriksstöðum á Jök- uldal, Brynhildi, sem giftist Jóni Eyjólfssyni, gullsmið á Isafirði, Maríu og Áslaugu sem giftist Þor- steini Pálssyni á Reyðarfirði, en yngsta barnið var sonurinn Pétur Andrés, skipstjóri í Reykjavík, sem giftist Hallfríði Hallgríms- dóttur. öll voru systkini Maríu látin á undan henni. Séra Pétur drukknaði á heimleið frá Isafirði í september 1892. Gekk Vigdís þá með yngsta barnið, soninn Pétur. Eftir fráfall séra Péturs fluttist Vigdís að Faxastöðum í Grunna- vík og þar ólst María upp. Er mér sagt að Vigdís hafi verið mikil gæðakona en ekki mun hafa ver- ið auður í garði á Faxastöðum. Maria Maack var heitin i höfuðið á ömmu sinni sem hún mat mikils og gera flest til geðs en þar kom þó snemma í ljós að María yngri vildi vera einráð um sina hagi. Réðst hún til hjúkrunar- náms við holdsveikraspítalann í Laugarnesi, haustið 1909, og mun það ekki hafa verið fyllilega að skapi þeirra allra, sem að henni stóðu og vildu veita henni forsjá. María stundaði síðan hjúkrunar- störf í 55 ár, þar til hún lét af störfum 1964. Lengst af hjúkrun- arferli sínum, eða allt frá 1918, var hún í þjónustu Reykjavíkur- bæjar, þar af frá 1920 yfirhjúkr- unarkona Farsóttarhússins við Þingholtsstræti. María Maack verður manni að mörgu leyti minnisstæður per- sónuleiki. Henni lét ekki að standa álengdar og horfa á amst- ur mannlifsins. Þar varð hún að vera virkur þátttakandi og leggja sitt af mörkum og það gerði hún af heilum huga, en hálfvelgja var henni litt að skapi. Hún var kona skapmikil og gat verið óvægin ef svo bar undir, en jafnframt átti hún hjartahlýju og nærgætni og nutu þeirra eðliskosta hennar ekki hvað sízt sjúklingar hennar og börn sem urðu á vegi hennar, en hún var ákaflega barngóð. Hún gerði sér far um að fylgjast með sjúklingum sínum eftir að þeir voru komnir úr hennar um- sjá, einkanlega þegar hún vissi að þeir áttu við erfiðleika að stríða i lífinu, og þeir voru margir sem siðar lögðu leið sina í Farsótta- húsið á fund Mariu með vandamál sín. Mörg áhugamál átti María. Hún var mikiil unnandi náttúru lands- ins og ferðagarpur hinn mesti. Við erum mörg, sem eigum hvatn- ingu og forgöngu Maríu að þakka fyrstu kynni okkar af töfraveröld islenzku öræfanna. En hjartfólgn- astar voru henni æskustöðvarnar. Sumar eftir sumar hélt hún, oft með fjölmennu föruneyti, vestur i Grunnavík og dvaldi þar um hríð. Þótt heilsan væri tekin að bila og kraftar að þverra lét María ekkert aftra sér. Kjarkurinn og þrekið voru ódrepandi. Af sama toga og átthagatryggðin var einstök ætt- rækni Maríu, en enda miklir kær- leikar með henni og frændliði hennar. María tók mikinn þátt í félags- störfum. Hún hafði eindregnar stjórnmálaskoðanir, og fylgdi Sjálfstæðísflokknum að málum allt frá stofnun hans. Þátttaka hennar í flokksstarfinu var fram- lag sem um munaði. Hún var ein þeirra kvenna, sem höfðu forustu um stofnun Sjálfstæðiskvennafé- lagsins Hvatar og formaður þess um langt skeið. Þá var hún og aðalhvatamaður að stofnun Landssambands Sjálfstæðis- kvenna og vann ötullega að stofn- un sjálfstæðiskvennafélaga víðs- vegar úm land. í stjórn lands- sambandsins átti hún sæti frá stofnun þess i apríl 1956 til 1969. Þegar nú er kvaddur okkar gamli samherji og vinkona, verð- ur manni hugsað til margra sam- verustunda, sívakandi áhuga hennar og hvatningarorða og ein- lægrar viðleitni hennar til þess að auka áhrif kvenna í þjóðfélaginu, en forganga hennar um stofnun kvennasamtaka innan flokksins var henni þáttur í þeirri viðleitni. Við þökkum henni samstarfið. Blessuð verði minning hennar. Auður Auðuns, i formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. — Páskaferðir Framhald af bls. 2 Steinn Lárusson er við spjöll- uðum við hann. í þá ferð eru komin 80—90 manns og eitthvað á örugglega eftir að bætast við. í þessa ferð verður farið 25. marz og stendur hún í 11 daga. Þá sagði hann að Urval hefði einnig