Morgunblaðið - 11.05.1975, Side 31

Morgunblaðið - 11.05.1975, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAl 1975 31 hentar mér vel, mér finnst það spennandi. Ég vinn myndirnar í kopar og zink. Þar næ ég beztum árangri. En slíkt er auðvitað alltaf persónubundið. Einn kostur við grafik er sá, að hún nær til miklu stærri hóps áhorfenda en önnur myndlistarverk. Hver mynd er gerð í mörgum eintökum. Þess vegna er hægt að sýna sama verkið samtímis á mörgum stöð- um. Eg t.d. sýni um þessar mund- ir sömu myndirnar í Júgóslavíu, Finnlandi, Noregi, Danmörku og á Islandi. Björg: Ég sýni grafikmyndir á sömu stöðum, að Júgóslavíu undanskilinni, en til viðbótar á ég myndir á sýningum i New York og Miami. Raunar er ég að fara út til New York núna, þar sem ég á myndir á sýningu, sem er að opna. Ragnheiður: Það er mjög erfitt fyrir Islendinga að sýna málverk og höggmyndir erlendis vegna flutningskostnaðar og dýrra trygginga. Grafik má sendi milli landa með litlum tilkostnaði. Með þátttöku i slíkum sýningum erum við komin i samband við aðila viðsvegar í heiminum. Ein sýning Björg segist ekki geta gert upp á milli listgreina. Hér er hún með eitt verka sinna, þar sem hún notar blandaða tækni til að ná fram sérkennilegri speglun. FJÁRFESTING - ENDURMAT Á bak við hverja SELKÓ hurð er 25 ára reynsla í smíði spónlagðra innihurða. Skipulögð fram- leiðsla SELKÓ innihurða hófst hjá Sigurði Elías- syni h. f. fyrir 15 árum. í ár fögnum við því tvö- földum áfanga í hurðasmíði. Einkunnarorð framleiðslunnar hafa ætið verið hin sömu: Vönduð smíði, góður frágangur og fallegt útlit. Enda hafa SELKÓ hurðir fyllilega staðizt erlenda samkeppni um árabil. Þess vegna er það mjög algengt að þeir, sem vilja endurnýja útlit eldra húsnæðis með t. d. tvöföldu gleri, nýjum húsgögnum, og fallegum teppum, fjárfesti einnig í nýjum SELKÓ inni- hurðum. SELKÓ innihurðir gefa heimilinu traustan og áferðarfallegan svip, samræma heildarútlit hús- næðisins við nýja búslóð, og hækka verðmæti íbúðarinnar, þegar meta þarf til skipta eða end- ursölu. Þér tryggið útlit og verðmæti íbúðarinnar með SELKÓ innihurðum. SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI i FYRIRRÚMI SIGURÐUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 heiminum, sé vissum skilyrðum fullnægt. En staðir, sem eru auðugir að heimslistinni og þar sem gróska er í listalifinu, geta verkað sem aflgjafar eða hvatar fyrir listamenn. Hér heima sjáum við lítið annað en íslenzka list. Síðan Norræna húsið kom til, hef- ur þó norrænum sýningum hér fjölgað. Björg: Já, Norræna húsið hefur gert okkur mjög gott með því að færa okkur norrænar sýningar. Það er mikils virði. Við mynd- listarmenn höfðum einmitt bundið vonir við Kjarvalsstaði, að þar yrði regluleg menningarmið- stöð, þar sem alltaf væri eitthvað forvitnilegt að gerast. Þar er grundvöllur til að kynna jafnt er- Ienda sem innlenda list. Við erum þvi ákaflega vonsvikin og sár yfir því hvernig komið er og að lista- mönnum skuli ekki vera treyst til að hafa þar forustu og ráð. Sumir segja að listamenn fari utan til að sækja sér ákveðna listastefnu, til að vinna i. Er ein hver ákveðin listastefna efst á baugi nú? Viðmælendum Mbl. kemur saman um að breiddin sé ákaflega mikil I listum. Og þar með frelsið til að tjá sig eftir eigin geðþótta. Urlausn hvers viðfangs- efnis sé það sem máli skiptir, enda sé listastefnum gefið nöfn eftir að þær hafa orðið til. Eng- innn listamaður segir t.d. ,,nú ætla ég að mála í þessum stil eða hinum.“ Það koma til persónuleg viðhorf hvers og eins. Grafikalda virðst ganga yfir Is- land, og er ekki vonum fyrr. Hér koma nú upp bæði íslenzkar óg erlendar grafiksýningar. Hvernig ætli að standi á þessu? Ætli það geti ekki verið fyrir áhrif frá félaginu Islenzk grafik, sem hér hefur starfað í 6 ár og gengist fyrir 4 stórum sýningum, þ.e. Is- lenzkri sýningu í Unuhúsi 1970, alþjóðlegri sýningu frá Atelíer 17 í París i Norræna húsinu 1971, norrænni sýningu á Listahátið 1972 og samsýningu í Norræna hús inu fyrir 2—3 vikum. Hún fékk mjög góðar móttökur og raunar hefur fólk verið að átta sig betur á þessari listgrein, bæði hér og úti á landi. Fyrsta sýning félagsins var send út á land. Nú hefur því verið boðið að senda sýningu víðs- vegar um landið.Ragnheiður fæst eingöngu við þessa listgrein. Við spyrjum hana hvers vegna? Ragnheiður: Það er rétt, ég vinn eingöngu við grafik. Það