Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 Erfitt fjölskyldulíf if if if Family Life, bresk, gerð 1971. Leikstjóri: Kenneth Loach. Byggt á sjónvarpsleikriti eftir David Mercer. Framleiðandi: Tony Garnett. Aðalleikarar: Sandy Ratcliff, Grace Cave, Bill Dean og Malcolm Tierney. Family Life segir frá örlög- um ungrar stúlku, Janice að nafni. Hún býr hjá góðviljuðum foreldrum sinum, sem vilja henni allt hið besta en jafn- framt eru þau óhemju stjórn- söm um athafnir hennar og gerðir. Þau vilja ala hana vel upp, en í því felst sama uppeldí og móðirin fékk fyrir 50 árum. Og þau eiga erfitt með að að- laga þær aðferðir að nútíman- um. Þegar stúlkan verður svo óvart vanfær, sjá foreldrarnir ekki aðra leið út úr skömminni, „til að bjarga andlitinu gagn- vart nágrónnunum", en þá að láta eyða fóstrinu. Þetta leggst hins vegar mjög þungt á hina ungu stúlku, sem vill gjarnan ala barnið. Smám saman leitar stúlkan meir og meir inn í sjálfa sig, en foreldrarnir, sem líkar ekki breytingin á henni, leita til sálfræðings. Hún byrj- ar í eins konar hóplækningu (group therapy) undir hand- leiðslu ungs og skilningsríks sálfræðings og virðist vegna vel. En stjórn spítalans er ekki jafn hrifin af læknisaðferðum þessa unga manns, sem er þarna í reynslutíma, og honum er sagt upp. Þar með breytist læknismeðferðin yfir i lyf og raflost. Það virðist ætla að ganga bærilega, en þegar hún kemur heim aftur og hverfur undir verndarvæng hinna stjórnsömu foreldra sinna leit- ar í sama horfið á ný. Eina von hennar til bata er pilturinn, sem hún er hrifin af, en þó hann vilji hjálpa henni og leyfa henni að flytja til sín, er það þvert á vilja foreldra hennar, sem telja slíkt líferni ekki sam- boðið hinni sómakæru dóttur. Þannig er stöðug togstreita um stúlkuna, allir vilja hjálpa henni en hún veit, að engin getur það nema hún sjálf. Það má ef til segja, að í þess- ari mynd séu ýmis atriði gerð einum of augljós og einföld og að trúgirni áhorfenda sé stund- um ofboðið. Hins vegar verður því ekki á móti mælt, að mynd- in er sterk ádeila á ýmsa þætti mannlegs lífs, s.s. þröngsýni, sjálfselsku og oftrú á lækninga- mátt lyfja til geðlækninga. Þannig eru einstakir þættir myndarinnar mjög trúverðugir og áhrifaríkir og þar sem mynd- in er öll byggð upp mjög þátta- skipt, verkar myndin í heild mjög sterk. Veikleiki myndar- innar liggur hins vegar í beina- grind söguþráðarins, sem út af fyrir sig er alls ekki mikilvæg- ur í þessu tilfelli. Það eru hin einstöku augnablik, sem skipta máli og það er um þau, sem verður endanlega deilt, eftir sýningu myndarinnar. Leikstjórinn Ken Loach er Family Life. Sandy Ratcliff í hlutverki Janiee. Sandy leikur hér í fyrsta sinn, og töldu ýmsir breskir gagnrýnendur hér hálla undir nýja 'dórst iörnu. ★ ★ The Concert for Bangladesh amerfsk, geró 1972. Leikstjóri: Saul Swimmer. Framleiðendur: George Harrisson og Allen Klein. Mynd þessi er gerð í tilefni af hljómleikum, sem George Harrisson hélt 1971 í Madison Square Gardens tii styrktar flóttamönnum frá Bangladesh. I rauninni er lítið um myndina annað að segja. Hún er að vissu ieyti frábrugðin mörgum slík- um myndum þar eð reynt er aó forðast hraðar klippingar og ýmis tæknibrögð (split-screen) en myndirnar að mestu tak- markaðar við þá listamenn, sem leika hverju sinni. Myndin verður þannig látiausari og gef- ur áhorfendum gott tóm tii að virða fyrir sér ýmsa þekkta tón- listarmenn eíns og Harrisson, Ringo Starr, Bob Dylan, Leon Russel, Ravi Shankar, Billy Preston og ýmsa fleirí. Frekari gagnrýni er hljómlistarlegs eðiis. SSP. NVJA BÍO. THE CONCERT FOR BANGLA DESH * * í samanburði við WOODSTOCK, þá býður T.C.F.B.D. uppá betri tónlist, bæði hvaðsnertir flutníng lista- mannanna og meiri tóngæði. Enda aðstæður allar betri fyrir tæknimenn. Afturámóti er kvikmyndataka og klipping öilu daufari og ófrumlegrí en í W. Kemur það m.a. sorglega vel í Ijós er Bob Dylan er í sviðs- Ijósinu. En það er auðvitað tón- listin sem á að vera I fyrirrúmi, og þeir Billy Preston, Leoin Russel, Clapton, (það litla sem heyrist til hans) og Dyian, standa vel fyrir sinu. Þá tekst Harrison einnig alivel upp á köflum. En tónlist Ravi Shank- ar var löng og náði ekki til min, því miður. S.V. GAMLABlO Allt í lagi, vinur. ★ Bylmingshögg Bud Spencer gerast nú æ leiðigjarnari, orðin reyndar hálf hversdagsleg. Þetta er gamla sagan. Ef