Morgunblaðið - 19.09.1975, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.09.1975, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19, SEPTEMBER 1975 Akureyri 16. september. RÉTT Bárðdæla vestan fljóts er nú fyrir sunnan og ofan Mýri, fremsta bæinn þeim megin, en var áður í sporðinum milli Skjálfandafljóts og Mjóadalsár og hét þá Litlutungurétt. Hér er réttað fé af vesturkjálk- anum allt út að Hriflu, að vísu mjög misjafnlega margt af einstökum bæj- um. Nokkrar kindur koma hér árlega fyrir austan yfir fljót, hafa einhvern veginn þvælst yfir frammi á afrétt sam- kvæmt reglunni um, að grasið sé alltaf grænna hinum megin. Svo er allt- af ein og ein kind úr Fnjóskadal. Um daginn fóru menn á 'bílum allt fram að jöklum og stugguðu norður á bóginn því fé, sem þeir sáu þar, en á laug- ardaginn var farið í hinar eigin- legu framgöngur alveg suður að Jökulfjalli, sem rennur úr Tungnafellsjökli og fellur i Skjálfandafljót við Stóruflæðu kippkorn norðaustur af Fjórð- ungsöldu. Á sunnudag var svo farið í tveggja daga Mjóadals- göngur og komið með allt safn- ið hingað til réttarinnar í gær- kvöldi, það rekið inn f réttina og geymt þar í nótt. Fjallkóngurinn, Tryggvi Höskuldsson á Mýri, sem hér er réttarstjóri í dag, telur, að vel hafi smalast, enda hjálpaði norðanhretið til á sinn hátt og olli þvi, að féð rann norður af- réttina og sumt allt ofan í byggð. Hins vegar gerði vestan- hvassviðrið í gær gangnamönn- um lífið leitt með moldroki og sandbyl. Svo reif stormurinn upp ísingarnálar og skara og þeytti í andlit mönnum, svo að þeir eru sumir rauðeygðir og þrútnir í framan eftir þessa þol- raun. Mannmargt var á Mýri og Bólstað í nótt. Sennilega hafa gist þar framundir fimmtíu manns í rúmstæðum og flat- sængum og hvar sem við varð komið. Þar voru bændur utan úr dal, kaupstaðarfólk og burt- fluttir Bárðdælingar, sem komnir voru í tilefni réttar- dagsins til upprifjunar gamalla kynna við heimamenn og æsku- sveit, — börn unglingar og full- orðnir. Húsfreyjurnar Guðrún á Mýri og Pálína og Inga á Bólstað og aðrar heimakonur hafa haft ærinn starfa við bakstur og brauðskurð, kaffi- lögun og matseld, því að hér er til þess ætlast af húsráðendum, að á réttardaginn gangi gestir að veizluborði hvenær sólar- hringsins sem er og taki til sín það af krásum og lífsnæringu, sem hver getur í sig látið. Þó að hangikjöt, saltreyð og bakning- ar af öllu tagi hverfi ört ofan I menn með stórum tilþrifum, er kvenfólkið enn handfljótara og fóthvatara að bera nýjar birgð- ir að borðin úr búrum og skáp- um og fylla I skörðin svo að ekki sér högg að vatni. Þetta er engin nýlunda hér, svona hefir þetta verið ár eftir Séð yfir hluta Mýraréttar. Ljósm. Mbl. Sverrir Pálsson Tveir aldraðir fjárbændur, Valdemar á Halldórsstöðum og Baldur á ' Stóruvöllum. Sigurður Pálsson á Lækjarvöllum sigri hrósandi. Á Mýrarrétt ár. Gangnamenn og réttarfólk hefir gengið hér út og inn, átt hér vísan náttstað, þegið lifs- næringu og ýmislega aðhlynn- ingu ómælt, því að aldrei hefir neinn vitað takmörk gestrisn- innar hjá húsbændunum og húsfreyjunum og ekki horfur á, að svo verði í bráð. Og blessuð- um málleysingjunum, hestum og hundum gangnamanna, er heldur ekki gleymt. Þeir fá húsaskjól og töðutuggu eða kjötbein, meðan plögg og spjar- ir eigenda þeirra eru þurrkuð. Heimafólk telur hvorki eftir í Bárðardal beina né greiða, hefir miklu fremur af þvi ánægju og skemmtan að veita hann og því andlega samneyti, sem gest- komunni fylgir. „Það verða nógu langir dagarnir eftir göng- ur og slátúrtíð, þegar varla nokkur maður rekst hingað,“ segir Pálina á Bólstað. En nú er klukkan orðin sex og mál að tygja sig á réttina. Menn spretta upp úr flatsæng- unum, og bila og dráttarvélar drífur að utan úr dal. Sólin er að koma upp yfir Bæjarásinn milli Sellandafjalls og Herðu- breiðar og gyllir austurhimin- inn og vesturbrúnirnar. Him- inn er alheiður, nema hvað í norðaustri eru tvö eða þrjú lítil vindský eins og þau, sem þeir kalla „hrafna“ á Vestfjörðum, enda er þó nokkur suðvestur strekkingur. 1 réttinni eru um fjögur þús- und fjár, að því er giskað er á. Féð er fallegt á að líta, í góðum holdum, hreint á lagðinn, svip- frítt og vellíðanlegt. Hnarreist- ar, hornprúðar dilkær með drottningarsvip, mikilleitar, há- nefjaðir hrútar og svipbjartir afkomendur þeirra ryðjast hér um í almenningnum og una illa fangavistinni eftir öræfafrelsi sumarsins. En nú er frjálsræðið á enda. Maðurinn hefir með klókindum og ráðabruggi hneppt jafnvel ljónstyggustu fjallafálur í aðhald réttarinnar og látið þær lúta vilja sínum. Meira að segja bíður nú þeirra margra bani og blóðvöllur. Við því er ekkert að segja. Þessi fallega og hraustlega hjörð hér í réttinni er nefnilega fram- færslueyrir og erfiðisafrakstur hálfrar sveitarinnar, og hún skal fyrr eða síðar launa eldi og umönnun með lífi sínu og arð- gæfri afurð. Menn taka ötulir til við að draga I svölum morgungustin- um, sem óðum hlýnar þó fyrir hækkandi sól. Ef til vill hjálpar líka sumum brjóstbirtan, sem glitrar á fleyg í rassvasa. Tryggvi réttarstjóri stjórnar verki af röggsemi og festu. Hann gefur stuttorðar skipanir, sem skiljast fljótt og vel, og er hiklaus og skjótur að skera úr vafamálum. Þeim úrskurðum una allir, enda verður þeim ekki áfrýjað. Bændur og bændasynir, hús- mæður og heimasætur, allir hjálpast að glaðir og kátir og eru fundvísir á eyrnamörk og brennimörk, meira að segja Unga kynslóðin lét sig ekki vanta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.