Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 Hjónaminning: Agústa Krístjánsdóttir Jakob Benediktsson frá Þorbergsstöðum Ágústa Kristjánsdóttir F. 14. ágúst 1906 D. 8. febrúar 1975. Þá er hún Ágústa okkar dáin. Þegar manneskja fær hægt andlát að afloknu ævistarfi, án nokkurr- ar erfiðrar sjúkdómslegu, þá er naumast hægt að segja, að menn eigi um mjög sárt að binda. Sárs- aukaminna getur það varla verið. Hinsvegar erum við nokkuð mörg, sem nú söknum persönu, sem var umtalsverður þáttur i til- veru okkar um langt árabil. Það erum auðvitað við venzlafólkið frá Þorbergsstöðum í Dölum, en auk þess nágrannarnir, gestirnir, vegavinnustrákarnir og aðrir, sem góðs nutu af rausn hennar og léttlyndi. Ég veigra mér ekki við að segja, að við Agústu hafí átt orð Fjall- ræðunnar: sælir eru einfaldir. Og þá hugsa ég orðin vitaskuld i sömu jákvæðu merkingu og höf- undur þeirra. Hún var nefnilega ekki haldin miklum sálarflækjum og var ekki heldur að ergja sig á því að grufla út í hinztu rök tilver- unnar, skáldskap eða vísindi. Þetta töldu einstöku menn ljóð á hennar ráði, þeir sem héldu sjálfa sig vera eitthvað gáfaða. En Ágústa var ekkert að seilast út fyrir þann völl, sem hún hafði haslað sér, þar sem hún var drottning í sínu ríki: sem myndar- ieg húsmóðir á sínu heimili og höfðingi heim að sækja. Og það var áreiðanlega ekki af neinni vanmetakennd, sem hún tók ekki þátt í orðaskaki um svo- kölluð menningarmál og pólutík. Fáa hef ég vitað gædda jafnheil- brigðri sjálfsvirðingu. Hún hafði einfaldlega ekki áhuga á svona þrugli. Hún mat t.d. stjórnmála- menn mest eftir útliti þeirra og framkomu, en hirti lítið um mál- flutning þeirra. Þetta þótti mér einusinni fráleitt, en seinna hefur mér stundum orðið hugsað til þess, að málflutningur stjórn- málamanna hefur of oft reynzt enn svikulli en útlit þeirra og framkoma. Liklega hefur hið skýrt afmark- aða og flækjulausa áhugasvið valdið því, að Ágústa var flest- um öðrum léttari i lund og gat hlegið hjartanlegar en nokkur annar. Það var ekki til undir- hyggja í þeim smitandi hlátri, þótt hún hefði fágæta gáfu til þess að koma auga á sitthvað spaugilegt í fari manna, sem aðrir tóku ekki eftir, fyrr en hún gat um. Þá gat maður oft velzt um einsog á Sjaplín-mynd. Stundum sá hún þessar skopmyndir jafnvel í spábolla. Ágústa var flestum konum föngulegri að sjá og sópaði mjög að henni á dansgólfi, sem hún stundaði enda mikið og lengi. Þótti mörgum eftirsóknarvert að komast á gömlu dansana með Agústu, ef þær vildu skemmta sér reglulega vel. Hún lét lika oft svo sem hún væri ekki i miklum vafa um, að flestir karlmenn væru svo- lítið hrifnir af sér. En þá ekki eins og hún væri neitt að miklast af því. Þetta var svo sjálfsagt mál. Um sextugt fór hún t.d. í eina skiptið með ferðaskrifstofu til Evrópu. Fararstjórinn var kvænt- ur þekktri ungri leikkonu. En í eina skiptið sem hún rakst á þau hjón eftir þetta, lét hún það ekki fara fram hjá sér í sinni léttu frásögn, að leikkonan hefði verið eitthvað undarleg í viðmóti. Yndi Ágústu var annars að taka á móti gestum og láta þeim líða vel. Hún var mjög trygg öllum þeim, sem á einhvern hátt höfðu verið undir hennar handarjaðri. Um það getur undirritaður borið og mælir áreiðanlega fyrir munn margra. En auk þeirrar umhyggju og hlýju, sem maður naut, þá var ekki síður upplífgandi sálarbót að vera samvistum við Agústu eða heimsækja hana og láta mislynd- an hug sinn smitast af hennar hreinhjörtuðu kátinu. Agústa var fædd á Patreksfirði. Árið 1936 giftist hún Jakob Benediktssyni frá Þorbergsstöð- um í Dölum. Þar dvöldust þau síðan lengstaf á sumrum fram til 1970 við vegagerð eða bústörf, þótt þau væru mestanpart i Reykjavik á vetrum. Þau eignuð- ust einn son, Sigurð Kristján. Þegar