Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 45 tekur mig marga daga aö komast í gegnum hana. Og nú Puck, held ég að timi sé til kominn aö við þökkum fyrir okkur og höldum heim á leið. Þegar faðir minn verður grip- inn þessari sjaldgæfu þörf að stjórna mér, er hann sannarlega fær um að fá vilja sinn. Það var ekki fyrr en við vorum komin inn í húsið á Arbökkum að ég hafði náð mér nægilega vel til að láta í ljós reiði mína og óánægju: — Þú eyðilagðir allt, pabbi! Ef við hefðum bara verið örlítið snjallari þá hefðum við sjálfsagt fengið að vita... — Sjáðu nú, stúlka mín, við vitum nú þegar meira en nóg um þetta mál! Það er sóðaverk að komast að því hvers vegna fólk lætur sér detta í hug að reka hníf í aðra og drepa þá og þú skalt láta lögreglunni það eftir að hræra upp i þeim drullupolli. Ég er annars orðinn hræddur um að þú og Olivia Petren eigið það sam- eiginlegt að þið lesið allt of mikið af glæpareyfurum. Og að svo mæltu lagði pabbi „Likin fjögur" frá sér á borðið á veröndinni með þeim árangri að Einar sem sat í sófanum við borð- ið varð algerlega orðlaus af undr- un, þegar svo að ljóshærði slétt- greiddi maðurinn sem sat við hlið hans varð að kynna sig sjálfur: — Löving lögreglustjóri. Eg var enn hálfsúr og mér fannst hann vera óþolandi snyrti- legur, kurteis og alltof vel greidd- ur. Ég hafði aðeins óljósar hug- myndir um, hvað lögreglustjórar hafast að, en samt fannst mér eindregið að hann ætti ekki að lita út eins og kvenleg skrifstofu- blók. 1 silkiskyrtu og með signet- hring úr gulli! Og aðdáunaraugun sem hann horfði á mig mýktu mig sáralitið. Nú hafði Einari tekist að beina athygli sinni frá hinum blóði- drifnu likum á vatninu og hann flýtti sér að tjá okkur að Anders Löving sem hefði nýlega verið skipaður lögreglustjóri í Örebro væri mikill mektarmaður. Auk þess að vera afskaplega vel gef- inn, var hann sá sem átti að stjórna rannsókninni á morðmál- inu okkar. Og síðast en ekki sist hafði hann unnið með Christer Wijk. Þessi siðasta skýring dugði til að ég skildi hvers vegna Einar og hann virtust vera ákaflega ánægðir hvor með annan. Og ég verð að viðurkenna að þess- ar siðustu upplýsingar gerðu mig ögn jákvæðari í hans garð. Faðir minn sem fann sig enn á ný um- kringdan af lögreglumönnum, flúði upp á loft, þar sem var ögn friðsamara. Úti í garðinum voru lögreglu- menn að störfum og ég skildi að þeir voru að safna þeim upplýs- ingum, sem hægt var, og ljós- Velvakandi svarar I síma 10-100 kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi til föstudags. % Misnotkun orða Þ.M. skrifar: „Kæri Velvakandi: Ætla mætti, að blaðamenn kynnu öðrurn betur að nota is- lenzk orð á réttan hátt. Segja iná ineð nokkruin sanni, að orðin séu atvinnutæki þeirra. Þvi er sár- grætilegt að sjá nú á siðustu árum, að þeim virðist fjölga í blaðamannastétt, sern þekkja ekki rétta merkingu ýmissa ai- gengra, íslenzkra orða. í stað þess að nota hæfileg orð á hverjuin staó, hyllast þeir til þess að nota áhrifameiri orð en hæfa umtals- efninu. Smáin sainan verður þetta til þess, að hin ,,sterku“ orð glata gildi sinu, dofna i vitund alinenn- ings, sein