Morgunblaðið - 11.05.1975, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAt 1975
íslandsmótið í bridge:
Úrslitakeppnin hefst
á fimmtudaginn kemur
(JRSLITAKEPPNIN í íslands-
mótinu í bridge hefst á fimmtu-
daginn kemur og stendur fram á
annan f hvítasunnu. Átta sveitir
keppa til úrslita um titilinn ts-
landsmeistari í bridge 1975. Sex
sveitir eru úr Reykjavík, ein frá
Akranesi og ein frá Siglufirði.
Spilað verður í Domus Medica
og veróur aðstaða fyrir áhorf-
endur og sýndir leikir á sýningar-
töflunni.
Ranghermt var í blaðinu í gær
að keppnin hæfist 22. maí og eru
hlutaðeigandi beðnir
velviróingar.
Annir hjá sáttasemjara
EKKI náðist samkomulag á fundi
með fulltrúum starfsmanna
Semcntverksmiðjunnar, Aburð
arverksmiðjunnar og Kísil-
iðjunnar annars vegar og
fulltrúum stjórna verksmiðjanna
hins vegar en eins og fram kom í
Morgunblaðinu I gær, er verkfall
boðað vegna ágreinings um
starfsmat á morgun, mánudag.
Deiluaðilar áttu að koma aftur til
fundar hjá sátlasemjara sfðdegis
i gær.
Þá mun í dag hefjast fundur
með verkfræðingum og tækni-
fræðingum annars vegar og
fulltrúum verkfræðistofnanna
hins vegar, en verk- og tækni-
fræðingar við þessar stofnanir
hafa boðað verkfall á morgun hafi
samningar ekki tekizt fyrir þann
tíma. Þá er á morgun, mánudag,
fyrsti fundur hjá sáttasemjara
milli 9 manna nefndar Alþýðu-
sambands Islands og samninga-
nefndar Vinnuveitendasam-
bandsins og er þar um að ræða
samninga um breytingu á til-
högun vísitölunnar.
Al''ta.Y'SINCiAStMINN Klt:
22480
Enginn fundur hafði i gær
verið boðaður vegna togaradeil-
unnar. Verkfallið á stóru togur-
unum hefur nú staðið síðan 9.
april og hafa allir togararnir
iöngu stöðvazt, 22 að tölu. Þá hafa
vélstjórár á kaupskipaflotanum
boðað samúðarverkfall með
togaramönnum og hefst það 14.
maí, hafi samningar ekki tekizt i
togaradeilunni.
Hraunprýði
með fjársöfnun
HINN árlegi fjáröflunardagur
slysavarnadeildarinnar Hraun-
prýði i Hafnarfirði er mánudag-
inn 12. maí. Merki deildarinnar
eru seld á götum bæjarins. Sölu-
börn komi í Bæjarbíó frá kl. 9 á
mánudagsmorgun. Kaffisala verð-
ur að þessu sinní í Skiphól frá kl.
3—10 e.h. Starfshópar er vilja
panta kaffi eru beðnir að gera það
fyrir hádegi. Þær konur sem vilja
gefa kökur komi þeim í Skiphól.
Allur ágóði af fjáröfluninni renn-
ur til byggingar björgunarsveitar-
húss, sem Hraunprýói stendur að,
ásamt björgunarsveitinni Kiska-
kletti.
+
Móðir mín og tengdamóðir
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
frá Hemru,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 1.30
e.h.
Guðrún Einarsdóttir,
Ólafur Guðmundsson.
+
Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu
INDÍÖNU GARIBALDADÓTTUR
er andaðist 5 þ m fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 12 þ m
kl. 3 e h
Arthúr Moon,
Elísabet Pálsdóttir,
Aldís Pála og Dlana Björk Arthúrsdætur.
+
Systir okkar og móðursystir,
DÝRFINNA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Safamýri 87,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 14 ma! kl.
10 30 fyrir hádegi
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlega láti llknarstofnanir
njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda, Þórunn Guðjónsdóttir,
Einar Guðjónsson,
Jóna Sigurðardóttir.
+
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, og amma,
SIGRÍOUR HAFSTEIN GRÖNDAL
Hátún 8, Rvk.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 13 maí, kl. 3e.h.
