Morgunblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1975
29
VELVAKANDI
jVelvakandi svarar i síma 10-100
•kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Bjórinn
Henrik Jóhannesson, Norður-
götu 20, Sandgerði, skrifar á
þessa leið:
„Mikið hefur verið ritað um
bjórinn, hvað hann sé hættulegur
og mikill bölvaldur. Þeir, sem
skrifa mest um bjórinn eru á móti
honum í einu og öllu, en það er
lítið minnzt á brennivínið. Hvers
vegna? Vegna þess, að með til-
komu bjórsins mundi brennivíns-
salan minnka tii mikilla muna og
þar með prósentutalan, sem af
henni rennur til Góðtemplara-
reglunnar. Það er þetta, sem fyrir
þeim vakir, og ekkert annað.
Ég er sjálfur fæddur og uppal-
inn í landi, þar sem bjórinn
flokkaðist undir venjulegar gos-
drykkjavörur (Færeyjum). Þar
þarf ekki að greiða opinber gjöld
til að fá að drekka bjór, en það
þarf hins vegar að gera ef um
brennivín er að ræða.
Árni Helgason skrifar i Vel-
vakanda 30. október og segir þar
orðrétt:
„Þar kemur óreynd og líklega
saklaus 19 ára stúlka fram á rit-
völlinn til að dásama nytsemi
bjórsins á norska æsku.“ Háðið og
niðurlægingartónninn leyna sér
ekki í orðum hans. Hvað veit Árni
um norska æsku og hvenær fór
hann að bera annarra manna
erfiðleika fyrir brjósti? Siðar i
sömu grein segir Árni, að stúlkan
viti ekki hvað hún er að segja.
Hvílík skriffinnska! Hefur Árni
komið til Noregs og kynnt sér
málavexti þar? Ég held að hann
ætti að gera það heldur en að gera
lítið úr öðrum.
Ég tek í sama streng og
prófessorinn, sem taldi að allt
smygl og heimabrugg mundi
hverfa með tilkomu bjórsins, og
vona ég svo að fólk hætti að
vefengja aðra, sem betur vita og
hafa verið í þeim löndum þar sem
bjórinn er leyfður.
Það er enginn að mæla með
áfengisbölinu — síður en svo —
en bjórinn er hvorki skaðlegur né
bölvaldur sé hann rétt meðfarinn.
Fáir mundu gera það að gamni
sinu að fara oftar en einu sinni á
bjórfyllirí.
Fyrst íslendingar brugga bjór
fyrir aðra, hvers vegna geta þeir
þá ekki bruggað bjór fyrir sjálfa
sig?
Með fyrirfram þökk,
Henrik Jóhannesson."
0 Kína og Sovét
Húsmóðir skrifar:
„Það er bæði forvitnilegt og
fróðlegt að fylgjast með deilunum
milli Kína og Sovétríkjanna. Báð-
mig til að segja þér hvernig þetta
var . . . En ég vænti þess ekki að
þetta varpi neinu Ijósi á hinn
dularfulla dauða Arnes . . .
Ég var þó ekki jafnviss um það
og Hjördís. Eðlísávfsan mín sagði
mér að hver einasta vítneskja
sem við fengjum og beint eða
óbeint kæmi Arne við, hlyti að
verða til glöggvunar á málinu.
Þess vegna var ég ekki sein á mér
að skýra frá sögu Hjördfsar þegar
ég hitti eiginmann minn og
Christer Wijk. En áður en það var
höfðum við einnig fengið athygl-
isverðar upplýsingar um annan
nágranna kaupmannsins Arne
Sandclls.
Þegar leið á daginn hafði Einar
slitið sig lausan frá samverunni
með Barböru og við höfðum farið
f gönguferð saman. Nú var
himinninn grár og drungalegur
og þung ský hrönnuðust upp á
himninum. Um svipað leyti orfftór
að rökkva byrjaði að snjóa. Við
komum heim hress og endurnærð
eftir gönguferðina og þegar ég
hafði hrist af mér snjóinn
gengum við bæði inn f setustof-
ar þessar þjóðir meðtóku
evangeliúm Karls Marx, en það
varð að gerast með blóðugum
byltingum, sem lifa í sögunni, öll-
um til viðvörunnar. Aðrar þjóðir
sáu hættuna. Til að stjórna fólki,
sem öll mannréttindi voru tekin
af, þurfti vald, og hvernig átti það
vald að vera. Mennirnir eru mis-
jafnir og það, sem annar vill, kær-
ir annar sig ekkert um. Sjálfs-
ákvörðunarviljinn er manninum i
blóð borinn, því að annars væri
hann bara eins og dýr merkurinn-
ar sem lifa bara til að éta og
timgast.
