Morgunblaðið - 20.11.1975, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÖVEMBER 1975
Görruil prentvél fundin
Talið að Björn Jónsson ritstjóri hafi
flutt hona inn um og eftir 1877
FUNDIZT hefur gömul prent-
vél í Tollstöðvarbyggingunni,
sem hefur verið I vörzlu toll-
gæzlunnar sfðan 1877 og er tal-
ið að hún hafi verið kevpt til
landsins af Birni Jónssvni, rit-
st jóra og ráðherra.
Hafsteinn Guðmundsson
hókaútgefandi, hefur skoðað
pressuna og telur að hún hafi
aldrei verið notuð. Hann álftur
að um sé að ræða svokallaða
raderingavél, djúpprentvél til
þess að prenta myndir, en Ifk-
legast hafi ekki verið unnt á
þessum tfma að fá plötur hér
innanlands og þvf hafi hún ef
til vill ekki verið nothæf.
Hreinsa á vélina og mun
Þjóðminjasafnið að öllum Ifk-
indum fá hana í hendur.
Ríkissjóður tekur 2,3
milljarða Arabalán
MATTHÍAS Á. Mathiesen
fjármálaráðherra, undir-
ritaði í gær lánssamninga
fyrir hönd ríkissjóðs um
lántöku á fjórum milljón-
um Kuwaitdínara, en and-
virði lánsins samsvarar
2.270 milljónum íslenzkra
króna. Lánið er tekið sam-
kvæmt lögum nr. 11 frá
1975 til endurláns innan-
lands vegna Fram-
kvæmdaáætlunar 1975,
m.a. til Framkvæmdasjóðs.
Lánið er til 7 ára og ber
8,75% vexti. Seðlabanki Is-
lands annaðist undirbún-
ing lántökunnar fyrir hönd
ríkissjóðs, en það er tekið
fyrir milligöngu Arab
Financial Consulants
Company A.S.K. í Kuwait
og First Boston A.G.,
Aþenu, sem er útibú the
First Boston Corporation í
New York.
Lánveitendur eru nokkr-
ir fjárfestingarbankar í
Kuwait og nokkrum öðrum
Miðausturlöndum.
Happdrættisskulda-
bréfin nær uppseld
I SlÐUSTU viku hófst sala á verð-
tryggðum happdrættisskulda-
bréfum ríkissjóðs, G-flokki, og
Samstarfsnefndin:
Hægt að ver ja landhelgina
— með aðstoð togara
NOKKUR félagasamtök f landinu
hafa komið sér saman um að
stofna Samstarfsnefnd um vcrnd
landheiginnar. Fyrir stofnun
nefndarinnar liggja tvær megin-
ástæður, sögðu fyrirsvarsmenn
hennar á fundi með blaðamönn-
um í gærmorgun. Önnur ástæðan
er hin alvarlega aðvörun, sem
fram kemur í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunarinnar um ástand
fiskstofnanna við landið. Hin er
sú staðreynd, að þrátt fyrir að-
varanir þær, sem fram koma f
skýrslunni, halda íslenzk stjórn-
völd áfram viðræðum við erlenda
aðila um hugsanlega undanþágu-
samninga við útlendinga um
áframhaldandi fiskveiðar f
fslenzkri fiskveiðilandhclgi.
Þau félög, sem standa að þess-
Skeiðklukku-
mælingar í
Reykjavík
LÖGREGLAN hóf skeið
klukkumælingar f höfuðborg-
inni f gærdag, en fram til
þessa hafa slfkar mælingar að-
eins farið fram utan borgar-
innar. Lögreglan hefur látið
mæla sérstaklega vegakafla á
Kringlumýrar- og Breiðholts-
braut og var með tilraunamæl-
ingar þar f gær, en engir bfl-
stjórar voru þá teknir. Hins
vegar byrjar lögreglan þessar
mælingar af fullum krafti f
vikunni og verður þá enginn
miskunn sýnd þeim sem
brjóta reglur um ökuhraða.
Að sögn Oskars Ólasonar yf-
irlögregluþjóns hafa 6456 kær-
ur verið gefnar út í Reykjavík
á þessu ári vegna umferðar-
lagabrota, og 6072 kærur
vegna rangstöðubrota, eða
samtals 12.528 kærur. Stöðu-
mælasektir skipta tugum þús-
unda. Þá hafa um 7000 árekstr-
askýrslur verið gefnar út það
sem af er árinu.
„Við munum áfram fylgjast
vel með umferðinni,“ sagði
Óskar Ólason yfirlögreglu-
þjónn við Mbl. „Við treystum
ökumönnum til þess að láta
okkur hafa sem minnst að
gera. Við erum ekki á eftir
þeningum þeirra heldur höf-
um við fyrst og fremst f huga
aukið öryggi í umferðinni."
ari samstarfsnefnd, eru: Alþýðu-
samband Islands, Sjómannasam-
band Islands, Verkamannasam-
band Islands, Farmanna- og fiski-
mannasamband Islands og Félag
áhugamanna um sjávarútvegs-
mál. Samstarfsnefndin hefur þeg-
ar átt viðræður við forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra og við
fulltrúa allra stjórnmálaflokka á
Alþingi. Nefndin hefur boðið öll-
um stjórnmálaflokkum þátttöku í
störfum sínum. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir hafa þegar tilnefnt
fulltrúa til samstarfs við nefnd-
ina, en svar var enn ókomið frá
stjórnarflokkunum f gærmorgun.