við fórum heim til Jakobs þriðjudaginn 18. febrúar skv. umtali kvöldið áður til að fá hjá honum mynd af Agústu með þessum minningarorðum, þá hafði hann sjálfur skilizt við þennan heim fyrir stundu. Þá varð að ráði að láta eitt yfir bæði ganga. Jakob Benediktsson F. 24. júní 1898. D. 18. febrúar 1975. Aldamótakynslóðin síðasta hlýt- ur ætíð að teljast gegna örlaga- ríku og umsvifamiklu hlutverki í sögu íslendinga. Hún lifir nefni- lega umskiptin frá frumstæðu bændaþjóðfélagi til hins tækni- vædda þjóðfélags nútímans. Þeg- ar Jakob fæddist bjuggu t.a.m. 80% þjóðarinnar í sveit, en þegar hann dó, voru ekki eftir á lands- byggðinni nema 12—15%. Þetta var tími mikilla umbrota, þegar Einar Benediktsson kvað, að nú þyrfti að velta i rústir og byggja á ný. Auðdraumar Einars H Kvarans frá fyrstu árum aldarinnar blöstu líka við þessu fólki, hvort sem það vissi mikið af tilveru þess manns eður ei. Menn toguðust á milli fastheldninnar og elskunnar á ættjörð sinhi annarsvegar, og von- arinnar um skjótfenginn frama og fé í nýríki veröld hinsvegar. Kristján gamli Tómasson á Þor- bergsstöðum átti um aldamótin drjúgan hluta af Laxárdalshreppi i Dölum. Sá auður skiptist eðli- lega milli afkomenda hans og Ásu Egilsdóttur, en Benedikt sonur hans tók við óðalinu. Áðurnefnd togstreita birtist kannski í hnotskurn i sjö börnum Benedikts og Margrétar ömmu Guðmundsdóttur. Aðeins tvö þeirra verða fast viðloðandi sveit sína, Hólmfríður móðir mín og Ágúst, sem dó fyrir aldur fram 1936. Ása dó ung i Reykjavík frá sonum sínum og Sigurðar Björns- sonar brúasmiðs. Egill, Kristján og Lilja freistuðu gæfunnar á sviði borgarlífsins með atorku meðfæddrar framkvæmdasemi. Þar gekk á ýmsu, hæðum og lægð- um, og þau uppskáru sína umbun í samræmi við það. Jakob stóð kannski meir en önnur systkini hans milli tveggja elda. Hann var góðlyndur, kátur og athafnagjarn ungur maður, en hafði einkennilega sterka taug til jarðarinnar á Þorbergsstöðum og sást jafnvel lítt fyrir, ef um hana var að tefla. Við höfum víst flest meiri eða minni snert af slíku, sem þaðan erum runnin, en jafn- vel hundingjalegan ungling eins- og ég var um tíma, setti stundum hljóðan, þegar ég fann þessa heitu tilfinningu Jakobs, þá er við unnum saman að einhverju þar. Því hann var ekki vanur að láta neina væmni vella útúr sér í tíma og ótíma. Jakob fór í bændaskólann á Hólum haustið 1920, en haustið eftir til eins vetrar vinnu á bú- garði í Danmörku. En hann undi sér hvergi til lengdar annarsstað- ar en heima á Þorbergsstöðum, þar sem hann vann á búi föður síns síðustu æviár hans. Hann var samt með annan fótinn í Reykja- vík öðru hverju, meðan þeir Ágúst bjuggu saman 1931—37 eft- ir dauða Benedikts afa. Þó sté hann jafnan fastar í Dalafótinn — eða ístaðið ætti víst betur við að segja. Nokkur umskipti hafa orð- ið á þeirri vogarskál, þegar hann giftist Ágústu. Hún vildi ekki búa í sveit, sízt á vetrum. Þetta vita allir Dalamenn. En það ber ekki að álasa Agústu fyrir það. Hún var borgarbarn i eðli sinu. t Útför móður okkar HERDÍSAR BJARNADÓTTUR frá Neðra Vatnshorni, Vesturbraut 1 9. Hafnarfirði fer fram frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði þriðjudaginn 1 8. marz kl 2 e h. Aðalsteinn Sigurðsson, Herbert Sigurðsson. