Morgunblaðið - 10.10.1975, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTOBER 1975
Narteinn út nm áramót
ÞÝZKA liðið Kickers Offenbach bauð i gær Marteini Geirs-
syni að koma til félagsins um áramóti og leika með þeim
sem atvinnumaður. Ekki er enn farið að ræða formlega um
samning, en Marteinn sagði í viðtali við Morgunblaðið í
gær að það væri Ijóst að Offenbach vildi fá hann, spurning-
in væri hvað þeir byðu vel.
— Ég lék æfingaleik með aðalliðinu gegn varaliðinu i
dag, sagði Marteinn, og átti allsæmilegan leik held ég.
Þjálfarinn hrósaði mér að minnsta kosti fyrir frammistöð-
una, en benti réttilega á það að úthaldið væri ekki nógu
mikið. Við unnum þennan leik 5:1 og ég átti stærsta
þáttinn i fyrsta markinu. Þeir létu mig leika sem tengilið og
þó ég hafi ekki leikið þá stöðu lengi þá var mesta furða
hvernig þetta gekk.
Þýzku blöðin hafa talsvert skrifað um komu Marteins til
Offenbach og þá um hann sem nýja leikmanninn hjá liðinu.
Þess má geta að knattspyrnumarkaðurinn er lokaður i
V-Þýzkalandi fram að áramótum.
Skagamenn leika
líklega á Melaveliinnm
ALLAR LÍKUR benda til þess að
við leikum heimaleik okkar gegn
Dynamo Kiev á Melavellinum
þann 5. nðvember, og þá í flðð-
Ijðsum, sagði Gunnar Sigurðsson
formaður Knattspyrnuráðs lA er
við ræddum við hann í gær.
— Við höfum reynt að semja við
Sovétmennina um breytta leik-
daga, en það gengur hreinlega
ekkert og f fyrradag fengum við
skeyti frá þeim þar sem þeir sögð-
ust ekki vilja né geta breytt Ieik-
Ármann
á Akureyri
1. deildarlið Ármanns í hand-
knattleik leikur við lið KA og
Þórs á Akureyri um helgina. 1
kvöld mæta Ármenningar liði KA
í íþróttaskemmunni og hefst
leikurinn klukkan 20.15. Á
morgun klukkan 16 hefst leikur
Armanns við Þór í skemmunni og
á sunnudaginn kl. 13 hefst á sama
stað hraðkeppni á milli
félaganna.
dögum þeim sem Evrðpuknatt-
spyrnusambandið hefur ákveðið
fyrir 2. umferð Efvrðpukeppni
félagsliða f knattspvrnu.
Skagamenn könnuðu það í gær
hvort Melavöllurinn væri ekki
löglegur til leikja i Evrópukeppni
og komust að raun um að svo er,
en með lítilsháttar lagfæringum
þó. Girða þarf leið leikmanna og
dómara frá vellinum að búnings-
herbergjum eins og gert var I
Keflavík fyrir leikinn gegn
Dundee á dögunum. Aðrar breyt-
ingar eru ekki nauðsynlegar á
gamla góða Melavellinum, sem
Baldur Jónsson vallarstjóri sagði
í gær að yrði í eins góðu ástandi
og veður framast Ieyfði er leikur-
inn færi fram.
Reikna má með að leikur ÍA og
Dynamo Kiev verði einn síðasti
stórleikurinn, sem fram fer á
Melavellinum, þar sem ráðgert er
að nýta vallarsvæðið undir bók-
hlöðu. Það eru heldur ekki gestir
af lakari endanum sem leika
þennan leik því Dynamo Kiev get-
ur státað af titlinum „bezta lið
Evrópu."
Geir Hallsteinsson:
REYKJAVIKURMEISTARAR VIKINGS 1975 — Fremrt röð frá vinstri: Erlendur Hermannsson, Stefán
Halldórsson, Rósmundur Jónsson, Páll Björgvinsson, hinn bikarvani fyrirliði liðsins, Eggert Guðmunds-
son, Jón Sigurðsson og Magnús Guðmundsson. Aftari röð: Jón Aðalsteinn Jónasson formaður Víkings,
Hannes Guðmundsson formaður handknattleiksdeildarinnar, Þorsteinn Jóhannsson, Sigfús Guðmunds-
son, Þorbergur Aðalsteinsson, Skarphéðinn Óskarsson, Ólafur Jónsson, Viggó Sigurðsson og Karl
Benediktsson þjálfari. (Ljósm. RAX).
