Morgunblaðið - 23.10.1975, Side 36

Morgunblaðið - 23.10.1975, Side 36
TRDPICANA ■ sólargeislinn frá Florida /f^X SILFUR- (nf )! SKEIFAN U U BORÐSMJÖRLÍKI SMJÖRLÍKIÐ SEM ALLIR ÞEKKJA FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1975 Róðrastöðvun við Suður-, Vest- ur- og vestanvert Norðurland — Sjómenn á Norðausturlandi og Austurlandi tóku ekki þátt í mótmælunum gegn fiskverðinu DAllD A CTÖIH/IIM clrínvario 4 f iclr íclrínaf Inlonnm f ró A Irnrovrí voctnr nm I anH t\tr hrinoinn allt qA II ii RÓÐRASTÖÐVUN skipverja á fiskiskipaflotanum, frá Akureyri vestur um land og hringinn allt að Höfn í Hornafirði, virðist nær undantekningalaust algjört — að þvf er Mbl. hafði spurnir af f gær,. Hins vegar taka sjómenn, sem landa á Norðausturlandi og Austfjörðum, ekki þátt f stöðvun flotans. Kröfur sjómannanna eru, eins og fram kom í blaðinu f gær, að gildi taki nýtt fiskverð og mótmæli við það verð, sem Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvað, svo og mótmæli við sjóðakerfi sjávarútvegsins og krafa um að það verði lagt niður. Þó leggja menn misjafnt upp úr þessum kröfum. Vcstfirzkir sjómenn samþykktu t.d. að halda verði Verðlagsráðsins, en krefjast afnáms sjóðakerfisins. Fjöldi skipa var f öllum höfnum og Iágu skipin bundin við bryggjur og voru að tfnast inn fram eftir degi f gær á áðurnefndu svæði. t gærkveldi tilkynnti t.d. Svalbakur, einn af togurum Útgerðarfélags Akureyringa h.f., að hann væri að koma inn og jafnframt allir aðrir togarar félagsins. Svalbakur fór á veiðar í fyrradag. Þá höfðu Grindvfkingar rætt um það f gær að allur floti þeirra, 30 til 40 skip frá 20 rúmlestir og upp úr, sigldi til Reykjavfkur í mótmælaskyni, en ekki hafði orðið úr því f gærkveldi. Morgunblaðinu var kunnugt um fimm togskip að veiðum út af Austfjörðum og 4—5 minni báta en ekki tókst að násambandi við skipsstjórnarmenn þeirra til að spyrja hvað ylli því að þeir hefðu ekki samstöðu með skipstjórnarmönnum fiskiskipa annarsstaðar f landinu. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Verðlagsráði sjávarútvegsins, sem samþykkti verðákvörðun samhljóða, er ákvörðunin óupp- segjanleg og óumbreytanleg að lögum og því ekki unnt að breyta verðinu nema með breytingu á lögum ráðsins eða að Alþingi ákveði nýtt verð'. Fréttatilkynn- ing frá Verðlagsráði er birt á öðr- um stað f Mbl. í dag. Þá vinnur nú stjórnskipuð nefnd að því að endurskoða sjóðakerfi sjávarút- vegsins og samkvæmt skipunar- bréfi hennar á hún að hafa lokið störfum fyrir 1. desember — eins og krafa sjómannanna segir. Virðist mál þetta því vera í hinum alvarlegasta hnút. Byrjað að borga út námslánin VERIÐ ER að hefja útborgun námslána nú þessa dagana, að því er Sigurjón Valdimarsson, framkvæmdastjóri LlN, tjáði Morgunblaðinu f gær. Búið er að senda út tilkynningu um lánin til námsmanna eða um- boðsmanna þeirra og að vanda mun veðdeild Landsbankans annast afgreiðslu lánanna fyr- ir Lánasjóðinn. Námsmenn er- lendis verða afgreiddir fyrst en námsmenn hér heima sfðan strax í kjölfarið. