Morgunblaðið - 23.10.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1975
Kaupmátturiim verð-
ur höfuðmál komandi
samningaumleitana
— segir framkvæmdastjóri ASI
„VIÐ erum tilbúnir til viðræðna
við fulitrúa Vinnuveitendasam-
bandsins hvenær sem cr en hins
vegar munum við ekki móta af-
stöðu okkar I öllum atriðum fyrr
en á kjaramálaráðstefnu Alþýðu-
sambandsins hinn 3. desember
næstkomandi," sagði Snorri Jóns-
son, framkvæmdastjóri ASl,
þegar Morgunblaðið leitaði álits
hans á yfirlýsingu þeirri sem
Vinnuvcitendasamband Islands
hefur birt og þar sem hvatt er til
að viðræður hefjist sem fyrst
milli aðila vinnumarkaðarins.
Morgunblaðið spurði Snorra
hvort hann teldi ekki kjaramála-
ráðstefnuna full seint á ferðinni
og stuttur tími yrði til stefnu
varðandi sámningaumleitanir
miðað við að allir samningar væru
lausir um áramótin. Snorri taldi
svo ekki vera, benti á að þróunin
væri svo hröð í þjóðfélaginu að
erfitt væri að marka stefnu eða
taka ákvarðanir fyrir langan tíma
i einu. Hins vegar sagði Snorri að
augljóst væri að meginatriði
komandi samningaviðræðna yrði
kaupmátturinn og um það væri
ASl tilbúið til viðræðna við
vinnuveitendur þegar I stað.
Snorri sagði ennfremur að eðli-
lega hefði enn ekki verið gengið
frá þvi hverjir skyldu taka þátt f
viðræðum af þessu tagi, en ef
vinnuveitendur færu fram á við-
ræður við ASÍ myndi miðstjórn
Aiþýðusambandsins væntanlega
ákveða hverjir ættu sæti í slikri
viðræðunefnd.
Svæðamótið í gærkvöldi:
Friðrik vann og
Björn gerði jafnt
ÞRIÐJU umferð svæðamótsins
lauk að Hótel Esju um klukkan
22 í gærkvöldi. Islenzku
keppendunum gekk vel f þessari
umferð, Friðrik Ólafsson, stór-
meistari sigraði Eugene Laine frá
Guernsey létt og örugglega í 31
leik og Björn Þorsteinsson gerði
jafntefli við Norðmannin Arne
Zwaig I 35 leikjum. Var skák
þeirra allan tfmann I jafnvægi
Björn hafði svart en Friðrik hvftt.
Friðrik Ólafsson er nú I 1.—5.
sæti með 2 vinninga. Svæðamótið
hefur verið vel sótt af áhorfend-
Önnur úrslit í gærkvöldi urðu
þau, að Ribli vann Hartston í 39
leikjum, en jafntefli gerðu
Liberzon og Jansa í 22 leikjum,
Parma og Timmun i 18 leikjum og
Murrey og Ostermeyer í 23 leikj-
um. Skák Kaman og Van den
Broeek fór í bið og stendur
Haman betur, en Broeck hafði
lengst af betur í skákinni en lék
af sér í lokin.
Fjórða umferð mótsins verður
tefld á Hótel Esju á föstudaginn
klukkan 17, en á morgun verða
tefldar biðskákir frá þremur
fyrstu umferðunum og verður þá
teflt frá klukkan 14 til 20. t 4.
umferðinni á föstudaginn teflir
Friðrik við Van den Broeck óg
hefur Friðrik svart. Björn teflir
við Timman, Zwaig við Laine,
Murrey við Jansa, Ribli við
Haman, Hartston við Poutiainen,
og Liberzon við Parma, en Oster-
meyer situr hjá. Poutiainen sat
hjá í 3. umferðinni í gærkvöldi.
