Morgunblaðið - 21.09.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 21. SEPTÉMBER 1975
Söngsveitin Fílharmónía:
Sálumessa og Carm-
ina Burana á dagskrá
VETRARSTARF Söngsveitar-
innar Fíiharmónfu er nú að hefj-
ast. Eins og undanfarin ár verða
æfð kórverk til flutnings með Sin-
fónfuhljómsveit tslands. Fvrsta
verkefni vetrarins verður
Carmina Burana eftir Carl Orff,
og verður verkið flutt f Háskóla-
bfói 11. desember n.k. Carmina
Burana, sem samið er 1936, öðlað-
ist skjótt mikla hylli tónlistar-
unnenda. Var það fyrsta verkið,
sem Söngsveitin tók til flutnings,
og var það flutt í fyrsta sinn hér-
lendis f Þjóðleikhúsinu í aprfl
1960 undir stjórn dr. Róberts A.
Ottósonar. Auk Söngsveitarinnar
tóku þjóðleikhúskórinn, ein-
söngvarar og Sinfónfuhljómsveit
Islands þátt f flutningi verksins.
Siðari hluta vetrar verður æfð
Sálumessa (Reqiuem) eftir Verdi
til flutnings með Sinfóníuhljóm-
sveitinni í apríl 1976. Þetta verk
var frumflutt hérlendis af sömu
flytjendum 4. apríl 1968 undir
stjórn dr. Róberts, eins og mörg-
um mun enn í fersku minni.
Jón Ásgeirsson tónskáld hefur
verið ráðinn kórstjóri Söng-
sveitarinnar, en aðalstjórnandi
Sinfóniuhljómsveitar Islands,
Karsten Andersen, mun stjórna
flutningi beggja verkanna.
Söngsveitin mun starfrækja
kórskóla fyrir þá sem hafa áhuga
á að gerast félagar. Jón Ásgeirs-
son mun annast forstöðu skólans,
en aðrir kennarar verða Sigur-
veig Hjaltested og Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir og e.t.v. fleiri.
Kennd verða undirstöðuatriði
nótnalestrar, tónheyrn og radd-
beiting. Þá mun kórskólinn einn-
ig gefa kórfélögum kost á radd-
þjálfun og tónfræðslu.
Æfingar verða f Melaskólanum
og hefjast þær mánudaginn 22.
september. Þeir sem áhuga hafa á
að syngja með kórnum eða sækja
kórskóla Söngsveitarinnar, eru
beðnir að tilkynna þátttöku til
kórstjóra í síma 22158 eða for-
manns í sfma 26011 eða 42321.
Stjórn kórsins skipa: Bjarni
Kristmundsson, formaður, Ingi-
björg Björnsdóttir, Margrét Finn-
bogadóttir, Pétur Haraldsson og
Ragnar Árnason.
Gamli skálinn f Vatnaskógi
Fjölþœtt starfKFUM & K
SUMARSTARFI K.F.U.M í
Vatnaskógi og K.F.U.K. í Vind-
áshlíð er lokið að þessu sinni.
Voru fjölmennir hópar barna
og unglinga í báðum sumar-
búðunum og komust færri að
en vildu í marga flokka. Tíu
dvalarflokkar voru á hvorum
stað eins og áður og óblandin
ánægja ríkjandi, þrátt fyrir
óhagstætt tfðarfar í sumar.
Nú fer vetrarstarf félaganna
í hönd og verða fyrstu fundir
haustsins í hinum ýmsu
deildum þessa dagana.
Drengjadeildir KFUM hafa
flestar fundi sína á sunnudög-
um á sömu tímum og í fyrra, en
unglingadeildirnar á mánu-
dagskvöldum, vfðast hvar.
Deildafundir K.F.U.K. dreif-
ast meira á vikuna, þó eru
telpnafundir víða á mánudög-
um og unglingafundir á
fimmtudagskvöldum.
Starfsstöðvum hefur fjölgað
mikið síðari árin og verða þær í
vetur á eftirtöldum stöðum:
Amtmannsstíg 2B, Kirkjuteig
33, félagsheimilinu við Holta-
veg, Langagerði 1, við Maríu-
bakka i Breiðholti I, Framfara-
félagshúsinu við Rofabæ, Fella-
helli í Breiðholti III, Lyngheiði
21 í Kópavogi, barnaskólanum í
Garðahreppi og í félagsheimili
Seltjarnarneskaupstaðar. Sér-
stakar barnasamkomur og
sunnudagaskólar eru á sunnu-
dagsmorgnum að Amtmanns-
stfg 2B, fundahúsinu við Maríu-
bakka og að Lyngheiði 21 f
Kópavogi.
Strax og skólar hefjast á
haustin er byrjað að spyrja um
starfsemi K.F.U.M. og
K.F.U.K., en nú er „vetrar-
starfið" sem sagt byrjað, þó að
veturinn sé ekki kominn. Skrif-
stofa félaganna við Amtmanns-
stíg veitir fúslega allar upplýs-
ingar um starfið.
(Fréttatilk.).
Helgi Bergmann sýnir
að Hallveigarstöðum
Litli drengur-
inn sem lézt
LITLI drengurinn sem beið bana
í umferðarslysinu á Reykjanes-
braut gegnt Álfaskeiði s.l. föstu-
dagsmorgun hét Steinn Hermann
Jóhannsson, Álfaskeiði 76, Hafn-
arfirði. Steinn litli var fæddur 31.
desember 1970 og var þvf
fjögurra ára gamall.
