Morgunblaðið - 21.09.1975, Síða 46

Morgunblaðið - 21.09.1975, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1975 Spumingar og svör Eins og oft vill verða í haustnepjunni, þá er ekki um auðugan garð að gresja í kvikmyndahúsunum. Und- antekningar eru „DAGUR SJAKALANS," í Laugarásbíó og endursýning Tónabíós á UMHVERFIS JÖRÐINA Á ÁTTATÍU DÖGUM. Það er því ekki úr veg.i að taka til meðferðar nokkur bréf sem borizt hafa síðunni og helga hana bréfadálkum að þessu sinni. EITT STREMBIÐ . . . Kæra kvikmyndasíða. Ég mundi meta það mikils ef þið frædduð mig um eftir- farandí hluti: 1. Leikstjórann Erich von Stroheim og myndir hans, þá sérstaklega GREED, (1923 — 4). 2. Leikstjórann Josef von Sternberg. 3. Myndina THUNDER IN THE EAST (1934), gerð af leikstjóranum Nicholas Farkas. Eins væri gott að vita hvort einhverjar af myndum þessara leikstjóra hafi verið sýndar hérlendis, eða hvort sýningar á þeim séu fyrirhug- aðar. Að lokum vil ég biðja ykk- ur um að skrifa ítarlega grein um Orson Welles og myndir hans. Meðal annarra orða, þið gleymduð í upptalningu á myndum hans að nefna CONFIDENTAL REPORT, (MR. ARKADIN), spænsk- frönsk, gerð 1956. Einnig væri vel þegið að fá eitthvað um Paul Scofield og Laur- ence Olivier. Svo vil ég þakka SSP fyrir óhlutlægustu skrifin í íslensk- um dagblöðum. Svo vona ég að þið reiðist ekki þó ég hnýti hér aftaní beiðni um grein um leikstjórann Stanley Kubrick. 4.9. '75 Jón Kristjánsson. Okkur er ætlað takmarkað rúm i sunnudagsblöðunum, og ef að við ættum að svara spurningum þínum ýtarlega, þá fylltu þau ,(kvóta" næstu vikna. Þú verður því að fyrir- gefa Jón, að við svörum þér í sem stystu máli. 1. Erich Von Stroheim hefur löngum verið talinn einn af jöfrum kvikmyndalistarinnar, þrátt fyrir að ekki liggi mikið eftir hann, og það klippt og skorið af öðrum. Von Stro- heim var af gyðingaættum, fæddur í Vmarborg 1885 og lést í París árið 1957. Flutti til Ameríku í kringum 1907 og hélt til Hollywood. Þar gekk á ýmsu þangað til hann fékk aukahlutverk og aðstoð- arleikstjórastöðu við gerð myndanna BIRTH OF A NATION, (D.W. Griffith, 1915), og INTOLERANCE, 1916. Von Stroheim leikstýrði sinni fyrstu mynd árið 1918, var það BLIND HUSBANDS, jafnframt skrifaði hann hand- ritið og lék sjálfur aðalhlut- verkið, og svo var yfirleitt farið með myndir hans. 1921 gerir von Stroheim FOOLISH WIVES, hún var klippt af kvikmyndaeftirlit- inu, svo eftir lifði aðeins einn þriðji hluti hinnar uppruna- legu myndar. GREED er gerð 1923, og er römm ádeila á auðvaldsskipulagið, og litið er á peningana sem undirrót alls ills. Þetta líkaði ekki hin- um háu herrum hjá MGM sem skipuðu von Stroheim að stytta þessa upprunalegu níu stunda mynd niður í 18 spólur. Þeim fækkaði síðar um átta til viðbótar. GREED var hápunkturinn á ferli von Stroheim, hann skrifaði handritið eftir sögu Frank Norris, McTEAGUE, kvikmyndatöku önnuðust þeir Ben Reynolds, William