blöðin les, og verða jafnvel á endanuin merkingarlítil eða merkingarlaus. Þegar svo er koinið, geri ég ráð fyrir þvi, að blaðainenn (og aðrir „fjöliniðla- menn“) gripi til næsta orðs við hliðina, sein verið hefur enn ákveðnara að merkingu, og dragi einnig úr þvi kraftinn ineð of- notkun. Ég leyfi mér að kalla þá menn ritsóða, sem slæpast þannig ineð íslenzk orð á uppeldisstöðv- um íslenzks tungutaks, en það verða dagblöðin þvi miður aó telj- ast. 0 Að ræna eða að stela Ég tek sinádæmi ináli inínu til sönnunar. Hversu margir blaðainenn þekkja nú orðið inun- inn á því „að stela" og „að ræna“? Sagnorðið „að ræna“ og nafn- orðið „rán“ eru nú hvað eftir ann- að notuð i dagbiöðutn yfir þann verknað, sem heitir „að stela“ eða „að hnupla“ og „þjófnaður" eða „stuldur". Ekki er langt siðan hver einasti Islendingur kunni að gera greinarinun á þessu tvennu, jafnvel þótt hann hefði ekkert lesið neina Helgakver í æsku sinni. Þessi orð urðu ekki til út i bláinn, heldur af þvi að þau tákn- uðu tvo mismunandi verknaði. Ekkert orð í íslenzku hefur orðið til af tilviljun, heldur vegna þarf- ar fólks til þess að tjá sig skil- inerkilega og á nákvæinan og rétt- an hátt. Á bak við hvert orð er skörp hugsun, nauðsynleg í tali tveggja inanna, svo að ekkert fari inilli mála. A hin dásamlega alls- herjar-fjöliniðlun nútímans að verða til þess, að inerking orða slævist og leki grá og dauf og óljós á inilli þeirra? Nei-takk, helzt ekki. Orð skal vera fyrir hvern hlut, og hvert orð á sinuin stað. 1 fyrirsögn í rammafrétt á bak- siðu „Vísis“ fimmtudaginn 13. inarz stendur feitletrað: „Rænt úr þremur bílum“. 1 fréttinni neðan- undir keinur i ljós, að stolið-var úr þremur bílum, enda segir í henni ,,stolið“, „stuldi“, „stolið", „stolið". Fyrst blaðamaðurinn þekkti þessi orð, hví notar hann þá sagnorðið „að ræna“ í fyrir- sögn? Þ.M.“. myndararnir tóku myndir af veslings Tommy; hver lófastór blettur og runni var grandskoðað- ur. Það var heyrilega ætlun Lövings að láta kryfja líkið, en Axelsson læknir gat þó engu að síður gefið nokkrar haldgóðar upplýsingar. — Já, sagði Löving lögreglu- stjóri — það er ekki vafi á því að þetta einkennilega morðvopn seg- ir meiri sögu en venjulegur hníf- ur hefði gert. Þið hafið sjálfsagt bæði séð hnífinn og vitið þá að hann er ögn boginn í oddinn eins og segl sem þenst út... — Hvers vegna bara ekki banani? skaut ég inn í. Hann brosti hlýlegu brosi. — Allt í lagi, banani þá! Ég ætla ekki að halda því fram að ég hafi skilið allt sem læknirinn gamli sagði um rifbein og vöðva og allt mögulegt. En mér skilst að í stór- um dráttum megi segja eftirfar- andi: hefði Tomas Holt ætlað að reka sig i hjartastað hefði hnifur- inn þrengt sér inn í likamann á allt annan hátt og rifið i sundur aðra vefi en nú virðist raunin á. Sjálfsmorð kemur því ekki til greina. Hnifurinn hefur lent í hjartastað eins og kló sem hefur borað sig inn í brjóstið og inn í likamann til vinstri við brjóst- bein, rétt fyrir ofan hjartastað og þvi næst hefur hnífurinn þrýsts beint niður og inn. Allt þetta verður sjálfsagt staðfest við krufningu en ef þetta er rétt þá verðum við að