Morgunblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 260. tbl. 62. árg. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Refsiaðgerðir gegn Aröbum? Pittsburgh, 12. nóvember. Reuter. AP. HENRY Kissinger utanrikisráð- herra sagði f dag að Bandarfkja- stjðrn athugaði möguleika árefsi- aðgerðum gegn löndum sem greiddu atkvæði með ályktunar- tillögu þar sem zfonismi og kyn- þáttastefna eru lögð að jöfnu í Allsherjarþinginu. Kissinger sagði að samþykktin hlyti að hafa áhrif á samskipti Bandarfkjanna við erlend rfki. Hins vegar sagði hann: „Við verð- um að halda viðbrögðum Banda- rfkjamanna innan vissra marka.“ Utanrfkisráðuneytið hefur úti- lokað þann möguleika að aðstoð Bandaríkjanna við erlend ríki verið skorin niður í hefndarskyni svo að stjórnin mun halda áfram tilraunum sfnum til að fá þingið til að samþykkja rúmlega 1000 milljón dollara aðstoð við Egypta og aðrar Arabaþjóðir sem stóðu að ályktunartillögunni. Framhald á bls. 18 MPLA fær hjálp frá Mozambique Luanda, 12. nóvember. Reuter. AP. HERMENN verða sendir frá Mozambique til Angola til stuðn- ings hreyfingu marxista, MPLA, f baráttu hennar gegn hreyfingun- um FNLA og Unita samkvæmt áreiðanlegum heimildum í Lu- anda f dag. Fyrst f stað verða 250 hermenn sendir frá Mozambique, sem er fyrrverandi portúgölsk nýlenda eins og Angola. MPLA nýtur þegar stuðnings kúbanskra ráðu- nauta, sem berjast með hreyfing- unni og eru áberandi á götum Luanda. Rússar munu bráðlega opna sendiráð f Luanda samkvæmt rússneskum heimildum. Rússar hafa útvegað MPLA þúsundir lesta af hergögnum og meðal starfsmanna sendiráðsins, sem eru væntanlegir innan skamms, verða sovézkir hernaðarráðunaut- ar. Barizt var í dag skammt frá vatnslindum Luanda í þorpinu Quifangondo, 20 km norðaustur af borginni, en vatnsveitukerfi borgarinnar komst í lag í dag og verzlanir og skrifstofur voru opnar. Bardagar geisuðu einnig norður Framhald á bls. 18 VERNDARSKIP BRETA — Dráttarbátarnir Polaris (til vinstri) og Aquarius, sem brezka landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið hefur tekið á leigu til að vernda brezka togara innan 200 mflnanna við tsland, við bryggju í Aberdeen. Verndarskipin ekki send að svo stöddu BREZKA utanríkisráðu- neytið tilkynnti f gær að Bretar og íslendingar mundu taka að nýju upp viðræður um landhelgis- málið um helgina. Jafn- framt tilkynnti brezka landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðuneytið að þrjú skip, sem ráðuneytið hefur tekið á leigu til að vernda brezka togara, yrðu ekki send til Islands að svo stöddu. Utanríkisráðuneytið sagði að Roy Hattersley aðstoðarutanrfkis- ráðherra mundi hættá við fyrir- lestrarferð í Bandáríkjunum, koma til London í dag og fara til Reykjavíkur á laugardag. Viðræð- ur hans við Einar Ágústsson utan- ríkisráðherra munu hefjast á sunnudag eða mánudag og sendi- nefnd verður í fylgd með Hatters- ley samkvæmt brezkum fréttum. Verndarskipin sigldu í gær frá Rosyth í Skotlandi vil Lerwick á Hjaltlandi og verða þar um kyrrt unz ástandið skýrist að sögn land- búnaðar- og sjávarútvegsráðu- neytisins. Eftirlitsskipið Hausa er þegar komið á íslandsmið og Othello heldur þangað innan skamms. Haft var eftir brezkum embætt- ismönnum í gær að þeir vonuðu að allir aðilar gættu stillingar þar til niðurstöður hinna nýju við- ræðna lægju fyrir. Brezkir skip- stjórar hafa fengið fyrirmæli frá togaraeigendum um að gæta still- ingar. Viðurkennt er af brezkri hálfu að viðræðurnar við Islendinga verði erfiðar en látin í ljós von um að samkomulag takist um málamiðlunarlausn sem báðir að- ilar geti sætt sig við. „Við erum vongóðir um að nýr samningur verði gerður og vonum að bæði okkar menn og tslendingar sýni stíllingu,“ sagði Tom Neilsen, rit- ari félags yfirmanna á togurum, í Hull í gær. James Johnson, þingmaður Verkamannaflokksins frá Huil sagði, að hann teldi að brezkir togaramenn væru reiðubúnir að sætta sig við þá málamiðlunar- lausn að um 100 togarar fengju að Framhald á bls. 15 Eldur í Höfn AÐ MINNSTA kosti níu fórust í eldsvoða í gömlu fjölbýlishúsi f Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Eldurinn kom upp í kjallara hússins, sem var á sex hæðum, og breiddist út á svipstundu. Ofsahræðsla greip um sig meðal íbúa hússins og tveir biðu bana þegar þeir fleygðu sér út um glugga í stað þess að. bíða eftir slökkviliði. (Myndin sýnir brunann). Sakharov fær ekki að fara til Óslóar Moskvu, 12. nóv. AP. Reuter. NTB. SOVÉZK yfirvöld neituðu I dag að leyfa kjarnorkueðli^fræð- ingnum Andrei Sakharov að fara til Oslóar og taka við frið- arverðlaunum Nóbels þar sem hann hefði vitneskju um rfkis- leyndarmál. Sakharov mót- mælti ákvörðuninni og kaliaði hana „móðgun við sig og Nóbelsnefndina.“ Hanir kvaðst telja ákvörðunina jafngilda freklegu broti á yfirlýsingu Helsinki-ráðstefnunnar f sumar, ástæðulausa og skaðlega málstað friðsamlegrar sambúð- ar. f Osló harmaði Nóbelsnefnd Stórþingsins ákvörðunina en sagði að verðlaunaveitingin færi fram 10. desember eins og ráðgert hefði verið og verðlaun- in yrðu afhent fulltrúa Sakharovs. Fréttaritari NTB í Moskvu segir að hugsanlegt sé talið að frú Jelena, kona Sakharovs, taki við verðlaununum. Hún dvélst enn á ftalíu og mun ákveða í samráði við eiginmann sinn hvort hún skuli fara til Öslóar og taka við verðlaunum, segir hann. Sjálf sagði frú Sakharov í Flórenz að hún gæti ekkert um það sagt hvort hún færi til Óslóar til að taka við verðlaun- unum. Hún sagði að það væri aðeins fyrirsláttur þegar sovézka stjórnin héldi því fram að Sakharov hefði aðgang að ríKisleyndarmálum og átylla til Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.