Morgunblaðið - 23.10.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.10.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKT0BER 1975 7 Kvennafríið Ragnhildur Helgadóttir, forseti neSri deildar Al- þingis, segir nýlega i viS- tali vi8 Vlsi: „Stundum gleymast mikilvægar staSreyndir I hita umræSna. 24. októ- ber er dagur SameinuSu þjóSanna. StaSreynd er, a8 í mörgum ríkja S.þ. eru konur ótrulegu misrétti beittar. Það er fyrst og fremst til stuSnings þess- um konum og til að greiða þar me8 fyrir framþróun rikja þeirra, sem S.þ. ákváSu að leggja sérstaka áherzlu á málefni kvenna árið 1975. Eitt af þvi sem þarf til að þessi tilgangur S.þ. ná- ist, er að sýnt sé fram á hver sé hlutur kvenna I starfsemi þróaðs þjóðfé- lags. íslenzkar konur úr öllum stjórnmálaflokkum ætla að leggja sitt lóð á metaskálina og sýna fram á þetta með framkvæmd kvennafrisins. Þær ætla lika að minna á, að enn er t istenzku þjóðfélagi, á heimilum og utan þeirra, fjöldi kvennastarfa, sem ekki eru metin sem skyldi." „Á ekki að valda tjóni” „Allur fjöldinn ætlar að vera samtaka um að gera hlé á störfum sinum á sama degi, eftir því sem þeim er unnt og svo lengi dags sem þeim er fært. Engum dettur i hug, að börn eða sjúklingar verði skilin eftir I reiðileysi. Sumar konur taka börnin með á útifundinn, rétt eins og tltt er um útisam- komur, aðrar fela þau um- sjá feðra sinna og enn aðrar hafa af skiljanlegum ástæðum engin tök á að komast frá. Enginn tekur heldur þátt I þessu gegn vilja sinum eins og oft er i verkföllum. enda er þetta ekki verkfall. Mergurinn málsins er þessi: kvennafriinu er ekki ætlað að valda úlfúð við atvinnurekendur né heldur tjóni i þjóðfé- laginu. Þegar er komið i Ijós að fjöldi atvinnu- rekenda sýnir máli þessu skilning og gefur konum fri þennan dag, sumir allan daginn. Að minu mati skiptir það mjög miklu máli, að sem flestir Ragnhildur Helgadóttir sýni slikan skilning. — Ég vona af heilum hug að þessi dagur verði bæði islenzkum körlum og kon- um til sóma og það takist að sýna, hver þáttur kvenna sé i þjóðlifinu." Verðbólgan hefur hægt á sér Verðbólgan hefur nokk- uð hægt á sér siðustu þrjá mánuðina. Vöxtur hennar er nú talinn 30% miðað við 12 mánaða undan- gengið timabil. Hvort þessi bati er varanlegur skal ósagt látið, enda velt- ur það á framvindu ýmissa þjóðlifsþátta, sem erfitt er að segja fyrir um hver verður. Sá órói, sem viða hefur gert vart við sig I þjóðlifinu, og rætur á i gamalkunnum og verð- bólguhvetjandi hags- munastriði þjóðfélagshóp- anna, lofar ekki góðu um framhaldið. Á öllu veltur, hvort má sln meir, yfir- veguð afstaða al- mennings, sem tekur mið af framtiðarhagsmunum heildarinnar, eða skamm- sýn stundarsjónarmið, sem verkað hafa lengi undanfarið eins og olia á dýrtiðarbálið. Á lO ára timabili, 1963—1973, varð raun- veruleg kaupmáttar- aukning launa aðeins einn tólfti hluti krónutölu- hækkunar þeirra. Ellefu af hverjum tólf viðbótar- krónum brunnu á verð- bólgubálinu, sem farið hefur eins og eldur i sinu um verðmætasköpun þjóðarbúsins og kaupgildi launa