Lions-kaffi í
Lækjarbotnum
LIONSMENN I Kópavogi hafa
sína árlegu kaffisölu i sumar-
dvalarheimilinu í Lækjarbotnum,
sem nú heitir Kópasel, í dag. Sú
hefð hefur myndast að kaffisalan
er höfð sama dag og réttað er í
Lögbergsrétt og getur fólk þvi
haft það í sömu ferðinni að
bregða sér f réttirnar og fá sér
kaffi með gómsætu meðlæti fyrir
skikkanlegt verð og þar að auki
styrkt gott málefni. Ágóði af
kaffisölunni rennur til Minn-
ingarsjóðs Brynjúlfs Dagssonar,
en hann styrkir börn til sumar-
dvalar. Ljónynjur í Kópavogi
hafa undanfarna daga staðið í
miklum kökubakstri og Lions-
menn sem að venju ganga um
beina í kaffisölunni, vonast til að
sem flestir komi uppeftir f kaffi.
I gær opnaði Helgi Bergmann
málverkasýningu að Hallveigar-
stöðum. Á sýningunni eru 30
landslagsmyndir, flest olíu-
málverk. Þetta er 14. sýning
Helga í Reykjavík, en síðast sýndi
hann hér fyrir tveimur árum.
Hann hefur einnig haldið sýning-
ar úti á landi.
Myndirnar eru allar til sölu og
er verð þeirra 35—210 þús.
Sýningin verður opin kl. 18—22
á mánudag og þriðjudag, en aðra
daga kl. 14—22. Henni lýkur 28.
september.
Myndin hér að ofan er af Helga
við nokkrar myndanna á sýning-
unni.
Danskur súrrealisti
sýnir í Bogasal
I gær opnaði danska listakon-
an Rigge Gorm Holten sýningu
á verkum sínum í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins. Hún sýnir 29
myndir, þar á meðal nokkrar
barnabókakápur og — skreyt-
ingar.
Rigge Gorm Holten er fædd
árið 1943. Maður hennar er rit-
höfundurinn Knud Holten, en
Rigge hefurgert talsvert af því
að myndskreyta bækur hans.
Rigge er sjálfmenntuð. Hún
byrjaði að mála fyrir átta árum
og hefur haldið einkasýningar í
Kaupmannahöfn, Holbæk,
Fjóni og Jótlandi, auk þess sem
hún hefur tekið þátt í haustsýn-
ingum Den Frie og vorsýning-
um á Charlottenborg. Rigge
hlaut styrk frá Fonden for
dansk-islandsk samarbejde
vegna sýningarinnar hér.
Jóhann Hjálmarsson skáld
ritar um listakonuna í sýn-
ingarskrá og segir þar meðal
annars:
„Rigge Gorm Holten færir
okkur myndir úr kynjaskógi
þar sem menn, dýr og hlutir
lifa einkennilegu, draum-
kenndu lífi. En þetta líf er ekki
tómur hugarburður. Það á sér
Framhald á bls. 12.
Jens Urup
sýnir í
Norrœna
húsinu
1 DAG kl. tvö verður opnuð
sýning danska listamannsins
Jens Urup Jensen f Norræna
húsinu. Þar verða 30 olíu-
málverk, vatnslitamyndir,
grafikmyndir og frumdrög af
glermyndum, veggmyndum og
myndvefnaði.
Jens Urup Jensen er kunnur
listamaður í heimalandi sínu,
sérstaklega fyrir myndskreyt-
ingar bygginga. Kirkjan 1
Virum 1 Danmörku er eitt
þekktasta hús, sem hann hefur
fengið til meðferðar.Þar hefur
hann gert „altaristöflu" sem er
stórt, ofið teppi, skírnarfont og
glermyndir í kirkjugluggana.
Listamaðurinn er kvæntur
íslenzkri konu, Guðrúnu Sig-
urðardóttur, sem einnig er list-
málari. Þau hjónin gerðu í sam-
einingu glermyndir, sem settar
Jens Urup við eina mynda
sinna í Norræna húsinu.
voru upp í Sauðárkrókskirkju f
fyrra. I Miklabæjarkirkju f
Skagafirði er andlitsmynd af
Thorvaldsen, sem Jens Urup
gerði þegar hann vann að
viðgerð á myndum Sonnes í
Thorvaldsenssafninu í Kaup-
mannahöfn fyrir 16 árum.
Sýningin i Norræna húsinu
verður opin kl. 13—19 daglega
til 30. september n.k.
Sr. Guðmundur Öskar Ölafsson. Sr. örn Friðriksson.
Kosningar 1 Nes-
prestakalli 1 dag
PRESTKOSNING fer fram í Nes-
prestakalli í Reykjavfkurprófast-
dæmi í dag. Umsækjendur eru
tveir, sr. Guðmundur Öskar Ölafs-
son prestur við Frfkirkjuna f
Hafnarfirði og sr. Örn Friðriks-
son prestur á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit.
Kosið er á tveimur stöðum, I
Nessókn er kosið í Melaskóla í
fjórum kjördeildum og f Sel-
tjarnarnessókn er kosið í Mýrar-
húsaskóla. Kjörstaðir opna
klukkan 10 og loka klukkan 22. 1
Nessókn eru 4775 manns á kjör-
skrá og í Seltjarnarnessókn er
1241 á kjörskrá.