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við fréttaritara sína um- hverfis land allt til þess að spyrj- ast fyrir um viðbrögð við málaleit- an samstarfshóps yfir- og undir- mannanna, sem upptökin áttu að mótmælum sjómannanna. Fréttir fréttaritaranna vegna þessa máls fara hér á eftir. Grindavík Guðfinnur Bergsson, fréttarit- ari Mbl., sagði að þar væri algjör samstaða meðal sjómanna um mótmælin. Þrír Grindavíkurbátar hefðu þegar í gærmorgun haldið inn til Reykjavíkur og væru þar f mótmælaskyni. Eru það Hrafn III, Þórir og Þórkatla II. 30 til 40 bátar lágu í höfninni í Grindavik og biðu eftir kalli frá bátunum þremur i Reykjavíkurhöfn, þann- ig að ef þeim sýndust mótmælin ekki bera árangur ætluðu bát- arnir allir að sigla til Reykjavíkur og raða sér i höfnina þar. Sandgerði Megnið af flota Sandgerðinga fór til Reykjavíkur í fyrrinótt í mótmælaskyni, 7 til 8 togbátar, og sumir voru á leiðinni til Reykja- víkur. Þrír trollbátar voru þó enn í Sandgerðishöfn í gær. I Sand- gerði var algjör samstaða meðal sjómanna um mótmælin, en alls sagði Jón Júlíusson, fréttaritari Mbl., að 21 bátur væri nú gerður út frá Sandgerði. Keflavfk Um 30 bátar lágu í gær í Njarð- víkurhöfn og Keflavíkurhöfn og 2 til 3 bátar höfðu þegar haldið til Reykjavikur. Almenn samstaða mun vera í Keflavík um mót- mælin, en þó sagði Heimir Stfgs- son, fréttaritari Mbl., að ekki væri vitað hvort bræla hefði áhrif á einhverja og hún væri ástæðan fyrir landlegu. Þó var að birta til f gærkveldi og ef linu- og netabátar héldu ekki á sjó i gærkveldi mátti búast við þvi að það væri vegna mótmæla. Hafnarf jörður Öskar Vigfússon í Hafnarfirði sagði, að flestir Hafnarfjarðarbát- ar væru komnir í höfn, og togar- inn Júní sem hefði átt að fara úr höfn eftir hádegi hefði hætt við Framhald á bls. 20 Frá útifundi námsmanna ð Auturvelli I gærdag, sem haidinn var undir kjörorðinu „Efnahagslegt jafnrétti til náms“. Ljósmynd Mbl. Ól. K. M. „Vænti nýrra laga um námslán fyrir jól — sagði forsætisráðherra eftir útifund námsmanna á Austurvelli FJÖLDI námsmanna mætti á úti- fundinum, sem Kjarabaráttu- nefnd þeirra gekkst fyrir á Aust- urvelli f gær og að sögn tals- manna námsmanna voru um 4—5000 manns á fundinum, en lögreglan telur að fundarmenn hafi verið 3—4000. Þeir skólar sem stóðu að útifundinum eru: Fóstruskólinn, Fiskverkunarskól- inn, Kennaraháskólinn, Iðnskól- inn, Háskólinn, Tækniskólinn, Stýrimannaskólinn, Vélskólinn, Handfða- og myndlistarskólinn og SINE (samband fslenzkra náms- manna erlendis). Ræðumenn á fundinum fjölluðu vítt og breitt um kjör og stöðu námsmanna og mótmæltu þeim þrengingum sem legðust á námsmenn með skertum náms- lánum. Voru ræðumenn gagn- rýnir og einn þeirra Gestur Guðmundsson, gagnrýndi m.a. Morgunblaðið fyrir að hafa sagt í leiðara að námsmenn yrðu að taka Fiskverð hefur hækkað um 33,5% frá síðustu áramótum — Verðákvörðun óumbreytanleg, nema með lögum frá Alþingi VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins og sjávarútvegsráðuneytið gáfu f gær út sína fréttatilkynninguna hvort um mótmæli sjómanna við verðákvörðun Verðlagsráðsins og segir Verðlagsráðið m.a., að