Morgunblaðið - 11.05.1975, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAl 1975
Sumarbúðirnar í Skálholti.
Nánari upplýsingar um
flokkaskiptingu o.fl. veit-
ir Aðalskrifstofan,
KF’UM og K húsinu Amt-
mannsstig 2B.
Æskulýðsstarf Þjóð-
kirkjunnar rekur fjórar
sumarbúðir í sumar. í
Skálholti er ágætis
aðstaða til sumarbúða-
reksturs. Þar er hægt að
stunda alls konar íþróttir
auk göngu- og skoðunar-
ferða um nágrennið.
Óþarft er að eyða mörg-
um orðum í að kynna
þennan sögufræga stað,
en þar getur verið mjög
fallegt. í Skálholti er
hverjum söfnuði út-
hlutað vissum tíma til að
gefa börnum úr sömu
sókn kost á að vera á
sama tíma. Þar eru flokk-
ar fyrir stelpur og stráka
á aldrinum frá 7—12 ára.
Hinar búðirnar eru að
Vestmannsvatni í Aóal-
dal, þar eru flokkar fyrir
krakka á aldrinum 7—9,
10—13 og 14—16.
Einnig eru sumarbúóir
að Eiðum í S-Múlasýslu
og Holti í Önundarfirði.
Nánari upplýsinga er
að leita hjá viðkomandi
sóknarprestum, svo og
skrifstofu Æskulýðsfull-
trúa, Biskupsstofu,
Klapparstíg 27.
|krosseötur|
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason
Merki Skógarmanna K.F.U.M.
„Afram að markinu."
Við lok skóla og komu
sumars reikar hugur
margra til sólar og
sumarfrís. Marga for-
eldra í þéttbýli fýsir að
koma börnum sínum í
sveit. Ekki er þess þó
alltaf kostur og verður
því að leita annarra ráða.
Undanfarin sumur hafa
verið reknar ýmsar
sumarbúðir fyrir börn og
svo vei ður einnig nú.
Krossgötur langar að
kynna lítillega sumar-
búóir KFUM og K og
Þjóðkirkjunnar.
Sumarbúðir
Til hvers ertu að fara
þangað? er spurning sem
krakkar sem dvelja i
sumarbúðum eru spurð
að. Þarna eru krakkarnir
með jafnöldrum og jafn-
vei vinum sínum og njóta
sameiginlegs sumarfrís.
Það getur verið gaman i
stórum krakkahópi.
Alltaf nógir til að leika
sér við. Já, þaö er hægt
að gera ýmislegt í sumar-
búðum. Fara í boltaleiki,
stunda frjálsar iþróttir,
að ekki sé talað um
gönguferöir upp á fjall,
inn í dal, niður á sléttu,
skoða fossa, tré og steina,
að ógleymdu því að kom-
ast í vatn, á eða læk.
Er þetta allt sem gert
er í sumarbúöum?
Nei, þar er lika teflt,
spilað, teiknaö og sungið
ef verið er inni við. Svo
er eitt sem ekki má
gleyma i þessum sumar-
búðum.
Hvaö er það?
Á hverjum morgni er
biblíulestur, þar sem
Biblían, orð Guðs, er
kynnt og sagt frá frelsara
mannanna Jesú Kristi.
Krakkarnir læra einnig
Merki æskuiýðsstarfs Þjóð-
kirkjunnar.
Gamli skálinn í Vatnaskógi.
Skálinn f Vindáshlfð.
ýmsa söngva. Á kvöldin
eftir kvöldvöku er svo
endað með hugleiðingu
út frá Guðs orði.
Þannig er í stuttu máli
líf í sumarbúðum, en orð-
in segja ekki allt, eigin
reynsla segir manni
mest.
Ef þig langar í sumar-
búðir hvert áttu þá að
fara, hvað er hentugast
fyrir þig? Við ætlum að
nefna nokkrar sumar-
búðir og hvar er hægt að
fá upplýsingar um þær,
svo getur þú valið.
Skógarmenn KFUM
hafa sínar sumarbúðir í
Vatnaskógi í Svínadal.
Þessar búðir eiga sér
langa sögu og geta feður
sagt sonum frá. Eins og
nafniö ber með sér er þar
bæði vatn og skógur.
Vatn til að sigla á og jafn-
vel veiða í og skógur t.d.
til indíánaleikja. Þar er
einnig að finna ágæta
íþróttavelli. Drengir frá
10—13 ára aldri eru þar
velkomnir.
KFUK rekur sumar-
búöir að Vindáshlíð í
Kjós. Umhverfið er
íallegt og vel fallið til úti-
vistar. Flkki má gleyma
Laxá og þeim vinsældum
sem hún nýtur meðal
stelpnanna. Telpur frá
9—14 ára aldri geta
fengiö að dvelja í Vindás-
hlið.
Vatnaskógur og
Vindáshlíð bjóða einnig
upp á unglingaflokka.
KFUM og K út um
landió eiga og reka
sumarbúðir. Hafnfirö-
ingar reka búðir í
Kaldárseli, Akurnes-
ingar í Ölveri undir
Hafnarfjalli og Akureyr-
ingar að Hólavatni.
WLr