— Við höfum ekkert að bjóða
nema út úr munninum á okkur
sjálfum og stjórnvöld hafa þegar
látið í það skfna að þau geti sætt
sig við að útlendingar veiði alls
um 150 þús. tonn á Islandsmiðum
á næsta ári. Við álitum að ekki sé
mögulegt fyrir stjórnvöld á Is-
landi að marka neina stefnu í
friðunarmálum þegar þau vilja
jafnvel veita útlendingum allt að
40% af því sem veiða má við
landið, sagði einn af forsvars-
mönnum nefndarinnar á fundi
með blaðamönnum. x
Það kom fram, að samstarfs-
nefndin hefur sérstaklega kynnt.
sér álit hinna ýmsu skipstjórnar-
manna, þar á meðal skipstjóra
Landhelgisgæzlunnar, á vörnum
200 mílna fiskveiðilögsögunnar.
Fullkomlega væri hægt að verja
200 milna lögsöguna fyrir veiðum
útlendinga með þeim skipa- og
tækjakosti sem Landhelgisgæzlan
hafi nú og með viðbót nokkurra
stærri togara, sem Islendingar
eiga og ættu að geta sett til gæzlu-
starfa hvenær sem væri.
Samstarfsnefndarmenn sögðu,
að átelja yrði þá miklu leynd sem
átt hefði sér stað í sambandi við
þær samningaviðræður sem fram
hafa farið. Þjóðin hafi verið leynd
eðlilegum upplýsingum um mál-
efni, sem varða framtíðarafkomu
hennar. Fréttir af því, sem verið
hefur að gerazt I samningaviðræð-
um, hafi helzt borizt erlendis frá.
Jafntefli Englands
og Portúgals
Úrslit I tveimur leikjum Evrópu-
keppninnar I knattspyrnu I gær-
kvöldi:
England —Portúgal 1:1.
Wales — Austurríki 1:0
skal því, fé, sem inn kemur fyrir
söiu bréfanna, varið til varanlegr-
ar vegagerðar 1 landinu.
I G-flokki verða gefin út happ-
drættisskuldabréf, samtals að
fjárhæð 300 milljónir króna. Hef-
ur salan gengið mjög vel sem fyrr
og eru nú þegar um tveir þriðju
bréfanna seldir, en hvert bréf er
að fjárhæð tvö þúsund krónur.
Happdrættisskuldabréfin verða
endurgreidd handhafa að 10 ár-
um liðnum, ásamt verðbótum, í
hlutfalli við þá hækkun, sem
kann að verða á framfærsluvísi-
tölu á lánstímanum. Árleg fjár-
hæð happdrættisvinninga nemur
10% af heildarútgáfunni, og er
dregið um þá einu sinni á ári, nú
fyrst 23. jan. n.k. Alls verður
dregið 10 sinnum, en vinningar
hverju sinni eru 942 talsins, sam-
tals að fjárhæð 30 milljónir
króna.
Happdrættisskuldabréf rikis-
sjóðs eru undanþegin framtals-
skyldu og eignarsköttum, en vinn-
ingar svo og verðbætur undan-
þegnar tekjuskatti og tekjuút-
svari.
Seðlabanki Islands sér um út-
boð happdrættislánsins fyrir
hönd ríkissjóðs, en sölustaðir eru
bankar, bankaútibú og sparisjóðir
um land allt.
Samkvæmt upplýsing Stefáns
Framhald á bls. 20
Tapaði 200
þúsund
krónum
MAÐUR nokkur tilkynnti
rannsóknarlögreglunni I gær
að hann hefði I fyrrinótt tapað
seðiaveski með 200 þúsund
krónum, auk skilrfkja, ávfs-
anaheftis og bankabókar.
Maðurinn ætlaði i fyrra-
kvöld að greiða fyrrnefnda
upphæð vegna húsbyggingar,
sem hann stendur I. Einhverra
hluta vegna gat hann ekki
greitt peningana út og sneri
heim á leið. I leiðinni kom
hann við á Röðli. Þar hitti
hann mann nokkurn og að
loknu ballinu héldu þeir heim
til þessa manns, en hann bjó
annaðhvort í Efstasundi eða
Skipasundi. Áfengi var haft
um hönd. Milli klukkan 2 og 3 í
fyrrinótt fóru báðir þaðan i
leigubfl frá Hreyfli niður á
Hlemm og þar fór fjármagns-
eigandinn í annan bíl frá
'Hreyfli, Ijósan Benz. Með hon-
um ók hann heim til sín I
Grænuhlið og telur sig hafa þá
haft veskiðoggreittfyrir akst
urinn. Þegar hann svo vaknaði
í gærmorgun, fannst veskið
hvergi.
