Morgunblaðið - 07.11.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÖVEMBER 1975
37
VEI_V/VKAI\IDI
Velvakandi svarar i síma 10-100
-kl 14-
dags.
-1 5, frá mánudegi til föstu-
0 Ógeðfelldur
útvarpslestur
„Uppalandi" við Asparfell
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég er ein af þeim, sem fögnuðu
þvi, þegar gamla útvarpsráðið fór
frá og það nýja tók við. En ég verð
því miður að segja það eins og er,
að mér finnst ekki að dagskrá
hljóðvarpsins hafi breytzt eins
mikið og ég gerði mér vonir um,
þó að ekki sé hægt að segja að
kommúnistaáróðrinum sé dembt
yfir mann i sama mæli og áður.
Aðallega finnst mér, að það sé
ekki nægilegt tillit tekið til þess,
að börn og unglingar hlusta ekk-
ert síður á útvarpið en fullorðnir.
Ég skrifa þetta að gefnu tilefni.
Þannig var, að sunnudaginn 2.
nóv. kl. 19.25, þ.e.a.s. á beztatíma,
þegar útvarpið er i gangi á
flestum heimilum, rétt eftir frétt-
ir og áður en sjónvarp hefst, þá
les ungur rithöfundur og komm-
únisti, Vésteinn Lúðviksson að
nafni, úr nýrri skáldsögu eftir
sjálfan sig. Nú er ég ekki að am-
ast við þvi að rithöfundar lesi i
útvarpið. Og þeir mega vera
kommúnistar min vegna. Við
lifum sem betur fer ekki i Sovét-
rikjunum, þar sem óæskilegum
rithöfundum er meinaður að-
gangur að öllum fjölmiðlum. En
mér finnst það skipta máli, hvers
konar efni er útvarpað á þeim
tima, þegar reikna má með þvi, að
fjöldi barna og unglinga leggi við
hlustir.
0 Hver er
tilgangurinn?
Ég hafði lesið bækur eftir
þennan höfund og gat vel trúað
honum til þess að flytja manni
eitt og annað i samræmi við sínar
skoðanir. En ég bjóst ekki við því
að ábyrgur fjölmiðill færi á
þessum tima að útvarpa efni, sem
hefði slæm áhrif á tilfinningar
barna og unglinga. Þetta hefði
reyndar verið I lagi, ef ég hefði
verið ein. En dætur mínar tvær,
báðar á ungiingsaldri, hlustuðu
líka og hlustuðu vel. Og þegar
þær voru orðnar agndofa yfir
vægast sagt ógeðfelldu nauðg-
unaratriði, sem höfundurinn las
af mikilli innlifun, þá var ég
orðin of sein. Þær kveiktu bara á
sínu eigin útvarpstæki, þegar ég
ætlaði að slökkva. Þær voru svo i
uppnámi út af þessu það sem eftir
var kvöldsins og töluðu ekki um
annað. Og mér kæmi það ekkert á
óvart, þó að þær kæmu með þessa
bók heim úr bókabílnum um leið
og hún er komin út.
Þá vaknar spurningin, hver sé
tilgangur útvarpsins með því að
flytja svona efni á þessum tima.
Er verið að auglýsa þennan höf-
und? Eða er vitandi vits verið að
bauð Barböru af ákefð og það var
hún sem niundi að Christer not-
aði ekki s.vkur og að pabbi notaði
rjóma í kaffið. Hún var alls staðar
nálæg án þess að vera uppá-
þrengjandi og hún gat sér tii um
allar óskir Thords Ekstedt. En
hún varð að spyrja tvfvegis hvort
presturinn vildi meira kaffi, svo
upptekinn var hann af þvf að
horfa á eggjandi líkamsvöxt Bar-
böru. Ég leit sekúndubrot á Hjör-
dis og ég las bæði kfmni og skiln-
ing f augnaráði hennar. Og þegar
ég hlustaði á innantómt masið f
Barböru varð ég örg og langaði til
að standa upp og reyna að koma
að minnsta kosti einum þessara
karlvitleysingja f skilning um
þetta sama.
En þess f stað hóf ég ákaflega
andrfka umræðu um sfðasta
Ijóðasafn Par Lagerkvist og ég
naul þeirrar illgirnislegu ánægju
að ekkjunni ungu var algerlega
fyrirmunað að taka þátt f henni,
en hið sama gilti þvf miður um
Hjördisi Holm og ég komst þvf
fljótlega að þeirri niðurstöðu að
ég hefði litlu fengið áorkað með
þessari tilraunastarfsemi minni.
Það sem eftir var kvöldsins
gerðist fátt sem vcrt er að festa
sér í minni. Það er ákaflega eðli-
gera foreldrum uppeldi barna
sinna erfiðara? Ég hélt það væri
nóg samt.
Ég fmynda mér, að útvarpsráð
geti ekki skipt sér af öllum sköp-
uðum hlutum innan sinna stofn-
ana. En mér finnst sjálfsögð
krafa, að það verði mörkuð ein-
hver stefna i þessum málum.
Með þakklæti fyrir birtinguna."
Það gæti verið dagskrárdeild
útvarpsins íhugunarefni, hvort
ekki væri vert að reyna að tala um
fyrir þeim, sem vilja flytja alþjóð
slíkt efni, og vita hvort þeir geta
ekki fundið til þess hugnanlegri
kafla í ritverkum sinum en bréf-
ritari lýsir hér að ofan.
