Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.03.1975, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1975 Samningarnir: Líklegt að línurnar skýrist um helgina Fundur sáttasemjara med adilum vinnu- markaðarins hófst kl. 10.00 í gærmorgun í Tollstjóra- húsinu og þó aó ekkert sér- stakt hefði gerzt, er Mbl. leitaði þar frétta um hádegisbilið, var að heyra á samningamönnum að lík- legt væri að línurnar myndu skýrast eitthvað um helgina. Mbl. spurói Björn Jónsson for- seta ASl hvort þeir hefðu lagt fram gagntilboð við 3800 kr. boði vinnuveitenda og Björn sagði: „Við höfum ekki beinlínis gert það, en vió höfum lagt fram vinnuplagg, sem við teljum að ætti að geta auðveldaó að taka ákvörðun um upphæðina og ger- um þar m.a. ráð fyrir að ekki verði breytt hlutföllum milli dag- vinnu, eftirvinnu og nætur- vinnu." Aðspurður um horfurnar sagði Björn: „Það er mjög óráðið, en vió höfum enga hreyfingu fundið inn fyrir okkar dyrastaf frá því að vinnuveitendur héldu sinn stóra fund á fimmtudag. Við erum nú að athuga tæknileg atriði, annað er ekki í gangi.“ Ólafur Jónsson framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins sagði: „Ég vil helzt sem minnst um þessi mál segja, þau eru nú í höndum sáttasemjara, sem stjórn- ar vinnubrögðunum. Tilboðið, sem við gerðum á sínum tíma, var þá okkar lokatilboð og á því hefur engin breyting orðið. Það mið- aðist m.a. við að kauphækkunin kæmi einungis á dagvinnu, þar sem það var skoðun okkar manna að bæta dagvinnulaunin betur, en láta ekki hækkun koma á eftir- vinnu og næturvinnu. Um horfurnar er ekki gott að segja, þær eru óvissar, en ég held þó að línurnar skýrist yfir helgina." Torfi Hjartarson sáttasemjari nefndunum í gærmorgun. LJósm. OI.K.IH. á fundi með samninga- Loðnan gefur sig aðeins yfir dagtúnann FRÁ ÞVl í fyrrakvöld og fram til hádegis f gær var loðnuveiðin frekar lítil, en það sem fékkst fengu bátarnir að mestu í Faxa- flóa. Þegar loðnan er komin þetta vestarlega, og jafnvel búin að hrygna, hagar hún sér þannig að hún veiðist mest á daginn, öfugt við það sem er fyrri hluta vertfð- Fimmtán skip höfðu þó tilkynnt um afla um hádegi f gær, en þá var farið að bræla á ný á miðunum, alls voru skipin með um 3000 lestir. Skipin, sem til- kynntu um afla, voru þessi: Hilmir 270 lestir, Sigurður 400, Reykjaborg 250, Gullberg 150, Halkion 180, Olafur Magnússon 80, Börkur 400, Sæberg 120, Heimir 220, Harpa 200, Sveinn Sveinbjörnsson 150, Sigurbjörg 200, Vonin 130 og Faxaborg 260. Nýir sölusamningar á saltfiski við Portúgal og Spán: þeim allt að 24 þús- verði Seljum una tonn á hagstæðu TVEIR forráðamenn Sölusambands fsl. fiskframleiðenda, þeir Tómas Þorvaldsson, stjórnarformaður, og Helgi Þórarinsson, framkvæmda- stjóri, eru nýkomnir úr söluferð um Pfreneaskaga, þar sem þeir gengu formlega frá sölu á um 24 þúsund tonnum af saltfiski til Portúgal og Spánar og er þá miðað við að samningarnir verði fullnýttir. Sérstak- lega er sölusamningurinn við Portúgal mikilvægur, því að þar getur orðið um að ræða allt að 18 þúsund tonna útflutning. Landið er þannig eitt helzta