Menn sáu strax, að mann-
réttindi og frelsi má ekki taka frá
fólki, en til að bæta kjör al-
mennings fékk verkamaðurinn
verkfallsrétt og síðan komu
félagsmálin, ellilífeyrir, örorku-
bætur, lifeyrissjóðir o.s.frv. Þann-
ig er þetta i hinum frjálsa heimi,
og i dag flýr enginn til Rússlands,
jafnvel ekki hinir heittrúuðustu
kommúnistar. Þeir halda sig á
Vesturlöndum, en skirrast ekki
við að gera allt sem Rússar biðja
þá um. Kína horfir með hryllingi
á það hvernig Rússar eru búnir að
gera mesta kornforðabúr Evrópu
að mesta vopnaframleiðslulandi í
heimi, og senda siðan vopn og
KGB-menn til annarra landa, sið-
ast til Portúgals. Bandarikjamenn
bjóða aftur á móti efnahagsaðstoð
og sýnist það bæði vera friðvæn-
legra og betra þegar Portúgal
verður líka að taka á móti sínu
fólki úr nýlendunum. Þess vegna
skamma Kinverjar Kissinger
fyrir kornsöluna til Rússlands.
Þegar nú marxistar bítast eins
og gaddhestar, er þá ekki hálf
hlálegt, að háskólastúdentar hér
uppi á íslandi skuli láta mann-
skapinn standa upp og syngja
Internasíónalinn 1. desember. Er
það vegna þess, að háskóla-
stúdentar eru svo reiðir út i
menntamálaráðherra, að 70
prósent greiða ekki atkvæði I
hátíðarnefndarkosningum og lofa
þannig þeim rauðu að gera 1.
desember að hallelújadegi fyrir
heimskommúnismann, fjórða árið
i röð?
Þetta er alltaf köld kveðja til
þjóðarinnar og svívirðing við
þennan merkilegasta dag íslenzku
þjóðarinnar. 17. júní er bara af-
kvæmi 1. desember 1918.
Húsmóðir.“
í sambandi við efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna við hin ýmsu lönd
annarsvegar, og vopnasendingar
Sovétríkjanna hins vegar, þá tek-
ur þó út yfir allan þjófabálk,
þegar amrisku hjálparpeningarn-
ir eru notaðir til að kaupa á vopn-
um frá Rússíá, eins og átt hefur
sér stað sums staðar, að því er
fróðir menn telja.
0 Umferð gangandi
fólks
Aðalheiður Erlendsdóttir hefur
beðið um að því sé komið á fram-
færi við rétta aðila, að tekin verði
upp gangbrautagæzla á horni
Suðurlandsbrautar og Reykja-
víkurvegar, þar sem slys séu þar
tíð.
Þá hringdi maður nokkur og
vildi koma því áleiðis, að sett yrði
gangbraut við viðkomustað
strætisvagna tnni^ við Klepps-
spitala. Hann sagði: „Það eru
ósköp að sjá fólk fara á bak við
strætisvagninn er það ætlar að
spitalanum. Þarna eru engin
varúðarmerki og Ijós eru aðeins
öðrum megin götunnar. Þá er
brýnt að grindverk verði sett við
gangstiginn upp að Viðihlíð, en
þarna er oft bæði hvasst og hált á
vetrum."
HOGNI HREKKVISI
Ég var að lesa gömul ástarbréf ykkar, fyrir Högna!
V2 nautaskrokkar
418 kr. kg.
Tilbúið í frystikistuna.
T. bone steik.
Yöar
að
velja
Innan lærisvöðvi
1 .1 00 kr. kg.
Opið föstudaga kl. 8 — 7
Opið laugardaga kl. 7 — 12.