Víkingar meistarar
en KR seldi sig dgrt
KR-INGAR sýndu það og sönnuðu
f fyrrakvöld að það var engin til-
viljun að liðið komst i úrslit
Reykjavfkurmótsins. Að vfsu töp-
uðu KR-ingar úrslitaleiknum fyr-
ir Vfkingi með 16 mörkum gegn
19, en leikurinn var hnffjafn allt
fram á sfðustu mfnúturnar og
eins marks sigur Vfkinga hefði f
rauninni gefið réttari mynd af
leiknum.
Víkingar urðu sem sé Reykja-
víkurmeistarar og er þetta þriðji
meistaratitillinn, sem handknatt-
leiksmönnum félagsins hlotnast á
sex mánuðum. Fyrst urðu Víking-
arnir íslandsmeistarar inni, þá ut-
anhússmeistarar og nú Reykja-
víkurmeistarar. Víkingsliðið er
líklegt til enn meiri afreka, án
þess að meira sé sagt. Á laugar-
daginn leika Víkingarnir gegn
FH og er þar um meistarakeppni í
handknattleik að ræða. Verður
fróðlegt að fylgjast með þeirri
viðureign og ef til vill má af
henni draga einhverjar ályktanir
um hver verður þróunin í því
íslandsmóti, sem hefst á miðviku-
daginn, þó aðeins sé í rauninni
um vináttuleik að ræða.
Víkingar leiddu lengst af fyrri
hálfleiknum gegn KR, en aldrei
var munurinn þó mikill. Mestur
var hann 2 mörk, en á milli náðu
KR-ingar að jafna. Seinni hálf-
leikurinn var svo enn jafnari. í
hálfleik hafði staðan verið 9:8 fyr-
ir Víking, en strax eftir nokkurra
mínútna leik höfðu KR-ingar
jafnað 12:12. Vesturbæjarliðinu
tókst aldrei að komast yfir í leikn-
um, Víkingarnir voru alltaf fyrri
til að skora, en jafnt var á öllum
tölum upp í 15:15. Þá loks tóku
Víkingar af skarið og innsigluðu
sigur sinn með því að komast f
17:15. Lokatölur urðu svo 19:16.
Með örlítilli heppni hefðu KR-
ingar átt að geta komizt yfir í
siðari hálfleiknum og þá er ekki
gott að segja hvernig leikurinn
hefði farið. KR-liðið er að meiri-
hluta skipað ungum leikmönnum,
sem ættu að geta náð Iangt f 2.
deildinni í vetur — jafnvel alla
leið upp í 1. deild. Hilmar Björns-
son er heilinn í leik liðsins og var
hann drýgstur KR-inga í þessum
leik, en var greinilega orðinn ör-
þreyttur síðustu mínútur leiksins.
Símon Unndórsson er lofandi
leikmaður og þá ekki sfður Sig-
urður Páll, sem skoraði lagleg
mörk úr hornunum í leiknum.
Ekki má gleyma þætti markvarð-
ar KR, Emils Karlssonar, en Emil
stóð sig mjög vel í leiknum.
Þorbergur Aðalsteinsson var í
aðalhlutverki f Víkingsliðinu að
þessu sinni og skoraði 7 mörk í
leiknum. Stærri stjörnur Víkings-
liðsins féllu í skuggann fyrir Þor-
bergi að þessu sinni og er það
talandi dæmi um þá góðu breidd,
sem er í Víkingsliðinu. Stefán
Halldórsson er greinilega að ná
sér á strik á nýjan leik, það sýndi
hann í fyrrakvöld þó hann skoraði
ekki nema 3 mörk. Páll Björgvins-
son var tekinn úr umferð allan
leikinn og gat því lítið beitt sér í
leiknum.
Mörk KR: Hilmar 6, Simon 4,
Sigurður 3, Þorvarður 1, Kristinn
1.
Mörk Víkings: Þorbergur 7,
Stefán 3, Viggó 3, Páll 2, Sigfús,
Ólafur og Erlendur 1 hver.
KR-FH- landsliðið
Hngsað í metrom og milljónnm
í Laugardalnnm
ÞESSA dagana Ieiða
menn ekki hugann að
metum eða sentimetrum,
mörkum eða mínútum
þegar minnst er á Laug-
ardalsvöllin. Nú eru það
milljónir og kílómetrar,
sem hugsað er um í þeim
herbúðum.