Blóm og kransar afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar eru
beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess
HAUKUR GRÖNDAL
Páll Gröndal Valgerður Grondal,
Guðfinna Gröndal, Helgi Victorsson,
Benedikt Gröndal,
Gunnar Gröndal, Oddný Björgvinsdóttir,
Haukur H. Gröndal, Margrét Gunnlauasdóttir,
Hannes Hafstein
og barnabörn.
Karlakórinn
til Kanada
I TILEFNI 10 ára afmælis byggð-
ar Islendinga 1 Kanada á þessu
ári, heimsækir Karlakór Reykja-
víkur Nýja-lsland í Manitoba í
haust og syngpr á fyrsta
degi menningarviku Vestur-
lslendinga hinn 3. október n.k. í
Winnipeg, sem er hinn raunveru-
legi afmælisdagur byggöar Is-
lendinga I Manitoba-fylki, en
þann dag sigldi fyrsti hópur land-
nemanna nióur Rauóá frá Winni-
peg til Winnipegvatns og allt til
Gimli.
Afkomendur landnemanna
munu endurtaka siglinguna með
fríðu föruneyti, en Karlakór
Reykjavíkur mun einnig fara I
heimsókn til margra byggða Vest-
ur-lslendinga á Nýja-lslandi og
halda þar hljómleika.
Knattspyrnan í
gang á Akureyri
Akureyri, 9. maí.
FYRSTI stórleikur sumarsins á
Akureyri verður háður á Sana
vellinum á sunnudaginn og hefst
kl. 3 siðdegis. Þar eigast við
Knattspyrnufélagið Valur (I.
deildar lið) og Knattspyrnufélag
Akureyrar, sem mun leika í 3.
deild í sumar. Að sjálfsögðu er
þessi leikur með öllu óháður allri
deildarkeppni í knattspyrnu. Sv.P.
— Sigalda
Framhald af bls. 48
varnaglar fyrir þvi að staða sem
þessi gæti ekki komið upp á ný.
Samþykkt var að afgreiða end-
anlega hættusvæðaþóknun og
setja á ákveðnum hættusvæðum
tvöfalds slysatryggingu, en fyrir
þessu hafa verkalýðsfélögin bar-
izt í rúmlega eitt ár. Þá voru og
með samkomulaginu leyst ákveð-
in vandamál í sambandi við fs-
lenzkan járnabindingaflokk.
Sagði Sigurður Öskarsson að
menn vonuðu nú að friður myndi
haldast á vinnusvæðinu við Sig-
öldu.
Sigurður sagði að hann teldi að
ákveðin trygging væri fyrir þvi að
þetta nýja samkomulag yrði virt.
T.d. sagði hann að það atriði, að
ASÍ og VSl hefðu samþykkt
samningana væri ákveðin trygg-
ing fyrir að þeir yrðu virtir. „Telj-
um við það mjög mikils virðí að
þessir stærstu aðilar vinnumark-
aðarins á Islandi hafi samþykkt
samkomulagið, sagði Sigurður. 1
sérstakri bókun, sem fylgir sam-
komulaginu var og ákveðið að
koma upp sérstöku eftirlitskerfi
með því að samningar yrðu haldn-
ir og skekkjur og misfellur yrðu
leiðréttar eins fljótt og mögulegt
væri.
— APN
Framhald af bls. 48
son, fréttastjórar hljóðvarpsins,
sögðu, að starfsmaður Novosti-
fréttastofunnar hefði hringt i
byrjun vikunnar og spurt hvort
fréttastofan hefði áhuga á frétt
beint frá Moskvu í tilefni afmælis
styrjaldarlokanna. Var honum frá
því skýrt, aó fréttastofan tæki að
sjálfsögðu við fréttum sem víðast
að. Kom fréttin á fjarrita á upp-
stigningardag og var hluti frétta-
skeytisins notaður i fréttaauka
það sama kvöld. Síðar kom full-
trúi Novosti að máli við frétta-
stjórana og spurði hvernig frétta-
skeytið hefði likað. Jafnframt
+
Hugheilar þakkir færum við
öllum þeim sem auðsýnt hafa
okkur samúð við andlát og jarð-
arför,
EGILS JÓNSSONAR
bif reiðastjóra,
Ásgarði 49.
