Morgunblaðið - 13.11.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
15
Bréf lækna til dómsmálaráðherra:
Stöðva þari núverandi
agaleysi í umferðinni
HER FER á eftir bréf sem læknar
við Borgarspftalann rituðu Olafi
Jóhannessyni dómsmálaráðherra
vegna hinna tfðu umferðarslysa
að undanförnu:
Við undirritaðir læknar Borgar-
spítalans teljum okkur ekki leng-
ur geta setið hjá athugasemda- og
aðgerðarlaust til varnar og upp-
rætingar þess alvarlega þjóðfé-
lagsmeins, sem hin tfðu umferðar-
slys bera vitni. Atvinnu okkar og
aðstöðu vegna höfum við e.t.v.
betri möguleika en flestir aðrir
þjóðfélagshópar til að meta og sjá
það óbærilega böl og líkamstjón
auk mannlffsmissis sem af um-
ferðarslysum leiðir.
Við beinum hér með þeim til-
mælum til yðar, hr. dómsmálaráð-
herra, að þeir beitið áhrifum yð-
ar, nú þegar, til að hert verði á
umferðarkennslu, umferðareftir-
liti og viðurlögum við umferðar-
lagabrotum, ásamt almennu
kæruleysi í umferð. Okkur er
ljóst, að e.t v. þurfi lagabreytingu
til þess að auka valdsvið og áhrif
löggæzlunnar og dómsvalds, en
teljum að nauðsyn krefjist tafar-
lausrar stefnubreytingar í þá átt
að tryggja næga og virka lög-
gæzlu, með fyrirbyggjandi og
refsandi aðgerðum, sem séu nægi-
lega sterkar, til að stöðva núver-
andi agaleysi f umferðinni.
Virðingarfyllst
Á^T- fci-i ///“ n A*
'CC/’/Cu'’/Cm
C/ tc &</ ryi'i. uiJ/-c-c
— Verndarskipin
Framhald af bls. 1
Veiða um 100.000 lestir við Island
á ári.
Bæði Johnson, sem er formaður
fiskimálanefndar Verkamanna-
flokksins, og Patrick Wall, for-
maður fiskimálanefndar íhalds-
flokksins létu í ljós þá skoðun
að lausn ætti að geta náðst og
kváðust telja að báðir aðilar
sýndu samkomulagsvilja.
Johnson sagði að íslenzk þing-
mannanefnd væri væntanleg fyr-
ir mánaðamót í ferð til London,
Mið-Englands og Edinborgar á
vegum Alþjóðaþingmannasam-
bandsins en að sögn Friðjóns Sig-
urðssonar, skrifstofustjóra Al-
þingi? hefur ferðinni verið frest-
að fram á næsta ár. Johnson er
formaður hinnar brezku deildar
sambandsins.
Haft var eftir Niels P. Sigurðs-
syni sendiherra í brezkum frétt-
um í dag að hann vonaði að brezk-
ir togaramenn gættu stillingar
þar til nýjar viðræður hæfust og
að nokkurra daga veiði væri ekki
þess virði að stofna möguleikum á
Iausn í hættu.
Seinna sagði Niels P. Sigurðs-
son i viðtali í brezka sjónvarpinu
að sögn Reuters að íslendingar
mundu beita valdi til að tryggja
að Bretar viðurkenndu útfærsl-
una. Hann sagði að fyrst yrði
reynt að hreinsa svæðin innan 50
milna en síðan mundi landhelgis-
gæzlan beina athyglinni að svæð-
inu út í 200 milur.
Haft var eftir Niels P. Sigurðs-
syni að Islendingar gerðu sér
grein fyrir þvi að útfærslan gæti
haft í för með sér stvinnuleysi í
Bretlandi og þess vegna væru Is-
lendingar fúsir til viðræðna um
einhvers konar samning um heim-
ildir til veiða, ,,en ekki í eins
miklum mæli og hingað til. Ef
þeir héldu áfram yrði enginn fisk-
ur í framtíðinni. Við getum ekki
horft upp á það að fiskimið okkar
verði eyðilögð.“ Ef fiskistofnar
stækkuðu gæti orðið mögulegt
eftir nokkur ár að rýmka veiðitak-
markanir.
Viðmælandi hans, Ludovic
Kennedy, spurði um stöðuna I við-
ræðum Breta og íslendinga og
hann sagði að uppi væri „tölu-
verður skoðanaágreiningur. Hann
hvatti Breta til þess að lýsa einnig
yfir 200 mílna auðlindalögsögu að
sögn Reuters.
