Morgunblaðið - 07.11.1975, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1975
I
I Morgunblaðinu sunnudaginn 2.
nóvember birtist löng ritsmlð eftir
Árna Grétar Finnsson, fasteignasala
og bæjarráðsmann I Hafnarfirði. Ber
þessi grein yfirskriftina „Málefni
þroskaheftra barna I Hafnar-
firði". Kemur þó fljótt I Ijós við
lesturinn að ýmislegt annað er ofar I
huga höfundar við samsetningu
áðurnefndrar greinar en fyrirsögnin
gefur til kynna. Tilefni þessarar
löngu blaðagreinar er frásögn I
Tímanum hinn 31. október s.l., en
þar var fjallað um fyrirhuguð kaup
Lionsmanna I Hafnarfirði með stuðn-
ingi Kvenfélagsins Hringsins og For-
eldrafélags þroskaheftra barna á við-
jagasjóðshúsi I Norðurbænum I
narnartirði, sem félögin hugðust
nota til Ifknar fyrir þroskaheft börn I
bænum. Er Lionsmenn hugðust
ganga frá kaupunum hafði Viðlaga-
sjóður selt húsið utanbæjarfólki og
óskaði Lionsklúbburinn þá eftir þvl,
að Hafnarfjarðarbær neytti forkaups-
réttar slns, svo að húsið fengist til
fyrirhugaðra afnota. Rétt er að taka
fram, að Hafnarfjarðarbær á að sjálf-
sögðu forkaupsrétt að þeim fasteign-
um, sem seldar eru I bænum. Hófust
nú bréfaskriftir þar sem hvorir báru
aðra sökum, starfsmenn Viðlaga-
sjóðs og Lionsmenn. Blaðamaður
Tlmans leitaði frétta hjá mér varð-
andi mál þetta og gaf ég honum I
stuttu máli þær upplýsingar, sem ég
sannastar vissi. Grein Árna Grétar
Finnssonar gefur tilefni til að rekja
þetta mál ýtarlegar.
II.
Kunnur islenzkur kennimaður
komst svo að orði I ævisögu sinni.
„að miklu mætti Ijúga með þögn-
inni". Hér átti hann við þann frá-
sagnarmáta að segja þann hluta
sannleikans er hentar hverju sinni,
en þegja sem fastast yfir hinum í
grein Árna Grétars er þessari frá-
sagnartækni fylgt, þar sem farið er
satt með. Birt er greinargerð frá
skrifstofustjóra Viðlagasjóðs óstytt
og starfsmenn Viðlagasjóðs nefndir
hlutlausir aðilar. Hinsvegar er birt
stutt tilvitnun I eitt af þremur bréf-
um Lionsmanna og setning í þeirri
tilvitnun Árna Grétars er úrbréfi þvl
þar sem Lionsmenn draga til baka
ósk slna um að bærinn neyti for-
kaupsréttar og er þannig:
„Hringskonur og Lionsmenn hafa
rætt þetta mál sln á milli með tilliti
til bókunar bæjarráðs frá framan
greindum fundi þess. í þeim við-
ræðum kom fram, að ekki væri það
vænlegt fyrir félögin að verða þess
valdandi að kaupendur hússins yrðu
bornir út." Hér llkur tilvitnun Árna
Grétars, en setningunni I bréfi Lions-
manna líkur hinsvegar þannig, „yrðu
bornir út, þar sem segja má, að þau
yrðu þolendur svika Viðlagasjóðs að
ósekju "
f deilum jafn hörðum og þeim, sem
fram hafa farið milli fulltrúa Viðlaga-
sjóðs annars vegar og fulltrúa Lions-
klúbbs Hafnarfjarðar hinsvegar er
furðulegt, að greinarhöfundur skuli
leyfa sér að kveða upp þann dóm, að
annar aðilinn sé „hlutlaus". Þarmeð
hlýtur hinn málsaðilinn sem sagt
Lionsmenn eða fulltrúi þeirra, séra
Bragi Benediktsson félagsmálastjóri
að vera sá aðilinn, sem sökina ber.
