Morgunblaðið - 13.11.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
23
Áslaug Jónsdótt-
ir—Kveðja
legrar reynslu I skrifstofustörf-
um. Þá var Oddur Jónsson skrif-
stofustjóri hjá þessu stóra fyrir-
tæki, sem auk þess að hafa á
hendi allan rekstur Mjólkur-
stöðvarinnar við Hringbraut og
sölu á mjólkurvörum, rak víðtæka
fóðurvöruverslun ásamt nokkrum
matvöruverslunum víðsvegar um
bæinn, þar á meðal verslunina
Liverpool i Hafnarstræti 5. Sem
skrifstofustjóri hafði Oddur yfir-
stjórn á bókhaldi og fleiru hjá
öllum þessum fyrirtækjum, enda
var hann frábær stjórnandi og
bókhaldari.
Um þetta leyti var fjárhags-
kreppa ekkisíðurennú, Alþingis
hátíðinni árið áður fylgdu mikil
fjárútlát ekki síður en Þjóðhátið-
inni 1974, íslandsbanki var þá
nýbrunninn og unnið var að þvi
að koma Utvegsbankanum til
vegs og virðingar. Þar sem at-
vinnuleysi fór í hönd hefði verið
auðvelt fyrir M.R. að ráða sér
stúlku vana skrifstofustörfum, en
það var tekið á móti mér
viðvaningnum með velvild og mér
leiðbeint í starfi eftir þörfum.
Aldrei heyrði ég hnjóðsyrði i
garð starfsfólksins og ef við í bók-
haldsdeildinni gerðum einhverjar
villur, var aðeins spurt hvernig
bæri að Ieiðrétta þær, en á því
lærðum við meira en löngum að-
finnslum, enda gættum við okkar
þá betur framvegis. Ekki sá ég
skrifstofustjórann skipta skapi
nema ef afgreiðsla á vörum eða
öðru sem hann hafði lofað að
senda vissan dag gleymdist eða
fórst fyrir á einhvern annan hátt,
en slfkt gerðist ekki oft hjá sama
aðila.
Þá var venjuleg skrifstofuvinna
frá kl. 9 árdegis til kl. 6!4 að
kvöldi með klukkutíma matarhléi
til hádegisverðar og !ó klukku-
stund fyrir miðdagskaffi. Hjá
flestum fyrirtækjum vann starfs-
liðið eftirvinnu ef þörf krafði, en
fyrir slíka vinnu var ekki greitt
sérstaklega. Launin voru ekki há,
en samt voru allir glaðir og
ánægðir, kröfugerðir og óánægja
heyrðist hvergi. Samstarfið innan
skrifstofunnar hjá M.R. var með
ágætum og skrifstofustjórinn
virtur og dáður af öllum. Ég á
margar dýrmætar endurminning-
ar frá þessum dögum.
Oddur var tvikvæntur, með
fyrri konu sinni eignaðist hann
þrjár dætur, sem allar eru búsett-
ar hér í borg og gegna ábyrgðar-
sföðum. Árið 1938 kvæntist hann
siðari konu sinni Eyvöru Þor-
steinsdóttur mestu fríðleiks- og
myndarstúlku, eignuðust þau
þrjú börn: Jón sem er lögfræðing-
ur, Kristinu hjúkrunarkonu og
Mörtu sem er við stærðfræðinám f
Bandaríkjunum.
Á heimili þeirra að Grenimel 25
rikti gestrisni og góðvild. Þangað
var gott að koma.
Maðurinn hverfur sjónum
okkar en minningin varir, minn-
ing um drengskaparmann sem
helgaði Mjólkurfélagi Reykjavík-
ur ævistarf sitt og mat hag þess og
framtíðarheill meira en allt
annað, minning um góðan hús-
bónda og traustan vin.
Um leið og við hjónin þökkum
samfylgdina nú að leiðarlokum og
biðjum honum allrar blessunar á
ferð sinni til fyrirheitna landsins,
sendum við Eyvöru, börnunum
öllum og öðrum ástvinum innileg-
ar samúðarkveðjur.
Ilelga Magnúsdóttir.
KVEÐJUR
frá Mjólkurfélagi
Revkjavfkur
Þótt nú sé komið haust og vetur
að tímatali, rikir enn sumarveður
á okkar norðlæga landi. Þrátt
fyrir það verður ekki lögmálum
náttúrunnar breytt. Grös fölna
og eikur fella lauf og búast vetr-
arsvefni. Líkt er farið mannsæv-
inni, enginn fær umflúið ævinnar
haust, en allt líf heldur áfram.
Góðir menn, eins og jurtir og
blóm, láta eftir sig hin sterku
lífsfræ, sem blómstra, samtíð og
framtíð til hagsældar og ham-
ingju.
Einn af þessum góðu og traustu
mönnum var Oddur Jónsson, for-
stjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur,
árin 1946 til 1965 og fulltrúi hjá
félaginu var hann 1925 til 1945.
Starfstimi hans hjá félaginu var
þvi full fjörutíu ár.
Mjólkurfélag Reykjavíkur var
ungt að árum þegar Oddur réðst
til starfa hjá því, það er augljóst,
að maður með eins fastmótaðan
persónuleika og hann hefir verið
skapandi kraftur í uppbyggingu
og framþróun félagsins. Það er
viðurkennt af öllum, er til þekkja,
að Oddur hafi stjórnað félaginu
af miklum dugnaði og farsælum
hyggindum.
Mér er því ljúft og skylt, nú er
við kveðjum Odd Jónsson hinstu
kveðju jarðvistar hans, að flytja
alúðarþakkir í nafni Mjólkur-
félags Reykjavikur, fyrir hans
mikla og gifturika starf i þágu
félagsins. Fjölskyldu hans flyt ég
innilega samúð og óska henni far-
sældar.