Ragna Guðnadóttir
og börnin.
spurði hann hvort áhugi væri á
áframhaldi á beinum fréttasend-
ingum frá Moskvu og hvort út-
varpið væri tilbúið að greiða eitt-
hvað fyrir þá þjónustu. Var því
fálega tekið og manninum bent á
að fréttastofan hefði sínar frétta-
leiðir, enginn samningur væri í
gildi milli fréttastofunnar og
Novosti og auk þess væri fjár-
hagsstaða útvarpsins það slæm að
það gæti ekki staðið undir þessum
fréttasendingum frá Moskvu sem
hlytu að vera mjög dýrar. „Það er
því ekki rétt að áframhald verði á
þessum fréttasendingum," sögðu
fréttastjórarnir.
Þeir sr. Emil Björnsson og Eið-
ur Guðnason, fréttastjórar sjón-
varpsins, tóku mjög í sama streng.
Þeir hefðu talið rétt að þiggja boð
um þessa einu frétt beint frá
Moskvu og það væri mál Novosti
að kjósa að senda hana á fjarrita.
Fréttin hefði reyndar sáralítið
verið notuð í fréttum sjónvarps-
ins, heldur hefði fréttin um af-
mæli styrjaldarlokanna að mestu
verið unnin upp úr fréttaskeytum
AP og NTB. „Áframhald á þess-
um fréttasendingum frá Moskvu
hefur alls ekki komið til um-
ræðu,“ sögðu þeir Emil og Eiður.
— Mótmæla
Framhald af bls. 48
vegna skoðana sinna, verði leystir
úr haldi.
1 yfirlýsingu sinni segja laga-
nemarnir ennfremur, að þeir liti
á þessar fangelsanir sem ofbeldi
gegn mannréttindum eins og þau
eru skýrð innan vébanda Samein-
uðu þjóðanna. Þá óskuðu laga-
nemarnir sérstaklega eftir því, að
kennarinn Ing Bohumir Kuba
verði ieystur úr haldi, en hann
var fangelsaður í september 1974.
— Ótti og flótti
Framhald af bls. 1
Souvanna Pouma forsætisráð-
herra, sem telst hlutlaus aðili i
stjórninni en þykir i raun styðja
hægri menn, á að ávarpa þjóðina
á morgun, sunnudag, sem er
stjórnarskrárdagurinn og markar
21 árs afmæli endaloka frönsku
nýlendustjórnarinnar i landinu.
Er búizt við að forsætisráðherr-
ann krefjist þess að vopnahlés-
samkomulaginu frá 1973, sem
batt enda á 10 ára borgarastyrj-
öld, verði framfylgt í öllum atrið-
um. Talið er að Pathet Lao-
hreyfingin vilji einnig viðhalda
samsteypustjórninni í raun.
Talsmenn stjórnarinnar hafa
vísað á bug bollaleggingum um að
afsögn hægri ráðherranna hafi
opnað leið fyrir algjöra valdatöku
kommúnista.
Samkvæmt hinum flóknu skil-
málum samsteypustjórnarinnar
eru fimm hægri ráðherrar í
henni, fimm Pathet Lao-
ráðherrar og tveir hlutlausir.
Pathet Lao-ráðherrarnir hafa all-
ir hægri sinnaða vararáðherra og
er fyrirkomulagið öfugt hvað
varðar hægri ráðherrana. Annar
hlutlausi ráðherrann hefur vara-
ráðherra frá Pathet Lao, og hinn
vararáðherra frá hægri mönnum.
— Ráðstefna
Framhald af bls. 2
heimilislækningum í betra horf
sé sú, að þessi grein verði kennd
hér við háskólann.
A ráðstefnunni hélt kanadískur
læknir, dr. Donald Rice, erindi
um skipulag heimiiislækninga, en
hann er forseti alþjóðasambands
heimilislæknafélaga.
Sex umræðuhópar störfuðu á
ráðstefnunni. Meðal þess, sem
rætt var um i hópnum, var skipu-
lag heilsugæzlustöðva frá sjónar-
miði stjórnunar, tengsl sjúkra-
húsa og heilsugæzlustöðva, slysa-
þjónusta, göngudeildir, sálfræði-
þjónusta, geðvernd, áfengis- og
fíknilyfjavarnir, kynsjúkdóma-
varnir, heilsugæzla barna, vakt-
þjónusta og endurhæfing, en allt
eru þetta þættir almennrar
heilsugæzlu.
Við upphaf ráðstefnunnar flutti
Matthias Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra ræðu og gerði þar sér-
staklega að umræðuefni tilgang
heilsugæzlu, þ.e.a.s. fyrir-
byggjandi starf í stað lækningar,
og nefndi hann sérstaklega í því
sambandi hrörnunarsjúkdóma.
