Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 UGGUR um ad ný ísöld sé f aðsigi hefur aukizt á síðustu mánuðum vegna nýrra uppgötvana vísindamanna. En hvenær og hvernig byrj- ar næsta ísöld? Um það fjallar meðfylgjandi grein. Hún birtist upp- haflega í brezka blaðinu The Guardian og er eftir Nigel Calder, sem er höf- undur sjónvarpsþáttars- ins „The Weather Machine“ frá BBC, sem hefur vakið mikla at- hygli. Niðurstöður hans eru heldur kuldalegar. BÖRN að leik á snjósleðum í miðj- um ágústmánuði. Leikni þeirra er frábær enda hafa þau getað æft sig samfleytt í níu mánuði. Snjór- inn er ekki farinn að bráðna. Ut- varpið flytur drungalegar fréttir um tilraunir til að hópa ibúum Bretlands saman i Kent og Devon. Þetta gæti verið byrjun á vís- indaskáldsögu. Menn sem hafa gaman af að spá heimsendi gætu líka talað svona. En þetta er mynd af byrjun nýrrar ísaldar og hún styðzt við staðreyndir. Þær hafa komið fram á síðustu árum og mánuðum í rannsóknum á ísöld- um fortiðarinnar. Þær bera með sér að hættan á nýrri ísöld er jafnægileg, og hættan á kjarn- orkustríði. Norrænir menn töluðu um fimbulvetur og trúðu því að með honum hæfist heimsendir. Þessar hugmyndir hurfu og þegar jarð- fræðingar uppgötvuðu á síðustu öld að stór landflæmi á norður- slóðum hefðu verið hulin ís var það aðeins talið áhugaverð vit- neskja. Raunar voru ísaldarrann- sóknir ekki teknar alvarlega fyrr en fyrir fimm til sex árum. Þær voru taldar jafnlangsótt rann- sóknarefni og rannsóknir á enda- lokum risaeðlunnar og sprenging- um í fjarlægum sólkerfum. Á ísöld leggjast Kanada og Skandinavia undir eins og hálfs kílómetra þykkar íshellur. Stórir hlutar Rússiands og Bretlands hverfa einnig undir ís auk norð- urhluta Bandaríkjanna og margra fjallasvæða eins og Alpafjalla. Handan endimarka íshellnanna verða stór svæði freðnar eyði- merkur. Á síðustu isöld — sem var síður en svo sú mesta sem vísindin greina frá — uxu tré til dæmis ekki norðar en í suðurhér- uðum Frakklands. En þótt ísaldir séu fyrst og fremst bundnar viö norðlæg lönd breyta þær loftslagi um víða veröld. Loftslagið kólnar alls staðar, ísa gætir einnig á suð- urhveli og alvarlegra þurrka á hitabeltissvæðum. Menn hafa lengi vitað að ísaldir hafa orðið oftar en einu sinni í sögu jarðarinnar en huggað sig við það að lengi hefur verið talið London á næstu ísölc Yið megum eiga von á nýrri ísöld að á milli ísalda líði 100—300.000 ára hlýindaskeið og að ísaldir þró- ist hægt og hægt á mörg þúsund árum. Nýjar uppgötvanir hafa kollvarpað þessum skoðunum. Næsta isöld hefst bráðlega og hún getur byrjað skyndilega. Tími hefur ekki unnizt til að vinna úr nýfenginni vitneskju svo að „bráðlega" og „skyndilega" eru óljós hugtök i þessu sam- bandi. En sióustu uppgötvanir benda til þess að engin ástæða sé til að draga í efa að ný ísöld geti hafizt fyrir alvöru á okkar dögum. Um 130 ár eru liðin síðan Louis Agassiz reyndi með erfiðismunum að sannfæra jarðfræðinga um að stór íslög hefðu hulið Alpafjöll og Skotland fyrir þúsundum ára. Ar- ið 1909 komu Albrecht Penck og Edward Briickner fram með kenningu sína um fjórar ísaldir og gerðu árnar Wúrm, Riss, Mind- el og Gunz ódauðlegar með því að kenna ísaldirnar við þær. En nú- meraröð þeirra var röng og það tók 60 ár að leiðrétta skekkjuna. Á þeim tíma sem leið töldu vís- indamenn sig finna vegsummerki eftir fimmtu ísöldina og hina elztu þá sem var kennd við Dóná, og komust að þeirri niðurstöðu að á hverri ísöld gætu verið fleiri en einn ofsalegur kuldakafli. En mestalla þessa öld hafa kenningar Peneks og Brúckners haft yfir- höndina og geislavirknitækni sem má beita við timasetningar hefur verið notuð til að styðja en ekki til að hrekja kennifiguna um langt hlýindaskeið á milli isalda sem hefur verið mannkyninu svo mikil huggun. Þannig hafa vís- indaiegar skekkjur margfaldazt, bæði í jarðfræði og fornleifa- fræði, þar sem allar tímasetning- ar hafa verið rangar. Nútímaísaldarrannsóknir hóf- ust eiginlega ekki fyrr en 1955 þegar ungur Itali við háskólann í Chicago, Cesare Emiliani, notaði þá geysimiklu tækni, sem hefur komið til sögunnar eftir stríð, til þess að mæla frumeindir og rekja þannig frumeindageró steingerv- inga lítilla sjávardýra. 