Morgunblaðið - 19.09.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1975
5
Ályktun SHÍ
um Vísi
Morgunblaðinu hefur borizt eft-
irfarandi:
Ályktun Stúdentaráðs Háskóla
Islands um „Vfsismálið".
Á fundi sínum 25. ágúst 1975
gerði Stúdentaráð H.l. svohljóð-
andi ályktun:
„í tilefni af þeim átökum sem
orðið hafa f kringum dagblaðið
Vísi vill Stúdentaráð H.I. álykta
eftirfarandi:
Þessar deilur hafa enn afhjúp-
að veruleikann í tjáningarfrelsi
og frjálsri skoðanamyndun á Is-
landi. I ljós kemur að blað sem
hefur stært sig af því að vera
„frjáls fjölmiðill“ er í eigu fá-
meniis hóps auðmanna, sem svíf-
ast ekki að reka ritstjóra blaðsins,
ef hann flytur skoðanir sem
stangast á við fjárhagslega og
pólitiska hagsmuni eigendanna.
„Vísismálið" ætti að opna augu
íslenskrar þjóðar fyrir þeim stað-
reyndum að sum stærstu dagblöð-
in eru í eij*u fárra auðmanna og
öll eiga þau tilveru sína undir
auglýsingum fyrirtækja að meira
eða minna leyti. Þannig hefur fs-
Iensk auðstétt yfirburðatök á
allri skoðanamyndun 'i landinu.
Þessi tök eru hins vegar falin á
bak við orðagjálfur um „frjálsa
fjölmiðla" og „óháð dagblöð".
I Ijósi þessara staðreynda er sú
umhyggja, sem þessir fjölmiðlar
þykjast sýna tjáningarfrelsi í öðr-
um löndum, lítið annað en
hræsni.
Stúdentaráð skorar á alla unn-
endur raunverulegs frelsis í fjöl-
miðlun að nota þá umræðu, sem
,,Vísismálið“ hefur skapað, til að
vekja athygli á því ofurvaldi sem
fámennir hópar hafa á allri fjöl-
miðlun hérlendis."
Leyfi ég mér að fara fram á að
þér birtið ályktun þessa í
fjölmiðli yðar.
F.h. Stúdentaráðs
Gestur Guðmundsson,
formaður.
Kom með
skipstjór-
ann látinn
til hafnar
BREZKI togarinn Macbeth kom
til Akureyrar á miðvikudag með
skipstjóra skipsins látinn. Skip-
stjórinn, sem var 39 ára gamall,
hafði veikzt skyndilega úti í rúm-
sjó. Læknir var fenginn frá eftir-
litsskipinu Miröndu, en skipstjór-
inn lézt skömmu eftir að læknir-
inn kom um borð í Macbeth.
Lík skipstjórans var skilið eftir
á Akureyri og verður flutt til
Reykjavíkur og þaðan til Eng-
lands. Gert var ráð fyrir að Mac-
beth færi frá Akureyri í gær-
kvöldi til Hull, þar sem annar
skipstjóri verður fenginn.
Dagný farin í
í söluferð til
Grímsbæjar
Siglufirði 17. sept.
SKUTTOGARINN Dagný kom
inn í dag með 80 tonn af fiski sem
frýsti voru um borð og um 75 tonn
af ísfiski, aðallega kola og ýsu.
Togarinn er nú farinn af stað til
Grímsbæjar i Englandi þar sem
aflinn verður seldur á mánudag-
inn. Er þetta fyrsta sala haustsins
í erlendri höfn.
—m.j.
Stórkostlegt vöruúrval!
< ! OpKSýlSun2 H5
or9un
Nýkomið
□ DÖMU OG HERRA PEYSUR
□ ULLARKÁPUR
□ KULDAJAKKAR
□ KJÓLAR
□ BLÚSSUR
□ LEÐURJAKKAR
□ FLAUELISFÖT DÖMU
OG HERRA
□ SJÖL OG TREFLAR
□ BAGGY-STÍGVÉL
□ HLJÓMPLÖTUR
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SIMI FÁ SKIPTIBOPÐI 2B155