Morgunblaðið - 23.10.1975, Síða 25

Morgunblaðið - 23.10.1975, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKT0BER 1975 25 — Þá eru stjórn- málamenn Framhald af bls. 24 hefur verið við lýði siðustu áratugina og með því að það er ríkur þáttur í fjármögn- un íbúðarhúsabygginga, hefur beiting þess haft úrslitaáhrif á þróun þessara mála i fram- kvæmd. Sá þáttur er ein sorg- arsagan til, þótt öðru vísi væri til stofnað i upphafi. Er hann reyndar svo flókinn, að hon- um verða ekki gerð skil hér, nema að litlu leyti. I fyrsta lagi voru lánareglur lengst af og eru enn mest megnis sniðnar við handverk eða eins konar heimilisiðnað. Það er lánað út á hvern íbúðarbyggjanda út af fyrir sig. Þetta hefur staðið í vegi fyrir tækniframförum í smáu sem stóru. Á síðustu árum hefur að- eins ræst úr þessu með úthlutun svokallaðra framkvæmdalána, en þau hafa ekki náð að hafa nein úrslitaáhrif, bæði vegna þeirra takmarkana, sem þau eru háð, og vegna þess að undirstöðuatriðin eru í þeim ólestri, sem þau eru og áður er getið. í öðru lagi hefur ekki í alvöru verið stuðlað að samræmingu í fjármögnun, t.d. með samvinnu við lífeyrissjóði og banka. í þriðja lagi hefur lánakerfinu í engu verið beitt sem hvata að hagkvæmum framkvæmdum með mismunandi lánaupphæð í sam- ræmi við byggingarkostnað. Jafn- framt allt of lftið til nýtingar á eldra húsnæði. í fjórða lagi hefur útborgun lána ekki verið i neinu samræmi við gang byggingaframkvæmda, nema það litla, sem heyrir til framkvæmdalánum. Útborgunin hefur verið i of stórum summum og allt of óörugg að tíma til. Þetta hefur valdið ringulreið og verið undirrót stórfelldra yfirborgana og skattsvika, þegar hundruðum milljóna hefur verið veitt til framkvæmda á einu bretti, jafnt við þensluástand og samdrátt. Margt fleira mætti nefna um beitingu lánakerfisins, en þetta læt ég nægja að sinni. í sama knérunn, þ.e. að stuðla að handverki og módelsmíði, er höggvið með verðlagningu á vinnu iðnaðarmanna í viðkom- andi iðngreinum og innheimtu söluskatts af fjöldaframleiðslm byggingareininga, sem nemur að- eins 20%, eins og kunnugt er. MEINVALDURINN Áður í þessari grein sagði ég, að löggjöfin um þessi mál væri full- nægjandi. Ég þykist geta staðið við það þótt ýmislegt megi þar færa til enn betri vegar. En lög- gjöf er lítilsvirði, sé henni ekki fylgt fram. Og það er mergurinn málsins í þessu tilfelli. Framkvæmd þeirra laga og reglugerða, sem um er að ræða, hefur verið og er í megnasta ólestri. Endurskoðun laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins, sem nú hefur verið tilkynnt, er því innantóm aðgerð í sjálfu sér, þótt hún sé alveg vafalaust vel meint. Nú geri ég mér fulla grein fyrir því að ádeila af þvf tagi, sem ég hef lagt hér fram, fellur ekki í góðan jarðveg hjá þeim embættis- mönnum, sem sagt er til synd- anna. Þó el ég þá von í brjósti, að málflutningur minn og annað það sem dregið hefur verið fram í dagsljósið að undanförnu um sömu mál, megni að hrífa hús- næðis- og byggingarmálin úr þeirri óhugnanlegu sjálfheldu, sem þau eru í. Það er enginn verri þótt hann vökni, segir máltækið. Og þótt mönnum í ábyrgðarmikl- um embættum hafi mistekist, er þeim ekki meiri voði búinn, þótt þeir taki sig á. Nei, alls ekki. Þeir hafa einfaldlega allt að vinna, engu að tapa. Og sökin er í raun og veru alls ekki þessara manna. Það eru póli- tískir, kjörnir fulltrúar, sem ábyrgðin hrín á, þegar öllu er á botninn hvolft. Þetta er því spurning um það, hvort stjórn- málaforingjar þjóðarinnar sjá skóginn fyrir trjánum — eður ei. buröar- fólk Austurbær Uthverfi Miðbær Kambsvegur Vesturbær Melabraut Uppl. í síma 35408 Séð og heyrt Framhald af bls. 19 undur heimsins. Yfirgripsmikil sérfræði gerir manninn margefldan, það vita allir, en hitt er jafnvíst að hún byggir ýmsu út, þrengir hugs- anagang manna meira en góðu hófi gegnir. Hugboðsvitund ræktast ekki lengur með mönn- um, í hennar stað reikna þeir og reikna og oft skakkt. Og sumt er ekki hægt að reikna, aðeins geta sér til um, og það er upphaf stærðfræði. Nútímauppfærslan á Volpone var smellin, Rex Harrison var aldrei leiðinlegur, en siðfræð- in í myndinni, ef siðfræði skal kalla, hefur áreiðanlega reynst vangæfum tormelt. Vordraumur var þunnur í roðinu, og það svo að Ingrid Bergmann og Anthony Quinn breyttu þar engu um. Þessar rullur hafa þau leikið með peningana eina að markmiði. Vaka var allrar athygli verð. Við vitum nú hvernig umhorfs er uppi í Megasi. Þetta mega tannlæknarnir hafa. Ölafur Haukur rak lestina. Nú ríður á að Ieggjast flatur fyrir goluþyt að utan. Hnífar hér og hnifar þar, hnífar milli fótanna á kvenfólkinu, í handarkrikunum, hnifar alstaðar. Hnifar, hnífar. Fleiri hnifa, Ölafur. Það er þetta sem okkur vantar. Bezti eftirmaturinn 1/2 lítri köld mjólk 1 RÖYAL búðingspakki. Hrcerið saman. Tilbúið eftir 5 mínútur. Súkkulaði karamellu vanillu jarðarberja sítrónu. AlKa.VSIN'Í.ASIMINN Kli: 2248D JRorflimbhiíiit) iimi Gerið verðsamanburð Kaffi 1 /4 kg. 1 1 5 kr. Ljóma smjörlíki 1/2 kg. 1 25 kr. Flórsykur 1 Ibs. 105 kr. River hrísgrjón 91 kr. Libby's tómatssósa 146 kr. Cheerios 1 45 kr. Snak Corn Flakes 500 gr. 1 92 kr. Jakobs tekex 84 kr. Fiesta eldhúsrúllur 203 kr. Regin WC pappír 24 rl. 1 288 kr. Vex 3 kg. 567 kr. Dixan 10 kg. 3.740 kr. Opið til kl. 1 0 föstudag Opið til kl. 12 laugardag. >\* tl ^■lilÉlllltlÉÞIHimilllllN vlV*. ÍV I Armul* 1A Huiytjm og h«imili«d S 86 112 Matvorud««ld S 86 111 Vefnfeftarv d S 86 1 1 3 Verkfræðingar — Tæknif ræðingar Kynningin á hitastillitækjum og notkun þeirra er í sam- komusal okkar að Seljavegi 2 í dag kl. 16.00. Vélsmiðjan HEÐINN h.f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.