Framkoma Árna Grétars gagnvart
séra Braga er raunar alveg furðuleg
ef marka má frásögnina I tfttnefndri
grein en þar segir orðrétt: „Ungu
hjónin báðu mig nú að hringja fyrir
sig f Viðlagasjóð, hvað ég gerði. I þvf
sfmtali tjáði viðmælandi minn hjá
Viðlagasjóði mér það sama sem sagt
það, að húsið væri frátekið fyrir
Hafnarf jarðarbæ, sem ætlaði að
starfrækja þar barnaheimili og enn-
fremur að heimilið ætti að vera fyrir
þroskaheft börn. Sagði hann mér, að
stjórn félagsmála bæjarins hefði
látið taka húsið frá fyrir Hafnar-
fjarðarbæ. Undrun mfn varð ekki
minni, þegar ég heyrði nafn þessa
starfsmanns bæjarins getið f þessu
sambandi, þar sem hann hafði aldrei
minnzt á þessi húsakaup við bæjar-
yfirvöld." Hvaða álit hefur Árni
Grétar Finnsson á séra Braga. Er
sennilegt að hann láti taka frá hús
fyrir þroskaheft börn svona rétt sér
til dægrastyttingar og án þess að þar
búi neitt að baki? En bæjarráðs-
maðurinn lætur að eigin sögn ekki
svo Iftið að ræða við séra Braga og
spyrja hann um málavexti, sem
hefðu þó átt að vera hæg heimatök.
Segir þetta sfna sögu.
III.
Með þvf að Árni Grétar hefur birt
sfðasta bréf starfsmanna Viðlaga-
sjóðs I grein sinni óstytt og lýst það
„yfirlýsingu hlutlauss aðila" þykir
mér rétt að biita hér þau bréf önnur,
sem bárust bæjarráði Hf. vegna
þessa máls, bæði frá fulltrúum
Lionsklúbbsins og Viðlagasjóðs.
1. Bréf Braga Bened. f.h. Lions-
klúbbs Hf., dags 1/7 '75.
2. Bréf Þorgeirs Halldórssonar f.h.
Viðlagasjóðs. dags. 30/9 '75.
3. Bréf Braga Benediktssonar, dags.
9/10 '75
4. Bréf Lionsklúbbs Hafnarfjarðar
og Kvenfélagsins Hringsins,
dags. 8/10 '75.
5. Bréf Lionsklúbbs Hafnarfjarðar,
dags. 14/10 '75
Sfðasta bréf Lionsmanna barst inn
á bæjarstjórnarfund hinn 14.
október, en þar höfðu þeir eins og
sjá má skipt algerlega um skoðun,
frá þvf, sem fram kom f bréfi þeirra,
dagsettu 6 dögum áður, voru brostn-
ar forsendur fyrir tillögu minni og
Árna Gunnlaugssonar um að Hafnar-
fjarðarbær neytti forkaupsréttar að
tfttnefndu húsi og drógum við hana
þvf til baka. Frásögn Árna Gretars af
þessum fundi er með endemum. Það
er rétt. að einn bæjarfulltrúi rang-
færði orð mfn þar á furðulegasta
máta, einkum þar eð sá bæjarfulltrúi
kennir sig gfarnan við drengskap og
heiðarleika, og sagði hann þar
að ég teldi þroskaheft börn
annars flokks, en ummæli
mfn höfðu öll gengið i aðra átt.
Ég vil geta þess, að bæjar-
fulltrúi Guðmundur Guðmunds-
son, sem er jafnan málefna-
legur og drengilegur f umræðum.
leiðrétti þessa missögn á fundinum,
þótt hann væri mér ósammála þar
um aðra hluti. Einnig má geta þess
að Árni Grétar var sjálfur ekki
mættur á þessum bæjarstjórnarfundi
og hefur þvf þessa frásögn eftir
„maður sagði mér" heimild.