# Váfyrir
dyrum
Þessa fyrirsögn setur Guð-
jón Bj. Guðlaugsson, Efstasundi
30, bréfi sínu, sem birtist hér
aðeins stytt:
„Nýlega voru birtar opinberar
skýrslur, er sýndu þær hryggi-
legu niðurstöður að tóbaks- og
áfengisnautn unglinga ykist ár
frá ári og færðist neðar í aldurs-
flokkana og það, sem verst er,
sérstaklega hjá ungum stúlkum,
telpum. Sú niðurstaða er ógnvekj-
andi fyrir nútið og framtið.
Það mundu vonandi verða
margar hendur á lofti til bjargar
ef allur sá fjöldi unglinga, sem
reykir, félli i eld, eða sá hópur
unglinga, sem drekkur áfengi,
félli i vatn.
En það er litið aðhafzt til
varnar í þessu máli, miðað við
þörfina. Þó ber að þakka framlag
og stuðning einstaklinga, og fé-
laga, sem vinna móti eiturnautna-
lífi, en fá þó ekki rönd við reist.
Það er gott og blessað og reynd-
ar nauðsynlegt að rannsaka hlut-
ina og semja greinargóða skýrslu
og benda á það, sem að er, en það
er 'ekki nóg. Það verður að bæta
úr þvi, sem að er. Gagnvart þessu
máli þýða engin vettlingatök.
Rikisstjórn og borgarstjórn verða
að ganga fram fyrir skjöldu og
stemma stigu við þvi að æska
landsins brenni á báli
sígarettunnar eða drúkkni i
áfengisflóðinu. Það verður fyrst
og fremst að stöðva sölu áfengis
og tóbaks. Ríkisstjórn og Alþingi
ættu að geta haft þá hluti i hendi
sér, þar sem ríkið hefur einkasölu
á áfengi og tóbaki.
Það ættu að gilda sömu reglur
um sölu tóbaks og áfengis að selja
það eitt og ekkert annað í þeim
búðum og þær ættu að vera sem
allra fæstar og ekki nálægt öðrum
verzlunum.
Það er fáránleg tilhögun og
móðgun við heiðarlegt fólk að
hafa „konuríkið" í verzlunarsam-
stæðu mitt á milli mjólkurbúðaij
bakarís og matvörubúðar. Hætt er
við að þær verzlanir græði ekki
mikið á sambýlinu. Konurnar fari
heldur i „ríkið sitt“ eftir þeim
fregnum, sem þaðan berast i
blöðum af viðskiptum þeirra.
Þó að mér þætti prýðilegt að
verzla á Laugarásvegi 1 hef ég
ekki litið þar inn siðan áfengis-
verzlunin kom i bygginguna og
mun ekki gera meðan hún er þar.
0 Óþarfi og
bölvaldur
Þetta ástand í nautnamálum
þjóðarinnar getur ekki og má
ekki vara lengur ef vel á að fara.
Það er ofboðslegt að tvö hundruð
þúsund manna þjóð skuli eyða
fimm til sex milljörðum í áfengis-
og tóbakskaup á ári og þó er sem
betur fer, allstór hópur manna og
liklega stærri en margur heldur,
sem ekki kaupir þann fjandans
óþarfa og bölvald.
Allur almenningur þarf að taka
höndum saman I baráttunni gegn
eiturnotkun og eiturverzlun. Það
getur hver og einn með þvi að
styðja þau félög, er vinna gegn
eiturnautnunum, gerst meðlimir
þeirra og styrktarfélagar.
Það vinnst ekkert nema með
samtökum. Það eru þó nokkur
félög og sögnuðir, er vinna gegn
eiturnautnalifi. Má þar nefna
Góðtemplararegluna, unglinga-
reglu hennar og Islenzka ung-
templara, krabbameinsfélögin,
ýmis bindindisfélög svo sem öku-
manna, presta, kennara o.fL
Sjöundadags aðventista, Hjálp-
ræðisherinn, hvítasunnumenn og
ýmsa fleiri. En þessir kraftar
þyrftu að starfa meira saman og
menn þurfa að leggja þeim lið.
Vinnum öll saman að þvi að
skapa okkur og börnum okkar
betra þjóðfélag.
Guðjón Bj. Guðlaugsson".
HOGNI HREKKVISI
,Eigum við ekki að fá okkur dálítið snarl?“
OPIÐ TIL KL. 7
Ný sending
frá Luxo
lH
LUXO
er ljósgjafinn,
verndið sjónina,
varist eftirlíkingar
Einnig nýkomnir
Ijóskastarar
SENDUM í PÚSTKRðFU UM LAND ALLT
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJOS & ORKA
Suöurlandsbraut 12
sími 84488
03^ S1G6A V/öGA £ ‘ÍILVERAU
Snót
Vesturgötu 1 7,
sími 12284
Vorum að taka upp úrval
af selskapsblússum frá
Sybille Claymar.
Kjóla frá The London Mob.
Einnig úrval af buxum, pilsum, blússum,
mussum, bolum og peysum,
Slæður, treflar og sjöl í mörgum litum.
Vesturgötu 1 7,
sími 12284.