Morgunblaðið - 13.11.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
7
Að guða á
skjáinn
Gráminn og grunn-
sævið, sem greypt eru á
skjáinn, I heíldarsvip sjón-
varpsefnis, er í ætt við
haustið og skammdegið
og hefur svipuð áhrif á
geð guma. Stöku sinnum
bregður þó fyrir birtu
sólar, fræðandi og
skemmtandi efni, sem ber
vott vakandi viðleitni,
þrátt fyrir allt. Meðal
gagnsamara efnis, sem
guðar á skjáinn, eru við-
ræðuþættir um innlend
málefni. Veltur þar mikið
á viðmælendum sjálfum
— en ekki minna á stjórn-
anda þáttar. Viðræðu-
þáttur þeirra Jónasar
Haralz, bankastjóra, og
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar var einn þeirra
þátta, sem átti greiða
götu að hugum lands-
manna. Og þar blða vinir I
varpa, sem von er á fleiri
sllkum.
Gunnar Thoroddsen,
Gunnar og
Lúðvík
I fyrrakvöld var nokkurs
konar framhaldsþáttur
umrædds viðræðuþáttar.
Nú vóru hinsvegar mættir
stjórnmálamenn I stað
sérfræðinga (embættis-
manna), en hvorir tveggja
hafa nokkuð til slns
ágætis og hvorir tveggja
eru „bara" menn. Þessi
þáttur var lærdómsrlkur
ekki slður en hinn fyrri,
en reis þó aldrei jafn hátt.
Gjörhugull hlustandi
komst þó engan veginn
fram hjá þeirri staðreynd
að talsmaður ríkisstjórn
arinnar. Gunnar Thorodd-
sen, iðnaðarráðherra,
hafði sams konar skilning
á eðli og orsökum viðblas-
andi efnahagsvanda
þjóðarinnar og hag-
fræðingarnir, sem fyrr
getur, þótt skoðanir færu
ekki I öllu saman við við-
brögð stjórnmálamanna,
og áréttaði nauðsyn sams
konar aðhalds og mót
aðgerða og þeir bentu á.
Lúðvlk Jósepsson gat
hins vegar ekki lagt til
hliðar þann látbragðsleik,
sem þjóðin gagnrýnir sér-
staklega I fari stjórnmála-
manna. Gengislækkanir
vinstri stjórnar, sölu-
skattshækkanir, rlkisálag
á rafmagnsverð (verðjöfn-
unargjald) og ákvörðun
um að taka kaupgjalds-
vlsitölu úr sambandi (að
ekki sé minnzt á Magnús-
ar þátt Kjartanssonar I
járnblendimálum), sem
hann átti sem ráðherra
rlka hlutdeild að,varð allt I
munni hans að árásarefn-
um á núverandi rlkis-
stjórn. f orðum hans
fólust þessi eftirmæli um
eigin ráðherradóm: „Það
góða sem ég vit það geri
ég ekki; það illa, sem ég
vil ekki, það gjöri ég,"
þ.e.a.s. þegar ég er I rtkis-
stjórn."
Fleiri slíkir
þættir
Fleiri sllkir þættir
mættu koma inn I dagskrá
Sjónvarpsins. Þjóðin
myndi áreiðanlega fagna
þvl að fá að heyra I mönn-
um eins og Jóni Sigurðs-
syni, forstöðumanni Þjóð-
hagsstofnunar, Birni
Jónssyni, forseta ASf,
Jóhanncsi Nordal, Seðla-
bankastjóra, og Jóni
Bergs. formanni Vinnu-
veitendasambandsins.
Fólk vill fá sannleikann
um stöðu atvinnu- og
efnahagsllfs okkar um-
búðalausan, stöðu þjóðar-
búskaparins og viðskipta
okkar út á við, stöðu rlkis-
fjármála og þeirra mála
annarra, er varða framtlð-
arhag okkar bæði sem
þjóðar og einstaklinga.
Það, sem fyrst og
fremst hefur á skort. og
þar eiga fjölmiðlar e.t.v.
verulegan hlut að máli, er
heiðarleg og upplýsandi
miðlun á staðreyndum
vandamála okkar I dag.
Þjóðin á lýðræðislegan
rétt og kröfu á sllkum
upplýsingum. Sé rétt
staðið að sllkri kynningu
og fræðslustarfsemi eiga
stjórnmálamenn hægari
eftirleik um ákvarðana-
töku, jafnvel um „óvin-
sælar" ráðstafanir. Eða
réttara sagt — þá mun
þjóðin, almenningur I
landinu. sjá svo um, að
þeir komist ekki hjá þvl að
taka þær ákvarðanir, sem
nauðsynlegt er að taka til
að rétta af þjóðarskútuna.
Það er nefnilega of mikið I
húfi fyrir hvern og einn
þjóðfélagsþegn, ef verð-
bólgudansinn verður
áfram stiginn — fram af
hengifluginu.
