Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 Miðstöðvarofnar Höfum hafið framleiðslu á miðstöðvarofnum. Sænsk gerð. Hagstætt verð. Stuttur afgreiðslu- frestur. Gerum tilboð ef óskað er. Uppl. í símum 99-4373 og 99-4374. Vélsmiðja Sigurðar og Æ vars, Hveragerði. Forstöðustarf unglingavinnu Hafnarfjarðarbær óskar að ráða mann til að sjá um unglingavinnu á vegum bæjarins í sumar. Umsóknir skulu sendar undirrituðum eigi síðar en 21. þ.m. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. [fi ÚTBOÐ Tilboð óskast í eftirfarandi efni fyrir Hitaveitu Reykjavikur.: 1. Þensluslöngur. — Opnunardagur tilboða 1 7. apríl 1 975. 2. Suðufittings — Opnunardagur tilboða 23. apríl 1 975. 3. Lokar og gildrur. — Opnunardagur tilboða 24. apríl 1975. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3. INIMKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR ; Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 *! Eigum ennþá fyrirliggjandi á gamla verðinu, hljóðkúta og púströr í flestar gerðir bifreiða. Setjum pústkerfi undir bíla. Sími á verkstæðinu 83466. Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2, stmi 82944. Guðrún Lárusdóttir áttræð á morgun Þú verður áttræð á morgun 17. mars föðursystir mín. Hver getur trúað því, svo létt í spori sem þú ert og svo dugleg í önnum dags- ins. Vissulega á ég margar minn- ingar um þig — allar eru þær á eina lund um ástúðlega frænku er ávallt var stærst og best þegar erfiðleikar lffsins voru mestir. Til þín flúði ég daglega með litinn son minn er við dvöldumst á Víf- ilsstaðahæli hjá þér og manni þín- um Helga Ingvarssyni yfirlækni, þáðum við þar skjól og yl. 1 æsku fór ég flestar helgar upp að Vífilsstöðum til þess eins að vera hjá þér, njóta fegurðar heim- ilis þins og gestrisni ykkar hjón- anna, en á Vffilsstöðum var ætíð fullt hús og allir velkomnir. Sjaldnast var þó húsbóndinn heima því margir voru sjúkir, en lfknar hendur læknisins ósér- hlífnar. Flest jól æsku minnar dvaldi ég á Vífilsstöðum ásamt fjölskyldum okkar, en þar svignuðu öorðin af hvers konar gómsætum jólamat. Við frændsystkinin sungum, dönsuðum og fórum i jólaleiki saman. Meðal okkar var alia jafn- an hann Haukur Guðmundsson er sumir kölluðu „pressara“, yfir hann var látið ganga allt hið sama og okkur. Þið hjónin hafið aldrei gert manna mun, en verið minnug orðanna er svo hljóða: „Allt hjá yður sé i kærleika gjört.“ Já um jólin ljómaði gleðin i sálum okk- ar. En var nú vfst að svo væri alls Námskeið Heimilisiðnaðarfélags íslands. Uppsetning á vef kvöldnámskeið. Byrjar 21. marz — 14. apríl. Upplýsingar í verzlun félagsins. íslenzkur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3, sími 11 785. staðar, nei, það vissi líka læknir- inn, sem leit yfir syngjandi og glaðan gestahóp sinn — er hijóðn- aði andartak. Læknirinn iyfti hönd sinni lftið eitt og sagði. Elskurnar minar nú skulið þið njóta alls þess, sem til er í húsi mínu og gleðjast áfram. Ég mun ganga út á hælið til skjólstæðinga minna. Svo hvarf hann út til þeirra sjúku, en í nálægð hins fórnfúsa og hljóðláta læknis fengu sjúklingarnir frið og nutu jólanna betur, fjarri ástvinum. Þú föðursystir mín horfðir bros- andi á eftir manninum þínum og gerðir engar kröfur, en tókst á þinar herðar að vera með okkur áfram brosmild og veitul. Það munu allir vinir þínir viðurkenna að þú hefur staðið með mannin- um þínum heilshugar, um leið hefur þú fært fórnir með því að skilja hina sjúku er voru á leið þinni um áratuga skeið. Það er hió eina rétta hugarfar hverrar lækniskonu. Nú á afmælisdegi þínum mun heimilið ykkar veita af sömu risnu og áður en læknirinn mun fá dvalið með þér í ró á þessum heiðursdegi — þó er hann ekki hættur að vitja hinna sjúku og færa þeim frið —. Og enn horfir þú brosandi á eftir honum — en þú frænka mfn hefur aldrei hugs- að um sjálfa þig þegar framundan hefur verið að bæta liðan með- bræðranna. Ég vil því aó lokum tileinka j^kkur læknishjónunum þetta gamla ljóð. „Alla þá sem eymdir þjá er yndi ad hugga, og lýsa þeim sem I jósið þrá, en lifa í skugga“. Með þannig hugarfari hefur ævistarf ykkar verið háð,þess eru svo margir minnugir. Eg árna þér allra heilla um leið og ég þakka allt hið liðna. Guðrún Jakobsdóttir. ISLAND EFTIR 10 AR — Hvaða markmiðum eigum viðað ná DAGSKRA RAÐSTEFNUNNAR FÖSTUDAGUR 21. MARZ 17.30 Rádstefnan sell (Rádstefnusalur). Gunnar Helgason, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna f Reykjavfk flytur ávarp. 17.50 Stðriðja eftir 10 ár — böl eða blessun. Dr. Vilhjálmur Lúðvfksson, efnaverkfræðingur. 18.15 Landbúnaður eftir 10 ár — horft fram f tfmann. Gunnar Bjarnason, ráðunautur. 18.40 Veitingar. 19.00 Umræðuhópar starfa (ca. 4 hðpar eftir umræðuefni). 20.30 Skýrslur umræðustjóra. 20.50 Frjálsar umræður. Fyrirspurnum svarað. Undir þessum lið verða fluttar stuttar ræður þar sem áhugamenn setja fram hugmyndir og tillögur um stóriðju og landbúnað. 20.15 Lok fyrri dags. LAUGARDAGUR 22. MARZ 10.00 Hvert á að stefna í iðnaði næsta áratuginn? Þorvarður Alfonsson, aðstoðarmaður ráðherra. 10.25 Sjávarútvegur — hvað fæst úr gulikistunni eftir 10 ár? Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri. 10.50 Umræður. Undir þessum lið verða fluttar stuttar ræður þar sem áhugamenn setja fram hugmyndir og tillögur um sjávarútveg og iðnað. 12.30 HADKGISVERÐUR (Víkingasalur). Jónas Ilaralz flytur ræðu um Island í alþjóðlegu, efnahagslegu samhengi næstu árin. 14.00 Umræðuhópar aðstörfum (10—15 f hverjum hóp). 15.30 Kaffiveitingar. 16.00 Skýrslur umræðustjóra. 16.30 „Panel" uinræður (Ráðstefnusalur). Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk framsögumanna ræða sfn á milli og svara fyrirspurnum frá ráðstefnu-gestum. 18.00 Ráðstefnuslit. RÁÐSTEFNUSTJÓRAR: Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri Óiafur B. Thors, deildarstjóri. Ráðstefna Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, haldin að til- hlutan Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, 21. og 22. marz 1975 að Hótel Loftleiðum. Þátttökugjald ráðstefnunnar er kr. 650.00 og innifalið er ráðstefnugögn og veitingar kl. 18.40 á föstudeginum og ki. 15.30 á laugardeginum. Til að auðvelda undirbúning er æskilegt að þátttaka tilkynnist í síma 17100 eða 18192 sem allra fyrst!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.