Daniels og Ernest Schoedsack. Með aðalhlut- verkin fóru Jean Hersholt, Zasu Pitts og Gibson Gow- land. Framleiðendur litu von Stroheim ekki réttu auga uppfrá þessu og kvikmyndir hans áttu erfitt uppdráttar, WEDDING MARCH, gerð 1928 var skorin í tvennt og slðari hlutinn aðeins sýndur I Evrópu. Síðan gerði von Stroheim QUEEN KELLY, en taka var stöðvuð þegar hann var rétt hálfnaður. Eftir þessi áföll sneri von Stro- heim sér að leik og skriftum, gerði aðeins eina tal- mynd, WALKING DOWN RAINBOW, einnig sú mynd hlaut slæma útreið þvi Raoul Walsh var látin endurtaka mikinn hluta hennar, var hún síðar sýnd undir nafninu HELLO SISTER. Erich von Stroheim lék í allmörgum myndum, m.a. LE GRAND ILLUSION. 1937, FIVE GRAVES TO CAIRO, 1943, 1950: SUNSET BOULEVARD, sem hann stjórnaði sjálfur, og síð- ast í myndinni NAPOLEON árið 1955. 2. Josef von Sternberg, (1894—1969) er vafalsut þekktastur fyrir myndir sínar með Marlene Dietrich í aðal- hlutverki, en hann kom henni „á framfæri" og gerði flestar af beztu myndum hennar; frægust er sú fyrsta, DER BLAUE ENGEL, (1930). í kjölfar hennar gerðu þau myndirnar MAROCCO, DISHONORED, (1931), SHANGHAI EXPRESS OG BLONDE VENUS, (báðar 1932), THE SCARLET EMPRESS og THE DEVIL IS A WOMAN, (1934 og 5). Upp frá þessu fór stjarna von Sternbergs sí-lækkandi, og síðustu árin vann hann Orson Welles Marlene Dietrich Stanley Kubrick. fyrir sér sem leikstjórnar- kennari. 3. Ég á allnokkra' þykka kvikmyndadoðranta, en því miður hefur mér ekki tekizt að finna' nafnið Nocholas Farkas þar nokkurs staðar á prenti. Kvikmynd undir nafninu THUND- ER IN THE EAST var gerð árið 1953 af Charles Vidor, með þeim Alan Ladd, Deborhu Kerr og Charles Boyer í aðalhlutverkum. Leik- ur okkur því forvitni á að vita eitthvað nánar um þennan ófinnanlega hr. Farkas. Ef ég man rétt þá er ekki alllangt síðan að fjallað var um þá meistarana Welles og Kubrick, hér á síðunni, en vel er athugandi að taka þá fyrir fljólega, einkum eftir frum- sýningar nýjustu mynda þeirra F FOR FAKE og BARRY LYNDON. CON- FIDENTAL REPORT, gerð eftir sögu Welles sjálfs, MR. ARKADIN, með þeim Michael Redgrave og Akim Tamiroff í aðalhlutverkum, er reyndar gerð árið 1 955. S.V. ANDERSON, ASHBY, GALILEO. Kæra Kvikmyndasíða. Ég hef fylgst með síðunni, og finnst hún bezta framtak Morgunblaðsins til lesenda. Ég hef hér spurningar fram að færa: 1) . Getur þú frætt mig um nýjustu mynd Lindsey Anderson, IN CELEBRAT- ION? 2) . Um hvað fjallar nýjasta mynd Joseph Losey, GALILEO? 3) . Hvænær mega kvik- myndahúsgestir búast við því að fjá fleiri myndir eftir Hal Ashby, THE LAST DETAIL? 4) . Hefur Háskólabíó tryggt sér sýningarrétt á myndinni CHINATOWN, leikstj. Rom- an Polanski? 