Staðan er þannig eftir þrjár
umferðir, að Hartston, Friðrik,
Zwaig, Timman og Parma hafa 2
vinninga. Þá kemur Haman með
1 'A vinning og betri biðskák en í
7.—8. sæti eru Ribli og
Poutiainen með 1 vinning og bið-
skák hvor. Jansa er f 9. sæti með 1
vinning, Liberzon og Murrey hafa
'A vinning og 2 biðskákir hvor, og
eru í 10—11. sæti. I 12. sæti er
Ostermeyer með !4 vinning og
biðskák. Laine og Björn eru i
13.—14. sæti með '/i vinning og
Van den Broeck hefur engan
vinning hlotið en á biðskák, þar
sem staða hans er verri.
TYR
KLIPPIR
Frá þvf að fiskveiðilögsagan var færð út 1200 sjómflur hefur aðeins
einu sinni verið klippt aftan úr v-þýzkum togara. Það var varðskipið
Týr, sem þá var að verki og náði að klippa pokann aftan úr
togaranum Altona. En það var 1 hundraðasta skiptið, sem klippt var
aftan úr togara. — Myndin er tekin rétt áður en klippur varðskips-
ins ristu á poka togarans, en við það fóru ein 3—4 tonn af karfa út
um allan sjó.
Ljósm. Sófus Alexandersson.
Viðræðurnar við
Breta hefíast i dag
Einar Ágrústsson mun tf
Einar Ágústsson mun tF
ræða við Callaghan StÆ"Æ“i
VIÐRÆÐUR fslenzkra og brezkra London 1 dag, og munu þær
stjórnvalda um hugsanlega und- standa fram til hádegis á morgun.
anþágu til handa brezkum togur- Islenzka viðræðunefndin kom til
Viðræður um 5 ára viðskipta-
samning við Rússa byr jaðir
Breytingar á greiðslufyrir-
komulagi til umræðu á fundunum
VIÐRÆÐUR hófust I Reykjavfk f
gær milli fulltrúa tslands og Sov-
étrfkjanna um nýjan viðskipta-
samning rfkjanna í milli. Hingað
til hefur vcrið í gildi ramma-
samningur sem yfirleitt hefur
gilt til fjögurra ára f senn en að
þessu sinni er áformað að gera
fimm ára samning er gildi frá
1976 til ársloka 1980.
tslenzka viðræðunefndin er
skipuð 15 mönnum og eru þar
Fjölbreytt dagskrá á úti-
fundi kvennafrídagsins
^ « •• ... .. Jk' « • Jlrl • • «
,0pin hús” á sjö stöðum í miðborginni á morgun
— Sjá einnig um samkomur
kvenna úti á landi á bls. 21. —
DAGSKRÁ kvennafrfdagsins á
morgun, föstudag, hefur nú verið
ákveðin í einstökum atriðum.
Hún hefst á Lækjartorgi kl. 2
síðdegis, og verður Guðrún
Erlendsdóttir, hrl., formaður
rfkisskipuðu kvennaársnefndar-
innar fundarstjóri en dagskrár-
stjóri verður Guðrún Ásmunds-
dóttir, leikkona.
Dagskráin á Lækjartorgi hefst
með þvf að lúðrasveit kvenna leik-
ur, en að því búnu verður fundur-
inn settur. Þá flytur Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, verkakona,
ávarp en síðan verður fjöldasöng-
ur, „öxar við ána“, undir stjórn
Guðrúnar Á. Símonar, óperu-
söngvara. Þá flytja alþingismenn-
irnir Sigurlaug Bjarnadóttir og
Svava Jakobsdóttir hvatningu fil
fundarmanna en sfðan verður
þáttur Kvenréttindafélags ís-
lands, þar sem kvennakór syngur
m.a. lag Sigfúsar Einarssonar,
„Kvennaslag", við ljóð Guðmund-
ar Guðmundssonar, en þeir höf-
undar tileinkuðu kvenréttinda-
félaginu lag og ljóð.
