Morgunblaðið - 23.10.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1975
21
*f ©
Hvað ætlar þú að gera 24. október?
Sigrún Stefánsdóttir, rit-
stjóri Akureyri
Hér er mikil stemning fyrir
þvi að dagurinn verði sem ðnægju-
legastur. Fyrir nokkru var haldinn
fjölmennur fundur og kosin und-
irbúningsnefnd. Hefur nú verið
ákveðið að konur hafi opið hús i
Sjálfstæðishúsinu frð klukkan átta
um morguninn til 18 siðdegis.
Verður dagskráratriði ð hverjum
klukkutima. ávörp. erindi, sögur,
leikþættir tónlistarflutningur og
samfelld dagskrá um konuna i is-
lenzkum bókmenntum, svo að
nokkuð sé nefnt. Starfsmenn
hússins munu sjá um að framreiða
mat og drykk. Ef allar konurnar
samþykkja það verður siðan farið i
göngu um bæinn undir merki
kvennaársins að iokinni siðustu
dagskrá.
Ég veit ekki betur en kennsla i
skólum falli hér að mestu niður og
fáar verzlanir verða opnar. Mikil
þátttaka virðist ætla að vera i
þessum hátiðahöldum og ég geri
mér góðar vonir um að hann takist
sem bezt.
Auður Auðuns, fyrrv.
alþingismaður:
Ég ætla að taka mér fri frá
störfum þennan dag. og vona að
sem flestar konur sjái sér fært að
gera það. Karlmennirnir ð
heimilinu verða þá að sjá um sig
sjálfir. Svo fer maður auðvitað ð
útifundinn, hvernig sem viðrar.
Við skulum láta hann verða fjöl-
mennasta útifund sem hér hefur
verið haldinn, en minnumst þess
jafnframt, að hann og aðrar að-
gerðir á kvennaárinu eru aðeins
fyrstu áfangar i 10 ðra áætlun um
sókn kvenna um viða veröld til
jafnstöðu kynjanna, framþróunar i
þjóðfélögunum og friðar i heimin-
um.
Sigríður Þorvaldsdóttir,
leikkona
Ég sæki vitaskuld fundinn á
Lækjartorgi og legg öll heimilis-
störf ð hilluna. Á minu heimili er
mikil eindrægni um þennan dag.
Engar æfingar eru hjá mér i leik-
Ég ætla sjálf að mæta snemma i
Sjálfstæðishúsið, enda á ég að
vera með stutt erindi á fyrsta
klukkutimanum. Maðurinn minn
ætlar að taka börnin okkar með i
vinnuna, og ýmsir fleiri karlar hafa
nefnt slíkt, hvað sem úr verður, Ef
konur geta ekki komizt að heiman
án þess að taka börn sin með i
Sjálfstæðishúsið er þeim það vit-
anlega velkomið og við reynum að
hafa þar einhver leikföng og
annað til að hafa ofan af fyrir
þeim.
Margrét Einarsdóttir, hús-
móðir:
Ég verð auðvitað I frii frá störf-
um, bæði á vinnustað og heima.
Og ef veðrið verður gott, ætla ég
að taka daginn snemma, fara út
og fara í gönguferð. Síðan ætla ég
auðvitað á útifundinn hvernig sem
viðrar og eftir það hefi ég hugsað
mér að lita inn I einhver af þessi
opnu húsum, sem verða hér f
bænum. Ég vona að þetta verði
stærsti útifundur sem haldinn
hefur verið i Reykjavík.
húsinu þennan dag, svo að það er
sjálfgert að ég verð ekki i þeirri
vinnu. Ég vænti þess að yfirleitt sé
mikill stuðningur við kvennafriið
meðal leikkvenna.
Lovísa Jónsdóttir, hár-
greiðslumeistari
Ég mun vinna á stofunni minni.
en ég hef sagt stúlkunum sem
starfa hjá mér að þeim sé frjálst
að velja hvort þær taka sér frí eða
ekki. Ég er alls ekki á móti þessu
kvennafrii og mér finnst baráttan
fyrir jöfnum rétti eiga fyllsta rétt á
sér. En ég lit svo á að ég reki
fyrirtæki sem þjónar kvenfólki og
þvi ætla ég að vinna. Um hár-
greiðslukonur og afstöðu þeirra
yfirleitt treysti ég mér ekki að tjá
mig, en veit að ýmsir eigendur
hárgreiðslustofa munu vinna.
Bessí Jóhannsdóttir,
kennari
Á þessum degi fer ég venjulega
til kennslu,en ég ætla að taka mér
fri frá störfum. Hins vegar má
segja að erfiðara reynist að taka
fullkomlega fri frá heimilisstörfun-
um. Við eigum 2 börn, 7 ára telpu
og 8 mánaða dreng Eiginmaður-
inn mun væntanlega taka að sér
umsjá þeirra og heimilisins
þennan dag. Ég ætla á útifundinn
og siðan að hitta ýmsar þær konur
sem að þessari aðgerð hafa staðið.
