Morgunblaðið - 21.09.1975, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.09.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 15 Þorvarður Helgason. Jðnas Guðmundsson. gera slíkt hið sama á sinn hátt. Þetta er ekki kvenfrelsisleikrit, þótt það kunni að sýnast svo á yfirborðinu. Það er fremur reynt að lýsa því hvernig bæði kynin eru í sömu viðjunum". „Þetta er um nútímafólk, sem segja má að sé að leita að sjálfu sér og hvert öðru“, sagði Jökull ennfremur, og kvað verkið vera alvarlegs eðlis, „ en þó vona ég að sums staðar örli á húmor.“ Leikendur eru Sigurður Karlsson, Halla Guð- mundsdóttir, Hrönn Stein- grfmsdóttir og Björn Gunn- laugsson. Keramik, — en heitið vísar til keramiksnámskeiðs sem frúin sækir—, er að mestu tekið upp í stúdíói, en einnig eru innklippt atriði sem tekin eru upp við sjávarsíðuna. Jökull sagði að leikritið hefði verið skrifað á þessu ári, en kveikjan hefði orðið til í fyrra. „Tilbrigði við hinn klassíska þrihyrning" Segja má að þetta sé tilbrigði við hinn klassíska þríbyrning", sagði Erlingur E. Halldórsson um Birtu. „Þarna er annars vegar um að ræða hjón í góðum efnum heldra fólk, og hins vegar ástkonu mannsins, flug- freyju sem reyndar býr hjá sín- um elskuhuga námsmanni í guðfræðii og styrkir hann við námið. Síðan fléttast fleira inn í þessi sambönd. Heima hjá flugfreyjunni og unnusta hennar er kunningi þeirra, taugaveiklaður rafvirki, sem flúið hefur að heiman, hefur orðið fyrir of miklum áhrifum af heimsféttunum og þolir ekki lengur að stunda sitt starf. Hann hefur fengið þá flugu að búa til vizkusteininn og gefur flugfreyjunni og elskhuga hennar engan frið til að njóta ásta þarna. Sem kómískt til- brigði við leit kunningjans af vizkusteininum kemur einnig við sögu ekkja sem á að baki mjög dapurlegt hjónband, og fannst sem heimurinn opnaðist fyrir henni þegar eiginmaður- inn dó.“ „Ætli sé ekki óhætt að segja að þetta sé að minnsta kosti með gamansömu ívafi“, sagði Erlingur er hann var inntur eftir því hvort Birta væri alvar- legs eðlis. „Þetta Ieikur svolítið á tveimur strengjum." Það eru þarna tragisk atriði og ég vona að einnig séu þar komísk atriði.“ Birta er að mestu stúdíóleik- rit, en tvö atriði verða væntan- lega tekin upp utanhúss. Leik- endur eru Gunnar Eyjólfsson og Margrét Ólafsdóttir sem leika hjónin, Jón Hjartarson, Jón Júlíusson og Ingibjörg Jó- hannsdóttir, en ekki er afráðið hver fer með hlutverk ekkj- unnar. Leikrit hans Birta hefur ekki verið tekið til meðferðar hjá Sjónvarpinu og þvf birtist eng- in mynd af þvf Silfurbrúðkaup eftir Jónas Guðmundsson — Sigrfður Hagalfn og Bryndfs Pétursdóttir. Veiðitúr f óbyggðum eftir Halldór Laxness — Saga Jónsdóttir og Gfsli Halldórsson. — Sextugur Framhald af bls. 13 sendum gott keppnislið til Tromsö í sumar, sem fór þaðan með sigurinn hingað heim. En hin norræna samstaða og samvinna er með ólíkum brag fyrir norðan en annars staðar. Þarna eru við- kvæm landamærahéruð og lengra í austri stórveldi, sem flestar þessar þjóðir verða að umgangast með virðingu. Nord-kalott sam- starfið miðar að þvi, að eyða öllum tilfinningum norrænna manna um landamæralínur