Morgunblaðið - 13.11.1975, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Minnkun
fjármunamyndunar
Ifrumdrögum þjóöhags-
spár fyrir árið 1976,
sem Þjóðhagsstofnun hef-
ur unnið að, er gert ráð
fyrir, að einkaneyzla og
samneyzla standi í stað á
næsta ári að magni til, að
leitazt verði við að halda
þeim kaupmætti, sem nú er
til staðar, og að hið opin-
bera auki ekki umsvif sín á
næsta ári. 1 ræðu á fundi
Verzlunarráós íslands fyr-
ir nokkrum dögum gerði
Geir Hallgrímsson, forsæt-
isráðherra, þessi frumdrög
að umræðuefni og sagði, að
samkvæmt þeim mundi
fjármunamyndun á næsta
ári minnka um 5% en veru-
leg minnkun fjármuna-
myndunar væri forsenda
þess, að viðskiptahallinn
minnkaði á næsta ári.
Til þess að ná fram 5%
minnkun fjármunamynd-
unar á árinu 1976, verður
fjármunamyndun í at-
vinnuvegunum að minnka
um 2% en hjá hinu opin-
bera um 7%. Þá er gert ráð
fyrir, að fjármunamyndun
i íbúðabyggingum muni
minnka um 8% og í heild
er áætlað, að þjóðarútgjöld
muni minnka um 1,8%.
Ef þessi markmið nást
mundi viðskiptahallinn á
næsta ári komast niður i
7—8% af þjóðarfram-
leiðslu.
Hins vegar sagði forsæt-
isráðherra í ræðu sinni, að
viðskiptahallinn þyrfti að
minnka meira en þessu
næmi á næsta ári og til
þess þyrftu að minnka fjár-
munamyndunina enn frá
því, sem byggt er á í frum-
drögum þjóðhagsspár.
Samkvæmt þessari ræðu
forsætisráðherra má því
gera ráð fyrir, að um sam-
ræmdar ráðstafanir verði
að ræða af ríkisstjórnar-
innar hálfu til þess að
draga úr fjármunamyndun
í landinu á næsta ári og á
þann veg að minnka við-
skiptahalla þjóðarinnar,
sem er nú orðinn svo gífur-
legur, að lengra verður
ekki haldið á þeirri braut.
Gamansemi
Alþýðuflokksins
að þótti fyndið, þeg-
ar Gylfi Þ. Gíslason
hafði orð á því í ræðu á
Alþingi fyrir nokkru, að
Alþýðuflokkurinn hefði
ekki átt sæti í ríkisstjórn á
íslandi síðustu fimm árin,
en þau hefðu einmitt verið
að hans dómi tímabil
stjórnleysis. Nú greinir
Morgunblaðið ekki á um
það við Gylfa Þ. Gíslason,
að á tfmum vinstri stjórnar
ríkti hér algert stjórnleysi
í efnahagsmálum þjóðar-
innar og núverandi ríkis-
stjórn er enn að fást við
mörg vandamál, sem til
urðu á því tímabili. En
óneitanlega er það orðið
sprenghlægilegt, þegar AI-
þýðublaðið í forystugrein í
gær fylgir þessari hugsun
Gylfa eftir og heldur því
nú fram, að illa hafi gengið
við stjórn landsins síðustu
fimm árin vegna þess, að
Alþýðuflokkurinn hafi
ekki átt sæti í þeim tveim-
ur ríkisstjórnum sem setið
hafa þetta tímabil!!
Þannig segir Alþýðublað-
ið í forystugrein í gær um
Alþýðuflokkinh: „Með
brottför hans úr ríkis-
stjórn urðu kaflaskipti í ís-
lenzkri stjórnmálasögu.
Frá og með þeim degi end-
aði tímabil stöðugleika í
stjórnarfari í landinu,
tímabil öryggis, jafnra og
markvissra framfara og við
tók sá upplausnar- og rót-
leysistími, sem varað hefur
allt til þessa dags. Svo al-
ger urðu umskiptin þegar
áhrifa Alþýðuflokksins
hætti að gæta á stjórn
landsins.“ Svona staðhæf-
ingar eru náttúrlega stór-
kostlega fyndnar, ekki sízt
þegar þær koma frá stjórn-
málaflokki, sem hefur
haldið þannig á sínum
málum, að hann er óum-
deilanlega aumastur allra
stjórnmálaflokka á íslandi.