Nú eru það tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar að um-
ræddir leigubílstjórar hafi
samband við sig svo og maður
sá sem fjáreigandinn hitti á
Röðli. Þá eru allar upplýsingar
vel þegnar frá öðrum aðilum
sem telja sig geta veitt þær.
Veskið er svart og merkt Sam-
vinnubankanum.
Undirrituðu áskorunina um
lausn Kjarvalsstaðadeilunnar
EKKI hafa verið viðræður milli
borgaryfirvalda og listamanna
um skeið út af Kjarvalsstaða-
deilunni svonefndu, m.a. vegna
þess að helztu forsvarsmenn
beggja aðila hafa verið erlcndis.
Hins vegar er þess vænzt að
skriður fari að komast á
viðræðurnar á nýjan leik. Sem
kunnugt er undirrituðu yfir 40
þjóðkunnir menn áskorun til
borgaryfirvalda um skjóta lausn
deilunnar, og hefur Morgun-
blaðið nú aflað sér upplýsinga um
nöfn þeirra sem áskorunina und-
irrituðu:
Gunnar Gunnarsson skáld, E.
Ragnar Jónsson bókaútgefandi,
Gylfi Þ. Gíslason prófessor, fv.
menntamálaráðherra, Guðlaugur
Ræðismaður íslands í
Grimsby segir af sér
AÐALRÆÐISMAÐUR íslands
f Grimsby hefur 1 skevti til
íslenzka sendiherrans 1 London
sagt af sér vegna „stöðugrar
árcitni Islenzkra varðskipa við
brezka togara“ eins og það heit-
ir f skeytinu. J. Carl Ross, for-
stjóri Coal & Salt Ltd. f
Grimsby hefur gegnt starfi
aðalræðismanns Islands f
Grimsby frá þvf 1967 en milii
fyrirtækis hans og fslenzkra
aðila hefur verið náið
viðskiptasamband um margra
ára skeið.
Um aðgerðir íslenzku varð-
skipanna um helgina í þann
mund sem fundir viðræðu-
nefndanna íslenzku og brezku
voru að hefjast sagði Ross í
viðtali við blað f Grimsby: „Þau
hefðu ekki átt að gera þetta, og
þetta olli því að ég tók þessa
ákvörðun.“ Hann sendi síðan
skeyti þessa efnis til fslenzka
sendiherrans í London, og er
það svohljóðandi:
„Ég harma að þurfa að
tilkynna yður að vegna
aðstæðna sem nú ríkja á fiski-
miðunum get ég ekki haldið
áfram að gegna starfi aðalræðis
manns fyrir Island I Grimsby.
Þetta var heiðursstaða er ég
mat mikils í kjölfar mjög
ánægjulegra viðskiptatengsla
við land yðar um nær 40 ára
skeið. .
Ég verð hins vegar að
undirstrika það sérstaklega, að
umhyggja mín og samúð er með
brezku fiskimönnunum, sem
hafa verið vinir mínir og
félagar allan feril minn sem
kaupsýslumanns. Ég vil þakka
yður fyrir alla hjálp yðar og
skilning þau ár sem ég hef
gegnt þessu starfi en ég verð nú
að biðja yður að taka við afsögn
minni.“
Þorvaldsson háskólarektor,
Tómas Guðmundsson skáld, Árni
Kristjánsson píanóleikari, fv. tón-
listarstjóri Rfkisútvarps, Halldór
Laxness skáld, Magnús Magnús-
son prófessor, forstöðumaður
Raunvfsindastofnunar, Bragi
Hannesson bankastjóri, Rafn
Hafnfjörð prentsmiðjustjóri, Jón
Nordal tónskáld, skólastjóri Tón-
listarskólans , Jóhannes Nordal
dr., seðlabankastjóri, Kristján
Oddsson bankastjóri, Þórir Jóns-
son forstjóri, Sveinn Einarsson
þjóðleikhússtjóri, Jakob Bene-
diktsson dr., forstöðumaður Orða-
bókar Háskólans, Ingvar Gíslason
alþingismaður, Helgi Hafliðason,
formaður Listiðnar, Þórir Kr.
Þórðarson dr., prófessor, Hildur
Hákonardóttir, skólastjóri Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Katrín Briem, skólastjóri Mynd-
listaskólans, Hrafnhildur Tove
Kjarval leirmyndasmiður, Vigdís
Finnbogadóttir leiknússtjóri.
Jónas Kristjánsson dr., forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnús-
sonar, Auður Laxness Gljúfra-
steini, Gerður Hjörleifsdóttir, for-
stjóri Heimilisiðnaðarfélags
Islands, Gestur Ölafsson arkitekt,
Marta Thors, Tónlistardeild
Ríkisútvarpsins, Ólafur Ólafsson
læknir, Grenimel 38, Matthías
Johannessen skáld, ritstjóri
Morgunblaðsins, Erna Ragnars-
dóttir innanhússarkitekt, Hanni-
bal Valdimarsson fv. alþingis-
maður, Svava Jakobsdóttir
alþingismaður, Jón Hnefill Aðal-
Framhald á bls. 20