Þorbjörg vinnur að stóru málverki heima hjá sér. Slíkar mynair er erfiðara að fara með milli landa á sýningar. leiðir af sér margar aðrar. Þarna gefast tækifæri til að vera með, og að kynnast verkum listamanna frá fjarlægum heimshornum. Fyrir nokkrum vikum voru hér t.d. grafiksýningar frá Frakk- landi, Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Kína. Þorbjörg: Ég er sammála því, sem hér hefur verið sagt um grafikina. Ég er líka með grafik- myndir á sýningunni í Bergen. Annars hefi ég lítið unnið að grafik. Aðstæður eru slæmar. Eg verð að vinna í verkstæðinu i Handiðaskólanum, svo þetta verð- ur meira ígripavinna. Eg er þvi mest við að mála. En það verður óhjákvæmilega minni hreyfing á málverkunum hjá manni. Ekki er svo auðveldlega hlaupið með þau milli landa. Erlendis hefi ég því mest sýnt teikningar, grafik- myndir, upplimingar (collage) og þess háttar. 1 fyrra var ég með slíkt a samsýningu SUM, sem fór um Norðurlönd, en ég hefi starfað með SUM í nokkur ár. Og ég ætla einmitt að fara að sýna á samsýn- ingu þeirra samtaka. I þeim verk- um verður beitt blandaðri tækni — klippt og teiknað. Björg: Ég vinn jöfnum höndum að málverkum og grafikmyndum. Og ég hefi mikla nautn af þvi að fást við stóran myndflöt, eins og málverkið hefur upp á að bjóða. Ég get ekki gert upp á milli þessara tveggja greina. Hvor um sig hefur sína möguleika. Þorbjörg: Ég held að kannski sé kominn timi til að halda lika á loft teikningum. Hingað til hefur teikningum verið litill sómi sýnd- ur, málverkin tekin fram yfir. Þar er ég hrædd um að komi inn fjár- festingarhugarfarið, að meta mest það sem dýrast er. En aðal- atriðið er að verkið sé gott. Ég held þó að þetta sé nokkuð að breytast. Nú er greinilega að vakna mikill áhugi á grafik og teikningum. Og nú hefi ég hugsað mér að nota hluta af launaða starfstimanum til að koma upp sérstakri teiknisýningu. Ég ætla að mála og teikna í þessa átta mánuði og stefni að málverkasýn- ingu, þegar þessum starfstima er lokið. En hefi hugsað mér að hafa teiknisýningu einhvers staðar inn i milli. Þeir sem fást við slíkar list- greinar, sem þessar þrjár lista- konur, verða að hafa nokkuð rnikið umleikis og hafa vinnuað- stöðu. Við forvitnumst um hvern- ig þær standi að þvi. Það kemur í ljós að tvær þeirra halda heimili, Ragnheiður stórt heimili með 5 börnum, en Þorbjörg, sem er laus og liðug eins og sagt er, bætir á sig verkefnum sem bjóðast, eins og t.d. við bókaskreytingar, upp- færslur hjá Þjóðleikhúsinu, vegg- skreytingar o.fl. Björg: Hér er vöntun á sér- hönnuðum vinnustofum. Flestir listamenn verða að notast við al- mennt ibúðarhúsnæði með venju- legri lofthæð og oft ófullkomnum birtuskilyrðum. Sjálf hefi ég vinnuaðstöðu fyrir grafik heima. Ragnheiður: Eg hefi líka rúm- góða vinnustofu heima, með pressu, sýrubökkum og tilheyr- andi tækjum og verkfærum, sem nauðsynleg eru til að vinna með við málmætingar. Það hefur ýmsa kosti að hafa vinnustofuna innan veggja heimilisins. Timinn nýtist betur. Heima er stundum sagt að ég hafi heimilisstörfin sem tóm- stundaiðju, en þetta bjargast allt svo lengi sem ég blanda ekki sýr- unni i súpuna. — Þegar ég er að teikna á plöt- ur, sem ég geri inni á heimilinu, þá eru krakkarnir venjulega lika allir komnir að borðinu með sina vinnu, bætir Ragnheiður við, er við spyrjum hvernig krakkarnir falli inn í slíkt heimilishald. — Þau vilja vera þar sem maður er sjálfur. Það truflar mig ekkert. Maður venst öllu. Og mér finnst þau taka mikið tillit til min. Það er sennilega mikið upp- eldisatriði að börn venjist snemma á að umgangast listir. Þessu samsinna listakonurnar. Þorbjörg: Ég hefi vinnustofu heima og legg undir mig íbúðina, eins og þær hinar. En ég er líka á vinnustöðum úti, t.d. í Þjóðieik- húsinu og við kennslu i Mynd- listarskólanum við Freyjugötu. Ekki fer á milli mála að viðmæl- endur okkar eru mjög starfsamir listamenn, enda hefur að undan- förnu gefist kostur á að sjá margt skemmtilegt eftir þessar þrjár listakonur, auk þess sem verk þeirra e’ru á sýningum viða er- lendis. Og á svo vafalaust eftir að verða í næstu framtið — E.Pá á góða pressu og nauðsynlegt tæki fyrir málmætingar. Það er mikill kostur. Hins vegar mála ég i stof- unni, sem er rúmgóð. Raunar er heimilið ein allsherjar vinnu- stofa, þar sem venjulegur hús- búnaði er blandað saman við sér- þarfir málarans. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.