IV.
Nú er rétt að vfkja að þeim þætti
málsins, sem orðið hefur Árna Grét-
ari til svo mikillar pennagleði, sem
raun ber vitni. Er taka skyldi ákvörð-
un um, hvort Hafnarf jarðarbær
skyldi neyta forkaupsréttar sfns að
Heiðvangi 26. vildi ég kanna allar
hliðar málsins sem bezt og átti
meðal annars sfmtal við Þorgeir Hall-
dórsson, sölumann hjá Viðlagasjóði.
Hann tjáði mér, að Lionsmönnum f
Hafnarfirði hefði verið settur frestur
til að gera út um kaupin. en þeir virt
hann að vettugi. Auk þess hefði Árni
Grétar Finnsson, bæjarráðsmaður f
Hafnarfirði. gefið viðlagasjóðs-
mönnum þær upplýsingar að Hafnar-
fjarðarbær ætlaði þroskaheftum
börnum dagheimilispláss f nýrri
byggingu, sem verið væri að reisa.
Þessar upplýsingar gaf Þorgeir Hall-
dórsson mér f óspurðum fréttum f
sfma Viðlagasjóðs f skrifstofutfma
þar. Hann staðfesti sfðan þessa frá-
sögn f öðru samtali og kvaðst reiðu-
búinn að standa við hana hvar sem
væri og hvenær sem væri. f fram-
haldi af þessu sendi ég honum þvf
eftirfarandi bréf:
Hr. sölumaður
Þorgeir Halldórsson
c/o Viðlagasjóður
Vegna samræðna okkar varðandi
sölu á húsinu Heiðvangi 26 f Hafnar-
firði og umræðna á fundi f Bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar hinn 14. þessa
mánaðar um sölu áðurnefnds húss,
óska ég vinsamlegast svars við eftir-
farandi:
Rak Árni Grétar Finnsson, hæsta-
réttarlögmaður og bæjarráðsmaður i
Hafnarfirði, erindi ungu hjónanna,
sem fengu áðurnefnt hús keypt, við
Viðlagasjóð og gaf hann starfs-
mönnum Viðlagasjóðs einhverjar
upplýsingar um, að þegar hefði verið
séð fyrir þeirri húsnæðisþörf þroska-
heftra barna, sem Lionsmenn ætluðu
húsið fyrir. á annan hátt og f öðru
húsnæði? Sé svo, hverjar voru þá
þær upplýsingar.
Er mig tók að lengja eftir svari við
þessu bréfi, hringdi ég til Þorgeirs og
spurði hann, hvenær hann hygðist
senda mér svar. Hann var þá daufur f
dálkinn og bað mig að tala við skrif-
stofustjórann, Braga Björnsson. en
sá tjáði mér f stuttu máli sagt. að
áðurnefndu bréfi yrði ekki svarað
með sfnu leyfi. Ég spurði, hvort hann
vildi þannig meina Þorgeiri Halldórs-
syni að standa við orð sfn, en hann
kvað málið útrætt af sinni hálfu.
Væri ég nú að hafa rangt við eftir
Þortjeiri, hefði hann að sjálfsögðu
svarað bréfinu f samræmi við það, og
ekki verður þvf trúað að óreyndu að
hann hafi ekki þann drengskap til að
bera að standa við orð sfn, ef á
reynir. Árni Grétar segir, að ég geti
hvergi fundið orðum mfnum stað og
er það furðulega mælt, þar sem for-
maður Viðlagasjóðs, Helgi Bergs,
hefur lýst þvf yfir, að starfsmenn
Viðlagasjóðs hafi tjáð sér, að Árni
Grétar Finnsson bæjarfulltrúi hafi upp-
lýst, að þarfir dagheimilis fyrir þroska-
heft börn hefðu verið leystar I öðru
húsnæði. Tel ég mig ekki þurfa frekari
sannanir.