eitt- hvað gengur vel i áhorfendur, þá er uppskriftin margnotuð, aðeins breytt um nöfn á myndunum og söguhetjunum — til að blekkja sakleysingj- ana. S.V. þekktur í Bretlandi fyrir ýmsar skilningsríkar myndir um vandamál unglinga, þó nafn hans muni með öllu óþekkt hér. Hann vann upphaflega fyrir BBC og gerði þar mjög fræga seríu, sem nefnist „Cathy Come Home“, en helstu kvikmyndir hans til þessa eru Poor Cow (sem ég man ekki, hvort hefur verið sýnd hér) og Kes, sem hér hefur ekki verið sýnd. Kes er gerð 1969 og hlaut mjög góðar viðtökur á sínum tíma og er vonandi, að eitthvert kvik- myndahús bæjarins sjái sér fært að sýna hana. Eitt stvkki Gable Það er ekki hlaupið að því að finna leikara til að fara með hlutverk kunnra persóna og ekki bætir það úr skák þegar persónurnar sem á að túlka, eru heimsþekktar kvikmynda- stjörnur. Af þessum sökum er valið í aðalhlutverk myndarinn- ar GABLE AND LOMBARD að- alvandamálið sem upp hefur komið við gerð hennar. Univer- sal er nú að ráðast í kvikmynda- gerð sem byggð er á hinu munnmælakennda ástasam- bandi þessara tveggja „súper- stjarna" síns tíma. sambandi þessara tveggja „súperstjarna“ síns tíma. Handritið er skrifað af ung- um manni, Barry Sanders, sem er nýútskrifaður frá kvik- myndadeild Kaliforníuháskóla, (L.A.). Alls er áætlað að kvik- myndatakan kosti um 4 millj. $, leikstjóri er Sidney J. Furie. Takan sjálf hefst í maí n.k., ef það verður þá búið að hafa uppá nýjum Gable og Lombard. Það er ekki ólíklegt að það verði óþekktir leikarar sem að lokum hafna i hlutverkunum, en Universal er samt vel með- vitandi um aðdráttarafl stór- stjarnanna á kvikmynda- plakötunum. Burt Reynolds var sá leikari sem kvikmyndaverið hafði fyrst og fremst í huga, en hann hafnaði. Síðan voru aðal- hlutverkin boðin þeim hjónun- um Steve McQueen og Ali McGraw, en þau litu ekki við þeim. Því næst varð Warren Beatty fyrir valinu og sam- þykkti hann að taka að sér hlut- verkið meó vissum breytingum á handritinu, m.a. yrði Gable- karakternum gefið falskt nafn, en þvi neitaði Furie algjörlega, svo Beatty er úr leik. „Flestar karlstjörnur gera sér grein fyrir því að gagnrýn- endur sem áhrofendur muni bera þá saman við Gable, og þeir hafa hreinlega ekki kjark til þess að leggja útí saman- burð,“ segir Furie. „Lombard er minna vandamál, hún stend- ur ekki hinum ungu kvik- myndahúsgestum jafn- ljós- lífandi fyrir sjónum.“ Á meðal þeirra sem tiðast hafa verið orðaðar við hlutverk hennar eru Valerine Perrine, sem þar að auki er samningsbundin hjá Universal og Sally Kellerman, sem er hin eina af velþekktum stjörnum vestra sem hefur til að bera áþekkan stil og yfir- borðsfágun og Carole Lombard. Á meðan hafa bréfin með vis- bendingum streymt inn, frá öll- um ríkjum Bandaríkjanna, og Clarke Gable kmk mund /íöon SÆBJÖRN VALDIMARSSON SIGURÐUR SVERRIR PALSSON hver einasti umboðsmaður i Hollywood telur sig hafa réttu andlitin í hlutverkin. Furie, sem er rétt að hefja prófanir á umsækjendunum, segir: „Að lokum veljum við sjálfsagt tvo leikara sem enginn kannast við, og ef kvikmyndin slær i gegn, þá munu þessir tveir leikarar eiga stærsta hlutann í vel- gengni næstu mynda sem þeir gera.“ Caroie tomoara VESAUNGS TONY RICHARDSON Fyrir rúmum áratug hlaut bretinn Tony Richardson hin eftirsóttu Oscars-verðlaun fyrir bestu leikstjórn, vegna myndar- innar TOM JONES. Jafnframt þvi hlaut myndin enn fleiri verðlaun, gagnrýnendur voru ósparir á lofið, pg hvarvetna flykktust áhorfendur á mynd- ina. Siðan hefur Richardson, sem þá var ein skærasta von bresks kvikmyndaiðnaðar, leik- stýrt röð misheppnaðra mynda sem allar hafa kolfallið i að- sókn. Meðal þeirra eru tvær umdeildar satírur, THE LOV- ED ONE og THE HARGE OF THE LIGHT BRIGADE, og tvær eftirsóknarverðar en illa sóttar myndir, LAUGHTER IN THE DARK og NED KELLY. Enn eitt reiðarslagið kom svo yfir Richardson nú á dögunum, en þá var hann rekinn frá leik- stjórn myndarinnar MA- HOGANY. Var hann hálfn- aður með kvikmyndatökuna, sem fjármögnuð er af Motown Records, og með þeim Diana Ross og Billy Dee Williams í aðalhlutverkum, (en þau léku einmitt saman í hinni vinsælu mynd Furies LADY SINGS THE BLUES, sem byggð var á dapurlegri ævi bluessöngkon- unnar frægu, Billy Holyday). Það má því með sanni segja að Richardson megi muna tímana tvenna. S.V.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.