almennings, ekki sizt sl. tvö ár. Reynslan, sem stundum er dýrkeypt er jafnan ólygnust, ætti að hafa fært okkur þann lærdóm. að þörf er nýrrar afstöðu og aðgerða, ef sagan á ekki að endurtaka sig, jafnvel á enn nei- kvæðari hátt. Verður verðbólguskrið- unni enn hleypt af stað, sami darraðardansinn áfram stiginn, jafnvel fram af hengifluginu? Eða kemur til sögunnar óbrenglað almenningsálit, breiðfylking hinna al- mennu borgara þjóðfé- lagsins, sem knýr fram raunhæfari stefnumörkun á örlagatimum í sögu þjóðarinnar? Hartston hefur tekið forystuna Önnur umferð svæðismótsins í skák var tefld að hótel Esju I fyrrakvöld. Mikill fjöldi áhorf- enda fylgdist með skákunum, eins og á 1. umferðinni, og nú fengu áhorfendur að sjá mun betri taflmennsku. Fyrsta skák- in sem lauk var viðureign þeirra van den Broeck (Belgíu) og Hartston (Engl.). Byrjunin var gamaldags Benoní, sem Hartston þekkir manna bezt. Lengi vel virtist skákin vera í jafnvægi, en í 16. leik urðu Belgíumanninum á afdrifarík mistök er hann lét svörtureita biskup sinn af hendi. Þá var nauðsynlegt að hörfa með biskupinn. Eftir þetta náði Hartston hagstæðum uppskipt- um og batt síðan enda á skákina með snaggaralegri kóngssókn. Hvftt: H. van den Broeck Svart: W. R. Hartston Benonf- I. d4 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. d5 — e5, 4. Rc3 — d6, 5. e4 — Be7, 6. Bd3 — 0-0, 7. h3 — Rbd7, 8. Rf3 — a6, 9. g4 — Re8,10. a4 — g6, II. a4 — g6, 12. Bh6 — Rg7, 13. Re2 — Bd7, 14. 0-0 — Kh8, 15. Rg3 — Rg8, 16. Bxg7? — Kxg7, 17. Kh2 — Bg5, 18. Rxg5 — Dxg5, 19. a5 — Rf6, 20. Hael — h5, 21. f3 — hxg4, 22. hxg4 — Hh8+, 23. Kgl — Hh3, 24. Dg2 — Dh4 og hvítur gaf. Svend Hamann átti í höggi við Laine frá Guerensey og var tefld kóngsindversk vörn. Svo virtist sem Hamann ætti alls kostar við andstæðinginn er honum urðu á mistök og skákin leystist upp i jafntefli eftir lag- lega fléttu Laines. Daninn undi þessum úrslitum hið versta en Laine var kampakátur. Jansa og Timman tefldu Scheveningenafbrigðið af Sikib eyjarvörn og hafði Jansa lengst af þægilegra tafl. Timman varð- ist af öryggi og var -jafntefli samið eftir rúma 20 leiki. Friðrik tefldi hvasst afbrigði af Sikileyjarvörn gegn Birni og eftir JÓN Þ. ÞÓR tókst fljótlega að jafna taflið. Framan af stóð baráttan aðal- lega á miðborðinu, en siðan opnaðist g-línan og komst kóng- ur Björns þá á hættusvæði. Hvítt: Björn Þorsteinsson Svart: Friðrik Ólafsson. Sikileyjarvörn. 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — a6, 5. Rc3 — b5. 6. Bd.3 — Bb7, 7. 0-0 — b4, 8. Rbl — Dc7, 9. c3 — Rf6, 10. Hel — Rc6, 11. Rxc6 — Bxc6, 12. e5 — Rd5, 13. c4 — Re7, 14. Bf4 — f5, 15. Rd2 — Rg6, 16. Bg3 — Be7, 17. f4 — 0-0, 18. De2 — Kh8, 19. De3 — Bb7, 20. Bf2 — d6, 21. Rf3 — Bxf3, 22. gxf3 — Dc6, 23. Hadl — h6, 24. Be2 — dxc5, 25. fxe5 — Had8, 26. f4 — Rh4, 27. Dg3 — g5, 28. Dh3 — gxf4, 29. Bxh4 — Hg8+, 30. Bg3 — Bc5 +, 31. gefið. Arne Zwaig átti í höggi við Parma og beitti afbrigði af spönskum leik, sem fáir nota nú aðrir en norskir meistarar. Parman hafði undirtökin allan timann, en Zwaig varðist vel og þegar jafntefli var samið stóð hann sizt lakar. Hvftt: B. Parma Svart: A. Zwaig Spænskur leikur, 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — b5, 5. Bb3 — Ra5, 6. 