Niðurstöðurnar af grein Á.G.F. eru
f stuttu máli þessar:
1. Árni Grétar átti samtal við starfs-
menn Viðlagasjóðs og gaf þeim
upplýsingar þó að þeim upp-
lýsingum beri eftir hans eigin frá-
sögn ekki saman við þær upp-
lýsingar, sem ég fékk þar um.
2. Árna Grétari var kunnugt um, að
séra Bragi Benediktsson hafði
látið taka áðurnefnt hús frá til
Ifknar fyrir þroskaheft börn, en
hirti ekki um að kanna það mál
nánar.
3 Slðan var húsið selt umbjóð-
endum Á.G.F.
Nú kann einhver að spyrja. Er hér
ekki um „Hafnfirzka innansveitar-
króniku" að ræða og á hún nokkurt
erindi I landsmálablöð. Þessu vil ég
svara þannig:
Viðlagasjóður er opinber stofnun
og störf og yfirlýsingar embættis-
manná þar sem slfkra koma öllum
almenningi við. Og gefi fulltrúi,
kosinn til þýðingarmikilla trúnaðar-
starfa, upplýsingar, sem marktækar
þykja vegna stöðu hans og þær upp-
lýsingar gera sfðan gæfumun fyrir
hóp einstaklinga, sem ekki getur
sjálfur barizt fyrir rétti sfnum, er
engin ástæða til að þögnin ein geymi
slfkt.
Að lokum vil ég óska þess, að
bæjaryfirvöld I Hafnarfirði beri gæfu
til þess að veita Lionsmönnum,
Hringskonum og Foreldrafélagi
þroskaheftra barna öflugan stuðn-
ing, ekki aðeins I prði heldur einnig f
verki við að koma hugsjónum sfnum
f framkvæmd.
Bréf Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar
Hafnarfirði 1. júlf 1 975
Með bréfi þessu fer ég þess á leit
við bæjarráð Hafnarfjarðar fyrir hönd
Lionsklúbbs Hafnarfjarðar að það
beiti sér fyrir þvf að klúbbnum
verði tryggður forkaupsréttur að
húsinu að Heiðvangi 26, sem er
Viðlagasjóðshús.
Hyggst klúbburinn nota sér þetta
hús til Ifknar fyrir þroskaheft börn f
bænum.
Fyrir hönd Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar,
Bragi Benediktsson
Til Bæjarráðs Hafnarfjarðar,
Hafnarfirði.
Bréf Þorgeirs Halldórssonar
Reykjavfk, 30. sept. 1975
Varðandi sölu á húsinu Heiðvang-
ur 26, Hafnarfirði, er það að segja,
að sr. Bragi Friðrikssonn átti nokkur
sfmtöl við undirritaðan um hús
þetta.
Húsið losnaði úr ábúð f maflok sl.
og var þá ákveðinn frestur fyrir sr.
Braga að ákveða fyrir hönd umbjóð-
anda að kaupa húsið.
Þegar þessi ákveðni frestur var
liðinn og ekkert heyrðist frá þessum
aðilum, þeir höfðu t.d. ekki komið
sér til að skoða það, þá seldum við
Ólafi Jónssyni húsið.
Þorgeir Halldórsson
Bréf Braga Benediktssonar
Hafnarfirði 9. október 1975.
Varðandi skýringu Þorgeirs
Halldórssonar, sölustjóra hjá Við-
lagasjóði, f bréfi til Bæjarráðs Hafn-
arfjarðar dags. 30. sept. 1975 þar
sem hann segir, að ákveðinn frestur
hafi mér verið gefinn fyrir hönd um-
bjóðenda að kaupa húsið að Heið-
vangi 26 f Hafnarfirði, þá skal á það
bent að hið sanna er, að hann lofaði
mér að selja ekki húsið án þess að
láta mig vita um það áður.
