Morgunblaðið - 13.11.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
11
AUGLÝSING
UM INN LAUSNARVERD
VERÐTRYGGÐRA
SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Myndin sýnir uppistöðulónið, sem myndast við inntak virkjunarinnar.
(Ljósm. Helgi Sveinbjörnsson).
Blævadalsvirkjun tekin í notkun
Um miðjan september hófst raf
orkuframleiðsla í Blævadalsvirkj-
un i Nauteyrarhreppi við ísa-
fjarðardjúp. Með þessum áfanga
hafa allir bæir norðanvert við
Djúp fengið rafmagn frá sam-
veitu, þá hefur skólinn í Reykja-
nesi einnig fengið rafmagn frá
samveitu, en sæstrengur hefur
verið lagður yfir Djúpið til
Reykjaness.
Blævadalsvirkjun er eign Naut-
eyrarhrepps og Snæfjallahrepps
og nam stofnkostnaður við virkj-
unina um 18 milljónum króna.
Framkvæmdir hófust haustið
1972 og er að heita má lokið.
Framleiðslugeta virkjunarinnar
er 230 kflówött og er álit manna
að sú orka nægi.til húsahitunar og
almennrar heimilisnotkunar á
svæðinu. Tilkoma þessarar virkj-
unar þykir treysta mjög búsetu
viðinnanvert Isafjarðardjúp.
FLOKKUR INNLAUSNAR1ÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ’ 10.000 KR. SKÍRTEINI
1965 - 2. FL. 1966 - 2. FL. 1968 - 1. FL. 1968 - 2. FL. 1969 - 1. FL. 1970 - 2. FL. 20.01.76 - 20.01.77 15.01.76 - 15.01.77 25.01.76 - 25.01.77 25.02.76 - 25.02.77 20.02.76 - 20.02.77 05.02.76 - 05.02.77 KR. 130.094,00 KR. 110.891,00 KR. 91.267,00 KR. 86.319,00 KR. 64.569,00 KR. 43.927,00
Borað í Bjarnarflagi
Björk, Mývatnssveit, 10. nóvem-
ber
NÚ er búið að flytja stóra gufu-
borinn frá Kröflu niður í Bjarnar-
flag. Gert er ráð fyrir að bora þar
eina holu og er það verk þegar
hafið. Að undanförnu hafa staðið
yfir endurbætur á hitaveitunni
hér. Boruð hefur verið ein hola
eftir vatni, skammt frá þar sem
tekið er vatn vegna Kísiliðjunnar.
Búið er að setja þar niður dælu
og leggja leiðslu að vatnsgeymi
þeim, sem heita vatnið vegna hita-
veitunnar er tekið úr. Með þess-
um framkvæmdum er hugmynd-
in, að blanda fersku vatni saman
við heita vatnið til að reyna að
koma í veg fyrir eða a.m.k. að
minnka útfellinguna úr vatninu,
sem allmikið hefur borið á. Þessu
blandaða vatni verður fljótlega
hleypt inn á kerfið eftir því sem
bezt er vitað og vonast er til að
Óhapp, sem tefur
framkvæmdir í
nokkra daga
Björk, Mývatnssveit, 10.
nóvember —
HÉR HEFUR verið hið dýrlegasta
veður að undanförnu, snjór sést
varla nema f hæstu fjöllum og
Mývatn er enn íslaust. Eins og
getið hefur verið um í fréttum,
vildi það óhapp til norður við
Kröflu fyrir nokkru, að steyptur
biti, sem verið var að lyfta upp á
stöðvarhúsið, brotnaði og féll nið-
ur. Þótt þetta sé talið dýrt óhapp
og tefji framkvæmdir við bygg-
ingu stöðvarhússins i nokkra
daga, verður að telja mest um
vert að engin slys urðu á mönn-
um, þótt hurð skylli að vísu nærri
hælum.
I gær skrapp ég norður i
Kröflu. Þá var rétt búið að lyfta
einum bita upp og koma honum
fyrir á sínum stað og allt gekk vel.
Alls eru þessir bitar 28 að tölu.
Vonast er til að eftirleiðis gangi
þetta að óskum. Ætti þá stöðvar-
húsið að komast undir þak fljót-
lega, ef tíðin verður góð eins og
nú horfir. — Kristján.
þessar framkvæmdir beri
jákvæðan árangur.
Flestum ber saman um, að
frekar lítið hafi sezt af rjúpu hér
um slóðir. Þó varð nokkuð vart
við hana í byrjun veiðitímabilsins
og komst þá veiði hjá sumum f 40
rjúpur á dag. Sfðan virðist hún að
mestu hafa horfið og þeir, sem
muna, þegar rjúpan var sem mest
hér áður fyrr, telja að það sem nú
verður vart við, sé ekki nema litið
brot af þvf sem þá var.
— Kristján.
*> Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiöslu
Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skirteinin.
Reykjavík, nóvember 1975.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
’ «xítV\L. v*
Fagna tillögu FFSÍ
Sandgerði, 10. nóvember —
FUNDUR f Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Miðneshrepps, hald-
inn 9. nóvember 1975, fagnar
framkominni tillögu Farmanna-
og fiskimannasambands Islands
um að ísland slíti stjórnmálasam-
bandi við Bretland, komi þeir
með herskip í islenzka fiskveiði-
lögsögu til verndar brezkum tog-
urum og að hliðum varnarstöðvar
NATO á.íslandi verði tafarlaust
lokað, ef Bretar láta verða af þess-
ari hótun sinni. — Jón.
góð matarkaup:
1 lítri kostar kr. 185.-
Það erugóð matarkaup 1 Emmess ís. I hverri 60g sneið eru eftirtalin næringarefni:
Yítamín A i.e. 220 Vítamín D i.e. 6
Vítamín B1 ug. 27 Prótin g 2,7
Vítamin B2 ug. 120 Hitaeiningar 102