1 ljós kom að í leðjulögum á botni Karíba- hafs áttu sér stað kaflaskil á hlut- falli þungra súrefnistegunda í steingervingum i réttu samræmi við djúpstæðar breytingar á um- hverfi heimsins. Emiliani fann sjö slíkar sveifl- ur í fyrstu sýnishornunum sem hann rannsakaði og sannanirnar fyrir tíðum ísöldum urðu ölium auðsæjar. En sérfræðingarnir lok- uðu augunum. En staðfestingar bárust senn frá sveitinni um- hverfis Brno í Slóvakíu þar sem Georg Kukla fann ummerki að minnsta kosti 10 isalda. Ljósleit, rykug jarðlög sýndu vegsum- merki frá tímabilum þegar ís- hjúpur Skandinavíu og íshetta Alpafjalla umluku Tékkósló- vakíu, sem þá var köld auðn eins og Gobi-eyðimörkin er nú á dög- um. Kukla skýrði frá þessu 1961, en fáir tóku eftir uppgötvunum hans. Tímasetningar voru helzti vandi Emilianis og Tékkóslóvak- anna. En mikil umskipti, sem urðu á segulmagni jarðar fyrir 700.000 árum, styðja nýju ísaldar- kenningarnar. Ummerki eftir þessi segulmagnsumskipti hafa fundizt í vissum leðjulögum á hafsbotni og í vissum jarðlögum í Tékkóslóvakíu og þau sýna að á undanförnum 700.000 árum hafa orðið að minnsta kosti átta ísaldir. Þar sem ísaldir hófust fyrir tæp- um tveimur milljónum ára hljóta þær að hafa verið 20 samtals. Þessi tala á aðeins við um meiri- háttar ísaldir: á milli hafa verið mörg styttri hlýinda- og kulda- skeið. Þessar uppgötvanir leiða í ljós þrjárstaðreyndir: I fyrsta lagi hef- ur eðlilegt ástand jarðarinnar síð- ustu tvö milljón ár verið kalt en ekki hlýtt. I öðru lagi hafa hlý- indaskeiðin milli ísaldanna verið mjög stutt — um tiu þúsund ár — þannig að tíminn frá upphafi sið- menningar mannsins til manna- ferðanna til tunglsins samsvarar dæmigerðu hlýindaskeiði milli tveggja ísalda. Þriðja staðreyndin er sú að að- alorsök isalda er loksins ljós. Kunnur jöklafræðingur lét svo um mælt fyrir nokkrum árum að líklegar ísaldarkenningar væru að minnsta kosti 60 talsins. Nú sem stendur er langlíklegasta kenningin sú sem er kennd við Milankovitch og hefur legið ryk- fallin á bókahillum í hálfa öld. Sú kenning skýrir tilkomu og hvarf issins með smábreytingum sem verða á afstöðu jarðar á braut hennar umhverfis sólu og á braut- inni sjálfri. Þessar breytingar draga úr hita sólskins að sumri til er bræðir vetrarsnjóinn á norður- hveli jarðar. Stjarnfræðingar geta reiknað út breytileika sum- arsólskins. Þegar í ljós kom við endurskoðun að frostakaflar hafa verið tíðir og þegar þar við bætist aó hægt er að styðjast við öruggt ártal, 700.000 ár frá vorum dög- um, var kominn timi til að dusta rykið af kenningunni og athuga hvernig hún samræmist hinni nýju vitneskju sem hefur komið fram. Nýlega birtust í „Nature“ nýir útreikningar, sem byggjast á þvi að Milankovitch-kenníngunni er beitt þannig að menn gefa sér einfaldar forsendur. Samkvæmt þeim niðurstöðum, sem við þetta fengust, komu tímasetningar all- ar mjög vel heim við síóustu tíma- ákvarðanir samkvæmt rannsókn- um á leðju af hafsbotni. Milankovitch-kenningin er mjög handhæg en samkvæmt henni var gullöld loftslags jarðar þvi miður fyrir 5.000 árum þegar steinaldarmenn byggóu yfir sig í Norðvestur-Evrópu. Þá skein sól- in björt og hlý á sumrum og hvassir vindar léku yfir Sahara og norðvestanvert Indland og færðu regn til svæða, sem nú eru eyði- merkur. Síðan hefur þróunin ver- ið niður í móti þó að visu hafi skipzt á „litlar ísaldir" og hlýinda- skeió. Önnur eins hlýindi og þá verða ekki i norðlægum löndum fyrr en eftir 120.000 ár og áður en Er þetta framtíðin?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.