Morgunblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1975 13 Framhald á bls. 20 Við verðum að skrúfa fyrir — GOS! Albert Kemp: Hundaskammtur „Hmdenburg-slysið” í íslenzkri þýðingu BÓK Michael MacDonald Mooney um Hindenburg-slysið er komin út í íslenzkri þýðingu Hauks Agústssonar. Bókin fjallar um lokaþáttinn í sögu loftskipanna, seinustu ferð siðasta loftskipsins vestur yfir haf og hin skelfilegu endalok þess í New Jersey að kvöldi hins 6. mai 1937. Höfundur byrjar bók sína á því að rekja sögu Zeppelinloftskip- anna, hverfur svo að Hindenburg- farinu, lýsir nákvæmlega sein- ustu ferðinni og ýmsum af þvi fólki sem tók þátt í henni, bæði af áhöfn og úr hópi farþega. Siysinu er síðan nákvæmlega lýst þegar þessi glæsilegi farkostur leystist upp I logum á örskammri stundu og fjöldi manns fórst en aðrir slösuðust og urðu örkumla menn. Siðan er gerð grein fyrir eftir- kvæmdar, sem vafalaust hefði kostað einar 6 millj. kr., myndu verða til þess að seinka um ófyrir- sjáanlegan tima byggingu heilsu- gæslustöðvar. Þó rann þetta upp fyrir lækninum um síðir. Það var þá sem hann tók undirskrifta- sprettinn til þess að reyna að telja fólki trú um að hann væri hinn eini og sanni baráttumaður fyrir heilsugæslustöðinni. Auðvitað rituðu margir undir áskorun til yfirvalda um að hraða byggingu heilsugæslustöðvarinnar, en það voru þó enn fleiri hér heima, og í nærsveitum, sem bröstu að til- burðum læknisins. Ef hundaskammturinn hefði farið vel í unga manninn þá hefði hann vafalaust líka brosað að blaðaúrklippum læknisins og upphengingu þeirra i læknishúsi hreppsins. En skammturinn hefir verið alltof stór. Þess vegna hefir maðurinn allt á hornum sér út af því máli líka. llins vegar þarf hann ekki að gera sér frekari áhyggjur. Rétt yfirvöld sjá um að menn fái ekki alltaf að þjóna Iund sinni, ekkert frekar opinberir starfsmenn eins og Iæknar, frekar en aðrir. Ef læknirinn vill t.d. hengja þessa grein upp á vegg hjá sér er það meira en velkomið mín vegna og alla þá veggi sem honum sýnist. Hins vegar mun hann sennilega reka sig á þann vegg, sem reistur er til að koma í veg fyrir að menn misnoti aðstöðu sína eða hagi sér eins og hálfvitar á almannafæri. Það þarf að hugsa fyrir þvi i nýju heilsugæslustöðinni að hafa pláss fyrir sálfræðing. Slippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvogi Símar 33433og 33414 Einu sinni gáfu læknar mönnum lyfseðil sem nefndur var hundaskammtur. Læknirinn á Fá- skrúðsfirði hefir nú gefið ungum manni á staðnum einn slikan skammt. Og áhrifin láta ekki á sér standa. Þau má sjá í Morgunblað- inu 15. nóvember s.l. Svo áhrifa- mikill var skammturinn að neyt- andinn hefir alveg misst sjónar á aðalatriðum þess máls, sem hann er að burðast við að fjalla um. Aðalatriði málsins er það, að framan af ári barðist læknirinn okkar á hæl og hnakka fyrir þvi að kjallari læknisbústaðarins nýja yrði innréttaður sem heilsu- gæslustöð fyrir hreppana þrjá, Búðahrepp.Fáskrúðsfjarðarhrepp og Stöðvarhrepp. Flestum öðrum virtist augljóst, að fjárveitingar hins opinbera til þeirrar fram- Einar Júlíusson hjá bflnum á þaki Faxaskála. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.) Yfir 200 bílar ótollafgreiddir NÚ ERU alls um eða yfir 200 bifreiðar ótollafgreiddar I bíla- gevmslu Eimskipafélags tslands á þaki Faxaskáia. Ýmsir hafa lýst áhvggjum sínum vfir því hvernig að bifreiðunum er búið á þessum stað, þar eð særok gangi vfir bif- reiðarnar á þessum stað og þær sem lengst hafi þar staðið séu byrjaðar að ryðga niður. Að því er Einar Júlíusson, er hefur yfirumsjón með þessum ótollafgreiddu bifreiðum, tjáði Morgunblaðinu eru þetta ástæðu- lausar áhyggjur. Sagði Einar að flestar bifreiðarnar sem nú væru á þaki Faxaskála væru af nýjustu árgerð og aðeins örfáar væru frá eldri tíma, þvi að yfirleitt væri töluverð hreyfing á bifreiðunum á þessum stað, um 10—15 bif- reiðar væru afgreiddar flesta daga. Einar sagði ennfremur, að þótt bifreiðar hefðu staðið á þakinu i nokkurn tima, bæri ekki á ryði á þeim heldur væri ryðið að finna á gömlum notuðum bifreiðum, er fluttar hefðu verið til landsins og hefðu þær þegar verið byrjaðar að ryðga þegar hingað kom. Einar sagði, að þak Faxaskála væri tví- mælalaust bezta bílageymslan sem hér væri völ á, og allar stað- hæfingar um að bifreiðar, sem þar væru geymdar, færu verr en bifreiðar í öðrum útigeymslum, væru rangar — þvert á móti væri þak Faxaskála um margt skjól- betra en önnur geymslusvæði. Höfðingleg gjöf BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi frá Sjóði til rannsókna á dulsálarfræði: Sjóði til rannsókna i dulsálar- fræði hefur borizt höfðingleg gjöf til minningar um séra Svein Vik- ing. Gjöfin kr. 250.000,- er úr minningarsjóði séra Sveins Vik- ings, sem stofnaður var á sínum tíma af nemendum hans við Samvinnuskólann að Hreðavatni. Frumkvæðið að þessari ráðstöfun minningarsjóðsins átti frú Sigur- veig Gunnarsdóttir, ekkja séra Sveins Víkings. Gjöfinni verður varið til rannsókna á dulrænni reynslu af látnum, sem unnið er að í fram- haldi af könnun þeirri á dulrænni reynslu landsmanna, sem fram- kvæmd var á vegum Sálfræði- rannsókna Háskólans siðastliðinn vetur. Stjórn Sjóðs til rannsókna í dul- sálarfræði færir frú Sigurveigu og stjórn minningarsjóðs séra Sveins Vfking kærarþakkirfyrir þessa rausnarlegu gjöf. Einnig skulu kærar þakkir færðar ónefndum aðila, sem sendi kr. 100.000 inn á gíróreikning sjóðs- ins, sem er nr. 60600.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.