Morgunblaðið - 21.09.1975, Side 37

Morgunblaðið - 21.09.1975, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 37 ekki lengra en í Svínanes. Að þessu sinni voru tveir kven- menn í hópi fjallmanna og við náðum tali af annarri, Sigrúnu Bjarnadóttur, sem fór á fjall fyrir bóndann í Hrepphólum. Sigrún hefur farið á fjall síð- ustu 4 ár og lét vel af fjall- ferðunum. Við spurðum hvort kvenfólkið væri látið fara í jafnerfiðar leitir og karlmenn- irnir? „Við erum látnar ganga til sömu starfa og þeir. Það væri annað hvort eða á kvennaári. Ég fór t.d. í lengri leitina, norðurleiþ en í henni er farið inn i Kerlingarfjöll." Lengra varð samtal okkar við Sigrúnu ekki því hún hafði komið auga á kind, sem henni tilheyrði og þar með var hún horfin. Fólkinu í almenningn- um hafði fjölgað stöðugt og ósjálfrátt fór sá, sem þetta ritar að velta þvi fyrir sér hvort væri fleira mannfólkið eða kindurnar í almenningnum. Menn tóku tal saman, ræddu vöngum yfir hver gæti verið eigandinn og þannig var haldið áfram. Halldór Jónatansson í Auðsholti var sá bóndi, sem flest fé átti í þessum réttum eða tæplega 1000 fjár. Við spurðum Halidór, hvernig honum litist á féð, sem kæmi af fjalli að þessu sinni? „Mér líst nokkuð vel á það og það er betur á vegi statt en í fyrra. Féð tolldi vel í afréttinum enda var hann mjög góður í haust en í fyrra var hann kolfallinn á sama tíma. Ég held að dilkaþungi ætti að verða betri i haust en í fyrra og allavega ættu þeir að vera jafnari." Heldur þú að bændur slátri fleira fé í haust vegna heyleys- is? „Ekki hér í Hreppunum. Menn eiga nokkuð mikil hey en sennilega eru þau ekki gott lambafóður, vegna þess hversu þau eru úrsérsprottin og stór- gerð.“ Helgi Jónsson f jallkóngur og réttarstjóri þarf að mörgu að hyggja. tíðina í sumar, spurðu frétta og rifjuðu upp atvik, sem gerst höfðu í réttum á undan- gengnum árum. Klukkan var nú farin að halla langt f tvö og Helgi réttarstjóri gaf skipunina: „Rekið allt féð, sem eftir er, í almenninginn." Það var eins og menn hefðu verið vaktir af værum hádegis- blundi og hratt og ákveðið hjálpuðust menn að því að Ijúka drættinum. „Biti aftan hægra blaðstíft vinstra," var kallað og marka- glöggir menn fóru að velta Einstaka menn töldu sig vera búna að heimta fé sitt, þó réttunum væri ekki að fuliu lokið og héldu því af stað heim með sinn hóp. Hinir sem eftir voru hjálpuðust að við að ljúka drættinum og um þrjúleytið var lokið við að rétta 10—12 þúsund fjár, sem komið höfðu af fjallinu. Þá var ekki annað eftir en að koma fénu í heima- hagana og mátti greinilega sjá að sumar kindurnar gerðu sér fyllilega grein fyrir hvert ferðinni var heitið og tóku göt- una af öryggi. t-g- I>eir biðu spenntir komu kinda sinna en forin f almenpingnum kom f veg fyrir að þeir gætu sjálfir leitað þeirra. Lögbergs- rétt í dag, Hafravatns- rétt á morgun UM helgina og fyrstu dagana í vikunni verður fé réttað í réttum í nágrenni Reykjavíkur. I dag verður réttað í Lögbergsrétt en þangað kemur fé af afrétti Reykjavíkur, Kópavogs og Sel- tjarnarness og er gert ráð fyrir að féð verði komið í réttina milli kl. 2 og 3 en réttin er á völlunum skammt fyrir ofan Lögberg, ef ekið er eftir Suðurlandsveginum. Þá er f dag einnig réttað í Kaldár- rétt fyrir sunnan Hafnarfjörð. Á mánudag verður réttað í Hafra- vatnsréttum og kemur þangað fé af Mosfellsheiði, einnig verður á mánudag réttað í Húsmúlarétt við Kolviðarhól en þar er fé úr Ölfusi og sunnan heiðar dregið í sundur. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að rétta um kl. 2. I Gjábakkarétt í Þingvallasveit verður einnig rétt- að á mánudag og á miðvikudag verður réttað í Kollafjarðarrétt og Selvogsrétt - f Selvogi fyrir sunnan Hlíðarvatn. Stuöningsmenn Sr. Arnar Friðrikssonar umsækjanda um Nessókn hvetja fólk til aö kjósa snemma. Skrifstofan er að SÓLVALLAGÖTU 25 símar 20570 - 19836 — 25121 - 25123 — 25135 — 25201 — 25319 Þekkirðu LANCER ? Honum er vert að kynnast. Hann fer hringveginn á 126 lítrum af bensíni = 7.182. Þó skortir hann aldrei afl, 97 ha vélin sér um það Hann er einn fárra, sem sigrað hafa í African-Safari keppninni. Það undrar þig ekki þegar þú kynnist honum. Lancerinn er fjögurra manna bíll með styrk stóru bílanna. Nú á kynningarverði til 1. nóvember, eða meðan birgðir endast KYNNINGARVERÐ FRÁ KR. 989 ÞÚS. Allt á sama staö Laugavegi 118- Símar 22240 og 15700 EGILL VILHJÁLMSSON HE

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.