Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 13

Morgunblaðið - 21.09.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 13 Sextugur íslandsvinur: Ragnar Lassinantti landshöfðingi í Luleá I gær varð sextugur Ragnar Lassinantti i Luleáilandshöfðingi í Norrbotten, nyrsta léni Svíþjóð- ar. „Einn Islandsvinurinn enn,“ segja menn og kannski finnst' ýmsum sá hópur það fjölmennur, að í engu taki að minnast merkis- daga slíkra manna. En það er líka fast í íslendingseðlinu að nota afmælisdaginn til viss áróðurs. annað hvort afmælisbarninu sjálfu til handa eða þá fyrir hug sjónir þess. Á það síðarnefnda skal frekar reynt hér. En fyrst nokkur orð um afmælisbarnið sjálft. Ragnar Lassinantti er fæddur í bænum Pello á mörkum Finn- lands og Sviþjóðar, við landa- mæraána Torelfi. Um mikla skólagöngu var ekki að ræða fyrir hann, enda voru þá miklir krepputímar i skógarhöggs- iðnaðinum í Norður-Svíþjóð. Lassinantti lagði ungur fyrir sig skógarhöggsvinnu, en 1937 er hann kominn til Stokkhólms og orðinn þar lögreglumaður, en til Luleá snýr hann árinu seinna. Borgaralegt starf hans var alla tíð síðan í lögreglunni í Luleá. Hann var orðinn fulltrúi í rannsóknar- lögreglunni 1966, þegar hann var kallaður til þess af Tage Erlander þáverandi forsætisráðherra að vera landshöfðingi í Norrbotten. Auðvitað gerist slikt ekki upp úr þurru fyrir rannsóknarlög- reglumann að taka að sér stjórn landsvæðis, sem er að flatarmáli sem Island allt og með eilítið meiri íbúatölu. Þaðan af síður réðu um það duttlungar sænsku sósíaldemókratanna. Lassinantti var er hér kom sögu orðinn lands- kunnur sem einn glaðbeittasti baráttumaður jafnaðarmanna í Norður-Svíþjóð. I héraði hans, Norrbotten-léni, gerðust þau tíðindi í kreppunni miklu, að kommúnistaflokkurinn náði þar álika miklum atkvæðastyrk og sósíaldemókratar, en þetta „valda jafnvægi" vinstriflokkanna átti sinn þátt í þvi a koma borgara- flokkunum vel áfram í léninu. Við þetta mál tókst Lassinantti þegar á yngri árum, og hafði slíkan sigur í þeirri glímu um 1950, að sósíaldemókratar voru þá komnir með réttan helming at- kvæða í kjördæminu við ríkis- þingskosningar, og hafa haldið þeim styrk síðan. Á þessum róstu- árum bar fundum þeirra Lassin- anttis og Erlanders saman, er hinn fyrrnefndi skipulagði kosningaferðalag fyrir forsætis- ráðherrann um Norrbotten árið 1948,Erlander talar mjög hlýlega um þennan norðlenska baráttu- félaga sinn í endurminningum sínum: „Ragnar Lassinantti þekkti Norrbotten út í æsar... og honum þótti miklu varða að ég notaði tímann eins og ég gæti til að læra sem mest um hans ást- kæra Norrbotten. Að rifja upp samtöl okkar svo löngu seinna er mér ómögulegt, því sá sem þekkir frásagnarlist Ragnars Lassin- anttis gefur sjálfur þessun minningabrotum mínum um hann líf.“ Þessi orð hins mikilsvirta sænska stjórnmálamanns gefur til kynna hvað Ragnar Lassinantti var orðinn flokksbræðrum sínum, enda fóru nú í hönd margvísleg trúnaðarstörf fyrir Norrbotten og sænsku þjóðina. Lassinantti var kjörinn í miðstjórn sænska jafn- aðarmannaflokksins 1952 og sat þar til 1968. Þingmaður varð hann fyrir Norrbotten 1957—66. og sama tíma sat hann einnig í stjórn námafélagsins mikla LKAB, sem rekur hinar arðsömu járnnámur í Kiruna. Hér verður ekki fleira talið nema þá formennskan í Norræna félaginu í Norrbotten, en að því starfi verður vikið síðar. Ragnar Lassinantti hefur verið gæfumaður f einkalífi sínu. Kona hans Frida er lærður kennari, og gegndi kennslustörfum við barna- skóla í Luleá lengst af, en varð að gefa það starf upp á bátinn, er hún varð landshöfðingjafrú. Margir íslendingar hafa verið gestir þeirra hjóna og minnast þeirra stunda með ánægju. En svo að þessi samantekt verði ekki talin lofrolla ein, skal þess getið, að Ragnar Lassinantti er í senn talinn einn skemmtilegasti ræðu- maður Svíþjóðar og einn þeirra stjórnmálamanna, sem mönnum gengur verst að reikna út. Hann heldur með heimahéraði sinu og siðum þess, hvenær sem hann get- ur og verður oft frægur fyrir. Þannig varð hann fyrstur sænskra manna að sýna sig nakinn i sænsku sjónvarpsfrétt- unum, er hann varð landshöfðingi og kvaddi þá á blaðamannafund i „bastu“ en saunabað dýrka Norrbottingar allra Svía best. Ragnar Lassinantti á ættir sínar að rekja til sænsk-finnsku landa- mæranna. Finnskan varð hans móðurmál, þvi fyrir einhverja undarlega rás forlaganna lentu tugþúsundir finna Svíþjóðarmeg- in er Rússar tóku Finnland af Svíum 1809. Þessi tvíhyggja i málatilliti hefur fært honum þá skyldu á herðar að berjast sem best fyrir öflugu samstarfi Norðurlanda. Svæðið norðan við heimskautsbaug, sem byggt er Norðmönnum, Svium, Finnum og Sömum, nefnist „Nordkalotten“: Það orð hefur ekki oft hljómað hér úti á íslandi, ekki fyrr en við Framhald á bls. 15 83000 Til sölu 20 hektara land með jarðhita ásamt rúmum 2 sekúndulítrum af 90 gráðu heitu hveravatni. Á staðnum einbýlishús um 100 fm. 2 gróðurhús 450 fm, í fullum gangi. 2 gróðurhús undir plast 160 fm. Vélaverkstæðishús um 150 fm, ásamt 80 fm, geymsluhúsi* Herbraggi í góðu standi, 5 hektarar véltækt tún. Getur losnað Strax. Opið alla daga til kl.10e.h. FASTEIGNAÚRVAUÐ Q Ml P^nnn Sítfurtejg|1 Sölustjóri 11V11 U sJ U U U Auðunn Hermannsson HEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Sími 21240 Leikfimiskóli Hafdísar Árnadóttur s.f Lindargötu 7 3ja mánaða námskeið i músíkleikfimi hefst á morgun Kvennaflokkar: Morgun-, siðdegis- og kvöldtimar. Karlaflokkar: Kvöldtimar. Stúlkur 7 — 1 2 ára athugið: Kennd verður músikleikfimi og fimleikar i byrjenda og framhaldsflokk- um. Siðdegistimar. Gufuböð á staðnum. Kennarar Hafdís Árnadóttir og Sigríður Þorsteins- dóttir. Innritun i sima 84724. Vitið þér að fullnegld snjódekk GOODfÝEAR á Austin Mini kosta aðeins kr. 4.115.- <3^^B>HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN Laugavegi 1 72, sími 21245. Getið þér gert betri kaup annarsstaðar — Fullkomin hjólbarðaþjónusta ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl AIGLYSIR l'M ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALGLYSIR I MORGLNBLAÐINl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.