Morgunblaðið - 21.09.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975
tiie allman brothers
•he'Original"
míamí-macon
sessions
ðp*c>»P%<n«Kt ConcaaK for tK« Nií»r»fl.,an F.arthquak* VictlBV*
Rei.ardtd LtVE atthe Poruei m Inglet«x>d,Caííi:.;
JUMPiN'JACK
L in« With M«:
70 tM«m. h«n«
butltr.frtntVmlUI,
roc'K. thau9«ur,
(Mdur.. ðcnil í
photð Aná Ictter 1
»Ojrfe->-ilZOS
M.fKlftcnAvc j
WéadFiyturro
HO ÍJCPECTATIí)*
TwtN.tioi.. itrro tubs Smape, ugmt it-
— AND SAhOkft IT/ TOVOOW SUOPRlZt.
^u^et'li/i^úönki,
*#a ° ý.zttr ttfkktifleeeíL
■
■
■
I
1« NEBAMARJAR
PlMlíreÍFl
Ólöglega útgefnar plotur, svo-
nefndar bootleg plötur, eru plötur,
sem hafa að geyma efni, sem
gefiS er út in vitundar og sam-
þykkis viSkomandi, eSa eru eftir-
likingar i venjulegum plötum, þ.e.
falsanir. ÁriS 1971 iætluSu sam-
tök plötuútgefenda aS um 100
milljónir slikra LP platna væru
framleiddar irlega. Falsanir eru
stærsti hluti þessarar framleiðslu.
Þær eru i öllum aðalatriSum ni-
kvæmlega eins og hinar löglegu
plötur og sér þvi kaupandi ekki
annað en að hann sé að kaupa
fullkomlega eðlilegt eintak. En ef
betur er að gáð kemur stundum
mismunur i Ijós. til dæmis getur
plötukipan verið öðruvisi, eða
prentuð i annarskonar pappa o.fl.
Tóngæði fölsuðu platnanna eru þó
oftast hin sömu, þar sem pressu-
mótinu eru ýmist stoiin eða góðar
eftirlíkingar.
Önnur gerð falsana er útgáfa
litilla platna, sem hafa að geyma
vinsæl lög af stórum plötum. sem
ekki eru fáanleg á löglegum litlum
plötum. Þessar fölsuðu plötur eru
mikið eftirsóttar af eigendum
glymskratta (jukbox). en þeir eru
eingöngu gerðir fyrir litlar plötur.
Svo stór er hlutur þessara platna
að árið 1972 er áætlað að þær
hafi verið um 20% af heildarút-
gáfu litilla platna i Bandarikjun-
um.
Þegar farið var að gefa út plötu-
upptökur á kassettum jukust enn
markaður og möguleikar fyrir
falsanir, vegna þess hve ódýrt og
fljótlegt það er að kópera segul-
bönd (i kóperingsvél fyrir segul-
bönd tekur það um 4 min að
kópera 60 minútna kassettu.)
Tap útgáfufyrirtækja i minni
plötusölu vegna falsana, er áætlað
62,4 milljarðar króna árlega og að
sjálfsögðu borga falsararnir enga
skatta eða gjöld af þessari fram-
leiðslu og smásalar þeir er dreifa
þessum fölsunum ekki heldur. Tal-
ið er fullvist að Mafian standi á
bak við stærstu aðilana i fölsunun-
um.
Mesta athygli vekja þó þær
°«0f
plötur er hafa að geyma efni, sem
ekki er til á löglegum plötum. þ.e.
stolnar upptökur, upptökur á tón-
leikum, æfingum, úr útvarps og
sjónvarpssendingum og úr kvik-
myndum. Slikar plötur hafa
verið gerðar mjög lengi af jass og
blues áhugamönnum, en það var
svo á seinni hluta 7. áratugsins að
þessi framleiðsla jókst mjög og
sömuleiðis eftirspurnin. Ástæðan
fyrir þessu var hin gifurlega út-
breiðsla rokktónlistarinnar á 7.
áratugnum. Ein af fyrstu og mest
seldu rokkplötum þessarar gerðar
er platan Grate White Wonder
með Bob Dylan, en áætlað er að
hún hafi selst i 350 þúsund ein-
tökum, eða meira en þarf til að fá
gullplötu i Englandi og Banda-
rikjunum. Tóngæði þessara platna
eru oft mjög slæm, þar sem upp-
tökurnar eru oft gerðar við frum-
stæð skilyrði, eins og t.d. af
éheyrendum á litil handsegul-
bandstæki. Betri upptökur fást
hinsvegar þegar starfsmenn tón-
leikasala koma fyrir upptökutækj-
um eða ef ródurum er mútað til
samstarfs við upptökumenn.
Pressun platnana er einnig mjög
léleg og ending styttri en á venju-
legum plötum. Plötukápurnar eru
einnig yfirleitt mjög einfaldar og
sjaldnast eru nokkrar upplýsingar
um listamenn og efni plötunnar.