markaðsland okkar hvað saltfiskútflutninn snertir og raunar einnig mjög mikilvægt þegar litið er á heildarútflutninginn, þvf að þangað fóru um 11% af öllum útflutningi landsins á sl. ári samkvæmt hagtölum. Hins vegar hefur orðið stjórnarbreyting f land- inu eins og öllum er kunnugt, og þess vegna ekki að undra þótt ýmsir leiddu hugann að því hvort stjórnvöld f landinu kynnu að breyta sfnum viðskiptaháttum. Listaverk Sigurjóns Ólafsson- ar, Móðir og barn, 72 sm á hæð, skorið í tré. Sýnt á Chariotten- borgarsýningunni 1944. Lista- safn Islands keypti þessa mynd fyrir fsl. kr. 150 þús., sem þykja mikil reyfarakaup. Að sögn þeirra Tómasar og Helga varð þess ekki vart. SÍF tók strax upp þá stefnu að fara að öllu með gát hvað þetta markaðsland snerti, en fylgdist þó allan tímann náið með þróun mála í Portúgal. Voru aðstæóur metnar þannig, að ekki væri ráðlegt að hefja sölu- samninga í þessu markaðslandi fyrr en síðustu dagana i febrúar en að eigin ósk höfðu viðskipta- aðilar SÍF í Portúgal komið Reyfarakaup á ís- lenzkum listaverkum Listasafn íslands keypti styttu Sigurjóns Kaupmannahöfn 14. marz. Frá Braga Kristjónssyni. LISTAVERKAUPPBOÐ Arne Bruun-Rasmussen í Breiðgötu í Kaupmannahöfn hélt í gær alþjóðlegt uppboð á lista- verkum. Listaverkasalar frá New York, London, París og Róm komu til uppboðsins. Verð voru mjög misjöfn. Þó var það mál manna, að verðin hefðu yfir- leitt verið mjög hagstæð. Verk eftir hin þekktari „nöfn“ fóru þó á svipuðu verði og venja er. George Braque fór á ísi. kr. 40—800 þúsund, Chagall á 400—500 þúsund, standlampi eftir Alberto Giacometti á 500 þúsund, graflist eftir Picasso á 100—800 þúsund og svo mætti lengi telja. Meðal þessara alþjóðlegu listaverka voru þrjú íslenzk: Olíumálverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur af 'Herðubreið, 54x65 sm, seldist mjög ódýrt eða sem næst ísl. kr. 120 þúsund. Olíumálverk Gunn- laugs Blöndals, Gladíólur í vasa, 61,5x46 sm, ekki meðal bestu verka málarans, seldist fyrir um 300 þúsund krónur og þótti það ekki dýrt. Bæði þessi listaverk höfnuðu hjá dönskum listaverkasöfnum, sem i seinni tíð hafa lagt sig allmikið eftir íslenzkum málverkum og lista- verkum hér í Kaupmannahöfn. Listasafn íslands bauð í verk Sigurjóns Ölafssonar, Móðir og barn, unnið í tré, áður sýnt á Charlottenborgarsýningunni 1944. Var listaverkið fyrir uppboðið metið á sem næst 200 þús. krónur, en seldist fyrir mun minna eða sem næst 150 þúsund. Hreppti Listasafn ís- lands það fyrir það verð. Þykja það mikil reyfarakaup. Listfræðingur frá Ríkislista- safni Dana, sem voru viðstaddir uppboðið, höfðu orðið mjög hrifnir af íslenzku listaverkun- um, einkum mynd Sigurjóns, en höfðu að þessu sinni ekki heimiid til að bjóða í þau. Sögðu þeir, að næst, þegar góð íslenzk listaverk yrðu til sölu á uppboðinu, myndu þeir samt ekki sitja hjá eins og nú. hingað til lands fyrri part janúar og verið hér á landi í nokkra daga til viðræðna. Sagði Tómas að niðurstaóa þeirra viðræðna hefði m.a. orðið sú að biða átekta þar til seinnipartinn í febrúar, þrátt fyrir þrýsting hér heima