selt nokkuð af miðum í Kanaríeyjaferðir Flugleiða. Ennfremur stendur Urval fyrir skíðaferð til Akureyrar um pásk- ana og þegar hafa 50 manns látið skrá sig í þá ferð. Kjartan Helgason hjá Landsýn sagði að þeir væru með Kanarí- eyjaferð um páskana og í hana væri löngu uppselt. Þá væri einnig um að ræða ferð til Lund- úna. i þá ferð væri einnig uppselt — Dylgjur Framhald af bls. 2 Sala á loðnumjöli og lýsi er háð útflutningsleyfum frá viðskipta- ráðuneytinu og verða þau að fylgja farmskírteinum og vöru- reikningum, sem innheimtir eru aí Landsbanka islands eða Ut- vegsbanka islands hjá kaupend- um. Viðskiptaráðuneytið veitir ekki útflutningsleyfi á fiskmjöli eða lýsi, nema verðið sé talið vera í samræmi við markaðsverð, þegar varan er seld. Það fer þvi ekki milli mála fyrir hvaða verð þessar vörur eru fluttar úr landi og seldar á erlendan markað. Þótt oft hafi reynzt auðvelt að vekja tortryggni meðal manna, þá er til fullmikils ætlazt, þegar mönnum er ætlað að trúa því, að meira en helmingur útflutnings- verðs vöru glatist eða hverfi fyrir samspil stjórnvalda, banka og framleiðenda sjálfra. Oddamaður við verðákvarðanir Verðlagsráðs sjávarútvegsins er tilnefndur af sjávarútvegsráðu- neytinu. Um v'erðlagið fjalla full- trúar sjómanna, útvegsmanna og verksmiðjanna. Þeir styðjast m.a. við upplýsingar frá viðskiptaráðu- neytinu. Hver trúir þvi, að allir þessir aðilar taki höndum saman til þess að hlunnfara sjómenn? F.h. Félags ísl. fiskmjölsfram- leiðenda. Sveinn Benediktsson. formaður. | — Saltfiskur Framhald af bls. 48 aðslanda geti orðið um 24 þúsund tonn af blautverkuðum fiski af framleiðslu vetrarvertíðar þetta ár sem komi til afskipunar á tíma- bilinu apríl-ágúst, sem er ekki ósvipað og oft hefur verið. Þá er enn ósamið við tvö hefðbundin og mikilvæg markaðslönd — Italíu og Grikkland, og verður farið i það nú á næstunni þegar heppi- legt þykir. Morgunblaðið spurði þá Tómas um verð í þessum tveimur sölu- samningum og hvort þeir gæfu að einhverju leyti vísbendingu um verðþróunina hvað varðar salt- fisksútflutninginn á þessu ári. „Það má segja, að miðað við allar markaðsaðstæður og sölur og verð á siðasta ári sé útkoman í þessum samningum hagstæð," sagði Tómas. „Það er talið öruggt að þetta útflutningsverð standi und- ir framleiðslukostnaðinum, svo framarlega sem stjórnvöld og þeir sem fara með yfirstjórn þessara mála geri framleiðsluna ekki hreinlega óhagstæða fyrir fisk- framleiðendur. Persónuleg skoð- un min er sú að nú þegar sé orðin ofstjórn í þessum málum, og slíkt ýtir ekki undir þá menn sem í þessari atvinnugrein standa. I þessu sambandi má t.d. geta þess, að saltfisksframleiðslugreinin greiddi milli 800 og 900 millj. króna í verðjöfnunarsjóð á sl. ári og einnig u.þ.b. 12% í útflutnings- gjöld." Tómas upplýsti einnig að i sölusamningunum tveimur við Portúgal og Spán væri samsetn- ingin eftir stærðum, gæðum og tegundum nokkuð mismunandi millum þeirra. Af þeim sökum væri meðalverð í Portúgalsamn- ingnum nokkru lægra en á Spáni, sem væri þó ekkert frábrugðið því sem verið hefur. Um verð- horfurnar að öðru leyti vildi Tómas ekki tjá sig á þessu stigi nema hvað hann sagði mjög þung- ar horfur með sölu á smáfiski bæði varðandi afsetningu og verð- þróun. EFTIRTALDAR STÆRÐIR AF ■ Bingó aö á mánu- dagskvöld til styrktar fjársöfnun til kaupa á hjartabíl handa norölendingum. Bingóiö hefst kl. 20.30 í Súlnasal. Sala bingóspjalda hefst kl. 20.00 í anddyri Hótel Sögu. Margir mjög glæsilegir vinningar. Meöal annars: Spánarferöir - Páskaferö meö Guömundi Jónassyni - Rugferö til Akureyrar ásamt dvöl þar. Auk þess eru í vinninga margar glæsilegar framleiðsluvörur ýmissa helstu iönfyrirtækja á Akureyri svo sem Gefjun, Heklu, JMJ., KEA. og fl. Mætum öll og spilum bingó og styrkjum um leió mjög þarft málefni. Eyfiröingafélagiö í Reykjavík. Hótel Sögu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.