Ástæðurnar fyrir þvi að þessar
plötur seljast samt eru þær, að
margar þekktar hljómsveitir og
listamenn hafa marga svo trygga
aðdáendur að þeir mundu kaupa
hvað, sem út kæmi með
átrúnaðargoðum sinum, án tillits
til gæða. Tryggt er að ný bootleg
plata með Bob Dylan og The
Beatles muni seljast i að minnsta
kosti 50 þúsund eintökum. Álitið
er að um 400 mismunandi bootleg
plötur séu I umferð. þar af mest
með Bob Dylan, um 60 með The
Beatles. um 35 með Rolling
Stones, um 25 með Greateful
Dead, Jimi Hendrix og Elvis Prest-
ley, um 15 með Pink Floyd og The
Who, 10 með Neil Young og Led
Zeppelin, 5 með Elton John og
David Bowi o.s.fr.v. Plötuútgáfu-
fyrirtæki hafa stundum reynt að
berjast gegn útgáfu bottleg platna
með þvi að setja á markaðinn
plötur með svipuðu efni, en betri
upptökugæðum (t.d. Ten Years
After: Recorded Live, Rolling
Stones: Get Yer YA-Yas Out, Bob
Dylan: The Basement Tapes o.fl.),
en oftast strandar barátta þeirra á
vilja og áhugaleysi hljómsveit-
anna sjálfra, eða einstakra lista-
manna, á að berjast gegn þessari
ólöglegu útgáfustarfsemi, sérstak-
lega hvað varðar falsaðar litlar
plötur. Veið bootleg platna er
hærra en á venjulegum plötum, og
oft margfalt verð þeirra. Eitthvað
er af Bootleg plötum i umferð hér
á landi, en innfluttningur á þeim
er mjög erfiður vegna gjaldeyris-
reglna.
Hér á eftir verða taldar upp
nokkrar bootleg plötur og sagt frá
efni þeirra.
The Beatles: „Yellow Matter
Custard". Útvarpsupptaka frá 1962
með lögum eftir Buddy Holly, Mikis
Theodorakis, Ray Charles, Phil Spec
tor o.fl. Lög: I Got A Woman, Glad
All Over, I Just Don t Understande,
Slow Down, Pleas Dont Ever
Change, A Lot Of Rhytm And Blues
ofl.
The Beatles: „Get Back
Sessiones" Æfingar fyrir plötuna og
kvikmyndina Get Back. Lög: Shake
Rattle And Roll, Whole Lotta Shak-
in Going On, One After 909,
Maxwells Silver Hammer, Teddy
Boy, Let It Be o.fl
The Beatles: „Last Live Show"
Upptaka frá 15. ágúst 1965 gerð á
tónleikum i Shea Stadium i New
York.
The Beatles: „Complete
Christmas Collection
1963—1969". Samsafn allra
jólaplatna aðdáendaklúbbs The
Beatles á tímabilinu '63—'69.
Bob Dylan: .-.Grate White Wond-
er". Lög: Mighty qinn, This Wheel s
On Fire, I Shall Be Relised, Open
The Door, Richard, Too Much,
Nothing Was Delivered, Tears Of
Rage, Living The Blues, Only A
Hobo, New Orleans Rag, If You
gotta Go, Go Now, Killing Me Alive,
Candy Man, Ramblin Around, Aint
Got No Home, Poor Lazarus, Emmit
Till, Hezekiah Jones, Black Cross,
See That My Grave Is Kept Clean,
East Orange, NJ, Man Of Corstant
Sorrow
Bob Dylan: „Stealin". Lög: Can
You Pleas Cravl Out Of Your
Window, Cough Song, Cocaine
Blues, Hard Times In Ny Town,
Wade In The Water o.fl
Aðrar þekktar bootlegplötur með
Bob Dylan eru:
„John Birch Society Blues",
„Whil The Establishment Burns"
„VD Walz", „Isle Of Wight" og
„Royal Albert Hall '66"
Jimi Hendrix: Sky High. Studio
upptaka frá 1970, þar sem Jim
Morrison, Johnny Winter, Mitch
Mitchell og Noel Redding leika með
Jimi Hendrix. Lög: Red House,
Peoples, Peoples, People,
Tomorrow Never Knowes^ l'm
Gonna Leav» This Town, Outside
Woman Blues
Grateful Dead: Acoustic Dead.
Útvarpstónleikar, þar sem New
Riders Of The Purple Saga leika
með Greteful Dead. Lög: Don't Eas
Me In, Direwolf, Friend Of The De-
vil, I Know Your Rider, Deep Water,
Lodi, Poor Boy, Race Is On, Mama
Fried, Me And My Uncle.
Rock And Roll Cirkus: Yer Blues
Jam. Sjónvarpstónleikar, þar sem
John Lennon, Eric Clapton, Rick
Grech, Keith Ricards, Mich Michel,
Yoko Ono o.fl. leika saman lagið Yer
Blues eftir The Beatles. Einnig koma
fram Rolling Stones og leika lögin
Love In Vain, Midnight Rambler,
Dead Flowers, Honky Tonk Woman,
og Satisfaction.
Pink Floyd: Omayyad. Upptökur
á tónleikum og i studlói. Lög:
Oenone, Fingal s Cave, Interstellar
Overdrive, Crumbling Land, Rain In
The Country, The Embryo,
Led Zeppelin: Going To Cali-
fornia. Tónleikar teknir upp I Los
Angeles I september 1971. Lög:
Stairway To Heaven, That's The
Way, Going To California, Whole
Lotta Love, Mary Lou, She Left Me,
Blues Dedicated To Sheryl S., I
Want You Bonny Airport, You
Shook Me, Immigrant Song, Heart-
braker, Since l've Been Loving You,
Black Dog, Dazed And Confused.
B.J.B.
Nicaraguai
Benefit
Concert