í vikuiini iii'ó'usl lran.kvæmd-
ir við endurl ætur á Laugar-
dalsvellinum og er áætlað að
kostnaðui ve.;na þeirra nemi
rúmum 11 milljónum. Skipt
verður um jarðveg á vellinum
og sett í hann ný affallsrör, sem
samanlagt eru 3Í4 kílómetri á
lengd. Reynt verður að tyrfa
völlinn að nýju í haust, en ef
það tekst ekkL vegna veðurs
verður það gert strax og veður
þannig að unnið er að fram-
kvæmdum í Laugardalnum
þessa dagana, sem vart munu
kosta undir 26 milljdaum
króna.
— Það er mikið fyrirtæki,
sem Reykjavíkurborg ræðst í
með þessum framkvæmdum,
sagði Baldur Jónsson vallar-
stjóri í viðtali við Morgunblaðið
f gær. — Það er enginn völlur á
Norðurlöndum, sem eins mikið
álag hefur verið á undanfarin
ár. Nýr grasvöllur verður tek-
inn í notkun næsta sumar og þá
breytast viðhorfin mjög. Ég
vona að fólk geri sér grein fyrir
þvf hve mikið Reykjavíkurborg
gerir fyrir sitt íþróttafólk, þess-
ar framkvæmdir sem nú standa
yfir, eru aðeins lítið brot af þvi
sem gert er á hverju ári, sagði
Baldur að lokum.
GEIR Hallsteinsson er þjálfari
KR-inga, hann er leikmaður með
FH og var auk þess valinn f lands-
liðið á dögunum, en gaf ekki kost
á sér. Við ræddum við Geir um
þessi þrjú lið að loknum leik KR-
inga gegn Víkingum á
miðvikudaginn.
1. LIÐ KR. — Ég er mjög
ánægður með frammistöðu KR-
inganna f þessu móti, sagði Geir.
— Við hefðum átt að komast yfir
þegar staðan var 15:15 og sex mfn-
útur voru til loka, ef það hefði
tekizt er ekki gott að segja hver
úrslitin hefðu orðið. Við ætlum
okkur stóra hluti í vetur, en
gerum okkur þó grein fyrir að
baráttan verður erfið. Lið eins og
IR, KA og Þór eru alltaf erfiðir
IR vann Þrótt
með 9 mörkum
EKKI var búizt við því að IR-
ingar færu eins létt með Þróttara
og raunin varð á er liðin mættust í
leik um 5. sætið í Reykjavíkur-
mótinu í fyrrakvöld. (Jrslit leiks-
ins urðu 24:15 ÍR í vil og voru
iR-ingarnir sterkari á flestum
sviðum handknattleiksins í síðari
hálfleik þessa leiks. Þróttarar eru
nýliðar í 1. deildinni, en iR-ingar
féllu niður í 2. deild í fyrra.
andstæðingar, já reyndar öll lið (
2. deildinni.
2. LIÐ FH. — Ég hef trú á að
FH-ingar verði í fremstu röð f
vetur eins og mörg undanfarin ár.
Vfkingur og Valur verða
sömuleiðis örugglega framarlega
f flokki og ég er sérstaklega hrif-
inn af Vfkingunum, sem eru að
ná upp mjög sterku liði. Þeir hafa
„eitraða“ leikmenn f sfnum
röðum — Stefán, Pál, Viggó, Þor-
berg.
3. LANDSLIÐIÐ. — Ég vil
helzt ekki ræða afstöðu mfna til
Iandsliðsins opinberlega. Ég er
óánægður með ýmsa þætti starfs-
ins, en ástæðan fyrir þvf að ég gaf
ekki kost á mér í leikina gegn
Póllandi var fyrst og fremst sú, að
ég tel mig ekki vera f nægilega
góðri æfingu. Keppnistfmabilið
er þó aðeins rétt að byrja og það
má vel vera að afstaða mfn breyt-
ist þegar Ifður á, sagði Geir að
lokum.
Ieyfir næsta vor. Aætlað er að
völlurinn verði leikhæfur um
miðjan júní næsta sumar.
Kominn er til landsins
gúmmídúkur, sem á að ieggja á
hlaupabrautirnar í „Baldurs-
haga“, íþróttasalnum undir
stúku vallarins. Kostnaður við
þennan dúk þegar hann verður
kominn á sinn stað er áætlaður
rúmar 5 milljónir. Svo áfram sé
haldið að hugsa í metrum og
milljónum, þá er gúmmídúkur-
inn, sem á að auðvelda allar
æfingar í salnum samanlagt 640
metrar á lengd.
Þá er unnið við að girða af
íþróttasvæðið í Laugardalnum
og á þeim framkvæmdum að
vera lokið um mánaðamótin.
Þær framkvæmdir er reiknað
með að kosti 10 milljónir,