Sr. Bernharður Guðmundsson skrifar frá Addls Abeba
Mér er það hulin ráðgáta,
hvernig yfirmenn Eþíópíu
fengu þá hugmynd að reyna að
efla ferðamannastraum til
landsins, einmitt núna þegar
þjóðmál eru öll í deiglu og
fjöldi útlendinga yfirgefur
landið vegna öryggisleysis. 150
blaðamönnum og ferðafröm-
uðum var boðið hingað til viku-
dvalar og gestirnir hafa hlotið
konunglegar móttökur. Bfll er
til reiðu fyrir hvern gest, ásamt
leiðsögumanni, sem auðvitað
velur ökuleiðirnar. Betlarar og
Hailu: Er vestræn menning endilega góð?
GRÓÐALIND
götulýður hafa verið keyrðir
burtu þaðan um stund. .. Gest-
irnir hafa einnig farið í smá-
hópum til helztu sögustaðanna.
Áður fóru þó hermenn og
hreinsuðu alla uppreisnar- og
óaldarmenn af þeim slóðum.
öðrum útlendingum hefur hins
vegar verið ráðlagt að fara ekki
norður á bóginn vegna skæru
hernaðar og árásarflokka.
Engum þessara gesta var
leyft að koma hingað á útvarps-
stöðina, þar sem þeir hefðu þó
trúlega hitt landa og kollega,
sem hefðu getað frætt þá um
sitthvað í stjórnarfarinu. Trú-
lega fóru þeir glaðir heim. Nú
bíðum við í eftirvæntingu eftir
greinum þeirra. Að vísu verða
þau blöð sjálfsagt gerð upptæk
hér, sem birta neikvæða mynd
af landi og lýð.
Einn gestanna, þýzk stúlka,
framlengdi dvöl sína. Hún fór
ein síns liðs i kynnisför i vest-
urhéruðin. Hún tók sér síðan
far með lítilli flugvél til Addis
ásamt 5 öðrum farþegum. En
flugvélin kom ekki fram. Þýzka
sendiráðið skipulagði mikla
leit, fjöldi fólks úr þýzku
nýlendunni lagði á sig mikla
vinnu og erfiði. Loks fannst
vélin þar sem hún hafði
nauðlent inni í frumskógi i
grennd við lítið þorp. Þyrla
sótti farþegana, sem allir voru
heilir á húfi. Fjöldi manna var
á vellinum til að fagna þeim
hér í Addis. Sérílagi Þjóðverjar
og feginleiki og þakklæti ein-
kenndi viðmót fólks.
Farþegarnir birtust og seinust
gekk stúlkan.
Spurningarnar dundu á ung-
frúnni frá landsmönnum
hennar, sem þóttust hafa heimt
hana úr helju.
Hún svaraði engu.
Hún hafði nefnilega selt
vikuritinu STERN einkarétt á
sögu sinni fyrir rúma milljón
íslenzkra króna. Leitarfólkið
verður þvi að bíða þangað til
STERN birtist með þessa
frásögn eftir nokkrar vikur til
þess að vita hvað gerðist og
hvernig stúlkunni hafði liðið.
Þetta fannst mörgum
kyndugt framferði — og
kannski ekki að ófyrirsynju. Og
Hailu spurði:
Er þetta sú þróun og
menning, sem þið viljið kenna
okkur?—
GREIN sú sem hér birtist og þær, sem
birtast munu á næstunni frá sr. Bernharð
Guðmundssyni í Addis Abeba, bárust frá
Eþfópfu með þýzkum ferðamanni, sem póst-
lagði þær í Þýzkalandi. í bréfi til ritstjóra
Morgunblaðsins, sem greinunum fylgdi, segir
höfundur: „Hér eru nokkrar klausur, ef þær
berast á endanum til þín. Landið er einangrað
sem stendur, allsherjarverkfall að skella á
trúlega, mikil ritskoðun á öllum pósti. Ég
ætla að senda þetta með þýzkara, sem fer með
fyrstu ferð — hvenær, sem hún verður.
Hefurðu gert þér grein fyrir, hvað felst í
því að búa við frelsi eins og við njótum á
tslandi, óttaleysi og möguleika til alls konar
framkvæmda. Ef ekki komdu í heimsókn
hingað.“
AKUREYRI
Þekkt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
að taka á leigu lítið verzlunarhúsnæði á góðum
stað á Akureyri, undir afgreiðslu.
Tilboð merkt „Akureyri góð staðsetning" 5492"
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins.
Trillubátaeigendur
Höfum til afgreiðslu strax úr tollvörugeymslu 1
stk. Marna Dieselvél 28 hö. með öllu tilheyr-
andi, svo sem rafmagnsstarti, aflúttaki,
lensidælu, skiptiskrúfu, o.sv. frv.
Getum einnig útvegað strax af lager 1 stk 42
hestafla Marna dieselvél með 24 v startara,
1000 w dynamo, aflúttaki, skiptiskrúfu og
nauðsynlegum aukaútbunaði.
Upplýsingar gefa,
EINAR FARESTVEIT & Co h.f.,
Bergstaðastræti 10 A, sími 21565.
PHIUPS
rakvélar
ein af 6 geröum
Fullkomin varahlutaþjónusta
HP 1304
Rakvél með hleðslutæki og rakhaus með 3
stillanlegum rakhnífum. Þetta er rakvélin fyrir
þá, sem vilja aðeins það besta. Þessi rakvél
sameinar alla kosti i einni vél fullkomna
tæknilega hönnun, stillamega rakhnifa og
heimilistœki sf
Haf narstræti 3—Sætúni 8