Ólafur Andrésson.
Mjólkurfélagið kveður nú Odd
Jónsson, sem um fjörutíu ára
skeið starfaði fyrir félagið, af
miklum dugnaði og myndarskap.
Oddur tók við forstjórn félags-
ins í lok seinni heimsstyrjaldar.
Félagið var þá, eins og mörg önn-
ur fyrirtæki, illa statt fjárhags-
lega. Oddi tókst með sínum al-
kunna dugnaði og stjórnsemi að
koma félaginu aftur vel á legg og
leggja grunn að vexti og fram-
gangi, sem félagið hefur síðan
byggt sarfsemi sína á. Stjórnunar-
hæfileikar Odds voru alveg frá-
bærir, allt starf óg skipulag vel
vandað og til fyrirmyndar.
Áreiðanleiki og orðheldni voru
hans einkenni, svo og nákvæmni í
öllum störfum.
Á stríðsárunum var oft erfitt að
tryggja félagsmönnum þær vörur,
sem nauðsynlegar voru og veit ég
að þar lagði Oddur mikið á sig 'og
skipti því sem hægt var að miðla,
réttlátlega til Mjólkurfélags-
manna, en oft var þá vöruskortur
og vandamál að skipta réttlátlega
þvi sem til skiptanna var.
Ég átti þvi láni að fagna að
byggja á starfi Odds, er ég tók við
starfi hans og met ég mikils þau
ráð og leiðbeiningar er hann miðl-
aði mér af sinni ágætu og löngu
starfsreynslu.
Ég veit af kynnum minum við
Mjólkurfélagsmenn, að þeir
þakka Oddi hans ágætu störf, sem
hann innti af hendi fyrir félagið á
erfiðum tímum, með því að koma
félaginu á fastan og traustan
grundvöll, sem gerði Mjólkur-
félaginu kleift að stefna framávið
og byggja upp þá starfsemi, sem
nútiminn krefst.
Ég þakka Oddi Jónssyni okkar
ágætu samvinnu, þann tima sem
við unnum saman að málefnum
Mjólkurfélagsins og sendi fjöl-
skyldu hans minar innilegustu
samúðarkveðjur.
Leifur Guðmundsson.
Afmælis-
og
minningar-
greinar
ATIIYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
göðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast í sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðslætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.
Fréttum um að hún Áslaug
væri dáin kom eins og reiðarslag
yfir okkur öll. Hún, sem alltaf var
svo kát og innileg er allt í einu
horfin og kemur ekki aftur.
Áslaug hafði um langt árabil átt
við fátiðan sjúkdóm að striða. Við
gerðum okkur ekki grein fyrir
hversu alvarlegur hann var.
Ástæðan var ef til vill sú, að Ás-
laug talaði lítið um veikindi sin og
reyndi að láta sem minnst á þeim
bera, en hvar og hvenær sem aðr-
ir áttu i erfiðleikum var hún boð-
in og búin til hjálpar. Áslaug átti
við fleiri vandamál að stríða en
heilsuleysið. Hin bjargfasta trú
hennar á að hið góða í hverjum
einstaklingi sigri að lokum var
hennar leiðarljós i þeirri baráttu.
Heimili hennar og eftirlifandi
manns hennar var lítið en fallegt.
Þar mætti manni ætíð einstök
hlýja og góðviid, ekki síst þegar
börn áttu í hlut, enda var þar oft
gestkvæmt.
Áslaug var ein af þeim, sem
lifði fyrir að gleðja aðra.
Skilningur Hennar á vandamálum
annarra var einstakur, enda átti
hún marga vini sem leituðu til
hennar i raunum .sinum. Öllum
var það sameiginlegt sem á fund
hennar gengu, að koma frá henni
kátari og sælli með sjálfan sig og
sitt hlutskipti.
Söknuður okkar er mikill. Það
skarð sem höggvið hefur verið í
vinahóp okkar verður aldrei fyllt,
en þakklætið má ekki gleymast.
Þakklætið fyrir að kynnast
manneskju, sem tilbúin var að
fórna öllu sinu fyrir aðra.
Við viljum að lokum votta
Hilmari okkar dýpstu samúð svo
og börnum hennar, tengdabörn-
úm, barnabörnum og aðstandend-
um öllum. Að endingu viljum við
þakka fyrir allt sem Áslaug gerði
fyrir okkur og börnin okkar og
við reynum að hugga okkur við,
að nú hafi verið orðin þörf fyrir
gæði hennar annars staðar.
Kristrún og Danfel.
+
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir
MAGNÚS REYNIR JÓNSSON
rafmagnsverkfræðingur
Sundtaugavegi 18,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavik fösfudaginn 17.
nóvember kl 10.30.
Þeim sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Hjartavernd.
Gitte Jónsson
Marianne Magnúsdóttir, Reynir Magnússon
Kristjón Már Magnússon
Nanna Cortes.
MEKKA
Stórglæsileg ný skápasamstæða
með höfðingjasvip
Nýja skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar
hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og
glæsilegt útlit. Sérstök hillulýsing í kappa.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið
eftir plötuhillum, vín-og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og
hljómburðartæki, o.s.frv.
Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik í wengelit, sem gefur stofunni
höfðinglegan blæ. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir sérstaklega hagkvæmt
verð.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf,
Jón Loftsson hf.
Híbýlaprýði
Borgarnes: 1 Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Akureyri:
Húsavík:
Selfoss:
Keflavík:
Augsýn hf.
Hlynur sf.
Kjörhúsgögn
Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA