Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 27
. • . 1 • ' ■- ■.» i —!—T- ■" • i - 1 n I
MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MÁRÉ 1975
„Sé nú Austurstrœti
í fyrsta sinn
sem göngugötu ”
ríkið borgar. Þannig hafa
..höfuðfjendurnir'' fyrir dóm-
stólunum sameinast í því að
hjálpa mér.
En að fá fyrirgreiðslur hjá
Tryggingastofnuninni er
saga út af fyrir sig. Þegar ég
kom þangað til að framvísa
reikningum vegna sjúkra-
— segir Jón Oddsson hrl. sem var blind-
ur í 2 ár en hefur nú lögfræðistörf á ný
Fyrir skömmu kom til
landsins Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaður, en
undanfarin tvö ár hefur Jón
barizt við blindu, en er nú
orðinn alheill heilsu á ný.
Sjúkdómur Jóns var orðinn
svo alvarlegur, að hann
varð að loka lögfræðiskrif-
stofu sinni í fyrravor og tók
Jón E. Ragnarsson við öll-
um hans málum.
Þegar við ræddum við
Jón Oddsson sagði hann að
sjúkdómurinn hefði ágerst
með hverju árinu frá því að
hann var unglingur og vor-
ið 1973 var Jón orðinn svo
til alblindur. Þá var hann
lagður inn á Landakotsspít-
ala vegna ígerðar t augum
og undirgekkst það sumar
þrjár skurðaðgerðir hjá dr.
med. Guðmundi Björns-
syni. Eftir að þær aðgerðir
höfðu mistekist hóf Jón
störf á skrifstofu sinni, en
þá fór að ágerast sjóndepra.
Varð hann þá að hætta
störfum, lokaði skrifstofu
sinni og fékk Jóni E. Ragn-
arssyni hrl. mál skrifstof-
unnar.
í framhaldi af því setti
Guðmundur Björnsson sig í
samband við heimsfrægan
sérfræðing í augnsjúkdóm-
um f London, dr. Rice, þar
sem Guðmundur taldi að
skipta þyrfti um hornhimn-
ur á báðum augum. Síðast-
liðið sumar skar dr. Rice
upp hægra augað á Morr-
fields Eye Hospital í Lond-
on og græddi í nýja horn-
himnu. í febrúar s.l. skar
Rice upp vinstra augað og
græddi þar í nýja horn-
himnu og tók saumana úr
hægra auganu.. Hefur nú
Jón betri sjón en hann hef-
ur nokkru sinni haft og „ég
var að sjá Austurstræti sem
göngugötu í fyrsta skipti."
— Mér er efst í huga
þakklæti til hinna ágætu
lækna þeirra dr. Rice og dr.
Guðmundar Björnssonar,
sagði Jón, þegar við ræddum
við hann. Ennfremur til Ás-
geirs Karlssonar og Jóns E.
Ragnarssonar hrl., er veitti
nafna sínum „framúrskarandi
hjálp með því að vinna nætur
og daga í þeim málum, er ég
fékk ekki lokið, svo og þeirra
Guðmundar heitins Magnús-
sonar endurskoðanda og
Konráðs O. Sævaldssonar
endurskoðanda fyrir frábæra
aðstoð. Hafsteinn Björnsson
miðill hefur ekki heldur lagt
svo lítið af mörkum."
— Sóttirðu fundi hjá hon-
um?
— Já, ég fór á fund hjá
honum. Ég var ekki þekktur
að öðru en guðleysi, enda öll
mín trúarbragðafræðsla frá
frænda mínum, próf. Níelsi
Dungal. Hins vegar stofnaði
ömmubróðir minn Haraldur
Níelsson prófessor sálarrann-
sóknarfélagið. Á þéssum
fundi hjá Hafsteini gerðust
hlutir, sem ég fær ekki skilið
og er algjörlega rökþrota til
að gagnrýna. Hins vegar má
segja það, að hið eina, sem
ég hef orðið var við af kristin-
dóminum í sjálfum mér, er
það, að ég get aldrei lagt
bílnum mínum á bílastæðið
þar sem húsið hans séra
Bjarna stóð. — Til viðbótar
fyrir þakklæti má ekki
gleyma þeim Guðmundi
Ingva Sigurðssyni hrl., sem
hefur verið óspar á að gefa
mér góð ráð, eins og hans er
von og vísa. Þá hefur Ólafur
Jóhannesson dómsmálaráð-
herra verið mér mjög hjálp-
legur.
— Voru þessar aðgerðir
ekki gífurlega kostnaðarsam-
ar?
— Jú, en tryggingastofn-
unin hér greiðir mestan hluta
þeirra og erfiðast hefur verið
að eiga við það bákn. Það
hefur verið sagt, að það
skemmtilegasta, sem íslenzk-
ir lögfræðingar gera, sé að fá
brezka landhelgisbrjóta
dæmda og i öðru lagi að fá
mál við íslenzka ríkið. Svo
var það þegar ég veikist, að
það er brezkur læknir sem
sker mig upp og íslenzka
dvalar í London, þótti mönn-
um í Tryggingastofnuninni
þeir vera háir, en ég reyndi
að útskýra hvers vegna, þar
sem sjúkrasamlagið í London
tekur ekki þátt i þessum
kostnaði. Ég mætti þarna kl.
13.30 á skrifstofu, sem er
opnuð kl. 13.00 og mér var
sagt, að maðurinn, sem ég
ætti að hitta mundi ekki
mæta fyrr en 13.45, að
minnsta kosti gerði hann það
venjulega. Þarna virðist vera
hópur manna, sem kallar sig
sósialdemókrata, sem virðast
vera komnir með þá mein-
loku, að Tryggingastofnun
rikisins eigi að greiða sósíal-
demókrötum laun, hvort sem
þeir mæta í vinnu eða ekki,
og borga sem minnst af
sjúkra-og slysabótum. Þegar
ég var að útskýra reikninga í
sambandi við sjúkrasamlagið
í London sögðust þeir þurfa
að fá staðfestingu beint frá
sjúkrasamlaginu þar og ætl-
uðu í einum hvelli að hringja
út, en ég benti þeim á, að
það væri ódýrara að senda
bréf og einnig að ekki væri
hægt að fá opinberar stað-
festingar í gegnum sima.
— Hvað stendur nú fyrir
dyrum?
— Nú er ég að innrétta
nýja lögmannsskrifstofu •< í
Garðastræti 2 í Reykjavík og
er að bíða eftir grænu Ijósi
næstu vikur frá mínum
ágæta vini, dr. med. Guð-
mundi Björnssyni, um að
mega hefja störf að nýju. Dr.
Rice í London sagði mér að
Guðmundur Björnsson væri
einn færasti sérfræðingur í
augnlækningum, er hann
þekkti. Rice kemur til íslands
i sumar til að stunda silungs-
veiðar.
— Þú segist ætla að opna
lögfræðiskrifstofu sjálfur á
nýjan leik. Kom ekki eins til
greina að fara að vinna hjá
því opinbera?
— Það þýðir ekki, því ég
læt ekki að stjórn frekar en
vinur minn Jón E. Ragnars-
son.
— Hvers saknaðir þú mest
á meðan þú varst blindur?
— Þjóðhátiðarinnar á
Þingvöllum og geta ekki séð
þegar þjóðhátíðarkyndillinn
var tendraður á Arnarhóli
Saknaði þess mest
að geta ekki upplifað
þjóðhátíðina með augunum
Verslunarhúsnæði
Verzlunarhúsnæði á Hverfisgötu 6 er til leigu.
Aðstaða til vörugeymslu getur fylgt.
Garðar Gíslason h.f.
Norton-T riumpli-BS A
bifhjólaeigendur vinsamlega athugið:
Um leið og vér þökkum viðskipti á liðnum
árum, þá tilkynnum vér, að
Y élhjólayerzlun
Hannes Olafsson,
DUNHAGA 23, REYKJAVÍK,
hefur nú tekið við allri varahlutaþjónustu í
ofangreind hjól. FÁLKINN
Samtök psoriasis
og exemsjuklinga
halda aðalfund sinn í Átthagasal Hótel Sögu
mánudaginn 24. marz kl. 20.30.
Á aðalfundinum verður stofnaður rannsóknar-
sjóður psoriasissjúklinga.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
LOFT- OG
VEGGKLÆÐNING
Viðarþiljur
Gullálmur, fura, palisander-, birki- og hvítt mahogni-
fineline.
O.H. panelplötur
m/plastfilmu. Ýmsar viðarlíkingar.
HEINOLA LIONBOARD
(undir málningu)
Veggþiljur 30x255 sm. nótaðar á hliðum og endum.
Loftplötur 30x1 1 7,8 sm. nótaðar á hliðum og endum.
DLH panelkrossviSur
5,5 mm., 244x1 22 sm.
Viðarteg.: amerisk nota og palisander
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO
Ármúla 27 — Símar 86-100 og 34-000