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför sonar míns og bróður okkar ÞORSTEINS ÁSMUNDSSONAR. Gunnarssundi 1 Hafnarfirði. Markrún Felixdóttir og börn. t Sonur okkar, bróðir og faðir, TORFI HAFSTEINN BALDURSSON, húsgagnasmiður, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudag nn 1 8 marz kl. 3 e.h. Ingibjörg Torfadóttir, Baldur Sveinsson, Þórir Baldursson. Ingibjörg Torfadóttir, Ásgeir Torfason, Freyja Torfadóttir. t Konan min MARGRÉT JÓNSDÓTTIR BJÖRNSON verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. marz, 1975, kl 13.30 Fyrir hönd fjölskyldunnar, GunnlaugurG. Björnson Ástin spyr hinsvegar ekki að leik- reglum. Þannig atvikaðist það, að eftir að Ágúst dó og Agústa kærði sig ekki um sveitabúskap, þá hné vogarskál Jakobs í þá veru, að hann var borgarbarn á vetrum, en sveitabarn á sumrum. Á veturna vann hann einkum við veitinga- rekstur Egils bróður síns og Margrétar. Frá 1937—1950 voru Hólmfríður elzta systir hans, Ása dóttir hennar og Páll ábúendur Þorbergsstaða i tvibýli. En þau áttu jörðina ekki, og liklega hefur framkvæmdaáhuginn verið minni fyrir bragðið. Jakob varð hinsvegar vegaverk- stjóri í Dölunum á sumrum eftir föður sinn strax frá 1931 og fram um 1970. Að þvi starfaði hann einkum í vesturhluta sýslunnar, og mun kunnust af þeim fram- kvæmdum vera ruðning vegarins um Skarðsströnd á árunum um og eftir 1950. Þar mun hann vart hafa átt minni þátt I öflun fjár og vinnutækja til verksins en heima- menn sjálfir eða alþingismenn þeirra. En þegar Jakob loks tók við Þorbergsstöðunum aftur um 1950, þá entist honum ekki lengur þrek til að fullkomna þá miklu jarðræktun og húsbyggingar, sem hann og Sigurður sonur hans tóku til við, þar sem frá var horfið rúmum áratug fyrr. Svona er lifið oftast. Menn njóta sjáldnast þeirra elda, sem þeir kveikja. Þótt allt gengi ekki að óskum, held ég Jakob hafi verið fremur hamingjusamur maður. Hann var félagslyndur og fjölhæfur á yngri árum. Hann var organisti i kirkj- um, hann var Iþróttamaður og glímukóngur Laxdælinga, hann tók þátt í leiksýningum, hann var kvenhollur og ölkær, hann söng t.d. gjarnan: Glaður jafnan er ég á öllum vinafundum, eða: Við ógiftir höfum það gott, eða: lipur þolinn lifaður litli folinn brúni. Jakob var talinn fjáraflanxaður og vildi víst áreiðanlega vera það einsog fleiri. Það þóttist jafnvel móðir min vera, og eignaðist hún þö aldrei annað en átta börn og kannski svolitla ánægju í lífinu. Jakob og Ágústa virtust hinsveg- ar haga sér að hætti framsýns fólks þessa tíma og eignuðust ekki nema eitt barn. — En það er einsog Jakob hafi ekki kunnað að notfæra sér kerfið, þótt hann feg- inn vildi. Hann varð aldrei rikur í okkar tíma skilningi.' Rótföst áhugasemi hans var honum e.t.v. viss fjötur um fót í efnahagsbar- áttunni. Skarðsstrendingar og fleiri munu minnast þess, að hann var ekki alltaf fyrst að hugsa um eigin hag, þegar hann vildi brjóta veginn áfram. Sakir heilsubrests neyddist Jakob að endingu til að yfirgefa og selja sína víðlendu kæru jörð. Það var honum án efa þungbært. Hann vildi að við frændsystkinin nokkur keyptum jörðina í félagi. Það hefði í sjálfu sér verið laf- hægt, þótt samningar tækjust ekki af ástæðum, sem hér verða ekki raktar. Nú eru Þorbergsstað- ir aðallega nytjaðir af hesta- mannafélagi. 1 bernsku þótti mér Jakob nokkuð umdeildur. En smám sam- an virtist mér allir vera í reynd sammála um það, hvort sem þeir áttu við Jakob í stríðu eða blíðu, að hann væri í eðli sínu fyrst og fremst hjartagóður og léttlyndur piltur. Arni Björnsson Útgerðarmenn Óska eftir bátum í viðskipti. Til greina getur komið að gerast hluthafi í frystihúsi eða í hráefnisvinnslu á Suðurnesjum. Uppl. sendist Mbl. fyrir20.3. merkt: Hráefnisöflun 9696. Skrifborð — fermingargjöf Við bjóðum yður falleg unglingaskrifborð úr Ijósri eik. Plötustærð 60x120 sm. Ennfremur létta skrifborðstóla. Sökkull sf. ÞÓRODDSSTÖÐUM SÍMI 19597 REYKJAVÍK Hestamannafélagið Hörður Kjósarsýslu Árshátíð félagsins verður haldin að Fólkvangi Kjalarnesi, laugardaginn 22. marz kl. 20.30. Verðlaunafhending. Dans: Hljómsveit Gissurar Geirs. Aðgöngumiðar hjá Sveini, Bjargi, Teiti, Móum, Haraldi, Fremra Hálsi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.