ganga út frá þvi að sá sem vopninu beitti hafi ekki verið mjög lágvaxinn, hann hefur — Velvakandi getur bætt því við til fróðleiks, að i hinni nákvæmu orðabók Guóbrands Vigfússonar og Cleasbys er orðió „að ræna“ þýtt ineð „to rob, plunder“, og þessi orð eru skil- greind þannig í hinni viður- kenndu Funk & Wagnalls Standard Dictionary: „To rob: To seize and carry off the property of (someone) by unlawful violence or threat of violence. To plunder: To rob of goods or property by open violence, as in war.“ % Vilja láta unglinga velja tónlist Helga Jónsdóttir gagnrýndi þá tilhögun útvarpsins að láta unglinga velja tónlist á laugar- dagskvölduin hér i dálkunuin ný- lega. Erla Eirfksdóttir hringdi og vildi láta þá skoðun sina i ljós, að þetta væri eininitt til fyrirmynd- ar. Hún sagðist oft hafa ánægju af þessari tónljst og vill að haldið verði áfram á söinu braut. Tómas H. Ragnarsson hringdi og var á sömu skoðun. Hann taldi að tónlistarsinekkur unglinga og fullorðinna færi saman i mjög inörgum tilvikum, en hann sagð- ist halda, að fleiri aldursflokkar ættu að fá að velja tónlist lika. aó minnsta kosti verið svipaður á hæð og Holt sjálfur eða um það bil 180 sentimetrar. Ég pirði augun og reyndi að sjá fyrir mér, hvernig þetta hefði gengið fyrir sig. Tommy Holt, grannvaxinn, dökkhærður ungur maður, klæddur gráum buxum og næstum eins hávaxinn og maður- inn minn, hittir úti í garðinum persónu sem heldur á egypskum hníf i hendinni. En þegar ég var komin að þvi, varð mér ljóst að ég vissi allt of lítið og sú mynd sem ég reyndi að kalla fram í huga mínum var ekki i neinu eðlilegu samhengi og nánast fráleit. Hvers vegna í ósköpunum höfðu Tomtny Holt og viðkomandi morðingi ver- ið á Arbökkum? Hvernig hafði viðkomandi morðingi náð hnifn- um hans pabba míns? Og það sem einna mestu máli skipti: hvernig átti ég að ímynda mér þennan viðkomandi morðingja sem — eft- ir því sem Löving sagði — hafði rekið vopnið í hjartastað Tommys „rétt fyrir ofan hjartað". Beint ofanfrá... Ofurstinn var óneitan- lega hávaxinn maður, sennilega tíu sentimetrum hærri en fóstur- sonur hans. En enginn þeirra kvenna sem ég hafði hitt í dag var há vexti. Margit Holt hafði að vísu legið út af, þegar ég hitti hana, en ég hafði einhvern veginn myndað mér þá skoðun um hana að hún væri lágvaxin. En þar sem ég fann hjá mér sterka löngun til að sjá fyrir mér viðkomandi morð- ingja með alvöru andlit, ákvað ég unz annað væri ákveðið að láta andlit hinnar grindhoruðu Liviu 0 Greiðir nær helming launa fyrir barnagæzlu Hér er bréf, sein fjallar uin málefni, sem nokkuð hefur verið til umræðu hér i dálkunuin að undanförnu: „Kæri Velvakandi. Ég vil þakka húsmóður úi Breióholti fyrir að vekja athygli á þvi, hvernig búið er að börnuin einstæðra foreldra. Líf þeirra er til fárra fiska metið þó aó hátt hafi verið hrópaó þegar fóstur- eyóingarfruinvarpið var fyrst lagt fyrir Alþingi. Ég er ógift og ein ineð barn, sem ég átti áóur en skólagöngu lauk og hef þarafleið- andi injög lágt kaup eóa kr 38.000.- á mánuði. Ég er ekki enn búin að fá pláss fyrir barnið á dagheimili svo það er í fóstri á einkaheimili og ég greiði fyrii þaó kr. 16.000,- á inánuði. Húsa leiga, ljós og hiti kostar kr 21.000.