Sannleikurinn er sá, að
Alþýðuflokkurinn hefur
haft þýðingarmiklu hlut-
verki að gegna í íslenzkum
stjórnmálum en
hann virðist svo heillum
horfinn, að hið eina sem
flokkurinn hefur fram að
færa um þessar mundir er
einnantómt gaspur og gort
um eigið ágæti sem hins
vegar er því miður ekki
hægt að finna i verkum
hans nú um stundir. Vel-
unnurum Alþýðuflokksins
tekur sárt að fylgjast með
hnignun hans og eiga ekki
þá ósk betri Alþýðuflokkn-
um til handa, en að ein-
hverjir röskir menn taki til
hendi í þessum rústum
jafnaðarstefnunnar á ís-
landi og hefji það endur-
reisnarstarf sem dugar.
Magnús Magnússon rektor
við Edinborgarháskólann
Edinborg, 12. nóv.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
MAGNÚS Magnússon, hinn
þekkti blaða- og útvarpsmaður,
hefur verið kjörinn rektor Edin-
horgarháskúla. Kjörsðkn var
mjög mikil eða 55,54% og er það
um helmingi meiri þátttaka en
var í hliðstæðum kosningum fyrir
þremur árum. f Edinborgar-
háskóla eru við nám um tfu
þúsund nemendur. Magnús fékk
2.414 atkvæði, 683 fleiri en Alan
Drummond háskólanemi er hlaut
1761 atkv. Aðrir frambjóðendur
til starfans voru David Steel,
þingmaður Frjálslynda flokksins,
er hlaut 883 atkvæði, Barry Fan-
toni aðstoðarritstjóri er fékk 267
atkv. og Andrew Cruickshanks
leikari hlaut 75 atkv.
Síðustu sex ár hafa háskóla-
stúdentar verið kjörnir í stöðu
þessa: fyrstur var Jonathan Wills
en hann var fyrsti háskólaneminn
sem valinn var til slíkrar stöðu f
Skotlandi og sfðan Gordon Brown,
en kjörtímabilið er þrjú ár.
Rektor skólans er í forsæti á
fundum háskólaráðs þar sem
stefna skólans er mótuð. Siðustu
árin hefur það iðulega Ieitt til
nokkurra átaka við „kerfið“ að
háskólanemar hafa gegnt starf-
inu. Magnús Magnússon s'agði að
kjöri sínu loknu að stúdentar
hefðu áorkað miklu og mörgu
athyglisverðu komið til leiðar þau
sex ár sem þeir hefðu verið í
forsæti. Magnús kvaðst ekki telja
Magnús Magnússon
að niðurstaða kosninganna væri
vantraust á stjórnun stúdent-
anna, heldur hafi verið kominn
grundvöllur fyrir breytingum.
Sagðist Magnús myndu hlúa að
þeim árangri sem náðst hefði í
stjórnun skólans undir forsæti
stúdenta. Stúdentar munu nú
væntanlega fá þrjá fulltrúa f há-
skólaráði næsta kjörtímabilið.
I AP-skeytinu segir síðan:
„Magnús Magnússon er fæddur á
Islandi, en nam í Edinborg þar
sem faðir hans er ræðismaður ís-
lands. Hann lauk prófum frá Ox-
ford- og Edinborgarháskólum.
Hann segist ætla að hafa reglu-
lega fundi með námsmönnum við
hinar ýmsu deildir innan háskól-
ans. Dóttir Magnúsar nemur við
Edinborgarhásköla. Enda þótt
Magnús sé mjög störfum hlaðinn
við BBC mun hann verja að
minnsta kosti einum degi í viku
til að sinna rektorsskyldum sín-
um. Hann mun að sjálfsögðu vera
í forsæti á fundum háskólaráðsins
og telur að starf hans þar eigi að
einkennast af óhlutdrægni. Hann
getur tilnefnt annan fyrir sig til
að sitja fundi, ef hann kemur þvf
ekki við og mun hafa hug á að
varamaður hans verði úr röðum
háskólastúdenta. “
Viðræður
um Sahara
Madrid — 12. nóv. — Reuter — NTB.