Þá fjallaði ráðherrá um nauðsyn
þess að skipulag sjúkrastofnana
kæmist í það horf, að stofnanirn-
ar nýttust sem bezt og komið yrði
i veg fyrir þá misnotkun, að
sjúkrastofnanir, sem byggðar eru
fyrir bráða læknisþjónustu, vist-
uðu langlegusjúklinga.
I ræðu Matthíasar Bjarnasonar
kom fram, að enda þótt eðlilegt
væri að náin tengsl væru milli
heilsugæzlustöðva og sjúkrahúsa
úti á landi, þá hentaði slíkt fyrir-
komulag siður á þéttbýlissvæðun-
um í kringum Reykjavík og Akur-
eyri.
— Rætt við
Hans G.
Framhald af bls. 1
því fram, að þau hafi engu af-
salað sér enn sem komið er. En
eftir að þessi texti liggur fyrir,
verður það erfiðara fyrir þau.
Ég tel öruggt, ef haldið er á
málum af sanngirni og lagni, að
þá verði árangurinn af Genfar-
ráðstefnunni veigamikið og
gott veganesti.
— Kambodia
Framhald af bls. 1
um með áróðri. Ráðherrann sagði
að reynt yrði á allan hátt að sam-
eina þjóðina og gleyma fortióinni
en þeim sjö „svikurum" sem
hefðu leitt fráfarandi ríkisstjórn
yrði refsað og væri refsing þeim
til handa sjálfsögð forréttindi
Rauðu Khmeranna.
— Kröfluspjall
Framhald af bls. 2
Flestir þeirra fóru norður að
Kröflu til að líta á allar aðstæður
þar. Telja verður að þessi fundur
hafi verið i senn bæði jákvæður
og gagnlegur og að heimamenn
hafi orðið nokkru fróðari um þær
fyrirhuguðu framkvæmdir, sem
nú standa fyrir dyrum norður i
Kröflu, en það er fyrsta stóra
gufuvirkjunin, sem reist verður á
Islandi. Eftir því sem kom fram á
fundinum verður reynt aö hraða
uppbyggingu þessa raforkuvers
eins og mögulegt er. Vil ég láta í
ljósi ánægju með fundinn og færa
öllum þakkir er lögðu á sig lar.gt
ferðalag hingað norður og þann
áhuga sem þeir hafa á þessu máli.
— Kristján.
— Sparnaður
Framhald af bls. 2
kreíur vegna bilana. Auk þess
veróur þar hægt að blanda fluor i
vatnið, ef ákvörðun yrði tek-
in um slíkt. í sumar verður haldið
áfram með æðina frá Hraunbrún
og Skyggni, þar sem hún tengist
þverlögn, og jafnframt byrjað frá
Heiðmörk og að Rauðhólum, yfir
Rauðhólana verður vatnsæðin
væntanlega lögð 1976.
í nýja geyminum á Selásnum er
gert ráðfyrirdælustöðsem tekin
verður í notkun þegar efri hluti
Árbæjarhverfis og Selásinn verða
fullbyggð. Einnig á það að vera
miðstöð fjarskipta Vatnsveitunn-
ar, þegar komin er á tölvustjórn-
un, þvi þaðan er bein loftlina í
allar áttir þ.e. að Gvendarbrunn-
um og Heiðmörk, í tvo fyrirhug-
aða vatnsgeyma fyrir Breiðholt í
Vatnsendahverfi og í geymana
sem eru vestan til i bænum. Síðar
meir einnig í fyrirhugaða geyma
vegna framtíðarbyggðar á Grafar-
holti, í Úlfarsfelli og í Gufunesi.
Vatnsgeymirinn í Litluhlíð tek-
ur nú 10 þúsund tonn af vatni, sá
nýi í Selásnum 4000 tonnn og
Rauðarárholtsgeymarnir 2000
tonn. Eru þá þegar um 16 þúsund
tonn af vatni í geymum. En geym-
arnir á Vatnsendahverfi eiga að
taka 14 þúsund tonn.
I Heiðmörk er unnið aö borun-
um eftirvatniogeruþegar fengn
ar 9 holur sem gefa vatn, en þar
er í gangi tveggja ára verkefni,
sem miðað að því að tryggja nægt
og gott neðanjarðarvatn. Er byrj-
að að bora og verið að leggja vegi
að nýjum borstöðum fyrir sumar-
ið.