1) . IN CELEBRATION er gerð af AMERICAN FILM THEATRE, með þeim Alan Bates, James Bolam og Con- stance Chapman í aðalhlut- verkum. Myndin var nýlega frumsýnd vestan hafs. 2) . GAILEO, með þeim Topol, Sir John Gielgud og Edward Fox, er byggð á leik- riti Brechts og fjallar um ævi- feril Galileos. Myndin var frumsýnd í sumar og hlaut lélega dóma. Aðallega þótti val Topols í aðalhlutverkið misráðið. 3) . THE LAST DETAIL er sjálfsagt væntanleg í Stjörnu- bíó snemma á næsta ári, en við þurfum sjálfsagt að bíða öllu lengur eftir nýjustu mynd hans, SHAMPOO, sem nú er sýnd við miklar vin- sældir vestan Atlantshafsins. Sú mynd er einnig frá Columbia, og verður því sýnd í sama kvikmyndahúsi. 4) . Háskólabíó hefur einka- rétt á myndum frá Para- mount Pictures hér á landi, en það dreifir m.a. myndinni CHINATOWN. Fram- kvæmdastjóri kvikmynda- hússins er staddur erlendis, og því tókst mér ekki að fá upplýsingar um hvenær áætlað er að taka myndina til sýningar. Sæbjörn Valdimarsson. - Samþykkt SHÍ Framhald af bls. 23 meir á Herjahreyfinguna, en sósíaiistaflokkurinn á samstarf við mið- og hægriöflin. Hér eru augljósar hættur á ferð, þar sem Kommúnistaflokkurinn reynir að vinna verkalýð til fylgispektar við s.n. „tfmabundið einræði" pólitfskt tvístígandi herforingja, en krafa Sósfalistaflokksins um vaidaafsal hersins myndi þýða stóraukna möguleika fasista á gagnbyltingu, næði hún fram að ganga. Afstaða Stúdentaráðs I þessari stöðu er fásinna fyrir lýðræðis- og alþýðusinna að lýsa yfir skilyrðislausum stuðningi við einhver pólitísk samtök í Portúgal, s.s. Sósfalistaflókkinn og bandamenn hans, Konimún- istaflokkinn eða Herjahreyfing- una. Hins vegar er það skylda þeirra að standa alþjóðlegan vörð um þá sigra sem unnist hafa og þá möguleika til aukins frjálsræðis og jöfnuðar sem fyrir hendi eru í Portúgal. Að mati Stúdentaráðs eru eftirfarandi atriði mikil- vægust f þvf tilliti: — að alþýðuhreyfingunni verði veitt sem best vaxtarskilyrði. Stuðlað verði að virkri þátttöku fjöldans og sjálfsstjórn alþýð- unnar. — að ekki verði lagðar hömlur á stjórnmálastarfsemi neinna andfasískra afla og tjáningar- frelsi leyft að blómgast með af- námi hafta á funda- og prentfrelsi. — að komið verði í veg fyrir æsingar og hermdarverk fas- ískra og hálf-fasískra afla í hinum fháldssömu norðurhéröðum og hinum ameríkaníseruðu Azoreyj- um. — að menn geri sér Ijósa hina yfirvofandi hættu á fasísku valda- ráni f Portúgal. Viðurkenning þessarar staðreyndar höfðar til viðeigandi gagnráðstafana bæði af hálfu portúgala sjálfra og alþjóðlegra stuðningsmanna frelsisþróunar þar f landi. — að forðað verði erlendum afskiptum af þróun mála i Portúgal. Slík hætta getur stafað frá spænskum fasistum, þeim er- lendu aðilum, sem fjárfest hafa í Portúgal, og jafnvel risaveldun- um. — að andfasísk öfl sameinist um viðleitnina til að draga úr spennu og hjaðningavígum milli hinna ýmsu hópa alþýðusinna, en stuðli að valdbeitingarlausri umræðu þeirra á meðal, með það fyrir augum að portúgalska þjóðin velji sjálf sfna framtíðar- þróun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.