VIÐRÆÐUR standa nú í
Madrid milli fulltrúa Spánar,
Marokkó og Máretaníu um
Spænsku Sahara. Fátt virðist
benda til þess að deiluaðilar
hafi tekið sinnaskiptum um
deiluatriði, og áreiðanlegar
heimildir úr stjórnarher-
búðunum í Madrid herma, að
hingað til hafi viðræðurnar
engan árangur borið. Aðal-
ágreiningsefnin eru sögð vera
hvaða hlutverki Sameinuðu
Framhald á bls. 18
Wallace gefur kost á
sér sem forsetaefni
Monlgomery, Alabama. 13. nóvember. AP Reuter.
George Wallace, ríkisstjóri Alabama, lýsti því
opinberlega yfir f dag að hann ætlaði aö keppa að
þvf að verða valinn forsctaframbjóðandi
demókrata f kosningunum á næsta ári.
Aðstoðarmenn hans segja að hann ætli að taka
þátt í öllum forkosningum fyrir flokksþingið næsta
sumar að einum undanskildum þótt hann sé í
hjólastól vegna lömunar.
Wallace kallaði sig „frambjóðanda flokksins" og
og sjálfur kvað Wallace sig nógu heilsugóðan til að
heyja virka kosningabaráttu, sagði að „venjulegir
miðstéttarborgarar" hefðu fengið sig fullsadda á
vinstriafstöðu frambjóðenda sem flokkurinn segði
þeim að kjósa.
Hann sagði að menn langt til vinstri hefðu náð
undirtökunum í flokknum og kvaðst ætla að berjast
fyrir breytingum á valdakerfi demókrataflokksins,
með „pólitískri byltingu".
„Við ætlum að bjóða millistéttinni frambjóðanda
sem hún getur greitt atkvæði með en ekki á móti,“
sagði Wallace.
Wallace
Efasemda gætir I garð Wallace
bæði vegna heilsu hans og stefnu
sem þó hefur breytzt sfðan hann
lýsti því yfir að hann mundi berj-
ast fyrir „ævarandi aðskilnaði
kynþáttanna“ 1963. Hann hefur
skipað blökkumenn bæjarstjóra
og í stöður í fylkisstjórninni.
Wallace bauð sig fram sem
óháður í forsetakosningunum
1968 og hafði áður reynt að verða
útnefndur forsetaframbjóðandi
demókrata. Hann vann mikla
sigra í forkosningunum 1972 en
varð að draga sig i hlé þegar reynt
var að ráða hann af dögum er
kosningabaráttan stóð sem hæst.
Margir forystumenn demókrata
eru eindregnir andstæðingar
Walláce en hann - segist vilja
treysta á vinsældir sínar með
kjósenda en ekki forystu flokks-
ins. I síðasta mánuði fór hann í
hálfs mánaðar ferðalag til
Evrópu, bæði til að kynna sér
utanríkismál og til að sýna að
lömunin væri honum ekki til
trafala.
Kosningahiti
í Ástralíu
Canberra — 12. nóv. — Reuter.
Með kveðju
frá Amin á
harmoníku
nairobi, 12. nóvember. AP.
IDI AMIN segist ætla að spila
á harmonfku f veizlu er hann
mun halda til að kveðja
sovézka sendiráðsmenn og
tækniráðunauta, sem eru á för-
Framhald á bls. 18
MALCOLM Fraser forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnarinnar,
sem Sir John Kerr landstjóri
skipaði f gær, er hann rak Gough
Whitlam úr forsætisráðherraem-
bætti, tilk.vnnti f dag, að kosning-
ar færu fram f Astralfu 13. des-
ember n.k.
I kjölfar þeirra sviptinga, sem
urðu með þessari ákvörðun for-
sætisráðherrans, hafa komið
harðar mótmælaaðgerðir og verk-
föll og sums staðar hefur komið
til uppþota. ÍSidney þustu um 200
verkamenn gegnum röð lögreglu-
manna, er voru á verði við kaup-
höllina þar, og inn í húsið. Nokk-
ur hundruð manns stóðu f öeirð-
um við þinghúsið í Nýja Suður-
Wales og særðist lögreglumaður
af grjótkasti í átökunum. Mikill
fjöldi fólks hefur staðið að mót-
mælaaðgerðum til stuðnings
Whitlam víðs vegar um landið i
dag. Flestir tóku þátt i slíkum
aðgerðum í Canberra, þar sem um
8 þúsund stuðningsmenn Verka-
mannaflokks Whitlams söfnuðust
utan við þinghúsið. Whitlam og
Bob Hawke, leiðtogi landssam-
taka verkalýðsins, ávörpuðu
mannfjöldann.