Níels P. Sigurðsson sagði í við-
tali við blaðið að hann væri
ánægður með samtalið við Ludo-
vic Kennedy sem væri vinsam-
legri Islendingum en spurningar
hans gæfu til kynna og hann teldi
að málstaður Islands hefði komið
vel fram. Hann sagði að Iangt
viðtal hefði einnig verið haft við
sig í útvarpsfráttatima „World at
One“, og dagurinn hefði farið í að
svara fréttamönnum, sem væru
forvitnir að vita hvað gerast muni
i deilunni.
Spáir stríði — Seinna sagði
Patrick Wall í ræðu í Cambridge
að í dag gæti hafizt þriðja þorska-
stríðið og sagði að það yrði Islend-
ingum að kenna. Hann kvaðst
vona að islenzk varðskip skiptu
sér ekki af brezkum togurum og
kvað það heimskulegt þar sem
landhelgi beggja landa yrði
væntanlega löglega færð út f 200
mílur eftir hafréttarráðstefnuna
næsta sumar. Hann taldi að árs-
veiði Breta yrði minnkuð í 90.000
tonn í viðræðunum, sagði að Is-
Iendingar vildu 70.000 tonn, kvað
,,stríð“ heimskulegt út af 20.000
tonnum og taldi málamiðlun
mögulega ef ekki drægi til tið-
inda.
— Sakharov
Framhald af bls. 1
að meina honum að fara úr
landi.
Hún sagði að Sakharov hefði
ekki haft aðgang að rikis-
leyndarmálum síðan 1968 og að
nokkrir aðrir sovézkir visinda-
menn sem enn störfuðu að
leynilegum rannsóknum en
væru meinlausir að mati
stjórnarinnar fengju oft að fara
úr landi.
Jafnframt var rithöfundur-
inn Vladimir Maximov, annar
kunnur sovézkur andófsmaður
sem nú býr í París, sviptur
sovézkum ríkisborgararétti
samkvæmt tilskipun frá
sovézku stjórninni i dag fyrir
„aðgerðir skaðlegar áliti Sovét-
rikjanna."
I Stokkhólmi sagði sonur
sovézka prófessorsins Benja-
mín Levitch í dag að háttsettir
menn i sovézku vísindaaka-
demíunni væru að kanna mögu-
leika á því að reka Sakharov úr
akademíunni.
Sakharov var greinilega sleg-
inn þegar hann sagði blaða-
mönnum frá ákvörðun yfirvald-
anna í dag. Hann var kallaður
til vegabréfsskrifstofunnar í
Moskvu með klukkutíma fyrir-
vara og þegar hann fór þangað
gerði hann ráö fyrir að hann
fengi leyfi til að fara.
Sakharov kvaðst hafa sagt
skrifstofustjóranum, Sergei
Fadayev: „Mér hefur alltaf
verið treyst og tel ekki ástæðu
til að ætla að ég geti framið
glæp fjandsamlegan ríkinu."
Hann sagði að ferðin til Öslóar
hefði ekki orðið einkaferð held-
ur ferð sem allur heimurinn
fylgdist með.
Sakharov sagði að hann teldi
Hideko Udagawa fiðluleikari
Gayle Smith cellóleikari
Sinfóníuhljómsveitin:
Verk Debussy, Brahms og Arna
Björnssonar á efnisskránni
FJÓRÐU reglulegu tónleikar
Sinfóniuhljómsveitar Islands
verða I Háskólabfói f kvöld,
fimmtudaginn 13. nóvember,
og hefjast kl. 20.30. Stjórnandi
á þessum tónleikum er Karsten
Andersen aðalhljómsveitar-
stjóri, en einleikarar eru
Hideko Udagawa fiðluleikari
og Gayle Smith cellóleikari.
Ennfremur koma fram á þess-
um tónleikum nokkrar stúlkur
úr Kór menntaskólans við
Hamrahlfð undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur.
Á efnísskrá þessara tónleika
eru þrjár noktúrnur eftir
Claude Debussy og nefnast þær
Nuages, Fetes og Sirénes. Þá
leikur hljómsveitin hljóm-
sveitarsvítu Árna Björnssonar
Upp til fjalla, en lokaatriði dag-
skrárinnar er konsert fyrir
fiðlu og celló í a-moll op. 102
eftir Johánnes Brahms.
Orðrómur í London
um samning Þjóð-
verja og
HAFT VAR eftir fsienzka sendi-
ráðinu f London f brezkum frétt-
um í gær að samkomulag kynni
að takast milli Islendinga og
Vestur-Þjóðverja.
Samkvæmt þessum fréttum
yrði samkomulagið i aðalatriðum
á þá leið að Þjóðverjar færu með
frystitogara sina og verksmiðju-
skip út fyrir 200 mílna mörkin, að
þeir hættu öllum þorskveiðum,
veiddu aðeins karfa og ufsa, not-
uðu aðeins venjulega togara og
keyptu allan annan fisk sem þeir
þyrftu til innanlandsneyzlu af ís-
lendingum.