Ekkert það kom nokkru sinni fram
I málflutningi mfnum við hann, er
bent gæti til þess, að Lionsklúbbur
Hafnarfjarðar ætlaði sér ekki að
kaupa húsið, og um ákveðna tfma-
setningu þar að lútandi var aldrei
talað.
Þegar hins vegar að félagar úr
Lionsklúbbi Hafnarfjarðar óskuðu
eftir að fá að skoða húsið, var þeim
sagt, að búið væri að afhenda Ólafi
Jónssyni lyklana að þvl.
Þetta er að mfnum dómi ósæmileg
og vftaverð framkoma, einkum þar
sem um Ifknarmál er að ræða.
Séra Bragi Benediktsson,
Til Bæjarráðs Hafnarfjarðar,
Hafnarfirði.
Bréf Lionsklúbbsins
og Hringsins.
Hafnarfirði 8. október 1 975.
Til Bæjarráðs Hafnarfjarðar,
Hafnarfirði.
Bréf yðarfrá 3.10. 1975.
Sem svar við ofangreindu bréfi
yðar, þar sem óskað er umsagnar
Lionsklúbbs Hafnarfjarðar um bréf
Viðlagasjóðs dags. 30.9. 1975 til
bæjarráðs, viljum við taka fram eftir-
farandi:
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefir f
engu hvikað frá þeirri ákvörðun sinni
að kaupa húsið Heiðvang 26 með
þeim kjörum sem Viðlagasjóður
kynnti okkur I vor og við litum á sem
gerðan samning, þó munnlegur væri.
Meðfylgjandi þessu bréfi eru eftir-
talin gögn:
1. Afrit af bréfi Lionsklúbbs til
stjórnar Viðlagasjóðs, dags. 24. 6.
1975.
2. Bréf Braga Benediktssonar til
bæjarráðs.
3. Bréf stjórnar Foreldrafélags
þroskaheftra barna f Hafnarfirði og
nágrenni.
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar væntir
þess fastlega, að bæjarráð sýni hug
sinn til þessa Ifknarmáls með þvf að
neyta forkaupsréttar að umræddu
húsi að Heiðvangi 26 f Hafnarfirði.
Óski bæjarráð eftir frekari upplýsing-
um eða skýringum eru þær fúslega
veittar.
Virðingarfyllst,
Jón Ól. Bjarnason.
Garðar Halldórsson
Jónas Hallgrlmsson
Bragi Benediktsson
Jón F Arndal
Samþykkar ofangreindu bréfi sem
styrktaraðilar að væntanlegu barna-
heimili fyrir þroskaheft börn.
Fyrir hönd Kvenfélagsins Hringsins,
Guðbjörg Guðbrandsdóttir,
Sjöfn Magnúsdóttir,
Málfríður Stefándsóttir,
Þórunn Pétursdóttir.
Bréf Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar
Hafnarfirði 14.10 '75
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar,
Hafnarfirði.
Bréf yðar frá 10. okt. 1975.
Á sfðastliðnu vori stuðlaði Lions-
klúbbur Hafnarfjarðar að stofnun
foreldrafélags þroskaheftra barna I
Hafnarfirði og nágrenni, með það
fyrir augum að koma á fót dagheimili
fyrir þroskaheft börn innan 6 ára
aldurs. Við vissum að þörfin fyrir
slfkt heimili var mikil, en okkur grun-
aði ekki hve mikil og knýjandi hún
var, fyrr en við fórum að vinna að
málinu.
Um þetta leyti kom kvenfélagið
Hringurinn til liðs við okkur og hefir
heitið að leggja málinu lið eftir
mætti.
Sfðan skeður það, að okkur er
gefinn kostur á að kaupa húsið nr.
26 við Heiðvang, sem við töjdum að
hentaði mjög vel til slfkrar starfsemi.