Mikil og almenn þátttaka
— víða samkomur og fundir
MBL. lék hugur á að kanna úti á landi hvort mikill hugur
væri í konum þar að taka sér frí á morgun, föstudag. Hafði
blaðið samband við allmarga fréttaritara sína, svo og aðra
aðila á stöðum úti á landi, sem upplýsingar gáfu, um hvað
konur hefðu þar á prjónunum.
Er sýnt að hvarvetna verður mjög almennt að konur ætla
að taka sér fri. Á ýmsum stöðum verða konur með opið
hús, þar verður skemmti- og fróðleiksefni flutt og úr
nágrannabyggðum Reykjavíkur verða skipulagðar hópferðir
á útifundinn i höfuðborginni.
SIGURÐUR GRlMSSON, FRÉTTA-
RITARI MBL. Á ÍSAFIRÐI, sagði
að þar stæði heilmikið til og væru
menn i hátiðaskapi. Klukkan tiu
hefst dagskráin með leikfimi
kvenna og gufubaði i félagsheimil-
inu i Hnifsdal. f Mánakaffi verður
hádegisverður framreiddur við
vægu verði 00 Þ»r Bytur *»-
Pétursdóttir — : [*url
... menntaskólakennari
oiindi um launakjör rækjukvenna
á Isafirði og er byggt á könnun
sem menntaskólanemar unnu i
fyrra. Klukkan 2.30 hefst svo
samkoma i Alþýðuhúsinu og bera
karlar þar fram kaffi og meðlæti
undir forystu form. Alþýðusam-
bands Vestfjarða. Þarna verður
fluttur leikþáttur, lesiðuppog létt
tónlist flutt. Menntaskólapiltar
hafa boðizt til að annast barna-
gæzlu fyrir konur sem ekki
komast annars að heiman. Um
kvöldið verður sýnd kvikmyndin
„Fjarri heimsins glaumi" og er
það siðasta atriðið.
Á jsafirði er talið að um 80%
kvenna sé útivinnandi og mun
obbinn af þeim leggja niður vinnu.
GRÉTA FRIÐRIKSDÓTTIR Á
REYÐARFIRÐI sagði að mjög al
menn þátttaka væri meðal kvenna
að taka sér fri. Ekki er unnið I fiski
þar nú, en i sláturhúsinu starfa nú
29 konur og munu þær allar taka
sér fri. Þá er sömu sögu að segja
um stúlkur á hóteli staðarins, svo
og þær sem kennslu annast og
vinna við afgreiðslu. Góðar undir-
tektir fengust strsx við hun-- '
ina um kvenn»<-r'*’ -a-uyn -
.—•riiO og var gengio
„•■I með lista til könnunar. Gréta
sagði að þar væri ekki fyrirhugað-
ur fundur, en vel gæti verið að
konur brygðu sér til Neskaup-
staðar, þar sem verður opið hús
fyrir konur á föstudaginn.
MARGRÉT GÍSLADÓTTIR Á
EGILSSTÖÐUM sagðist ekki vita
til að dagskrá yrði, en aftur á móti
væri hugur i konum að leggja
niður vinnu, meðal annars i kaup-
félaginu, svo og á prjónastofu
staðarins.
í HAFNARFIRÐI stóð bandalag
kvenna þar fyrir stofnun starfs-
hóps um kvennafriið og var dreifi-
bréf sent i hvert hús og á flesta
vinnustaði. Fundur hefst á Thors-
plani við Linnetsstig kl. 12.30 og
verða þar flutt þrjú ávörp og
einnig verður fjöldasöngur.
Strætisvagnar verða við höndina
að loknum fundi og munu konur
hugsa sér að fjölmenna á útifund-
inn i Reykjavik. Munu Hafnar-
fjarðarkonur fara úr við Hljóm-
skálann og ganga fylktu liði á
Lækjartorg. f orðsendingu starfs-
hópsins segir að konur séu hvattar
til að gera helgarinnkaupin á
fimmtudaginn og ganga framhjá
þeim búðum, þar sem konur verða
að vera við afgreiðslu á föstudag.
HULDA SIGURBJÖRNSDÓTTIR Á
SAUÐÁRKRÓKI sagði að opið hús
yrði i Bifröst milli kl. 2 —6 og
verður þar flutt dagskrá til
skemmtunar og fróðleiks. Munu
konur úr kaupstaðnum og úr sveit-
unum i kring hafa hug á að fjöl-
menna þangað. Vinna legas* -
i báðum frystihn— niour
unum — -ounum og verzl
. og skrifstofum. Hulda sagði
að ánægja væri með ákvörðun um
fridag fyrir konur og teldu allir
þetta sjálfsagt, bæði karlar og
konur.
JULÍUS ÞÓRÐARSON, FRÉTTA-
RITARI Á AKRANESI, sagði: „Efst
á blaði hér er sjálfsagt sú almenna
þátttaka sem virðist vera i röðum
kvenna að taka sér fri og gera
sér dagamun. Stjórn sambands
borgfirskra kvenna gengst
fyrir ferð kvenna úr upp-
sveitum Borgarfjarðar, úr
Borgarnesi og af Akranesi
tii Reykjavikur með Akraborg
og verður lagt af stað héðan kl.