Blaðið fékk þessa frétt frá
Radio Humberside, sem kvaðst
hafa hana frá fréttastofu BBC í
London, og fréttastofan kvaðst
lslendinga
hafa fengið fréttina staðfesta
samkvæmt annarri heimild.
1 tilefni af þessu sneri blaðið
sér til Níelsar P. Sigurðssonar
sendiherra og hann kvaðst ekki
kannast við þessa frétt. Hann
sagði að þetta væri ekki haft eftir
sér eða starfsmönnum sendiráðs-
ins, sem hefðu samráð við sig um
fréttir, sem færu til fjölmiðla.
Hins vegar sagði sendiherrann,
að þótt fréttin væri ekki komin
frá sendiráðinu hefði hann heyrt
að hún gengi á milli fréttamanna
BBC. Hann kvaðst ekki vita hvað
færi fram i viðræðum Þjóðverja
og íslendinga, enda tæki hann
ekki þátt í þeim, og ekki geta
staðfest fréttina. En heyrzt hefði i
London um samkomulag i likingu
við það sem væri lýst.
að yfirvöld héfðu enn tóm til að
endurskoða afstöðu sina ef
hann fengi víðtækan stuðning
frá almenningsálitinu í heimin-
um en hins vegar mundi hann
ekki leggja fram nýja umsókn.
— Eðlilegast
Framhald af bls. 2
spurður hvort ég hefði boðið i
húsið. Ég játti þvi, sem satt var.
En þá tók meirihlutinn sig til,
setti mig upp við vegg og sagði að
annað hvort yrði ég að framselja
húsið strax eða að ég segði upp
störfum hjá bænum. Ef ég hefði
samþykkt þetta, þá hefði það litið
út eins og ég væri að bjarga mínu
starfi. Vegna þessa áskildi ég mér
frest og honum hef ég enn ekki
skilað. Mér var svo skyndilega
vikið úr starfi sem bæjarlög-
manni, eftir því sem fjölmiðlar
segja, en sjálfur hef ég ekki
fengið uppsagnarbréfið. Með til-
liti til þessa fólks, sem átti húsið,
þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu
að framselja því rétt minn og eðli-
legast að ég framseldi eiginkonu
uppboðsþola réttinn, með tilliti til
uppsagnar bæjarstjórnar.
Þá sagði Ingvar: „Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar hefur nú farið
fram á þriðja uppboðið. Ef
bærinn ætlar sér að innheimta
greiðslur með þeim hætti sem
komið hefur fram, þannig að inn-
heimtuaðgerðir verði slælegar, þá
getur það fólk, sem skuldar,
komist upp með það að borga
ekki. Eðlilegast hefði verið að
bæjarstjóri hefði kallað á mig
strax eftir uppboðið og beðið mig
um að framselja réttinn. — Ef ég
hefði ætlað mér að ná í húsið
sjálfur, þá hefði ég allt eins getað
fengið NN úti í bæ til að bjóða í
húsið og sjálfur verið sakleysið
uppmálað, þetta er leikur sem
auðvelt er að leika.
Meirihluti bæjarstjórnar virðist
vera feginn að losna við mig sem
bæjarlögmann. Þegar ég hef
fengið uppsagnarbréfið, mun ég
kanna hvort ég fari ekki i bótamál
gegn Hafnarfjarðarbæ,“ sagði
Ingvar að lokum.
— Vilja gera
Framhald af bls. 2
sóknarmanna i Norðurlandskjör-
dæmi eystra lýsir yfir þeirri ein-
dregnu ósk sinni, að vikublaðið
Dagur verði eflt sem almennt
fréttablað kjördæmisins og Norð-
urlands alls, norðlenzkt málgagn f
sókn og vörn og sem blað fram-
sóknar- og samvinnumanna.
Stefna beri að þvi, að Dagur verði
fyrsta dagblað landsins utan höf-
uðborgarinnar."
Fréttamaður Mbl. bar sam-
þykkt þessa undir Erling Daviðs-
ons, ritstjóra Dags, og bað hann
að tjá sig um málið. Erlingur
hafði þetta að segja: „Þetta er
gamall draumur, sem hefur ekki
getað rætzt fram að þessu en
hann er vakandi i hugum okkar.
Ekkert hefur verið ákveðið enn,
hvenær hafist verður handa urn
útgáfuna og einhver bið kann að
verða á „frumsýningu" en
kannski verður málið tekið til um-
ræðu fljótlega í blaðstjórninni,
samkvæmt ósk kjördæmisþings-
ins og athugað betur.“
Sv.P.