- á inánuði og þegar þetta er greitt ásaint gjaldi til stéttar félags og lífeyrissjóðs þá er kaup ið búið. Þá er eftir það sein ríkið telur að bæti upp hinn frainfær andann, föðurinn. Það er meðlag sem er núna kr. 6.827.- á mánuó og rúmar 1.100,- í mæðralaun eða saintals tæpar kr. 8.000.-, sem ei heliningurinn af þvi sem ég borga fyrir barnagæzluna. Er svonalag að hægt? Getur nokkur inanneskja ineð fullu viti ímynd að sér, að barni, sem hefur aðeins einn frainfæranda, sé bættur skaðinn ineð þessu inóti. Eða það bara aó svelta af þvi að það var svo vitlaust að fæðast utan hjónabands? Bálreið móðir.“ IV Vú VÆRT« LKKI Sl/oKA GVÁ9U6 í °M($)Á mvA, vá miwu im ím OG RlGLfv- mm \il fara [ Vú 19X AÁÉffim ÁIL SKAWMAR 0G ÍG \MT im Hl/£RNIG VEffA ver á tmuurif — Krossgötur Framhald af bls. 36 Kjarni lögmálsins er: „Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllum huga þínum... og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálf- an þig.“ (Matt. 22, 37—39). Þetta er markmið og tilgangur lifs þíns. Nær líf þitt þeim til- gangi? Lögmálið verkar sem spegill, sem við sjáum sjálf okk- ur f. í honum sjáum við, að í flestu missum við marks. En Guð kemur okkur til hjálpar. Það er gleðiboðskapur Bibli- unnar, Fagnaðarerindið. Fagnaðarerindið segir hvað Guð gefur.Kjarni þess eru þessi orð Jesú: „Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki heldur hafi eilift líf.“ Jóh. 3,16. Jesús Kristur er þungamiðja Bibli- unnar. Og hann varpar ljósi á torskilda staði hennar og óupp- fyllanleg boð. Þvi skaltu alltaf lesa Biblíuna með honum. Og biðja hann að ljúka upp leynd- um fjársjóðum hennar fyrir þér. HVERNIG A AÐ LESA BIBLlUNA? I bæn og auðmýkt, og hlýðni. Segja eins og Samúel: „Tala þú, herra, þjónn þinn heyrir.“ (1. Sam. 3) Og leitast við að taka orðið til sin, og vera gjörandi orðsins, en ekki aðeins heyr- andi (Jak. 1,22). Og þá munt þú líka þreifa á þvi, að „sælir eru þeir, sem heyra guðs orð og varðveita það.“ (Lúk. 11,28). — Slagsíðan Framhald af bls. 15 um hljómleikum. Alice höfðar til áhorfendanna með þvi að þykjast láta hengja, hálshöggva og gera „Guð-má-vita-hvað-annað" við sig og félaga sína með viðeigandi við- höfn. Dauðinn er aðalsöluvaran. Bob lítur á fyrirbærið út frá félagslegu sjónarmiði: Hvers vegna fellur þetta svona vel í kramið hjá áhorfendum? Hvers vegna gera Alice Cooper og félagar þetta? Hvað kemur slík sýnikennsla í aftökum popptón- list við? En þótt bókin sé góð lýsing á þessari hlið hljómleikahaldsins, segir Bruce Cook, er hún jafn- framt uppgjöf gagnvart því vandamáli, sem tónlistargagnrýn- in felur i sér. Bókin er gott sýnis- horn af því, hvaó mikið menn eru reiðubúnir að leggja á sig bara til þess að losna við að skrifa tón- listargagnrýni! — sh. tók saman. IBovjjtmWaMfo margfoldar morkað vðar EB S l'búd ad verðmæti mm kr. s.ooo.ooo oa VIO KRUMMAHÓIA 6 I REVKJAVlK Vy, iverÍ er kr íwv \ ÚjfDl R MUNIÐ íbúðarhappdrætti H.S.Í. 2ja herb. ibúð að verðmæti kr. 3.500.000. Verð miða kr. 250.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.