11.30 f.h. á föstudag. Um borð
verður sungið og spilað. flutt
ávörp og fleira. Siðan mæta kon-
urnar á útifundinn i Reykjavik og
að honum loknum verður farið i
þau opnu hús sem verða I höfuð-
borginni Heim verður lagt af stað
kl. 1 9 og klukkan 20 verður fund-
ur á Akranesi, þar sem fluttur
verður hluti úr dagskrá Háskóla
bíósf undarins, lesið úr verkum
Guðmundar Böðvarssonar og
fluttur Herdisar bragur Ólafsdótt-
ur, sem hún nefnir „Áfram Skaga
menn. Haldið markinu hreinu."
HANSÍNA STEFÁNSDÓTTIR Á
SELFOSSI sagði að fundur væri
fyrirhugaður i Selfossbiói kl.
11.30 fyrir hádegi föstudag.
Verða þar flutt ávörp, leikþáttur
og söngur. Siðan munu þær konur
sem það vilja og geta fara hóp-
íeroir tii Keykjavikur og sækjo jt'
fundinn og hefur verið höfð sam
vinna við konur á FJyrarbakka
Þo°^'SeVr,‘ rtveragerði og i
..okshöfn um ferðina. Er og
vonast eftir þátttöku kvenna úr
nágrannasveitunum. Fyrir þær
sem ekki fara til Reykjavikur verð-
ur opið hús i Tryggvaskála.
Hansina sagði þátttöku góða, ekk-
ert verður t.d. unnið i Mjólkurbúi
Flóamanna, Landsbankanum og
Kf. Höfn. Prjónastofa Selfoss.
bakari og fleira verður allt lokað
PÁLL ÁGÚSTSSON, FRÉITARIT-
ARI Á PATREKSFIRÐI, sagði að
konur myndu almennt leggja nið-
ur vinnu, i báðum frystihúsunum
og eins kvenkennarar staðarins
Óvist væri með verzlunar- og
skrifstofufólk, en einhugur virtist
með konum um að þátttakan
þyrfti að verða sem viðtækust.
ELÍAS JÓNSSON, FRÉTTARITARI
HÖFN j HORNAFIRÐI, sagði að
þar hefðu konur á ýmsum vinnu-
stöðum tekið sig saman um að
undirbúa daginn. Hefðu konurnar
fengið ókeypis afnot af félags-
heimilinu Sindrabæ og verður þar
opið hús kl. 10—7 og flutt þar
dagskrá. Kynningarbréf var sent
um ptássið og sagði Elias að þátt-
taka virtist vera mjög almenn.
ÁSGEIR LÁRUSSON, FRÉTTARIT-
ARI Á NESKAUPSTAÐ, staði að
mikil samstaða væri meðal
kvenna um að taka sér fri og
verður að loka ýmsum vinnustöð
um þennan dag þess vegna, m.a.
verður ekki unnið i frystihúsinu og
kaupfélagið mun loka alveg. Þá er
fyrirhugað að koma saman i
félagsheimili staðarins og vera þar
með ávörp og ýmislegt fleira •!l
f róðleiks og afbre-1-
. .-ringar.
MRNDÍS TÓMASDÓTTIR í
NJARÐVÍKUM sagði að kvenna
félög sunnan Hafnarfjarðar hefðu
tekið sig saman og ætluðu að
halda samkomu i Stapa að kvöldi
kvennadagsins. Hefur Stapi verið
lánaður endurgjaldslaust til þessa.
Verður þar borinn fram kvöldverð-
ur og sjálfboðaliðar úr hópi karla
sjá um matargerð. framreiðslu.
dyravörzlu og annað sem að þvi
lýtur. Verða flutt ávörp, Ijóð og lag
kvennadagsins flutt, leikþáttur,
söngur kvenna úr kvennakór
Suðurnesja, gamanvisur, happ
drætti og margt fleira. Fyrr um
daginn eða kl. 1 er hópferð frá
Bifreiðastöð Keflavikur á útifund
inn í Reykjavik og kvaðst Arndis
búast við ágætri þátttöku Þá er
mjög almennur einhugúr kvenna á
öllum stöðum á Suðurnesjum að
leggja niður vinnu þennan dag, að
sögn Arndisar
KRISTJANA ÁGÚSTSDÓTTIR,
FRÉTTARITARI í BUÐARDAL
sagði að þar væri áhugi meðal
kvenna að leggja niður vinnu.
Stúlkur i kaupfélaginu svo og hjá
pósti og sima munu ekki mæta til
vinnu og á Laugum i Hvammssveit
fellur kennsla niður þennan dag.
Hvort konur muni leggja niður
vinnu á heimilunum sagðist
Kristjana ekki getað tjáð sig um.
en jákvæður tónn væri meðal
kvenna varðandi friið.