Síðan mun Björg Einarsdóttir,
verzlunarmaður, flytja ávarp en
að því loknu verður fjöldasöngur
og sungið ljóð Valborgar Bents-
dóttur, „Hvers vegna kvenna-
frí?“, við lagið „Frjálst er f fjalla-
sal“. Þá flytur Ásthildur Ófafs-
dóttir, húsmóðir, ávarp, en næsti
dagskrárliður er „Kvennakrónika
í þríliðu“ sem þær Anna
Framhald á bls. 17.
fulltrúar ráðuneyta, Seðlabanka
og helztu aðila á sviði utanríkis-
verzlunar, en formaður nefndar-
innar er Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðu-
neytinu. Af hálfu Sovétríkjanna
komu 6 menn frá Moskvu til þess-
ara viðræðna en auk þeirra tekur
sovézki verzlunarfulltrúinn hér á
landi þátt í þessari samningagerð
ásamt starfsmönnum sfnum.
Gert er ráð fyrir að samnings-
gerðin muni taka langan tíma og
standa töluvert fram f næstu viku
enda er hér um að ræða stærsta
viðskiptasamning fslands við
nokkurt eitt rfki, þvf að viðskiptin
við Sovétríkin eru um 10—11% af
allri utanrfkisverzlun landsins og
hafa stöðugt farið vaxandi á sið-
ustu árum.
Fyrri samningar við Sovétríkin
hafa jafnan verið í grundvelli
jafnra vöruskipta en hins vegar
hefur hækkun olfuvara þeirra
sem keyptar eru frá So'vétríkjun-
um valdið því á sfðari árum að
þessir greiðsluhættir hafa breytzt
og í«lenzk stjórnvöld hafa orðið
að greiða verulegar fjárhæðir í
frjálsum gjaldeyri. Hefur þetta
leitt til þess að Sovétmenn hafa
lagt til um skeið að viðskipti þjóð-
anna fari fram i frjálsum gjald-
eyri. Má fullvíst telja að hugsan-
leg breyting á greiðslufyrirkomu-
lagi í utanríkisverzluninni milli
landanna muni verða til umræðu
á fundunum hér í Reykjavik.
Lundúna f gær en 1 henni eiga
sæti ráðherrarnir Einar Ágústs-
son og Gunnar Thoroddsen ásamt
Hans G. Ándersen, sendiherra,
alþingismönnunum Guðmundi H.
Garðarssyni og Þórarni Þórarins-
syni auk 'Niels P. Sigurðssonar,
sendiherra tslands f Lundúnum. 1
forsæti brezku viðræðunefndar-
innar verða Roy Hattersley,
aðstoðarutanrfkisráðherra, og
Joseph Bishop, aðstoðarlandbún-
aðar- og fiskimálaráðherra.
Að því er Niels P. Sigurðsson,
sendiherra, tjáði Morgunblaðinu í
gær munu viðræðurnar hefjast kl.
10.30 árdegis f brezka utanríkis-
ráðuneytinu. Hádegisverður
verður snæddur f boði brezku
stjórnarinnar en síðan verður
fundað að nýju sfðdegis. Að
honum loknum verður fjölmenn
móttaka á heimili sendiherrans
og er boðið þangað brezkum ráð-
herrum, samninganefndarmönn-
um, þingmönnum og ýmsum
öðrum.
Áformað er að Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra, hitti brezka
utanrfkisráðherrann, James
Callaghan að máli síðdegis i dag
til viðræðna um hina nýju 200
mflna fiskveiðilögsögu tslands.
A föstudag verður fundur ár-
degis með samninganefndunum
en gert er ráð fyrir að honum
ljúki upp úr hádegi. Búizt er við
þvf að fslenzku ráðherrarnir muni
efna til blaðamannafundar eftir
að viðræðunum lýkur, og eins að
brezku ráðherrarnir f viðræðu-
nefndinni geri slikt hið sama.
I fréttaskeyti Reuter-
fréttastofunnar er það haft eftir
íslenzkum heimildum að Bretar
kunni að verða beðnir um að
draga úr veiðum sínum hér við
land um þriðjung eða jnfnvel
meira og sama fréttastofa segir
forsvarsmenn brezkra togaraeig-
enda ánægða með útkomu gild-
andi samkomulags við Islendinga
og að þeir séu sæmilega bjart-
sýnir um að ná nýjum samning-
um.