0-0 — d6, 7. d4 — f6, 8. Be3 — Rxb3, 9. axb3 -- Bb7, 10. Rc3 — Re7,11. dxe5 — dxe5, — 12. Dc5 — Dc8, 13. Rel — De6, 14. Dd2 — Dc6, 15. b4 — g6, 16. Rd3 — Hd8, 17. Hadl — Hd7, 18. f4 — exf4, 19. Dxf4 — De6, 20. Df2 — Bg7, 21. Rf4 — Df7, 22. Hxd7 — Kxd7, 23. De3 — Kc8, 24. Hdl — Rc6, 25. Dh3 — f5, 26. Rfd5 — Hd8, 27. Hfl — Bd4 + jafntefli. Margir höfðu beðið spenntir eftir þvi að sjá israelska stór- meistarann Liberzon við skák- borðið. Nú var Liberzon mætt- ur til leiks og hafði svart gegn dr. Ostermeyer. Liberzon beitti mjög erfiðu afbrigði kóngsind- verskrar varnar og fékk aldrei jafnað taflið fullkomlega. Skömmu fyrir bið vann þjóð- verjinn peð og hefur það yfir í biðstöðunni. Annar stórmeistari, Z. Ribli, tefldi nú sína fyrstu skák í mót- inu. Hann átti i höggi við Pout- iainen frá Finnlandi. Ribli hafði hvítt og tefldi hefð- bundna Réti byrjun. Framan af var skákin róleg, en skömmu fyrir bið fór að draga til svipt- inga. I biðstöðunni hefur Finn- inn mann yfir, en ekki er annað sjáanlegt en að hann verði að gefa hann aftur og hefur Ribli þá sterkar vinningslikur. Eins og fyrr segir hefur all- mikill fjöldi áhorfenda fylgst með mótinu fram til þessa. Margt er gert til þess að sem bezt fari um áhorfendur, ein skák er sýnd á sjónvarpsskermi í hliðarherbergi, auk þess sem skákir eru skýrðar af þekktum meisturum. Hið eina, sem finna má að er, að sýningartöflin i skáksalnum eru helzt til lítil, þannig að menn sjá ekki nógu vel á þau. Þyrfti Skáksamband- ið að vinda bráðan bug að því að fá stærri veggtöfl. Loks er þess að geta að vínbar er opinn við hliðina á skáksalnum og er það vægast sagt óviðeigandi. Glasagiamur og skákkeppnir fara einhvernveginn svo illa saman. í dag verða tefldar biðskákir, en 4. umferð verður tefld á morgun, föstudag og hefst kl. 17. novi/ FYRIR VIÐRAÐANLEGT Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki á öllum aldri. Novis er skemmtilega einföld og hagkvæm lausn fyrir þö, sem leita að litríkum hillu- og sköpasamstæðum, sem byggja mö upp í einingum, eftir hendinni. | Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ. ÚTSÖLUSTAÐIR: Siglufjörður: Bólsturgerðin Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf. Akureyri: Augsýn hf. J L Húsið Húsavík: Hlynur sf. Híbýlaprýði Selfoss: Kjörhúsgögn Dúna Keflavík: Garðarshólmi hf. Akranes: Verzl. Bjarg Borgarnes: Verzl. Stjarnan FRAMLEIÐANDI: Bolungarvík: Verzl. Virkinn, KRISTiÁN SIGGEIRSSON HF. Bernódus Halldórsson HÚSGAGNAVERKSMIÐJA . Hinn margumtalaöi og vinsæli úlsðlumarkaður vekur athygli é ... . Það koma ávallt nýjar vörur í hverri viku á markaöinn Ótrúlegt vöruúrval á frábærlega lágu verði Látiö ekki happ úr hendi sleppa ATHUGW! Markaðurinn stendur aðeins stuttan tíma jfSmk. TÍZKUVERZLUN unga FOLKSINS fa KARNABÆR Útsölumarkaöurinn, Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.