fyrir um að hefja samningsumleitanir fyrr. Þeir Tómas og Helgi héldu utan hinn 26. febrúar sl. og voru þeir tæpan hálfan mánuð i þessum tveimur löndum — Portúgal og Spáni. Tómas og Helgi sögðu um ástandið i Portúgal, að þeir hefðu ekki orðið varir við neina breyt- ingu á ytra borðinu nema hvað nú mátti sjá áróðursplaköt frá stjórn- málaflokkunum, sem ekki sáust áður. Að öðru leyti kváðust þeir ekki hafa orðið varir við annað en að allt gengi þar sinn vanagang. Að þessu sinni fóru samningavið- ræðurnar fram við ríkisfyrirtæk- ið Reguladora, sem nú annast allan innflutning á saltfiski. „Þetta fyrirtæki hefur raunar oft áður farið með innflutning á salt- fiski eða alveg fram til 1968 að hann var gefinn að nokkru leyti frjáls en engu að síður hefur þetta fyrirtæki jafnan haft með veitingu innflutningsleyfa að gera,“ sagði Tómas. Hið portúgalska fyrirtæki hefur að sögn þeirra forráðamanna SÍF látið þá ósk uppi að sem minnst verði látið uppi um þessa samninga fyrst um sinn, enda standi fyrir dyrum ýmsar skipu- lagsbreytingar á þessu sviði inn- flutningsins. Þeir Tómas og Helgi kváðust þó geta upplýst, að í þess- ari ferð hefði verið gerður sölu- samningur um 16000 tonn af blautsöltuðum þorski og 500 tonn af öðrum tegundum saltfisks en í samkomulaginu væru ákvæói sem gerðu það að verkum að út- flutningsmagnið gæti hækkað upp í allt að 18 þúsund tonn. Sölusambandið hefur hins vegar í hendi sér afhendingu á hluta þessa heildarmagns. Kom mjög fram i viðræðunum, að sögn þeirra SÍF-manna, að forráða- menn I Portúgal hygðust draga verulega úr innflutningi á þurrkuðum fiski. Að loknum samningum i Portúgal héldu þeír tvímenning- arnir til Spánar og hittu þar helztu viðskiptaaðila SÍF. Þar höfðu einnig verió blikur á lofti varðandi markaðinn nú upp úr áramótum og jafnvel horfur á að loka yrði algjörlega fyrir inn- flutning á saltfiski. Astæðurnar eru þær, að spænskir útgerðarmenn hafa lagt fast að stjórnvöldum að loka fyr- ir innflutning á sjávarafurðum þar eð þeir hafa sjálfir setið uppi með töluvert af birgðum. Meðan þessu fór fram tóku spænsk stjónvöld t i draga veitingu innflutn' gsleifa. Þar eð SÍF hafði • kið þá ákvörðun að bíða einnig átekta hvað snerti samninga vió þetta markaðsland bitnaði þessi dráttur ekki á því og samningunum nú á Spáni lyktaði með því aó SÍF gerði sölusamning og ekki talin ástæða til að óttast hömlur á veit- ingu innflutningsleyfa. Hins veg- ar hefur verið settur sérstakur skattur á innflutninginn eða sem svarar 5 pesetum á hvert kíló salt- fisks og er þetta gert til að styðja við bakið á spænsku útgerðinni. I sölusamningnum eru einnig ákvæói um að spænsk stjórnvöld geti breytt þessu fyrirkomulagi án fyrirvara. Heildarmagn þessa samnings er 6 þúsund tonn af blautsöltuðum fiski og er þaó aukning um 1000 tonn frá þvi í fyrra. Að sögn Tómasar og Helga fela þessir tveir samningar í sér að útflutningurinn til þessara mark- Framhald á bls. 47. sjCtJð&oIl LESBÓK Morgunblaðsins kemur ekki út um þessa helgi né næstu helgar vegna pappírsskorts,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.