ákvörðunin sé óuppsegjanleg af hálfu seljenda og kaupenda og verði ekki breytt nema með lög- um frá Alþingi. Ennfremur segir, að vegna markaðsaðstæðna hafi ekki verið nánast nokkurt svig- rúm til fiskverðshækkana og allt þetta ár hafi verðið byggzt á inn- stæðum f Verðjöfnunarsjóði. Ráðuneytið bendir á f sinni til- kynningu, að fiskverð hafi frá áramótum hækkað um 33,5%, sem sé meiri hækkun en átt hafi sér stað f almennum kauptöxtum f landinu á sama tfmabili og þetta nýja verð hafi fengizt með þvf að rfkissjóður ábyrgðist greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði, þar sem hækkunin hafi verið umfram greiðslugetu sjóðsins. Fréttatilkynningar þessar fara hér á eftir, fyrst tilkynning Verð- lagsráðs, en sfðan tilkynning sjávarútvegsráðuneytisins: „í tilefni mótmæla og umræðna um síðustu fiskverðsákvörðun vill yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins taka fram eftirfarandi: 1. öll atriði verðákvörðunar, þ.á m. stærðarmörk, voru gerð samhljóða af fulltrúum kaupenda og seljenda. 2. Verðákvörðunin er gerð sam- kvæmt lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins og gildir fyrir tímabilið 1. október til 31. desember n.k. 3. Verðákvörðunin er óupp- segjanleg af hálfu seljenda og kaupenda og verður ekki breytt nema með lögum frá Alþingi, sem annaðnvort þýðir breytingu á lög- um um Verðlagsráð eða Alþingi ákveði sjálft nýtt fiskverð fyrir umrætt verðtimabil. 4. Vegna markaðsaðstæðna var svigrúm yfirnefndar til fiskverðs- hækkana nánast ekkert við þessa verðákvörðun. Allt þetta ár hefur fiskverð byggzt á innstæðum i Verðjöfnunarsjóði. Við lok síð- asta verðtímabils var innstæðan til þurrðar gengin. Fiskverð fyrir Framhald á bls. 17. á sig fjárhagslegar byrðar eins og aðrir landsmenn þegar illa áraði. Einnig kom á fundinn hópur menntaskólanema og fundinum bárust fjölmargar baráttu- kveðjur. Nokkrir fundarmenn gengu undir raúðum fáun. Að loknum fundinum var Geir Hall- grímssyni forsætisráðherra afhent samþykkt fundarins og kom Geir út á tröppur Alþingis- hússins og veifaði til fundar- manna i kveðjuskyni. Síðdegis í gær dreifði hópur fundarmanna bréfi á nokkrum vinnustöðum f Reykjavík til þess að kynna málstað sinn. í næstu viku er gert ráð fyrir að halda fund með námsmönnum og mennta- og fjármálaráðherra á Hótel Sögu þar sem málin verða þá væntanlega rædd. Geir Hallgrimsson forsætisráð- herra sagði í gærkvöldi um kröfur námsmanna að hann tæki undir kröfur þeirra um jafnrétti til náms og kvað hann ríkisstjórnina styðja þær kröfur. Þá gat forsæt- isráðherra þess að nú væri verið að semja ný lög um námslán, þvi gildandi lög væru úr sér gengin. Kvað hann unnið að þvi að þessi lög yrðu afgreidd á Alþingi fyrir jól, en forsætisráðherra kvaðst vilja taka það skýrt fram að á meðan efnahagsástandið væri eins og það er, yrðu námsmenn sem og aðrir landsmenn að búast við þvi að það kæmi einhvers- staðar niður úr þvi að við yrðum og vildum standa á eigin fótum. Á bls. 2 er birt fréttatilkynning til Morgunblaðsins frá útifundi námsmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.