með nógu öflugu innbyrðis-samstarfi og heimsóknum, þvf eins og Ragn- ar Lassinantti hefur komist að orði þá „er betra að 350 manns fari yfir landamærin á ráðstefnur annað hvert ár og eyði þar tor- tryggni frekar en 350 þúsund manns standi við öll þessi landa- mæri gráir fyrir járnum á verði gegn nágranna sínum." Afleiðing þessa samstarfs eru einnig árangursrfk málanámskeið sem haldin eru nú ár hvert. Um 50 Svíar eru sendir til Rovaniemi í Finnska Lapplandi til að læra þar finnsku. Jafnstór hópurFinna kemur sumar hvert að lýðháskól- anum á Framnesi við Piteá til að læra sænsku. Nú fer þessi saga fyrst að koma til íslands, þvi þegar Ragnar Lassinantti var hér á ferð haustið 1973 fékk hann þá hugmynd að bjóða einnig rúmum tug íslendinga til námskeiðsins á Framnesi til að læra þar sænsku með Finnum. Einstök hugmynd mátti segja því þegar þessum hópum lenti saman, reyndust þeir svo gjörsamlega vanmegna í sam- skiptum á þjóðtungum sínum, að þeir urðu að nota sænskuna og höfðu mikla æfingu af. Framnesnámskeiðin hafa nú verið haldin tvö sumur og um 25 Islendingar hafa sótt þangað gagnlega kunnáttu í sænsku tal- og ritmáli. Þessu hálfs mánaðar námskeiði og hugarfóstri Ragnars Lassinanttis hefur verið mildi- lega og skemmtilega stjórnað af Jarl Dahlblom, rektor lýðhá- skólans, en margir eru þeir fleiri, sem lagt hafa góða hönd að verki, og að námskeiðishaldinu loknu hefur verið boðið til nokkurra daga kynningarferðar um Nord- kalott-svæðið að kynna Íslending- um áður óþekkta staði og fólk, sem þeir ættu f menningarefnum að þekkja betur til og vinna meira með. Það er draumur Lassinanttis að komið verði hið fyrsta á beinum flugferðum til þessa svæðis frá Islandi auðvitað fyrst eins og „markaður leyfir", en án efa eiga Framnes-námskeiðin, kalott-íþróttamótin og margt annað eftir að tengja okkur betur saman við granna okkar nyrst í norræna samfélaginu. Megi þessi afmælisgrein verða til þess að vekja athygli á upphafi þessa merkilega starfs, er tilgangi hennar náð. Ég veit að afmælis- barninu er það kærkomið að þessu samstarfi sé haldið á loft hér heima á Fróni. 1 heimi þar sem menn fara á vígdrekum gegn grönnum sínum, af því þeir tala ekki sömu tunguna eða viðhafa sömu trúarbrögð í þessum tryllta heimi hungurs og haturs, er gott að vitna um hvern þann sem vinnur gegn rangsleitnu hugar- fari. Og þeir sem rífa niður landa- mæri með því að byggja upp málanámskeið og ætla sér að mynda loftbrú beint frá íslandi til nyrstu héraða Skandinavíu, þeir eiga að njóta vissrar athygli okkar og hljóta þakkir fyrir sitt starf. I rösklega tvö ár hefur Ragnar Lassinantti unnið mjög merkt starf í samskiptum Islend- inga og annarra norrænna þjóða. Megi hann vinna að þessum hug- myndum sínum lengi enn, og efa- laust sér þá verka hans stað um langa framtíð. Páll Lýðsson Litlu-Sandvík. Dðmu- og herrajakkaföt úr riffluðu flaueli TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS fe KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SIMI FA SKIPTIBOPÐI 2S155 itfp iMWj i ; I9F * i mmma ðjl [yH ’Æ IHfl l'lp LÆKJARGÖTU 2 SIMI FRA SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.