Morgunblaðið - 10.10.1975, Page 3

Morgunblaðið - 10.10.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1975 3 Ölöf Pálsdóttir stofaar minn- ingarsjóð um foreldra sína Kaupmannahöfn, 9. október, einkaskeyti til Mbl. fráGunnari Rytgaard: ÓLÖF Pálsdóttir myndhöggvari, eiginkona Sigurðar Bjarnasonar Ólöf Pálsdóttir. ambassadors tslands 1 Danmörku, hefur stofnað sjóð til minningar um foreldra sína, frú Hildi Stef- ánsdóttur frá Auðkúlu og Pál Ólafsson konsúl frá Hjarðarholti. Tilgangur sjóðsins er að styrkja tónlistarlff hjá fslenzka söfnuðin- um 1 Kaupmannahöfn. Foreldrar frú Ólafar Pálsdóttur voru báðir af gömlum prestaættum þar sem tónlist var f hávegum höfð. For- eldrar hennar bjuggu f Kaup- mannahöfn í mörg ár. Sjóðurinn verður stofnaður við hátíðlega athöfn í Sankt Pauls kirkju i Kaupmannahöfn sunnu- daginn 12. október, en þar verða leikin tvö kirkjuverk eftir Pál Ólafsson ásamt fleiri verkum. Guðni P. Guðmundsson organleik- ari mun flytja verkin ásamt Carst- en Svanberg, sem leikur á bás- únu, Knud Hovaldt, sem leikur á trompet og John Fjestad. Hinn 13. desember mun Guðni Guðmunds- son fara til Islands og er ætlunin Framhald á bls. 20 Verzlun opnuð í Osló sem eingöngu verzlar með íslenzkar vörur I VIKUNNI var stödd hér á landi ung norsk kona, Ingrid Berg, en hún opnaði hinn 1. september s.I. verzlun I Osló sem eingöngu selur fslenzkar ullarvörur og keramik. Verzlunin heitir „Islendingen" og er til húsa f Karl Johans gate 7, f hjarta höfuðborgar Noregs. Ingrid Berg sagði í stuttu samtali við Mbl.f gær, að hún Ingrid Berg. hefði fengið hugmyndina að verzlunarrekstrinum þegar hún var hér á ferð í maí s.l. Sagðist hún hafa hrifist mjög af íslenzku ullinni og ullarvörun- um. Hún var ekkert að tvínóna við hlutina þegar hún kom heim, útvegaði sér verzlunarað- stöðu á bezta stað í Osló og hinn 1. september var opnað. „Og enda þótt verzlunin hafi aðeins verið opin þennan stutta tíma hef ég orðið vör við mikinn áhuga fólks á þeim íslenzku vörum sém verzlun mín hefur haft á boðstólum," sagði Ingrid f samtali Sínu við Morgun- blaðið. I fyrstu hafði verzlunin ein- göngu á boðstólum ullargarn og ullarfatnað frá Álafossi og keramik frá Glit. I ferð sinni hingað til Islands nú hefur Ing- rid verið að athuga mögu- leikana á því að taka fleiri íslenzkar vörur til sölu og hefur hún notið aðstoðar Útflutnings- miðstöðvar iðnaðarins. Hefur hún hug á því að bæta við vör- um, ullarfatnaði frá fleiri fyrir- tækjum en Álafossi og jafnvel skinnavöru, skartgripum frá Framhald á bls. 20 Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra opnar Djúpveginn formlega fyrir umferð með þvf að klippa á borda. Ljósm. Mbl. Sigurður Grímsson. Djúpvegurinn opnaður við hátíðlega athöfn ísafirði I okt. HINN 1. október var Djúpveg- urinn formlega opnaður til um- ferðar af samgöngumálaráð- herra Ilalldóri E. Sigurðssyni. Fór athöfnin fram á Hvftanesi, sem er á milli Skötufjarðar og Hestfjarðar og voru auk sam- göngumálaráðherra við athöfn- ina flestir þingmenn kjör- dæmisins, forráðamenn vega- gerðarinnar og gestir. Þar með má segja, að hring- vegurinn um landið sé endan- lega orðinn að veruleika og Vestfirðir nú opnir í báða enda. En þrátt fyrir að endar hafi nú náð saman, þá á vegagerðin enn mikið verkefni fyrir höndum. Enn er mjög slæmur vegur yfir Þorskafjarðarheiði og lokast hún yfirleitt í fyrstu snjóum og viða við Djúp þarfnast þjóðveg- urinn mikilla viðgerða. I sumar hefur verið unnið að mæling- um, og hefur það meðal annars verið kannað hvort hag- kvæmara sé að leggja veginn úr Djúpi yfir Kollafjarðarheiði í staðinn fyrir að fara Þorska- fjarðarheiði. Er þvi von Vest- firðinga að rikisvaldið haldi áfram að veita fjármagni í þessar framkvæmdir sem svo nauðsynlegar eru fyrir þetta byggðarlag. Siggi Grims. Þorvaldur Guðmundsson kosinn formaður SVG AÐALFUNDUR Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda var hald- inn á Akureyri dagana 6. og 7. okt. s.l. Á fundinum voru mættir 27 full- trúar veitinga- og gistihúsa viðs- vegar að af landinu. Meðal mála, sem rædd voru á fundinum voru málefni Hótel- og veitingaskóla íslands og um þau gerði fundurinn svofellda álykt- un: „Aðalfundur Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda, haldinn á Akureyri dagana 6. og 7. okt. 1975, átelur það skilningsleysi stjórnvalda, sem ríkt hefir um málefni Hótel- og veitingaskóla ís- lands og gert hefir skólann að hornreku f íslenzku menntakerfi. Telur fundurinn brýnt hags- munamál, að skólinn komist hið fyrsta í eigið húsnæði og að sóma- samlega verði að nemendum búið um tækjakost og annan búnað. Skorar fundurinn á mennta- málaráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að nú þegar verði hafist handa um framtíðaruppbyggingu skólans, svo hann geti sinnt því hlutverki sínu að búa ungt fólk undir störf sín í þessari atvinnu- grein og að auka fagþekkingu þess til eflingar ferðamannaþjónustu í landinu." I fundarlok fór fram kjör stjórn- ar og var Þorvaldur Guðmundsson Framhald á bls. 20 Þorvaldur Guðmundsson. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS (Shn KARNABÆR P AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Qíml Ir4 cl/mtlk/xrX: 001 CC Sími frá skiptiborði 28155 STÓRKOSTLEGT VÖRUÚRVAL í ÖLLUM DEILDUM Sjá næstu f jðrar síður LÆKJARGOTU 2 SIMI FRA SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.