Álit okkar byggðum við m.a. á um-
sögn forráðamanns hliðstæðs heimil-
is á Selfossi og forstöðukonu þess,
sem er þroskaþjálfi.
Nú veit hæstvirt bæjarstjórn mæta-
vel, að slfkt fyrirtæki sem húsakaup
og rekstur dagheimilis þess sem hér
um ræðir, kostar mikið fé og er ekki
á færi góðgerðarfélaga f þessum bæ,
aðstoðarlaust. Þrátt fyrir þessa stað-
reynd ákváðu Lionsklúbbur Hafnar-
fjarðar og Hringurinn að snúa bökum
saman og festa kaup á þessu húsi,
vegna hinnar miklu þarfar, þótt það
væri þeim allt að þvf ofviða.
Þegar hér var komið sögu og
ákveðið var að ganga frá kaupunum,
kemur f Ijós, AÐ VIÐLAGASJÓOUR
HAFÐI GENGIÐ Á BAK ORÐA
SINNA OG SELT ÖORUM HÚSIÐ.
Þvf er ekki að leyna, að mikil urðu
vonbrigðin hjá Lionsklúbbi Hafnar-
fjarðar, Hringnum og ekki slzt for-
eldrafélaginu, þegar svo var komið.
Strax og vitnaðist hvernig komið
var, eða 24. júnf var Viðlagasjóði
skrifað. þessu athæfi mótmælt og
ákveðið að koma þeim tilmælum til
bæjarráðs að neyta forkaupsréttar
sfns.
Næst skeður það að Lionsklúbbi
Hafnarfjarðar berst bréf frá bæjar-
ráði, dags. 3. okt. s.l., þar sem leitað
er eftir umsögn klúbbsins um bréf
Viðlagasjóðs frá 30. sept. s.l. og að
lokum bréf frá bæjarráði dags. 10.
okt., þar sem svars er óskað fyrir 14.
okt.
Eins og nærri má geta er það alveg
óyfirstfganlegt fyrir okkur að leggja
fram 2 milljónir króna á tveim mán-
uðum eins og krafizt er, en I sumar
reiknuðum við með að hafa 6 mán-
uði til stefnu og viðhorfin þvf allt
önnur.
Eftir að hafa lesið bókun bæjar-
ráðs frá 1753. fundi þess, um málið
Heiðvangur 26. fer það ekki á milli
mála, að skiptar skoðanir eru um
það.
Hringskonur og Lionsmenn hafa
rætt þetta mál sfn á milli með tilliti
til bókunar bæjarráðs frá framan-
greindum fundi þess. i ÞEIM VIÐ-
RÆÐUM KOM FRAM AÐ EKKI
VÆRI ÞAÐ VÆNLEGT FYRIR FÉ-
LÖGIN AÐ VERÐA ÞESS VALDANDI
AÐ KAUPENDUR HÚSSINS YRÐU
BORNIR ÚR, ÞAR SEM SEGJA MÁ,
AÐ ÞAU YRÐU ÞOLENDUR SVIKA
VIÐLAGASJÓÐS, AÐ ÓSEKJU.
Af þessari ástæðu væntum við
þess að bæjarstjórn leysi málið á
þann hátt að samþykkja tillögu um
að leggja til annað húsnæði, ekki
lakara, svo fljótt sem verða má, fyrir
dagheimili handa þroskaheftum
börnum f Hafnarfirði og nágrenni,
eða á þann hátt sem bezt þykir
henta f samvinnu við Lionsklúbb
Hafnarfjarðar, Kvenfélagið Hringinn
og Foreldrafélag þroskaheftra barna
f Hafnarfirði og nágrenni.
Með vinsemd og virðingu.
f.h. stjórnar
Lionsklúbbs Hafnarfjarðar
Stefán Rafn
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir:
Að
gefnu tilefni
r
— vegna greinar Arna Grétars Finnssonar